Vísir - 19.03.1981, Side 2
Fimmtudagur 19. mars 1981
Heldur þú að heims-
meistarakeppnin i skák
verði háð hér á landi?
Kristinn Ingvarsson, bóndi:
Ég vona það, það væri skemmti-
legt.
Helgi Jónsson, nemi:
Ég veit ekki, já. Það væri gaman.
Guðmundur Björnsson, bóndi:
Ég hef ekkert vit á þessu og veit
ekkert um það.
Arni Gunnarsson, iæknir:
Alveg eins. Það eru nokkuð góðar
likur til þess.
Haukur Jónsson, bifvélavirki:
Ég veit það ekki. Það er heldur
liklegt.
vism
l—mm m mmmm m mm m m m m mmwmmm* m m mmm m m m m — _ áaa m m m ■
^hugl á n
ingum mér í Dlóö ttorinn”
Rætt við Einar Loga Einarsson tormann Náttúrulækningatéiags Reykiavikur
„Ahugi minn á náttúruiækning-
um er mér eiginiega i blóð borinn
og frá þvi ég man eftir mér hef ég
veriö i nánum tengslum við
grasalækningar,” sagði Einar
Logi Einarsson, formaöur Nátt-
úrulækningafélags Reykjavikur, i
samtali við Vísi.
Einar Logi er fæddur i Reykja-
vik 1952, sonur hjónanna Einars
Jónssonar vélstjóra og konu hans
Astu Erlingsdóttur, grasalæknis,
en hún er af hinni svokölluðu
grasaætt, úr Skaftafellssýslun-
um. EinarLogi starfar hjá Ernin-
um.
„Það var fyrir um 10 árum aö
ég byrjaði að læra grasalækning-
ar fyrir alvöru af móður minni,
sem nam af föður sinum Erlingi
og hann aftur hjá móður sinni
Þórunni Gisladóttur, og svo
áfram, en grasalækningar hafa
alla tiö verið mikiö áhugamál
móöurættar minnar. Svo strax og
ég fór að hafa áhuga á nokkru,
hneigðist hann i þessa átt,” sagði
Einar Logi.
— En hvernær fórstu svo að
starfa fyrir Náttúrulækninga-
félagið?
„Það var fyrst sumarið ’75, þá
var ég ráöinn austur að Heilsu-
hælinu i Hveragerði i timabundna
vinnu við að safna tejurtum og
bjó til mismunandi teblöndur fyr-
ir hælið. Um það leyti gekk ég i
félagiö. Það var þó ekki fyrr en
’77, að ég fór að skipta mér af fé-
Einar Logi Einarsson, formaður
Náttúrulækningafélags Reykja-
vikur. Þau mistök urðu hér i blaö-
inu i fyrradag i viðtali við þennan
sama Einar Loga, að birt var
mynd af alnafna hans hljóm-
listarmanni og rithöfundi, en hér
kemur rétt mynd.
lagsmálum innan félagsins, og
var siöan kosinn i stjórn á þeim
margfræga aðalfundi félagsins
’79. Frá þeim tima hef ég starfað
sem formaður félagsins.”
— Nú er aðalfundur félagsins i
kvöld, hyggst þú bjóða þig fram
til endurkjörs?
„Nei, ég mun ekki gefa kost á
mér aftur.”
— Hver er ástæða þess?
„Hún er fyrst og fremst sú, að
mér finnst félagið afskaplega
þungt i vöfum enda gamalt og
rótgróið, en ekki það að ég hafi
ekki áhuga Iengur..
Náttúrulækningafélagið er
stofnað til að vekja athygli á og
bindast samtökum um framgang
náttúrulækningastefnunnar, ef
svo má að orði komast. Reyndin
hefur hins vegar orðið sú, að
starfsemin hefur snúist um
ákveðnar framkvæmdir, eins og
byggingu Heilsuhælisins, sem er
einskonar þungamiöja starfsemi
félagsins. Ég er ekki ánægður
með, hvernig Heilsuhælið i
Hveragerðihefurþróast. Hælið er
i dag nánast geymslustofnun fyrir
sjúkrahúsakerfið. Heilsuhælið
hefur þvi verið rekið sem hvildar-
heimili, fremur en markvisst
náttúrulækningahæli.”
