Morgunblaðið - 02.01.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 1. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Hinn íslenski
Robertino
Heillaði landann með fagurri drengjarödd
fyrir fjörutíu árum Daglegt líf
Nýársávarp forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar
Áramótaávarp Davíðs Oddssonar forsætisráðherra
Nýársávarp biskups Íslands, Karls Sigurbjörnssonar
SÍÐUSTU tólf mánuði jókst sala á kjöti um
6,7% en kjötframleiðsla var 5,8% meiri en ár-
ið 2002. Þetta kemur fram á heimasíðu
Bændasamtakanna. Kindakjöt heldur stöðu
sinni sem mest selda kjöttegundin (tæp 29%)
en svínakjöt kemur næst (tæp 28%) og ali-
fuglakjöt (tæp 27%). Samsetning kjötmark-
aðarins hefur breyst mikið síðustu misseri en
fyrir fimm árum var markaðshlutdeild
kindakjöts 40% og alifuglakjöts 15% svo
dæmi séu tekin.
Kindakjöt vinsælast
DANSKI samgöngu-
ráðherrann, Flemming
Hansen, sagði það í gær
„afar slæma hugmynd“ að
ætla að setja vopnaða ör-
yggisverði í flugvélar, líkt
og Bandaríkjastjórn hefur
boðað að verði gerð krafa
um í flugvélum sem fljúga
til Bandaríkjanna. Hansen lýsti sig reiðubú-
inn til viðræðna við bandaríska embætt-
ismenn um hvernig mætti efla öryggis-
viðbúnað í flugstöðvum en ætlar ekki að
heimila vopnaða öryggisverði í dönskum
flugvélum. „Skotbardagi milli þessara örygg-
isvarða og flugræningja í tíu þúsund metra
hæð er ekki sérlega skemmtileg tilhugsun,“
sagði Hansen í viðtali við Politiken.
Vill ekki vopnaða
verði í flugvélar
Kaupmannahöfn. AFP.
DOROTHY Fletcher, sem er 67 ára bresk
kona, fékk nýverið hjartaáfall er hún var í
flugvél á leiðinni frá Bretlandi til Bandaríkj-
anna. Fletcher getur engu að síður talist
heppin því þegar leitað var til farþeganna í
flugvélinni um aðstoð kom í ljós að í farþega-
hópnum voru alls fimmtán hjartasérfræð-
ingar. Voru þeir á leið á ráðstefnu í Flórída.
Fletcher, sem býr í Liverpool, segir
læknana ábyrga fyrir því að hún skuli enn
vera á lífi. „Ég var illa haldin en þeir voru
fljótir að koma mér til aðstoðar,“ segir
Fletcher, sem nú er á batavegi.
Heppinn flugfarþegi
London. AP.
ÁRIÐ 2004 byrjar vel hvað
snertir íslenska kvik-
myndagerð. Á nýársdag
voru tvær íslenskar kvik-
myndir frumsýndar,
Kaldaljós, mynd Hilmars
Oddssonar gerð eftir sam-
nefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur, og
Opinberun Hannesar í leikstjórn Hrafns
Gunnlaugssonar sem gerð er eftir smásögu
Davíðs Oddssonar. Gagnrýnendur Morg-
unblaðsins fjalla í dag um þessar myndir auk
Áramótaskaups Ríkissjónvarpsins./Fólk
Bíóárið byrjar vel
Frá og með deginum í dag, 2. jan-
úar, hækka hámarkslán Íbúða-
lánasjóðs vegna nýrra íbúða úr 9
milljónum í 9,7 milljónir og há-
markslán vegna notaðra íbúða
hækka úr 8 millj. kr. í 9,2 milljónir.
