Vísir - 24.02.1981, Side 12
Þriðjudagur 24. febrúar 1981
vism
Sigurður DemetzFranzson söngvari, söngkennari og leiðsögumaður er einnig á heimavelli I eldhúsinu slnu I Breiðholtinu. Um leiö og krydd-
kornin falla i Minestronesúpuna og GuIIashið, fuku hæstu tónar arlunnar sem hannsöng yfir pottunum, út um eldhúsgluggann.
Askorandi siðustu viku, Hrafnhildur Helgadóttir.meinatæknir er á litlu innfelldu myndinni. Vísismynd/GVA
i ASKORANIR UM
! UPPSKRIFTIR
■ Góa er gengin i garð, og Sigurður Demetz Franzson með suðrænar
, mataruppskriftir. Hrafnhildur Helgadóttir, meinatæknir á Landakotsspit-
I ala og fyrrverandi hótelstjóri, áskorandi siðustu viku, skoraði á söngkenn-
| arann og leiðsögumanninn Sigurð Demetz og hér er hann mættur. ttalska
| grænmetissúpan Minestrone er heimsfræg, óhætt að setja súpuna I sama
. sæti og spaghetti á frægðarlistanum. Þvi ætti okkur að vera mikill fengur I
I tilsögn Sigurðar við þennan þjóðarrétt ítala. Gúllasch er réttur sem breytir
| um svip eftir Jöndum og þjóðum, Sigurður mun rekja gúllashuppskrift slna
| til Tyrol...
Næsti áskorandi, Walter Ferúa Jónsson,sem býr vestur á Seltjarnarnesi,
undirbýr góða uppskrift fyrir þriðjudaginn þriðja mars, sem mun vist vera
| sprengidagur okkar íslendinga.
MINESTRONE
ítölsk grænmetissúpa
Þeir sem eitthvað þekkja til á
Italiu eða hafa heyrt af matar-
gerð i þvi landi, kannast eflaust
við MINESTRONE. Nú langar
mig til að segja ykkur hvernig
ég bý þessa ljúffengu súpu til,
og hvað á að setja i hana:
Við getum notað allar fáan-
legar grænmetistegundir, sem
dæmi get ég nefnt gulrætur, ag-
úrkur, púrrur, lauk, blómkál,
hvitkál, selleri, tómata, kartöfl-
ur, nýja papriku, hvitar baunir
og fleira og fleira. Með græn-
metinu þurfum við salt, pipar og
súputeninga (Honig), Bertolli
olivuoliu eða Mazzola
mataroliu, italian seasoning og
litlar Maccaroni.
Þá er komið að þvi að búa til
grænmetissúpuna: Hvitar
baunir fást i verslun N.L.F.I.,
þær verðum við að láta liggja i
köldu vatni i einn sólarhring. I
vantið með baununum á að setja
örlitinn matarsóda.
Allt hitt grænmetið, sem við
höfum við hendina, skerum við
niður og látum úti þrjá litra af
köidu vatni, og látum suðuna
koma upp. Óg þegar farið er að
sjóða i öllu saman, setjum við
baunirnar úti.
Eftir að baunirnar eru
komnar saman við, látum við
suðuna koma upp aftur, minnk-
um þá hitann og látum súpuna
malla við hægan hita i tvær
klukkustundir. Hrærum vel i
öðru hverju og setjum litlar
—ÞG
maccaroni i súpuna 10 minút-
um áður en suðu lýkur. Þið
kryddið bara eftir smekk.
Þegar súpan er vel soðin eftir
tvær klukkustundir veiðum við
kartöflurnar upp úr. Við stöpp-
um kartöflurnar vel i mauk og
setjum þærsiðanaftur i súpuna.
Þegar súpan er borin fram,
má setja rifinn ost yfir hvern
disk ef vill.
GÚLLASCH FRÁ
TÝROL
1 kg nauta- kálfa- eða folalda-
kjöt
1/2 dós af heilum niðurskoðnum
tómötum (Cirio)
65 g tómatpureé (Cirio)
2/4 kg lauk
100 g smjör
50 g olivuolia (Bertolii) eða
matarolia Mazzola
rauð paprika
pipar,
salt
rauðvin
(Chianti Antinori eða Ruffino)
Fyrst hitum við smjör og oliu i
potti. Setjum finskorinn lauk úti,
látum hann gulna (ekki brún-
ast). Þá setjum við kjötið úti,
(kjötið skorið i hæfilega bita).
