Vísir - 24.02.1981, Page 6
6
Þriðjudagur 24. febrúar 1981
VlSIR
Njáll Eysteinsson, T.B.E.,sigraði I einliðaleik f hnokkaflokki.
Allir karl-
mennirnir
fðru frá KA
SPENNANDI HJA ÞEIM
YNGSTU í BADMINTON
Nú um helgina var islandsmót
unglinga i' badminton haldið i
Laugardalshöllinni. Keppendur
voru 132 frá 9 félögum, og voru
leiknir um 185 leikir i mótinu. Úr-
slit urðu sem hér segir:
Hnokkar-tátur:
Njáll Eysteinsson TBR sigraði
Pétur Lentz TBR 11/2 og 11/8.
Ása Pálsddttir 1A sigraði
Guðrúnu Gfsladóttur 1A 6/11, 11/7
og 11/8.
Garðar Adolfsson TBR og Njáll
Eysteinsson TBR sigruöu Þórhall
Jónsson og Sigurð Harðarson 1A
15/9 og 15/9. Asa Pálsdóttir og
Kolbrún óttarsdóttir Umf.
Skallagr. sigruðu Hafdisi Böð-
varsdóttur 1A og Guðrúnu Gisla-
dóttur 1A 11/15, 15/7 og 15/12.
Þórhallur Jónsson og Asa
Pálsdóttir 1A sigruðu Sigurð
Harðarson og Guörúnu Gisla-
dóttur 1A 15/4 og 15/5.
Sveinar-meyiar:
Arni Þór Hallgrimsson 1A sigr-
aði Ingólf Helgason 1A 11/7 og
12/10.
Guðrún Júliusdóttir TBR
sigraði Astu Siguröardóttur 1A
11/2 og 11/0.
Ingólfur Helgason og Arni Þór
Hallgrimsson 1A sigruöu Snorra
Ingvarsson og Ólaf Asgrimsson
TBR 15/1 og 15/3.
Guðrún Júliusdóttir og Helga
Þórisdóttir TBR sigruðú Ástu
Sigurðardóttur og Mariu Finn-
bogadóttur IA 14/18, 15/7 og 18/17.
Ingólfur Helgason og Maria
Finnbogadóttir 1A sigruðu Árna
Þór Hallgrimsson og Ástu Sig-
urðardóttur IA 15/9, 7/15 og 15/7.
Drengir-telpur:
Pétur Hjálmtýsson TBR sigraði
Indriða Bjömsson TBR 8/15,
18/15 og 15/7.
Þördi's Edwald TBR sigraði
Ingu Kjartansdóttur TBR 12/11
og 11/2.
Indriði Bjömsson og Pétur
Hjálmtýsson TBR sigruðu Ólaf
Ingþórsson TBR og Þórö Sveins-
son TBR 15/9 og 15/9.
Elisabet Þórðardóttir og Elin
Helena Bjarnadóttir TBR sigruðu
Ingu Kjartansdóttur og Þórdisi
Edwald TBR 17/16 og 15/3.
Indriði Björnsson og Þórdis
Edwald TBR sigruðu Þórhall
Ingason og Ingunni Viðarsdóttur
ÍA 15/12 og 18/13.
Piltar-stúlkur.
Þorsteinn Páll Hængsson TBR
sigraði Þorgeir Jóhannsson TBR
15/8 og 15/4.
Laufey Sigurðardóttir IA sigr-
aði Bryndisi Hilmarsdóttur TBR
11/3 og 11/2.
Þorsteinn Páll Hængsson og
Ari Edwald TBR sigruðu Gunnar
Björnsson og Þorgeir Jóhannsson
TBR 9/15, 15/12 og 15/12.
Laufey Sigurðardóttir 1A og
Bryndi's Hilmarsdóttir TBR sigr-
Þróttarar komust áfram I bik-
arkeppninni i blaki meö sigri yfir
2. deildarliði Vestmannaeyja i
Eyjum á föstudagskvöldiö.
Þeir sigruðu i fyrstu hrinunni
MILLER
ÞENAR
MEST
Johnny Miller kom sér i efsta
sætið á peningaverðlaunalistan-
um i atvinnumannakeppninni I
golfi i Bandarikjunum meö sigri i
Glen Campell golfkeppninni, sem
haldin var i Los Angeles og lauk
um helgina.
Miller, sem var einnig sigur-
vegari i öðru stórmóti i siðasta
mánuði, lék 72 holurnar i þessu
móti á 270 höggum, sem er 14
höggum undir pari. Annar varð
Tom Weiskopp á 272 höggum og
siöan þeir Miller Barber og Gail
Morgan á 273 höggum... —klp—
uöu Þórunni óskarsdóttur KR og
Ingunni Viðarsdóttur IA 5/15, 15/4
og 15/7.
