Morgunblaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 48
ÍÞRÓTTIR 48 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ FIMM leikmenn úr KR sem eiga eftir að taka út leikbönn frá síðasta keppnistímabili afplána þau í Meistarakeppni KSÍ. Fjórir í leik karlaliðsins gegn ÍA annað kvöld og einn í leik kvennaliðsins gegn Val á sunnudagskvöld. Garðar Jóhannsson og Sverrir Bergsteinsson fengu báðir rauða spjaldið í síðasta leik Íslandsmótsins í fyrra, þegar KR steinlá fyrir FH, 7:0. Þeir Sölvi Davíðsson og Páll Kristjánsson áttu eftir að taka út bann vegna fjög- urra gulra spjalda með 2. flokki KR og gera það því í fyrsta mótsleik meistaraflokks á þessu ári. Embla Grétarsdóttir þarf einnig að taka út bann vegna fjögurra gulra spjalda á síðasta ári og verður því ekki með kvennaliði KR. Íris Andrésdóttir, fyrirliði Vals, verður einnig í banni á sunnudagskvöldið þar sem hún var rekin af velli í lokaleik Vals á Íslandsmótinu í fyrra. Meistarakeppnin er ávallt tengd Íslandsmóti og bikar- keppni á þennan hátt en aftur á móti hafa spjöld í deilda- bikarnum ekki áhrif þar sem refsingar í honum eru að- eins teknar út í þeirri keppni. Fimm KR-ingar taka út leikbann RONALDINHO, brasilíski knattspyrnumaðurinn sem leikur með Barcelona, braut kirkjuglugga í bænum San- tiago de Compostela í vik- unni – með því að spyrna knetti í hann. Ronaldinho var staddur þar vegna upp- töku á sjónvarpsauglýsingu og var að reyna erfitt skot, þar sem hann þurfti að stökkva upp og spyrna af krafti. Kirkjan var byggð á þrettándu öld og margir glugganna eru skreyttir og afar verðmætir. Sem betur fór var það ekki einn af þeim sem varð fyrir barðinu á skothörku Ronaldinhos, heldur gluggi með venjulegu gleri, og kostnaðurinn vegna skemmdanna er því óverulegur. Ronaldinho braut kirkjuglugga Ronaldinho  GUNNAR Einarsson, fyrirliði körfuknattleiksliðs Keflavíkur, verður líklega ekki með gegn Hauk- um í lokaumferð úrvalsdeildarinnar í kvöld. Gunnar meiddist á hné á æf- ingu í fyrrakvöld, samkvæmt vef Keflvíkinga.  DANÍEL Hafliðason, knatt- spyrnumaður úr Víkingi, æfir þessa dagana með 1. deildar liði Þróttar úr Reykjavík og gengur væntanlega til liðs við það, samkvæmt vefnum vikingur.net. Daníel hefur ávallt leikið með Víkingum en hætti skömmu áður en síðasta tímabili lauk.  LASSE Qvist, einn efnilegasti knattspyrnumaður sem fram hefur komið í Danmörku um árabil, efur gengið frá þriggja ára samningi við PSV Eindhoven í Hollandi. Qvist er aðeins 17 ára gamall en var valinn efnilegasti leikmaður Danmerkur á síðasta ári og á yfirstandandi tíma- bili hefur hann skorað 17 mörk í 18 leikjum fyrir Lyngby sem leikur í dönsku 2. deildinni.  GLENN Hoddle hefur dregið til baka umsókn sína um stöðu knatt- spyrnustjóra Southampton. Stuðn- ingsmenn félagsins hafa látið skoð- anir sínar óspart í ljós eftir að Hoddle var orðaður við stöðuna, en þeir hafa aldrei fyrirgefið honum að hafa yfirgefið félagið og gerst knatt- spyrnustjóri Tottenham fyrir þrem- ur árum.  STEVE Wigley hefur stýrt liði Southampton síðan Gordon Strach- an lét af störfum fyrir nokkrum vik- um. Wigley verður við stjórnvölinn út tímabilið, eða þar til nýr knatt- spyrnustjóri verður ráðinn.  ALAIN Giresse, miðjumaður í franska landsliðinu og Bordeaux á níunda áratugnum, verður væntan- lega næsti landsliðsþjálfari Georgíu í knattspyrnu. Giresse hefur stað- fest að hann sé í viðræðum við þar- lend knattspyrnuyfirvöld.  ALESSANDRO Pistone, ítalski varnarmaðurinn hjá Everton, missir af næstu tveimur leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu vegna meiðsla í læri. Pistone hefur verið sérlega óheppinn í vetur og að- eins náð að leika ellefu leiki í deild- inni.  