Morgunblaðið - 02.01.2004, Side 19
ÁRAMÓT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2004 19
„GÓÐIR Íslendingar.
Ég óska ykkur öllum farsældar og gleði,
gæfu og góðrar heilsu á árinu sem við hefjum
nú og þakka vináttu og hlýhug í okkar garð
hér á Bessastöðum, samstarf og samræður
sem við höfum átt við þúsundir landsmanna á
liðnu ári.
Lýðræðisvitund Íslendinga hefur löngum
dugað þjóðinni vel, veitt stjórnvöldum aðhald
og verið hreyfiafl á framfaraskeiði. Það var
ríkur vilji fólksins sjálfs sem efldi baráttuna
fyrir auknum rétti og hollt er að minnast
þess þegar við fögnum senn aldarafmæli
heimastjórnar og því að sextíu ár verða liðin
frá lýðveldisstofnun. Þótt þjóðin nyti margra
glæsilegra og mikilhæfra leiðtoga, frá tímum
Fjölnismanna og Jóns Sigurðssonar, Hann-
esar Hafsteins og Skúla Thoroddsens til
kjörs fyrsta forsetans á Þingvöllum 1944, þá
skipti aflið sem bjó í stuðningi almennings
sköpum á örlagastundum.
Vissulega gefur afmælisár okkur tilefni til
að líta yfir farinn veg, meta söguna og lær-
dómana sem hún færir okkur en tímamót af
þessu tagi eru líka kjörin til að ræða framtíð-
ina, spyrja hvaða breytingar séu í vændum,
ræða tækifærin sem blasa við og stöðuna sem
ný heimsmynd og árangur okkar sjálfra hef-
ur skapað.
Þjóðir lifa ekki lengi á fornri frægð, eink-
um nú þegar hraði breytinganna er meiri en
nokkru sinni. Þættirnir sem á liðinni öld og
reyndar lengur réðu úrslitum þegar ríki voru
metin – herstyrkur, olía, málmar, þungaiðn-
aður – deila nú sessi með öðrum eiginleikum,
frumkvæði og frumleika í athöfn, tillögum og
málafylgju. Framlag okkar til nýsköpunar,
ferskleiki í hugmyndum og listalífi, nýjungar
í vísindum, tækni og atvinnuháttum munu
einkum ráða orðspori okkar á komandi árum.
Sumir kennimenn hafa jafnvel sagt að nú
sé hafin öld hinna mjúku áhrifa og harður
hnefaréttur dugi ekki til lengdar. Þjóðir þurfi
að vakna til vitundar um að ný hugsun móti
stöðu þeirra á alþjóðavelli. Spurt verði af vax-
andi þunga: Hvað hafið þið til málanna að
leggja? Hvert er erindið sem þið eigið við
umheiminn? Hvaða boðskapur og nýsköpun
felst í framlagi ykkar? – Ekki eingöngu:
Hvert er afl þitt, auður eða hernaðarmáttur?
Slík þáttaskil gætu fært okkur Íslend-
ingum fjölmörg ný sóknarfæri ef við höfum
vit og vilja, þrótt og metnað til að laga okkur
að breytingunum og eflum þá eiginleika sem
skapa okkur sérstöðu í framtíðinni.
Í þessum efnum er þrennt sem brýnt er að
sinna vel: Heimsvæðing viðskiptanna, frum-
kvæði í alþjóðlegu samstarfi og nýsköpun í
listalífi. Á þessum þremur sviðum sjáum við
nú þegar vitnisburð um að við Íslendingar
getum í sameiningu náð einstæðum árangri.
Á liðnu ári tókst ungri kynslóð að vekja
enn meiri áhuga annarra þjóða á samtíma-
menningu okkar Íslendinga. Sigurför Nóa
albínóa um kvikmyndahátíðir í ólíkum lönd-
um, glæsilegar viðtökur Rómeós og Júlíu á
heimaslóð Shakespeares, orðspor hljómsveita
og tónlistarfólks víða í Evrópu og Vest-
urheimi, síaukinn áhugi erlendis á verkum ís-
lenskra rithöfunda og á íslenskri myndlist og
dansi eru vitnisburður um að þátttaka okkar í
heimsmenningunni er í vaxandi mæli byggð á
sköpunarkrafti nýrrar kynslóðar.