Gunnar Björnsson TBR og
Elfsabet Þóröardóttir TBR sigr-
uðu Ara Edwald TBR og Þórunni
óskarsdóttur KR 15/12, 11/15 og
15/9.
TBR hlaut flesta meistara i
þessu móti eða 21, ÍA var með 11
og UMFS fékk einn meistara,
sem mun vera þeirra fyrsti i Is-
landsmóti i þessari iþróttagrein.
15:4 en i þeirri næstu fóru
Vestmannaeyingar á fulla ferð og
sigruðu 15:13. Þeir komust siðan i
14:10 i þriðju hrinunni og fór þá
heldur betur að fara um Þróttar-
ana. En landsliðsmaðurinn
þeirra, Leifur Haröarson tók þá
af skarið og sendi sex uppgjafir i
röð yfir á eyjaskeggja, sem þeir
réðu ekki við. Með þvi hafði
Þróttur sigur 16:14. Allt púður
var úr Vestmannaeyingum við
þetta mótlæti og þeir tlpuðu sið-
ustu hrinunni 15:6 og þar með
leiknum 3:1.
Vestmannaeyingarnir hefndu
fyrir þetta með að sigra b-lið
Þróttar 3:0 i 2. deildinni á sunnu-
daginn, 15:12, 15:5 og 15:6. Bæði
Þróttur b og IBV eru örugg með
sæti i úrslitakeppninni i 2. deild-
inni, en þar er leikið i tveim riðl-
um og komast tvö liö úr hvorum
riðli i þá keppni. I hinum riölin-
um, Norðurlands- og Austur-
landsriöli, er aftur á móti allt opið
upp á gátt. Þar eru fjögur lið,
Bjarmi, UMSE, IMA og Þróttur,
Neskaupstað, og er vonlaust að
segja til um það á þessu stigi
hvaða tvö lið komast þaðan i úr-
slitin... ,, -
—klp—
EYJASKEGGJAR
HEFNDU SÍN A
VARALIÐINU
- eftir að aðaliið Þróttar hatði slegið Da út
í Dikarkeppninni i biaki
- og bjálfarinn fór um áramótin
yfir tii umse
KA á Akureyri hefur undanfarin ár verið með
geysisterkt frjálsiþróttalið og það m.a. átt öruggt
sæti i 1. deildinni i Bikarkeppni FRI. Nú er hætt viö,
að það sæti fjúki i sumar, þvi að KA hefur nú á
nokkrum vikum misstallar sinar stjörnur til annarra
félaga.
Þau, sem drifu frjálsiþróttadeild KA upp á sinum
tima, voru þau hjónin Jón Sævar Þórðarson og Ing-
unn Einarsdóttir. Jón Sævar hætti hjá KA um ára-
mótin og hefur tekið við þjálfun frjálsíþróttafólks
UMSE, en þar er mjög efnilegt fólk aðfinna.
Við spurðum Jón Sævar, af hverju hann hefði hætt
hjá KA og þvi þessi mikli flótti hafi verið frá félaginu
i haust. „Það var sjálfgert, aö við hættum. Forráða-
menn KA hugsuðu einfaldlega ekki nógu hátt. Þeir
sáu litið annað en fótbolta og handbolta, og það kom
niður á frjálsiþróttafólki þeirra” sagði hann.
— Hvað hafa margir hætt hjá KA nú í haust?
,,Það má segja, aö það sé allt karlaliðið eins og það
leggur sig. Þeir Hjörtur Gislason, Oddur Sigurðsson
og Jón Oddsson fóru allir yfir i KR. Vésteinn Haf-
steinsson fór yfir i sitt gamla félag, HSK, Egill Eiðs-
son yfir i ÚIA og Aðalsteinn Bernharðsson gekk til
liðs viö UMSE.”
— Hvað er þá eftir af afreksfólki í frjálsum hjá KA?
„Þaðer heldur fátt,. Ekkert eftir af karlmönnum i
fremstu röð. og aðeins örfáar stúlkur. Unglingastarf
er i gangi hjá KA og sér Ingunn um það. Er vonandi
að það lognist ekki lika útaf vegna áhugaleysis.en sú
hætta er alltaf fyrir hendi, þegar þjálfarinn og fé-
lagarnir finna, að þeir sem ráða hafa engan eöa tak-
markaðan áhuga fyrir þvi, sem þeir eru að gera”.....
-klp-
Jóni Sævar Þórðarson, frjálsiþróttaþjálfari KA, I fremstu röö til vinstri, ásamt afreksfólki slnu á frjáls-
Iþróttasviðinu. En nú er vald KA-liðsins undir lok liöiö, þvf að allir afreksmenn félagsins og Jón Sævar
aö auki, hafa yfirgefiö þaö...