— Hafa umsvif félagsins aukist
frá þvi þú hófst að starfa með
þvi?
„Umsvif félagsins hafa alla tið
snúist i kringum rekstur ákveð-
inna fyrirtækja, eins og Matstof-
unnar að Laugavegi og Heilsu-
hælisins og þeirra fasteigna, sem
þessu tengjast. Félagslega hliðin
'hefur gegnum árin verið mjög
vanrækt og það hefur ekki breyst
undanfarin tvö ár. Það hefur að
visu verið aukiö við útgáfustarf-
semi og útivistarstarfsemi en á
kostnaö félagsfunda, enda má
segja að félagsfundirnir sem slik-
ir voru farnir að virka mjög frá-
hrindandi þvi yfirleitt loguðu þeir
alltaf I illdeilum.”
— Er fólk opið fyrir félagi eins
og þessu eða er það bara sérviska
að ganga i svona félag?
„Það má segja kannski að það
flokkist undir sérvisku að ganga i
félag, sem i rauninni skilar ekki
miklum árangri út á við, annað en
aö velta áfram þvi kerfi, er komið
hefur verið á i sambandi viö
Heilsuhælið og það er mjög já-
kvætt svo langt sem það nær.
Hins vegar hefur áhugi á heilsu-
samlegu mataræði og lifnaðar-
háttum aukist mjög, hvort sem
það er þessu félagi að þakka eöa
einhverju öðru. Mér finnst þó
persónulega, að félaginu hafi ekki
tekist að verða það leiðandi afl i
þeirri áhugavakningu, sem orðið
hefur á þessu sviði.”
— En að lokum Einar Logi,
hvað gerir þú i fristundunum?
„Það má segja, að Náttúru-
lækningafélagið hafi tekið allar
minar fristundir undanfarin tvö
ár, en min áhugamál liggja nú
svona frekar á sérsviðum innan
þessa sviðs, eins og grasalækn-
ingum, sagði Einar Logi Einars-
son.
—KÞ
að ræöa.skal ckki giskað
á hér. Vegir himnaföður-
ins geta vist verið ó-
rannsakanlegir.
Hiönarifrildl
Þau hjónin höfðu rifist
ofsalega, eins og gerst
getur á bestu bæjum. Og
hvorugt vildi láta undan.
„Þú ert nú svo hjólbein-
ótt, að svin gæti hæglega
stokkið á milli fótanna á
þér”, hvæsti húsbondinn.
„Jæja”, sagði frúin
meö iskulda I röddinni,
„Stökktu þá”.
Beðið á meðan
McDonald hafði boöið
konunni sinni út að borða.
Hann pantaöi eina buff-
sneið, og bað um borð-
búnað fyrir tvo. Þegar
þjónninn kom með mat-
inn, skipti McDonald
buffinu i tvennt, setti
annan bitann á disk konu
sinnar, cn byrjaöi sjálfur
aö boröa hinn. Konan sat
hins vegar með hcndur i
skauti og hafðist ekki að.
„Er eitthvað að, frú?”,
spurði þjónninn áhyggju-
fullur. „IJst yöur ef til vill
ekki á matinn?”
,,Jú, jú”, svaraði frú
McDonald, ,.ég er bara að
biða meöan maðurinn
minn notar fölsku tenn-
urnar”.
Töskuheildsoi-
um Ijölgar
Mikið hefur verið am-
ast við crlendum tösku-
heildsölum hér á landi,
sém vonlegt er. Þykja
þeir hinir verstu vágest-
ir, en'ekki hefur þó veriö
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
blaðamaöur skrifar:
Tllvlllun?