Þegar sjálfstæðisbaráttan skilaði þjóðinni
heimastjórn var það einkum forn frægð,
handritin, hetjusögur og Eddukvæði sem
mynduðu kjarnann í menningarlegum rökum
fyrir auknum rétti Íslendinga. Nú eru það
ekki síður verkin sem samtíminn skapar sem
auka til muna orðstír okkar og
sjálfstraust í samfélagi þjóða
heims.
Við þurfum því að meta að
verðleikum afrekin sem hin
unga kynslóð er að vinna og
sýna með ráðstöfun fjármagns
og aðstöðunni sem almannavald-
ið getur skapað að við höfum
skilið til hlítar ávinninginn sem
þjóðinni hlotnast þegar ný lista-
kynslóð er að sigra heiminn.
Í annan stað kalla breyttir
tímar á öflugt og vakandi frum-
kvæði okkar í alþjóðlegu sam-
starfi. Sífellt verður brýnna að
framlag þjóða sé sérstakt og
auðugt að innihaldi, stefnan
byggð á ferskum hugmyndum,
þekkingu og reynslu sem komið geta öðrum
að notum.
Í þessum efnum þurfum við Íslendingar að
leggja rækt við nokkra þætti sem í senn
liggja vel við okkur og skipta veröldina alla
miklu máli.
Í fyrsta lagi: Hafið. Auðlindir sjávar, skyn-
samleg nýting þeirra, samstarf þjóða um
uppbyggingu fiskistofna, rannsóknir á haf-
straumum og vegvísum um loftslagsbreyt-
ingar sem hafið geymir, samspil heilbrigðis
og fiskneyslu, baráttunnar gegn illvígum
sjúkdómum og aðgengis að lykilefnum sem
sjórinn skapar – allt eru þetta viðfangsefni
sem alþjóðasamfélagið telur nú einkar brýn.
Við Íslendingar búum að ríkum reynslu-
sjóði á þessu sviði, höfum þar öðlast virðingu
og áhrif, allt frá samningum um Hafrétt-
arsáttmálann og útfærslu landhelginnar til
árangurs við arðbæran og hátæknivæddan
sjávarútveg á okkar tímum og þess orðspors
sem nýjungar í hugbúnaði og rannsóknir vís-
indamanna og sérfræðinga hafa skapað.
Þótt hafið þeki stærstan hluta jarðarinnar
hefur það að mörgu leyti verið vanrækt
svæði. Við vitum meira um mánann en hafið,
sagði hinn merki landkönnuður Thor Heyer-
dal. Það kann þó að horfa til betri vegar því
nú er að vaxa öflug alþjóðleg hreyfing sem
setur umfjöllun um málefni hafsins á oddinn.
Hún veitir okkur Íslendingum möguleika til
að láta til okkar taka, verða forystuafl í hug-
myndavinnu og tillögugerð, gera úr arfleifð
okkar öndvegi til áhrifa á nýrri öld.
Í öðru lagi: Jarðhiti og vetnisvæðing. Ákaft
er nú leitað að orkugjöfum sem ekki ógna líf-
ríki jarðar, skapa grundvöll framfara og hag-
sældar án mengunar sem skaðar heilsu og
heill milljónanna. Fjölmargar þjóða vilja nú
nýta jarðhitann sem víða um veröld leynist í
jörðu og áhrifamesta ríki heims hefur nýlega
boðið Íslendingum ásamt fáeinum öðrum til
samstarfs um hvernig best er að vetnisvæða
borgir og samfélög í framtíðinni.
Á báðum þessum sviðum eru Íslendingar
nú í fremstu röð og mikilvægt að við nýtum
tækifærin sem slík forysta veitir. Vís-
indamenn okkar, sérfræðingar og áhrifafólk í
Orkuveitu Reykjavíkur, Hitaveitu Suð-
urnesja, Landsvirkjun, Orkustofnun, Háskóla
Íslands og víðar á vettvangi orkumála hafa
sýnt áræðni og atorku; árangur þeirra er að
færa þjóðinni fjölmörg sóknarfæri.
Það er merkileg þversögn, en líka tákn-
rænt fyrir nýja tíma, að ein smæsta þjóð
heims skuli vera leiðandi afl á sviði þar sem
heimsveldin voru áður allsráðandi. Nú leita
Kína og Kalifornía, Rússland og ríkin í Evr-
ópu miðri, lönd í Suður-Ameríku og Afríku
eftir samstarfi við okkur og framlag okkar
getur orðið grundvöllur að
traustum tengslum við tugi
þjóða.