Leiðir til lækkandi vaxta
Árni Magnússon félagsmála-
ráðherra greindi frá ákvörðunum
um þessar breytingar á gamlárs-
dag. Árni segir að með breyting-
unum á útlánum Íbúðalánasjóðs
næsta sumar verði til stórir
skuldabréfaflokkar, sem ættu að
geta leitt til lækkandi vaxta þegar
fram í sækir. „Húsbréfakerfið hef-
ur þjónað okkur vel og hefur m.a.
byggt upp kjarnann í verðbréfa-
markaði okkar en á því er sá galli
að menn hafa ekki alveg vitað
hvað þeir eru með í höndunum,
áhættuna af afföllunum eins og við
þekkjum,“ segir Árni.
Uppgreiðsla lána takmörkuð
Í tillögum nefndar um endur-
skipulagningu á verðbréfaútgáfu
Íbúðalánasjóðs, sem breytingarn-
ar eru byggðar á, segir að þær
muni hafa víðtæk áhrif. Vextir af
útlánum Íbúðalánasjóðs verða
ákvarðaðir eftir hvert útboð og
verða þar af leiðandi mismunandi
á milli tímabila. Jafnframt verður
heimild lántakenda til uppgreiðslu
fasteignaveðlána þrengd þannig
að uppgreiðsla verður aðeins
heimiluð gegn greiðslu þóknunar.
Guðjón Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka banka og
verðbréfafyrirtækja, fagnar
breytingunum og segir að kerfið
verði mun sambærilegra alþjóð-
legum skuldabréfamörkuðum en
verið hefur.
Peningar leysa
húsbréf af hólmi
HÚSBRÉFAKERFIÐ verður aflagt 1. júlí næstkomandi og lán
Íbúðalánasjóðs verða þá framvegis í formi peningalána, sem grund-
völluð verða á íbúðabréfum, sem fjármögnuð verða með útboði.
Verða afföll og yfirverð á bréfunum þannig úr sögunni við lántöku,
þar sem greiðslan til lántakenda mun ávallt taka mið af þeim kjör-
um sem þegar hafa verið ákvörðuð eftir síðasta útboð. Lántakendur
munu fá peninga strax í hendur í stað þess að fá í hendur húsbréf
sem þeir þurfa síðan að koma í verð.
Húsnæðislánum breytt/6
Ólafssonar og á bókhaldi og skatt-
skilum nokkurra lögaðila sem
hann tengist í febrúar árið 2002.
Tók rannsóknin til tekjuáranna
1996 til og með 2001. Lögmaður
Jóns skilaði andmælum við niður-
stöðu skattrannsóknastjóra sem
ranga og órökstudda í byrjun síð-
asta árs.
Rannsókn skattrannsókna-
stjóra á meintum skattalagabrot-
um Jóns lauk í byrjun vetrar og
var embætti ríkisskattstjóra þá
sent málið til ákvörðunar.
Jón H. Snorrason á von á að rann-
sóknin verði mjög umfangsmikil
miðað við umfang málsins. „Ég tel
víst að þetta verði umfangsmesta
rannsókn í ætluðu skattsvikamáli
til þessa miðað við umfang og
meðferð málsins hjá skattrann-
sóknastjóra. Málið er bæði mikið
að vöxtum og varðar býsna mörg
álitaefni eins og skattrannsókna-
stjóri leggur það fyrir með kæru
sinni,“ segir hann.
Skattrannsóknastjóri hóf form-
lega rannsókn á skattskilum Jóns
Mál Jóns Ólafssonar sent
ríkislögreglustjóra til meðferðar
Umfangsmesta
rannsókn á meint-
um skattsvikum
MÁL Jóns Ólafssonar, sem verið hefur til rannsóknar hjá skatt-
rannsóknastjóra vegna meintra skattalagabrota hans, var sent til
opinberrar meðferðar hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra á
gamlársdag. Jón H. Snorrason, saksóknari og yfirmaður efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra, staðfesti við Morgunblaðið að
málið hefði borist deildinni á gamlársdag.
