Vísir - 24.02.1981, Síða 4
4
Þrifijudagur 24. febrúar 1981
Hjartans þakkir
sendi ég þeim fjölmörgu vinum
mínum, sem glöddu mig með
margvíslegu móti á
níræðisafmæli mínu 15. þ.m.
INGIMAR JÓNSSON
fyrrv. skólastjóri.
Smurbrauðstofan
BJDRNINN
Njálsqdtu 49 — Sími 15105
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 58., 60. og 64. tbl. LögbirtingablaOs 1980 á
hluta i Sogavegi 105, þingl. cign llalldórs ólafssonar, fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik og Veð-
deildar Landsbankans á eigninni sjálfri fimmtudag 26.
febrúar 1981 kl. 15.15.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og sfðasta á hluta i Básenda 11, þingl. eign 11 jörleifs
Ilerbertssonar, fer fram efrir kröfu tijaldheimtunnar i
Reykjavik, Ingólfs Hjartarsonar hdl. og Sigurðar Sigur-
jónssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudag 26. febrúar
1981 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annaðog síðasta á hluta i Þórsgötu 15, talinni eign önnu E.
Viggósdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i
Reykjavik og Útvegsbanka tslands á eigninni sjálfri
fimmtudag 26. febrúar 1981 kl. 11.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta i Búðargerði 8, talinni eign Þor-
valdar G. Blöndal, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i
Reykjavik á eigninni sjálfri fimmtudag 26. febrúar 1981 kl.
16.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 58., 60. og 64. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á
Hæðargarði 5, talinni eign Erlendar H. Borgþórssonar, fer
fram eftir kröfu Benedikts Sigurðssonar hdl. á eigninni
sjálfri fimmtudag 26. febrúar 1981 kl. 14.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annaðog siðasta á hluta I Vitastig 3, þingl. eign Venus hf.,
fer fram eftir kröfu Tollstjórans i Reykjavik, Kristins
Björnssonar hdl., Útvegsbanka Islands og Gjaldheimt-
unnar i Reykjavik, á eigninni sjálfri fimmtudag 26.
febrúar 1981 kl. 11.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 61., 67. og 69. tbl. Lögbirtingablaös 1980 á
eigninni Markarflöt 35, Garöakaupstað, þingl. eign Péturs
Ó. Þorsteinssonar,fer fram eftir kröfu Garöakaupstaðar
og Ingólfs Hjartarsonar, hdl., á eigninni sjálfri föstudag
27. febrúar 1981 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Garöakaupstað.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 86., 91. og 96. tbl. Lögbirtingablaös 1979 á
eigninni Dalshraun 9, hluti, Hafnarfirði, þingl. eign Hilm-
ars Sigurþórssonar, fer fram eftir kröfu Iðnlánasjóðs á
eigninni sjálfri föstudaginn 27. febrúar 1981 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn i Hafnarfiröi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 34., 36. og 40. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á
eigninni Arnartangi 9, Mosfellshreppi, þingl. eign Sveins
Gislasonar, fer fram eftir kröfu Landsbanka tslands,
Sigurmars K. Albertssonar, hdl., og Skúla J. Pálmasonar
hrl., á eigninni sjálfri föstudag 27. febrúar 1981 kl. 16.00.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
VÍSIR
Eftir byltinguna iNicaragúa og fall Somoza-stjórnarinnar biöu menn átekta þess, hvert Sandinistar og
byltingarstjórnin mundi stefna. Nú hefur komið á daginn, að þaö er æ meira til vinstri róttækni undir
vaxandi áhrifum Kúbu.
Vinstra jafnvægí
Nicaragua
Atburðir siðasta mán-
aðar i E1 Salvador hafa
komið Nicaragua i
vanda. Sandinistar, sem
nú sitja þar að völdum
eftir að hafa sigrast á
Somoza-einræðisstjórn-
inni i borgarastriðinu
fyrir tveim árum, höfðu
reynt einskonar jafn-
vægislist á linu með
Sovétrikin og Kúbu á
aðra hönd, en Bandarik-
in á hina. Nú þykir orðið
hallast iskyggilega á.
Með þvi að reyna að gæta þess,
að stjórn landsins fengi ekki of
kommúniskan svip, vildu hinir
nýju valdamenn gefa báðum stór-,
veldunum undir fótinn, eða að
minnsta kosti hvorugt styggja, og
færa sér i nyt velvild þeirra og að-
stoð við að byggja hið margrúna
og arðrænda þjóðfélag upp að
nýju. Hver moli, sem til þeirra
hrökk, var vel þeginn og veitti
ekki af.
Víðtækara
áfall
En sókn skæruliða og þjóðfrels-
ishreyfingarmanna i E1 Salvador
i siðasta mánuði endaði ekki að-
eins i afhroði fyrir stjórnarand-
stæðingana i E1 Salvador, heldur
setti hún jafnframt stórt strik i
reikninginn fyrir Nicaragúa.
Sandinistastjórnin kann að neyð-
ast til að hætta sinum likindalát-
um og sýna sinn rétta lit. Annað
hvort draga hinn rauða sósialiska
fána sinn aö hún og opinbera til
fulls samstöðu sina með Kúbu og
Svoétmönnum, eða veita hinum
hófsamari öflum i landinu meiri
áhrif og itök við stjórn landsins og
stefnumótun.