Í þriðja lagi: Norðurslóðir. Á
dögum kalda stríðsins var þessi
heimshluti helfrosinn vegna
kjarnorkuógnar stórveldanna en
nú hefur þar skapast nýr vett-
vangur fyrir samvinnu ríkja og
Norðurlönd sitja hér við borðið
ásamt Rússlandi, Kanada og
Bandaríkjunum.
Í málefnum Norðurslóða get-
um við Íslendingar lagt margt til
mála með þeim hætti að eftir sé
tekið. Okkur er sýndur trúnaður.
Við förum nú með formennsku í
Norðurskautsráðinu og gegnum
veigamiklu hlutverki í Há-
skólakeðju norðurskautsins og Rannsókn-
arþingi norðursins en Háskólinn á Akureyri
er þar umsvifamikill fulltrúi okkar. Okkur
gefst færi á að styrkja tengsl okkar við tvö
áhrifaríkustu ríki heims, Bandaríkin og Rúss-
land, með þróun samvinnu sem er í senn ný,
heillandi og brýn.
Margt bendir til að Norðurslóðir verði æ
mikilvægari í framtíðinni, lykilsvæði í fram-
fararsókn og hagsæld jarðarbúa. Þar er að
finna um fjórðung vannýttrar orku í veröld-
inni, forðabúr sem verður sífellt verðmætara.
Þar kann senn að opnast ný siglingaleið,
norðurleiðin, sem styttir ferðir milli Ameríku
og Evrópu annars vegar og Asíu hins vegar á
jafn róttækan hátt og Súesskurðurinn um-
bylti heimsviðskiptunum fyrir röskri öld; og
höfum í huga að Asía verður líklega senn
helsta aflvélin í hagkerfi heimsins.
Á Norðurslóðum er einnig að finna mik-
ilvægustu mælistikur á lofslagsbreytingar
jarðarinnar, vegvísa sem sýna hvort stórfelld
hætta steðjar að lífríki og heilsu íbúa í öllum
álfum. Hafstraumar sem leika um Ísland,
hitastig þeirra og efnasambönd, áhrif af
bráðnun íss og jökla, aukinn þungi í heim-
skautsfljótum eru ábendingar um að heims-
byggð kunni senn að horfast í augu við nýja
ógn sem umturnað getur lífsháttum og efna-
hag allra jarðarbúa. Rannsóknarsamstarf á
Norðurslóðum er forsenda fyrir réttu mati á
hættunum sem blasa við og framlag okkar á
þeim vettvangi verður sífellt brýnna.
Auk hafsins, orkunnar og Norðurslóða eru
málefni smárra ríkja fjórði þátturinn sem við
þurfum að sinna vel.
Nú eru rúmlega 50 ríki innan Sameinuðu
þjóðanna sem teljast smá en í árdaga sam-
takanna vorum við nánast ein um hituna í
þessum flokki. Smáríkin ráða nú ríflega fjórð-
ungi atkvæðamagns á Allsherjarþinginu og
innan annarra alþjóðastofnana geta þau orðið
áhrifaafl.
Hagsmunir þessara ríkja, vandamál, sér-
staða og viðfangsefni hafa á ýmsan hátt verið
vanrækt vegna þess að stefnumótun á vett-
vangi stjórnkerfa og efnahagsmála hefur
einkum tekið mið af kenningum og hug-
myndakerfum sem mótuð hafa verið í stærri
ríkjum og einnig vegna þess að flest hinna
smærri ríkja eru nýkomin á alþjóðavettvang.
Hér hefur Ísland kjörstöðu til að verða að
liði. Árangur okkar í efnahagsþróun, mennt-
un og heilsugæslu, stofnanamótun og al-
þjóðlegri samvinnu er langt umfram það sem
smæðin gefur til kynna. Við ógnum engum,
erum friðsælt og opið lýðræðisríki og ann-
arlegir hagsmunir eru ekki í farangri okkar.
Aðrir eru því reiðubúnir að kynnast reynslu
Íslendinga en hafa allan vara á sér þegar öfl-
ugri ríki bjóða fram krafta sína.
Ísland getur orðið miðstöð fyrir samræður
og samskipti smærri ríkja og það getur tengt
okkur traustum vináttuböndum við fjölda
þjóða í öllum álfum; opnað leiðir fyrir nýja
kynslóð til þátttöku í alþjóðastarfi víða um
heim, til viðskipta, rannsókna og fræðistarfa.
