Morgunblaðið - 02.01.2004, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Clifton - Kóbrukossinn
Abrakadabra - galdraskólinn
JÆJA ÞÁ HELD ÉG AÐ ALLIR
SÉU KOMNIR OG BEST AÐ
LESA UPP!
© DARGAUD
© DARGAUD
framhald ...
ÉG GERI RÁÐ FYRIR AÐ ÞÚ SÉRT MEÐ MIKIÐ YFIRVARA-
SKEGG OG AÐ ÞÚ GENGUR EINS OG ÞÚ SÉRT MEÐ
REGNHLÍF Í AFTURENDANUM! ... HAHAHA! ...
MJÖG FYNDIÐ! SETJIÐ NÚ SAMT ALPAHÚFU Á KOLL-
INN OG SNITTUBRAUÐ Í HANDAKRIKANN! EF SKE
KYNNI AÐ ÉG GLEYMDI REGNHLÍFINNI MINNI! ...
HJÁLPI MÉR! FRÖNSK KÍMNI KEMUR
ALLTAF JAFNMIKIÐ Á ÓVART! EN HARALDUR
FRÆNDI ...
MÆLA SÉR MÓT
VIÐ VIN SEM MAÐ-
UR þEKKIR EKKI ...
ER ÞAÐ BRESK
KÍMNI?
Í RAUN OG VERU ER
HÉR UM AÐ RÆÐA
VIN ... VINKONU,
HÉRNA ... KUNN-
INGJAKONU ... SEM
BAÐ MIG UM Að
BIÐJA ÞENNAN VIN
... HMM ...ÖH...
Á EINFÖLDU MÁLI
...ÞÚ ERT Á KAFI Í
EINHVERJU ÞESSA
STUNDINA, EKKI
SATT? ...
HMM! ÉG ER GLORSOLT-
INN, DRENGUR MINN.
EN þÉR? ...
ÖÖÖ ...
ORÐIN EITT NÚ ÞEGAR! ... VIÐ
FINNUM OKKUR VEITINGASTAÐ NÁ-
LÆGT VOR FRÚAR KIRKJU ...
FRÁBÆRT!
ANNA!
JÁ, HÉR!
STEINI
JÁ, HÉR!
GRANI
JÁ, HÉR!
PÍ OG PÚ JÁ, HÉR!
KOLLI!
JÁ HÉR!
SIGGI!
EKKI KISI! KOMDU! LÁTTU
HANN VERA! HV ... HVER
GERÐI ÞETTA!!
MÍÁU!
VIÐ, HANN ULLAÐI
Á OKKUR!
MAMMA!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
UNDIRRITUÐUM var brugðið við
lestur tímarits Morgunblaðsins
sunnudaginn 28. desember síðastlið-
inn.
Ég var eðlilega í jólaskapi, hafði
fagnað því að hið skærasta ljós var
komið í heiminn eða eins og segir í
jólaguðspjalli Jóhannesar: „Hið
sanna ljós sem upplýsir hvern mann,
var að koma í heiminn.“
Ég var að hugsa til jólahaldsins í
okkar fögru kirkju, „musteri Guðs“.
Ég hugsaði til þess hve margir hefðu
tekið þátt í helgihaldi kirkjunnar.
Ljóst er að um tuttugu þúsund hafa
tekið þátt í því helgihaldi Grafar-
vogskirkju í desembermánuði. Um
sjö þúsund grunn- og leikskólabörn
heimsóttu kirkjuna með formlegum
heimsóknum, frá 1. desember til 21.
desember.
Ánægður með helgihaldið þó að
margir hafi saknað þess að aftan-
söng kirkjunnar skyldi ekki vera
sjónvarpað á Skjá l eins og undanfar-
in 5 ár, einnig söknuðu margir út-
sendingar á mbl.is.