EUNICE Barber, heimsmeistari í langstökki kvenna utanhúss, tekur ekki þátt í heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum innanhúss, sem hefst í Búdapest í Ungverjalandi á föstu- dag. Barber meiddist á æfingu í gær og í framhaldi af læknisskoðun ákvað hún að hætta við þátttöku. Barber var ein helsta von Frakka um gullverðlaun á heimsmeistara- mótinu. Hún varð heimsmeistari í langstökki utanhúss á HM í París í fyrra og hlaut silfurverðlaun í sjö- þraut. FÓLK meira fram. Besta liðið hverju sinni á að spila. Á EM ákvað Guðmundur að veðja á aðra leikmenn en mig, það var hans ákvörðun og hann hefur sínar skýr- ingar á því. Ég verð bara að sýna honum næst þegar hann velur mig, ef af því verður, að ég geti leikið bet- ur en ég gerði í þau skipti sem ég fékk tækifæri í undanfara EM og í aðalkeppninni. Ég fullyrði líka að þegar ég er í toppstandi þá á ég að vera maður númer eitt í mína stöðu og ég hyggst sýna það.“ Hvernig tók Guðmundur þeirri gagnrýni þinni að hafir ekki fengið að leika nóg í undanfara EM og fá þannig að spila þig í form? „Ég vil ekki fara of mikið ofan í tveggja manna tal okkar Guðmund- ar. En við ræddum þessi mál í mikilli hreinskilni. Hann sagðist velja það lið hverju sinni sem hann teldi vera best þá stundina. Hann taldi væn- legri kost að taka aðra leikmenn fram yfir mig að þessu sinni. Í fyrsta æfingaleiknum gegn Sviss þá lék ég illa eins og allt liðið. En í næstu tveimur leikjum þar á eftir var mér hálfpartinn hent út. Því fannst mér mjög erfitt að kyngja. Það var mikil breyting fyrir mig að vera aftur kominn í hóp nýliðanna. Ég reyndi að takast á við þá stöðu eins vel og mögulegt var, var jákvæður og allt það. En þetta var ný og alls ekki skemmtileg staða að lenda í. Síðan kom ég inn í leikina á EM gegn Slóvenum og Ungverjum og ætlaði mér að sjálfsögðu að gera mitt besta en ég gerði það ekki. Ég lék ekki mikið í keppninni og að sjálf- sögðu hefði það verið best fyrir mig og landsliðið hefði mér tekist betur upp á þeim stutta tíma sem ég fékk, þá hefði ég getað sannað að lands- liðsþjálfarinn hefði rangt fyrir sér. En þar sem ég náði mér ekki á strik þá get ég ósköp lítið sagt,“ segir Pat- Eftir Evrópumótið í Slóveníu varPatrekur óánægður með hlut- skipti sitt í landsliðinu, hann lék lítið með því í aðdrag- anda keppninnar og jafnvel enn minna þegar á hólminn var komið. „Ég útskýrði fyrir Guðmundi hvernig ég upplifði þessa keppni og að það hefði verið erfitt að vera í þeirri stöðu sem ég var í. Það eru skýringar á því, svo sem sú að ég fór í aðgerð á hné í októ- ber og var lengi frá keppni af þeim sökum, alveg fram í lok nóvember. Þar af leiðandi hafði ég ekki leikið mjög marga leiki þegar kom að und- irbúningi landsliðsins fyrir EM. Ég var hins vegar ekki eini mað- urinn í landsliðinu sem var ekki í full- komnu lagi. Fúsi [Sigfús Sigurðsson] var slappur og Dagur [Sigurðsson] meiddur. Liðið í heild var ekki í nógu góðu standi til þess að ná topp- árangri,“ segir Patrekur, sem telur að sökum þess hafi íslenska lands- liðið sett sér alltof háleitt markmið fyrir EM, það er að vinna sinn riðil. Eftir fyrsta tapið í upphafsleik móts- ins hafi vonbrigðin gert vart við sig þegar ljóst var að markmiðinu yrði líklega ekki náð. Leysti hlutverk mitt illa „Eftir á að hyggja var það meira óskhyggja en annað að vinna riðilinn, markmiðið var ekki raunhæft sökum þess að liðið var ekki í toppstandi lík- amlega,“ segir Patrekur. Hann segist ekki draga dul á von- brigðin með eigin frammistöðu í keppninni. „Ég leysti mitt hlutverk illa þegar ég fékk tækifæri, það við- urkenni ég fúslega. Mér dettur ekki í hug að draga fjöður yfir það. Frammistaðan var ekki góð og ég verð eins og aðrir að draga minn lær- dóm af þessu öllu saman.