Kryddið með papriku, pipar og
salti. Við látum þetta krauma
smástund, svo að kjötið
„drekki” vel i sig lauk og
kryddbragðið. Svo látum við
heila tómatana úti og tómat-
kraftinn (purré). Hellum 1 1/2
glasi af þurru rauðvini (Chianti
Antinori eða Ruffino) yfir allt.
Bætum við 1 glasi af heitu vatni.
Látum suðuna koma upp og
siðan minnkum hitann á
minnsta straum og látum
krauma i 2-3 klukkustundir i
pottinum. Gott, þétt lok verður
að vera á pottinum. Ámeðan
þetta mallar verðum við að
fylgjast vel með og hræra stöku
sinnum i. Týrol-gullasch borð-
um við svo með soðnum kartöfl-
um eða hrisgrjónum.
Skálum svo með afganginum
af rauðvininu.
Það siðasta. sem mér ber að
gera i þessari áskorun er að
skora á arftaka fyrir næstkom-
andi þriðjudag. Fyrir valinu
verður Walter Ferúa Jónsson,
sem fæddur er i sama landi og
ég, ítaliu, en er nú búsettur á
litla lága nesinu, sem þið kallið
Seltjarnarnes.
A meðan sauö i pottunum, sett-
ist Sigurður Demetz inni stofu,
tók gitarinn i fangiö, og stillti
saman strengi og rödd.
„A von a
Uvi aO
frumvarp
tll barna-
laga verðl
sampykkl
innan
mánaðar”
- sagðl Jósef H.
Þorgelrsson
alpingismaður
,,Ég á fastlega von á
þvl að þetta frumvarp
verði afgreitt I neðri
deild I þessari viku,”
sagði Jósef H. Þorgeirs-
son alþingismaður I við-
tali við VIsi, er hann var
spurður um hið nýja
frumvarp til barnalaga.
Jósef er einn nefndar-
manna er sæti átti i als-
herjarnefiid sem f jallaði
um frumvarpið og
nýlega hefur skilað
breytingartillögum.
„Breytingartillögurnar hafa
verið samþykktar. Þegar frum-
varpið verður afgreitt hér i neðri
deild, fer það til efri deildar. Þar
verður það að sjálfsögðu skoðað
vel, en ef að likum lætur verður
þetta afgreitt innan mánaðar. Ég
hef ekki heyrt um neinn ágreining
um þetta frumvarp, enginn and-
stæðingur þess hefur enn kvatt
sér hljdðs”, sagði Jósef.
Breytingatillögurnar við frum-
varpið til barnalaga voru flestar i
samræmi við nýju trygginga-
lögin. En ein breytingartillaga
varöandi framfærsluskyldu
barna hefur breyst i meðförum
allsherjarnefndar á þessa leið.
Hér er um 17. gr. að ræða sem
hljóðar svo:
Framfærsluskyldu lýkur, er
barn verður 18 ára. Skyldu til
greiðslu meðlags lýkur fyrir þann
tima, ef barn giftist, nema valds-
maður ákveði annað. Framlag til
menntunar eða starfsþjalfunar
barns er heimilt að ákveða allt til
þess að bam nær 24 ára aldri. —
Breytingartillaga nefndarinnar
við 17. gr. — 1 stað orðanna ,,er
barn nær 24 ára aldri” komi
orðin” er barn nær 20 ára aldri. —
Jósef H. Þorgeirsson alþingis-
maður var spurður hvað lægi að
baki þessarar breytingartiliögu.
„Hugsunin að baki þessarar 17.
greinar frumvarpsins, er sú aö
þegar barn hefur náð tvitugs-
aldri, og er enn i námi, mun það
eiga kost á námsláni. Með þetta i
huga var aldurstakmark lækkað
úr 24 ára aldri i 20 ára aldur.
Þetta frumvarp hefur nú verið
nokkuð lengihériþinginu, en eins
og ég sagði fyrr, vona ég að það
hljóti endanlega afgreiðslu innan
tiðar. En það ber að athuga að
verði frumvarpið samþykkt nú,
taka bamalögin samt ekki gildi
fyrr en 1. janúar 1982”, sagði
alþingismaðurinn Jósef H. Þor-
geirsson.
—ÞG
Umsjón:
Þórunn
Gestsdóttir.