Um leið og ég var að hugleiða
þessi efni barst mér vandað tímarit
Morgunblaðsins í hendur. Þar var
fjallað um tónleika sem „íslensku
dívurnar“ stóðu fyrir. Yfirskrift tón-
leika þeirra var Frostrósir.
Nú brá svo við að í sjálfu Morg-
unblaðinu voru viðhöfð orð eins og
„múgstappa, andnauð, fótadofi,
mammon og græðgi“, og það á sjálf-
um jólunum.
Til að gera langa sögu stutta, þá
komu ungir menn sem reka fyrir-
tækið „þúsund og ein nótt“ að tali við
okkur. Höfðu eðlilega samband við
kirkjuvörð og gjaldkera sóknar-
nefndar um hvort hægt væri að fá
kirkjuna leigða fyrir tónleikahald.
Við í Grafarvogskirkju fögnum
framtaki ungs fólks, fögnum því að
það skuli vera að „brjóta ísinn“ og
stuðla að fjölbreyttu tónlistar og
leiklistarlífi. Morgunblaðið hefur
ávallt fagnað slíku framtaki, einka-
framtakinu sjálfu.
Við í Grafarvogskirkju bentum
þeim á að rétt væri að binda sig við
900 selda miða, þar sem stuttu áður
hefði Lionsklúbburinn Fjörgyn í
Grafarvogi staðið fyrir tónleikum til
styrktar barna- og unglingageðdeild
Landspítalans, og hefðu þá verið
seldir 1150 miðar.
Það gekk vel og enn er verið að
lofa þá tónleika eins og þá sem „dív-
urnar“ stóðu fyrir. Uppselt var á alla
stórtónleika í desembermánuði í
Grafarvogskirkju.
Sjálfur sat ég aftast í kirkjunni á
umræddum tónleikum. Naut þess
vel ásamt Páli Óskari og nokkrum
þjóðþekktum söngvurum er þar
sátu. Ég var ánægður með lagavalið,
nánast allt sálmar fornir og nýir. Ég
hugsaði á allt annan hátt en grein-
arhöfundur „Flugunnar“. Ég hugs-
aði: Mikið er það stórkostlegt hve vel
unga fólkið stendur sig í tónlistinni
sem og í leiklistinni. Framtíðin er
svo sannarlega björt.
Mér fannst loftið vera gott, enda
til staðar dýr og mikil loftræsting.
Varðandi ungu stúlkuna sem
þurfti að hvíla sig um stund, þá má
greina frá að hún var illa fyrir kölluð,
jafnvel með flensuna.
Höfundur þekkir lítið til tónleika-
halds ef henni bregður við það að
barn þurfi að hvíla sig um stund á
glæsilegum tónleikum og miklum.
Það þekkjum við í kirkjunni bæði á
tónleikum og við fermingar svo ein-
hver dæmi séu nefnd.
Rætt var og um stærð Grafar-
vogskirkju. Væntanlega hafa tón-
leikahaldarar fengið upplýsingar um
það hjá Reykjavíkurborg hvaða
kirkja er stærst talið í fermetrum,
ekki rúmmetrum. Í Grafarvogs-
kirkju eru til staðar fimm hæðir,
þegar Borgarbókasafnið er tekið
með, en það starfar á tveimur hæð-
um.
Best er í lok þessa pistils að óska
Morgunblaðinu sem ávallt hefur bor-
ið höfuð og herðar yfir aðra fjöl-
miðla, ekki síst þegar fjallað er um
viðkvæm mál samfélagsins, til ham-
ingju með glæsilegt blað, „Tímarit
Morgunblaðsins“.
Guð gefi ykkur gleðilegt ár, þakka
blessunarríkt samstarf á því ári sem
er að líða.
Í Guðs friði.
VIGFÚS ÞÓR ÁRNASON
sóknarprestur.
„Jólastress
Flugunnar“
Frá Vigfúsi Þór Árnasyni
Morgunblaðið/IngóGrafarvogskirkja