“ Gefur þú kost á þér í íslenska landsliðið áfram? „Ef ég verð valinn í næstu verk- efni þá ætla ég að meta það í hvaða standi ég verð til þess að takast á við verkefnið. Svo fremi sem ég leik vel með félagsliði mínu og tel mig hafa eitthvað fram að færa með landslið- inu þá hef ég áhuga á að leika með því áfram. Það er hins vegar ekki al- farið í mínum höndum heldur hefur landsliðsþjálfarinn síðasta orðið í þeim efnum, hann velur landsliðið á hverjum tíma og það á enginn leik- maður að eiga fast sæti í því nema kannski Ólafur Stefánsson, sem er eini heimsklassa handknattleiksmað- urinn sem við eigum í dag.“ Þú hefur ekki áhuga á að vera varaskeifa áfram eins og hlutskipti þitt var á EM? „Auðvitað svarar maður allri sam- keppni með því að sýna að maður eigi að vera númer eitt og það hef ég í hyggju að gera, verði ég áfram val- inn í landsliðið. Því má heldur ekki gleyma að það eru nýir leikmenn að koma inn í hópinn, sem er jákvætt, og þá verður maður bara að horfast í augu við það með því að leggja sig rekur sem hefur átt sæti í byrjunar- liðinu undanfarin ár og oft staðið sig vel, svo sem á EM í Svíþjóð fyrir tveimur árum. Allir leikmenn verða að vera heilir ef árangur á að nást „Auðvitað tek ég þessu mótlæti eins og öðru og læri af því. Það hefur sýnt sig að á undanförnum árum þegar íslenska landsliðið hefur náð árangri þá hef ég verið með og leikið vel, má þar nefna EM í Svíþjóð og HM í Kumamoto fyrir sjö árum. Ef íslenska landsliðið ætlar að ná árangri þá tel ég að sem flestir leik- menn verði að vera í toppstandi, nefni ég þar mig, Ólaf, Dag, Guðjón Val, Fúsa og fleiri. Við eigum ekki það stóran hóp leikmanna að við megum við því að einhver sé ekki í toppstandi. Allir verða að vera að leika vel með sínum félagsliðum og hafa sjálfstraustið í lagi til þess að ís- lenska landsliðið geti náð topp- árangri á stórmóti.“ Patrekur segir það hafa verið afar gott fyrir sig að hitta Guðmund landsliðsþjálfara, hreinsa loftið og fara yfir stöðu mála að keppni lok- inni. „Ég veit ekki hvað aðrir leik- menn segja en ég tel þetta hafa verið mikilvægt og er ánægður með að landsliðsþjálfarinn skuli hafa farið og hitt þá leikmenn sem voru með hon- um á EM. Eftir á að hyggja voru það kannski mistök hjá mér að gefa kost á mér í landsliðið fyrir EM. Ég hef hins veg- ar alltaf haft þann metnað að vilja leika fyrir íslenska landsliðið á með- an ég tel mig hafa eitthvað fram að færa. Síðan er það annarra að ákveða hvort sú er raunin. Nú verðum við bara að sjá til hvernig yfirstandandi leiktíð fer hjá Bidasoa. Ég hef æft mjög vel og því tel ég, ef fram heldur sem horfir, að það eigi ekkert að vera því til fyr- irstöðu að ég verði í toppæfingu þeg- Patrekur Jóhannesson lands- liðsmaður leggur spilin á borðið Kannski istök að gefa kost á sér í EM „EFTIR á að hyggja hefði ég ef til vill ekki átt að gefa kost á mér í landsliðið, en mig langaði til að vera með, taldi mig eiga erindi, og gaf þar af leiðandi kost á mér. Kannski var þetta röng ákvörðun, en mér fannst þegar ég tók hana að mér liði líkamlega vel, en vantaði meiri leikæfingu til þess að vera í standi fyrir stórmót,“ sagði Pat- rekur Jóhannesson, handknattleiksmaður hjá Bidasoa Spáni og landsliðsmaður í handknattleik, í samtali við Morgunblaðið í gær en hann var einn þeirra leikmanna sem Guðmundur Þórður Guð- mundsson landsliðsþjálfari fór yfir málin með á ferð sinni um Evr- ópu í síðustu viku. Eftir Ívar Benediktsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.