Vísir - 24.02.1981, Side 13
Þriðjudagur 24. febrúar 1981
Kynsjúkdómatilfellum
fjölgar ört:
Breyn kyn-
lifshegðan
helsta
skýrlngin
Samkvæmt upplýsingum landlæknisembættisins
hefur kynsjúkadómatilfellum á fslandi fjölgað
gifurlega á siðasta áratug og er nú nýgengi
lekandasjúkdómsins hér svipað og á hinum
Norðurlöndunum.
Þetta kom fram á fundi heilbrigðisyfirvalda með
blaðamönnum, en fljótlega fer af stað kynningar-
starfsemi i skólum, á vinnustöðum og i fjölmiðlum
á þáttum varðandi hina auknu tiðni kynsjúkdóma.
Af töflu um tiðni kynsjúkdóma á fslandi má sjá, að
kynsjúkdómar eru tiðastir hjá fólki á aldrinum
15—24 ára, en aldurinn allt til 34 ára er einnig nokk-
uð gjarn á að fá sýkingu. Þannig voru um 510 tilfelli
hjá þessum aldurshópum árið 1977, af 531 tilfellum
alls.
1 töflunni kemur einnig fram,
að ekki eru það lengur sjómenn,
sem helst bera kynsjúkdóma.
Stærsti hópurinn eru námsmenn,
og eru lekandatilfelli i þeim hópi
32,6% tilvika. Þá kemur verka-
fólk með 18,7%, en sjómenn og
opinberir starfsmenn hafa svipað
hlutfall sýkingartilfella. Hér ber
þó að athuga, að tilfelli hvers
hóps eru hvergi yfir 100, svo að
prósentumælingin er einungis til
grófs samanburðar. Lekandasýk-
ing virðist ekki vera bundin stétt-
um.
Taflan, sem dregin hefur verið
um lekandatilfelli, nær frá árun-
um 1955 til 1979 en frá 1959 er
Island á mikilli sókn upp á við og
meðal annars komið upp fyrir
menningarlöndin Bretland,
Finnland, Kanada Danmörku og
Pólland. Ofar standa Bandarikin
og Sviþjóð.
Á fundi með blaðamönnum
voru mættir m.a. sérfræðingar i
kynsjúkdómum, en samkvæmt
mati þeirra var hægt að benda á
fá dæmi, sem augljóslega væru
orsakavaldar i aukinni sýkingu,
nema ef vera kynni breytt
kynlifshegðun fólks, samfara
aukinni notkun pillunnar, sem
getnaðarvarna i stað smokksins,
sem er ein besta vörnin i þessum
efnum fyrir karla og konur.
Aukning lekanda i
Norður-Evrópu og Bandarikjun-
um hefur helst verið skýrð með
tiðari skiptum á rekkjunaut,
auknum fólksflutningum
almennt, auknu viðnámi lekanda-
bakteriunnar gegn sýklalyfjum,
minnkandi notkun smokks,
hettu-krema og aukinni notkun
annarra getnaðarvarna. 1 Sviþjóð
hefur náðst að minnka sýkingar-
tilfelli mjög og það þakka menn
helst aukinni sölu smokka úr 35
milljónum i 50 milljónir á ári,
betra eftirliti, færri rekkjunaut-
um á hvern sýktan og auknum
vilja til að leita meðferðar vegna
hentugri lyfja.
Heilbrigðisyfirvöld hafa i sam-
ráði við skólalækni , heilbrigðis-
stéttir um allt land og læknanema
ákveðið að hefja kynningu á
þessu mikla vandamáli, sem
kynsjúkdómar eru og þeim
mörgu hættum, er þeir geta skap-
að varðandi heilsu fólks og
fósturs þeirrar konu er ber
sjúkdóminn. Þar verður sérstök
áhersla lögð á einkenni
sjúkdómsins og notkun
gúmmiverja, auk almennrar
kynningar á vandamálinu i máli
og myndum.
Þótt kynsjúkdómatilfelli hér
séu á.hátindi 1978, ber þó að
nefna, að samkvæmt upplýsing-
um Hannesar Þ. Þórarinssonar
kynsjúkdómasérfræðings virðist
tiðni þessara sjúkdóma vera
aðeins á niðurleið frá 1978.
‘.5 56 5? 60 01 M ' €5 6é 07 «8 03 70 7! 72 73 74 75 76
Á töflu þessari um tlöni lekandatilfeila á hverja 100 þúsund ibúa má
sjá, hvernig tsland hefur komið upp meðal menningarþjóða frá þvi að
vera með iægstu tiðni tilfelia. Nú eru aðeins Sviþjóð og Bandarikin með
hærritlðni.
VtSIR
OHIOINAL
HuscHam
Stærstu framleiðendur heims á
baðkiefum og baðhurðum allskonar
Gódir
greidsluskilmálar
•
Upplýsingar:
Byggingarþjónustan
lönaðarmannahúsiö
v/ Hallveigarstig.
og Söluumboóinu:
Kr. Þorvaldsson
Et Co.
Grettisgötu 6.
Simar 24478 & 24730
kv,k^Saðk>
er komföjrt
Fœst í öllum kvikmyndahúsum borgarinnor bókobúðum og sjoppum.