Morgunblaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 21
Óskað eftir tillögum um
sparnað á Garðvangi
Útlit fyrir
30 milljóna
kr. halla
Garður | Útlit er fyrir 30 milljóna
króna halla af rekstri hjúkrunar-
heimilisins Garðvangs í Garði á ný-
byrjuðu ári. Er þá miðað við þær
áætlanir sem liggja fyrir um dag-
gjöld til hjúkrunarheimilisins frá
ríkinu.
Fram kom síðasta fundi Dvalar-
heimila aldraðra á Suðurnesjum,
sem reka Garðvang í Garði og Hlé-
vang í Keflavík, að á síðasta ári voru
tekjur Garðvangs rúmar 215 millj-
ónir og útgjöld rúmar 220 milljónir.
Við útgjöldin bætist vaxtakostnaður
upp á 3,5 milljónir króna þannig að
halli ársins var rúmar 8,5 milljónir
króna.
Framkvæmdastjóri DS skýrði frá
því að nú væri uppsafnaður halli
Garðvangs frá undanförnum árum
orðinn um það bil 23 milljónir kr.,
fyrir utan fyrirsjáanlegan halla á
árinu.
Vinna tillögur um sparnað
og meta áhrif þeirra
Á fundinum kom fram að ekki
liggja fyrir vilyrði um aukafjárveit-
ingar. Stjórnin fól Finnboga Björns-
syni framkvæmdastjóra að gera til-
lögur um sparnað í rekstri og
jafnframt að gera grein fyrir hvaða
afleiðingar það hefði á þjónustu við
heimilisfólk.
Á sama fundi kom fram að tæp-
lega 5,5 milljóna króna rekstraraf-
gangur var af dvalarheimilinu Hlé-
vangi í Keflavík á síðasta ári.
Keflavík | „Ég hugsaði mér að ég væri að ganga í
garði og horfa á blómin. Ég nota stundum þann-
ig leiðsögn í huganum þegar ég er að semja,“
segir Eiríkur Árni Sigtryggsson, tónskáld í
Keflavík, en verk hans, sem að sjálfsögðu heitir
Blómabeð, verður frumflutt á tónleikum í Lista-
safni Reykjanesbæjar í Duushúsum í kvöld.
Dagný Marinósdóttir flautuleikari og Þor-
valdur Már Guðmundsson gítarleikari halda tón-
leikana í Duushúsum í kvöld, klukkan 20.
Á efnisskrá eru verk eftir Bartók, Fauré, Alb-
eniz, Ibert, Barrios og Pujol auk Blómabeðs
Eiríks Árna. Dagný og Þorvaldur kenna við
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar eins og Eiríkur
Árni Sigtryggsson.
Eiríkur skrifaði þetta verk sérstaklega fyrir
samkennara sína. „Þetta er alveg nýtt verk sem
ég gerði af þessu tilefni. Þau gera þetta vel og
ég er þeim afar þakklátur fyrir gera þessa fal-
legu tónlist úr punktunum mínum,“ segir tón-
skáldið. Hann segir að það sé krefjandi að leika
verkið en tekur fram að það eigi að vera auðvelt
að hlusta á það. Þótt Blómabeðið sé nútímaverk
séu stefnin í rómantískum anda – og blómleg.
Eiríkur Árni segir að sér gangi þokkalega að
koma verkum sínum á framfæri. Það hái sér þó
nokkuð að búa í Keflavík. Þar sé hann ekki í
nógu nánu sambandi við félaga sína og vini í
höfuðborginni þar sem allt gerist, ekki síst í nú-
tímatónlistinni. Hann segist því eiga töluvert af
verkum í skúffunni.
Hann reynir að fá upptökur af þeim verkum
sem flutt eru og segist vera að safna á disk. Tak-
markið sé að koma út diski með eigin tónlist en
það taki sinn tíma með þeim hraða sem verið
hafi.
Eiríkur Árni fór fertugur til Bandaríkjanna til
að læra tónsmíðar en hafði þá verið virkur í
myndlistinni um árabil. Hann viðurkennir að
ákveðin togstreita sé milli myndlistarinnar og
tónlistarinnar og að myndlistin hafi vinninginn
eins og er enda hafi hún tuttugu ára forskot á
tónsmíðarnar í lífi hans. Segist hann til dæmis
vera duglegur við að mála um þessar mundir.
Dagný Marinósdóttir útskrifaðist vorið 2002
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík með blás-
arakennara- og burtfararpróf í flautuleik. Aðal-
kennarar hennar þar voru Bernharður Wilk-
inson og Hallfríður Ólafsdóttir. Dagný hefur
sótt fjölda námskeiða og einkatíma erlendis m.a.
hjá William Bennett, Peter Lloyd, Wissam
Boustany og Toke Lund Christiansen. Dagný
hefur komið fram á ýmsum tónleikum innan-
lands sem utan.
Þorvaldur Már hóf nám í klassískum gítarleik
hjá Leifi Vilhelm Baldurssyni í ársbyrjun 1989.
Hann lauk 6. stigi í í gítarleik frá Tónlistarskóla
Húsavíkur vorið 1994. Árið 2000 lauk hann 8.
stigi og kennaraprófi frá Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar en aðalkennari hans þar var
Símon H. Ívarsson. Veturinn 2000–2001 stund-
aði hann framhaldsnám í klassískum gítarleik í
Barcelona hjá Arnaldi Arnarsyni og einnig
stundaði hann nám í flamenco-gítarleik hjá
Manuel Granados. Þorvaldur hefur einnig sótt
ýmis masterklassnámskeið, t.d. hjá David
Russel, Göran Sölsher og Manuel Barrueco.
Nýtt verk eftir Eirík Árna Sigtryggsson flutt á tónleikum í Duushúsum
Hugmyndin fengin úr blómabeðinu
Tónleikarnir undirbúnir: Þorvaldur Már Guðmundsson gítarleikari, Eiríkur Árni Sigtryggsson tón-
skáld og Dagný Marinósdóttir flautuleikari á æfingu fyrir tónleikana sem verða í Duushúsum í kvöld.