Enn cinn stóratburöinn
I þjóðlifinu ber upp á af-
mælisdag Þorsteins. Hinn
siöasti var allsherjar-
vinnustöðvun ASI i fyrra.
Margumræddur lands-
fundur Sjálfstæðisflokks-
ins veröur haldinn I
haust, eins og hefur kom-
ið framog hefst hann 29.
október. Vill svo til aö
setningardaginn ber upp
á afmælisdag Þorsteins
Pálssonar framkvæmda-
stjóra Vinnuveitenda-
sambands islands. Vist
hefur Þorsteinn verið
orðaður við ónefnd
trúnaöarstörf innan Sjálf-
stæðisflokksins, en hvort
þarna er um hreina til-
viljun, eða eitthvaöannaö
hægt að stemma stigu við
ásókn þcirra hingaö.
Mun nú hafa brugðiö
svo við að feröum þeirra
hingað til lands hefur
fjölgað verulega að
undanförnu. Astæðan er
sú, að Flugleiðir bjóða nú
upp á ódýrar helgarferðir
frá Norðurlöndunum. Sáu
töskuheildsalarnir fljótt,
að þarna var gott tæki-
færi tilaðslá tvær flugur i
einu höggi, þ.e. að ferðast
ódýrt og gera góðan
„bisness”. Þvi segir sag-
an að þeir flykkist hingað
til lands frá Norðurlönd-
unum og hamist á smá-
sölum hér allar helgar,
hinum siðarnefndu til
mikillar armæðu.
Fulllrúl
mennlamáia-
ráðherra
A dögunum var tveim
islenskum blaðamönnum
Menntamálaráöherra
komst ekki til Búlgarlu á
tilsettum tima...
.. svo Atli Magnússon
varð sérlegur fulltrúi
hans, alveg óvænt.
boðiö til Búlgariu, i tilefni
13*0 ára afmælis
búlgarska rikisins. Voru
þaö þeir Atli Magnússon
blaðamaður á Tfmanum
og Baidur öskarsson á
Þjóðviljanum. Kristinn
Finnbogason sá uni
skipulagningu og fram-
kvæmd ferðarinnar.
Var fyrirhugað aö
Ingvar Gislason mennta-
málaráðljerra yrði með i
förinni, cn af óviðráðan-
legum ástæðum komst
hann ekki á tilsettum
tima. Segir sagan, að
Búlgariumenn hafi tekiö
blaðamönnunum meö
kostum og kynjum, eink-
um þó Atla. Mun það ein-
hvern veginn hafa komist
inn i kollana á þeim að
hann væri sérlegur full-
trui menntamála ráð-
hcrra og báru þeir hann á
höndum sér meðan á
dvölinni stóð. Er ekki aö
efa að Alti hafi staðið sig
vel íþessunýja og óvænta
„stykki", enda maður
víðlesinn og fróður.
Gott hjá
Guðmundl
Svo viröist sem vcður-
fræðingarnir hjá sjón-
varpinu hafi tekið þá
stefnu að lifga svolitið
upp á flutning veður-
fregna og er það vel. Það
er orðið æ algengara að
þeir viki aðeins af braut-
um veðurfræðinnar og
spjalli svolitið við þá sent
heima sitja, i upphafi
timans.
Trúlega cr Trausti
Jónsson upphafsmaður
aö þessari nýbreytni, en
fleiri hafa fetað I fótspor
hans. Til dæmis vakti það
athygli, aö Guðmundur
Hafsteinsson, (sem menn
voru að hafa áhyggjur af,
vegna þess að hann fékkst
aldrei til, að bjóða gott
kvöld) brá undir sig betri
fætinum i fréttatimanum
i fyrrakvöld. Hafði hann
þá yfir samtal. sem sagt
er að Sæmundur fróði hafi
átt við Ljóta kallinn. Er
vonandi að Guðmundur
og þeir hinir sjái ástæðu
til að halda áfram á þess-
ari braut.
Trausti hefur gengið á
undan með góðu fordæmi
Iog hresst verulega upp á
veröurfregnatimana.