Vísir - 24.02.1981, Qupperneq 19
Bobby velur sér afvikna staöi og blöur eftir aö á hann veröi ráöist.
Sá harð-
asti í
löggunni
— Lögreglumaðurinn Bobby Hurst
hefur mátt þola ýmislegt
Lögreglumaöurinn Bobby Hurst hefur veriö stunginn, skotinn, kyrkt-
ur og menn hafa kveikt i honum auk þess sem hann hefur margsinnis
verið barinn i höfuöið meö lurkum, rörum, stólfótum og jafnvel frosn-
um makril.
En Bobby Hurst þolir þetta allt
saman og svo mikið orð fer af
óvenjulegri seiglu hans, að menn
kalla hann i alvöru „harðgerð-
ustu lögguna i Ameriku”.
Hurst er 41 árs gamall og i sjón
virðist hann ekki maður mikill að
likamsburðum. Hann er 178 cm á
hæð og vegur 80 kg en krafturinn
sem i honum býr er með ólikind-
um og þá einkum hæfileikinn til
að þola illa meðferö. Leikslokin
eru enda oftast á sama veg, —
Hurst stendur einn uppi en
þrjótarnir liggja handjárnaöir i
valnum. Á ferli sinum i lögregl-
unni hefur hann handtekið 1500
þrjóta sem er 98% árangur sam-
kvæmt skýrslum lögreglunnar i
Filadelfiu, þar sem hann starfar.
Hurst hafði aldrei ætlað sér að
verða lögreglumaður þar til dag
einn er hann varð vitni að þvi, að
þrir dólgar réðust á gamla konu
úti á götu, börðu hana til óbóta og
rændu hana. begar þeir höfðu
lokið sér af stóð Hurst álengdar
og skammaðist sin fyrir að hafa
ekkert gert til að hjálpa konunni.
„Ég sór að aldrei aftur myndi
ég standa aðgerðarlaus og horfa
upp á slikt”, — segir hann. — „Þá
ákvað ég að ganga i lögregluna og
min sérgrein er að eiga við götu-
ræningjana, sem ráðast á varnar-
laust fólk á götum úti. Gamalt
fölk er varnarlaust gegn þessum
götuglæpum en þar sem ég get
gert eitthvað i málinu lit ég svo á
að mér beri skylda til þess.
Arangurinn hefur verið það góður
að það vegur vel upp á móti þeirri
meðferð sem ég hef oröið fyrir i
þessu starfi”, — segir Hurst.
Fjöiskyldufaöirinn Bobby Hurst I faömi fjölskyldunnar
Bobby Hurst fer út á göturnar
dulbúinn sem venjulegur borgari.
Bobby sýnir hluta þeirra vopna
sem notuð hafa verið til árása á
hann.
Umsjón:
Sveinn
Guöjónsson
HRISTINGUR
Dolly fyr-
ir forseta
Dolly Parton, ein skærasta stjarna banda-
risks skemmtiiðnaðar um þessar mundir, hef-
ur lýst þvi yfir að hún hyggist gefa kost á sér i
embætti forseta Bandarikjanna i kosningunum
1984. Dolly hóf feril sinn sem dreifbýlissöng-
kona og naut gifurlegra vinsælda sem slik en
nú hefur hún snúið sér að kvikmyndaleik og
hefur hún fengið mjög góða dóma fyrir leik
sinn i þeim tveimur myndum sem hún hefur
leikið i.c Velgengni fyrrum „kollega” hennar
Reagans, hefur sjálfsagt ýtt undir ákvörðun
stjörnunnar og vist er að hún hefur þó eitt fram
yfir forsetann, — en það eru leikhæfileikar...