„Hvað boðar nýárs blessuð sól?“
BRESKA flugfélagið British Air-
ways aflýsti í gær flugi frá Heath-
row-flugvelli til Washington í
Bandaríkjunum af öryggisástæð-
um. Talsmaður BA greindi frá
þessu en hann sagði flugfélagið
hafa byggt ákvörðun sína á til-
mælum frá breskum stjórnvöld-
um. Á miðvikudagskvöld höfðu all-
ir farþegar í flugi á þessari sömu
áætlunarleið verið yfirheyrðir af
flugvallarstarfsmönnum við kom-
una til Washington.
Mikill viðbúnaður er á flugvöll-
um í Bandaríkjunum en yfirvöld
óttuðust hryðjuverkaárás um há-
tíðarnar. Hefur m.a. komið fram
að orrustuþotur flughersins af
gerðinni F-16 hefðu í öryggisskyni
fylgt tveimur flugvélum Air
France eftir á leið þeirra til Los
Angeles fyrr í vikunni.
AP
Þungvopnaður lögreglumaður á
verði í New York á gamlársdag.
Óttast
árásir
BA aflýsti flugi
til Washington
London, Washington. AFP, AP.
Íbúðalánasjóður birtir op-
inberlega hvaða lánskjör íbúða-
lána gilda á hverjum tíma fram
að næsta útboði.
Lántaki gerir kaupsamning,
afhendir Íbúðalánasjóði þinglýst
veðskuldabréf og fær pen-
ingalánið afgreitt.
Hafi Íbúðalánasjóður t.d. selt
verðbréf í útboði með 4,5% raun-
ávöxtun gæti lánið borið 4,9%
vexti, þar sem 4,5% væru vegna
afborgunar á nýju verðbréf-
unum, 0,2% til að mæta áhættu
og 0,15% til að mæta hluta af
rekstrarkostnaði Íbúðalánasjóðs.
Áhrifin á
íbúðakaup
2. janúar: Hámarkslán vegna
nýrra íbúða hækka úr 9 milljónum
kr. í 9,7 millj. kr. Hámarkslán
vegna notaðra íbúða hækka úr 8
millj. kr. í 9,2 millj. kr.
2. janúar: Vextir viðbótarlána
lækka úr 5,6% í 5,3% og vextir al-
mennra peningalána úr 5,7% í
5,3%. Vextir húsbréfalána verða
áfram óbreyttir, 5,1%.
1. júlí: Íbúðalánasjóður hefur af-
greiðslu peningalána í stað hús-
bréfa.
1. júlí: Vextir lána Íbúðalánasjóðs
verða breytilegir á milli útboða.
Hvað gerist
hvenær
NORÐMAÐURINN Kurt
Nilsen sigraði í gær í
World Idol-keppninni sem
haldin var í London. Um
var að ræða sérstaka
keppni sigurvegara í Idol-
leiknum í ellefu þjóð-
löndum. Nilsen, sem vann
sem pípari áður en hann
lagði sönginn fyrir sig, söng lag írsku rokk-
sveitarinnar U2, Beautiful day, og hafði bet-
ur en bandaríska stúlkan Kelly Clarkson, en
hún varð í öðru sæti. Í þriðja sæti varð Belg-
inn Peter Evrard. „Þetta er alveg ótrúlegt,“
sagði Nilsen, sem er 25 ára, himinlifandi eftir
að úrslitin höfðu verið kunngjörð.
Sigraði í World Idol
FJÖR er við allar brennur landsins um áramót og var brennan í Breið-
holtinu engin undantekning en þar var að vanda fjölmenni við veglega
brennu. Eftir að hafa sungið og horft á flugeldasýningu fengu börnin
sem mættu á staðinn mörg hver stjörnuljós í hönd. Systkinin Marta og
Aron Freyr Margeirsbörn voru fljót að uppgötva töframátt ljósanna
og sneru þeim hring eftir hring.
Morgunblaðið/Einar Falur
Leikið með ljósin