Um leið heyrist frá Suður-Ame-
riku.að það séu ekki aðeins Sand-
inistar i Nicaragua, sem vilji taka
til endurskoðunar afstöðu sina til
þjóðfrelsishreyfingarinnar i E1
Salvador. Stjórnir annarra ná-
grannarikja eru sagðar orðnar
efins i, hversu rétt sé að styðja að
fullu marxistana, sem mestu
ráða i þjóðfrelsishreyfingu E1
Salvador. Sérstaklega á það við
um sósialdemókrata. i Costa
Rica hefur flokkur sósialdemó-
krata, sem er næststærsti stjórn-
málaflokkurinn þar i landi (með
aðeins 2 þingsætum færri en
stjórnarflokkurinn) lýst þvi opin-
berlega yfir, að hann muni ekki
skilyrðislaust slást i lið með öðr-
um sósialistum til stuðnings þeim
i E1 Salvador.
Guðntundur
Pétursson,
fréttastjóri
erlendra
frétta.
Má segja, að þessar efasemdir
sæki þvi sterkar að pólitiskum
samherjum þeirra i E1 Salvador,
eftir þvi sem samherjarnir búa
þeim nær. Það þarf kannski ekki
að undrast slikt svo mikið. Þeir
sem næst búa hafa bestar upplýs-
ingarnar og vita gleggst bæði að-
stæður i E1 Salvador og eins um
þau áhrif, sem stuðningur við
annan hvorn aðilann hefur i öðr-
um nágrannalöndum.
Kúbanska
handbragðið
Það er einkum tvennt, sem
vakiö hefur umhugsun i Suöur-
Amerikulöndum eftir misheppn-
aða byltingu vinstrimanna i E1
Salvador.
I fyrsta lagi rann sóknin ekki
aðeins svo til strax út i sandinn.
Hún hreif ekki þjóðina með sér,
eins og vænt hafði verið. Þvi
spyrja nágrannarnir, hvort
vinstrimenn eigi i raun svo mikil
itök i alþýðunni, eins og áður var
haldiö.
1 öðru lagi fullyrða Bandarikja-
menn, að þeir hafi öruggar sann-
anir fyrir þvi, að skæruliðarnir i
E1 Salvador hafi notað kúbönsk
og sovésk vopn, sem þeir hafi
fengið frá Nicaragúa. Banda-
rikjamenn halda þvi einnig fram,
að skæruliðar E1 Salvador hafi
notiö þjálfunar i Nicaragúa. Jafn-
vel er þvi haldið fram, að um 200
Kúbumenn hafi barist með
skæruliðum.
Þessum siðustu fullyrðingum
sinum hefur Bandarikjastjórn
fylgt eftir meb þvi að hætta efna-
hagsaðstoð sinni við Nicaragúa.
Þetta blásnauða riki munar um
slikan búhnykk. Um er að ræða
afganginn af 75 milljóna dollara
láni, sem samþykkt var i fyrra,
eða 15 milljónir. Carterstjórnin
hafði raunar boðið Nicaragúa i
fyrra 50 milljóna dollara viðbót-
arlán á árinu 1981, en það fékkst
ekki samþykkt i Bandarikjaþingi.
Sandinistar i Nicaragúa hafa
borið af sér þessar ásakanir
Bandarikjamanna um að þeir sjái
skæruliðum i E1 Salvador fyrir
vopnum og þjálfun. Um leið hefur
þó stjórn Sandinista lagt að þjóð-
frelsishreyfingunni i E1 Salvador
að reyna að ná fram pólitiskri
lausn á deilunum i staðinn fyrir
að stefna að byltingu og hernað-
arlegum sigri yfir herforingja-
stjórninni, sem Bandarikjastjórn
styður.
Sjálfir í
gierhúsí
Sandinistar hafa gilda ástæðu
til þess að hafa áhyggjur af mál-
inu. Heima i Nicaragúa vex óhug-
ur hinna hófsamari, sem unnu að
byltingunni gegn Somoza-stjórn-
inni, af þvi hve landið hallast æ
meir til Kúbu og Sovétmanna.
Þaö er sagt að um 2000 kúbanskir
ráðgjafar séu nú starfandi i heil-
brigðis- og skólakefi Nicaragúa
og annar eins fjöldi viö herinn,
landbúnaðinn og fjarskiptakerfið.
Sovéskum ráðgjöfum hefur fækk-
að, en þeir hafa aðallega verið við
námaiönaðinn og skógarhöggið.
— Sandinistum er ljóst, að þjálfun
skæruliðasveita er leikur, sem
fleiri geta leikið, og gangi þeir of
langt, mundu nágrannar þeirra
alveg eins geta veitt stjórnarand-
stöðu i Nicaragúa slika aðstoð.
Meö tilkomu Reagansstjórnar-
innar i Washington, sem boðar
harðari stefnu gegn útþenslu
kommúnismans, þykir ekki lik-
legt, að stórveldið i norðri muni
liða Kúbumönnum, málaliðum
Moskvu, að vaða uppi i Suður-
Ameriku með sambærilegum
hætti og þeir hafa gert i Afriku.
Enda ólikt hægara við að bregða
svo að segja rétt við bæjardyrnar,
heldur en i hinni fjarlægu Afriku.
Sandinistar sitja ekki of tryggir
i valdastólunum og mega vel
ugga að sér, ef þeir fá ekki bætt
ástandið i efnahagsmálunum. Og
það verður ekki auðveldara við
þab að missa til frambúðar efna-
hagsaðstoð Bandarikjanna.