Já, hin nýja tíð færir okkur fjölmörg tæki-
færi sem áður voru óþekkt. Nú ríður á að við
höfum vit og samstarfsvilja, einnig í okkar
eigin röðum hér á heimavelli, til að nýta þau
Íslandi til framdráttar og farsældar á nýrri
öld.
Það er brýnt að skilja til hlítar breyting-
arnar sem orðið hafa á heimsmyndinni en
gleyma sér ekki í flækjum og togstreitu fyrri
tíðar. Aldarafmæli heimastjórnar ætti að vera
okkur tilefni til að hugleiða ekki aðeins hin
risavöxnu umskipti sem orðið hafa síðan
fyrsti ráðherra Íslands gekk í Alþingissalinn
heldur einnig til að vera samstiga í að hag-
nýta tækifærin sem iðukast nýrra strauma
færir okkur.
Það snýr einkum að umrótinu sem heims-
væðing viðskiptanna hefur skapað en umræð-
ur sem urðu á liðnu ári báru ýmis merki þess
að við værum ekki nægilega vel búin undir
afleiðingarnar sem einkavæðing og árang-
ursrík útrás athafnafólks bera með sér.
Heimsvæðing viðskiptanna og opnun hins
íslenska hagkerfis hafa í fyrsta sinni í sögu
þjóðar okkar veitt frumkvöðlum með íslensk-
ar rætur tækifæri til að verða forystuafl á
heimsvísu og árangur þeirra getur skapað
svo mikinn arð að engin dæmi eru um slíkt í
reynsluheimi síðustu aldar.
Fyrirtæki í smásöluverslun, lyfjafram-
leiðslu, drykkjarvörum, bankastarfsemi, fjár-
málasýslu, gervilimum, matvælum og á fleiri
sviðum hafa á síðustu árum flutt sig á al-
þjóðamarkað og náð slíkum árangri að eign-
astaða og árlegur hagnaður eru einstæð á ís-
lenska vísu.
Vissulega er þessi þróun ungu íslensku at-
hafnafólki hvatning til að láta að sér kveða en
hún vekur líka spurningar um hvernig al-
þjóðleg viðhorf til viðskipta falla að íslenskum
veruleika.
Við þurfum að ræða á sanngjarnan og heið-
arlegan hátt hvernig við ætlum að gefa at-
hafnafólki tækifæri til að njóta sín um leið og
við varðveitum eðalkosti samfélagsins.
Hvernig ætlum við að tryggja að arðurinn
af heimsvæðingu viðskiptanna skili sér hing-
að heim og komi öllum til góða? Hver verður
hlutur íslensks almennings í hinum mikla
auði sem nýju athafnaskáldin eru að skapa?
Hvað er í senn sanngjarnt og vænlegt til ár-
angurs í framtíðinni?
Svörin munu ráða miklu um þróunina og
höfum í huga að opnun hagkerfisins er þess
eðlis, hvort sem okkur líkar betur eða verr,
að fyrirtækin geta einfaldlega flutt heimkynni
sín, skattskyldu og þjóðþrifaframlög til ann-
arra landa ef tökin eru hert um of hér heima.
En fyrirtækin þurfa líka að skilja að miklum
árangri fylgja ríkar samfélagslegar skyldur
og ábyrgð.
Við þurfum í sameiningu að ráða fram úr
vandamálum sem þessi umskipti skapa og
beita til þess samræðum þar sem allir hafa
sama rétt og sanngirni og framsýni ráða för.
Takist okkur það getur hin nýja tíð fært okk-
ur Íslendingum mikla hagsæld og tækifærin
lagt grundvöll að einstöku framfararskeiði.
Ég óska ykkur öllum farsældar á nýju ári
og vona að gæfan fylgi ykkur ávallt í framtíð-
inni; gætum vel að því góða landi sem við
fengum í arf.“
Nýársávarp forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar
Þurfum að meta að verðleikum afrekin
sem unga kynslóðin er að vinna
Ólafur Ragnar
Grímsson
Útsalan er hafin
10-70% afsláttur
Yfirhafnir í úrvali, stakir jakkar, peysu, vesti o.fl.Op
num
kl. 9 Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið lau. og sun. kl. 10-18.