Morgunblaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Skógarhlíð 18, sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Síðustu sætin. Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara nú þangað í þúsundatali á hverju ári með Heimsferðum. Í mars byrjar að vora enda er þetta vinsælasti tími ferðamanna til að heimsækja borgina. Fararstjórar Heimsferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Góð hótel í hjarta Prag, frábær- ir veitinga- og skemmtistaðir. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 29.950 Flug og hótel í 4 nætur, helgarferð 11. mars. M.v. 2 í herbergi á ILF Hotel. Skattar innifaldir. Verð m.v. netbókun. Bókunargjald kr. 2.000. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Aðeins 10 herbergi í boði á þessu tilboði Helgarferð til Prag 11. mars frá kr. 29.950 ÞORGERÐUR Katrín Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra hefur áskilið sér rétt til að meta framhaldið á fyrirkomulagi samræmdra stúdentsprófa, sem verða í fyrsta sinn þreytt í vor. Steingrímur Sigurgeirs- son, aðstoðarmaður ráðherra, segir það ávallt hafa staðið til og því hafi Þorgerður talið rétt að fara með málið fyrir ríkisstjórn- arfund til upplýsingar á þriðju- dag. Steingrímur segir miklar breytingar framundan á fram- haldsskólastiginu vegna fyrir- hugaðrar styttingar náms til stúdentsprófs. Allt skólastigið sé þar undir og jafnframt tengsl við grunnskóla. Því sé ekki hægt að útiloka að það hafi ein- hver áhrif á samræmd stúd- entspróf. Menntamálaráðherra hafi áskilið sér rétt til að meta framhaldið á grundvelli könn- unarprófs í íslensku í vor og nið- urstöðu þriggja starfshópa um styttingu náms til stúdents- prófs sem séu að störfum. Þátttakan í prófinu í maí virð- ist ætla að verða nokkuð góð segir Steingrímur og það sé fagnaðarefni. Námsmatsstofn- un hafi lagt mikla vinnu í prófið og unnið í góðri samvinnu við framhaldsskólana í landinu. Samræmt stúdentspróf endurmetið EKKERT hefur þokast í samkomu- lagsátt milli Heilsugæslunnar í Reykjavík og fyrrverandi starfs- fólks heimahjúkrunar. Mikið álag er á því starfsfólki sem eftir er en 37 starfsmenn hættu störfum á mánu- dag. Þrír sjúkraliðar hafa sótt um starf við heimahjúkrun, að sögn Þórunnar Ólafsdóttur hjúkrunarfor- stjóra. Gert er ráð fyrir að gengið verði frá ráðningum þeirra á næstu dögum. Nokkrir skjólstæðingar heima- hjúkrunar í Reykjavík hafa kvartað til landlæknis yfir því að fá ekki þá þjónustu sem þeim ber. Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir segir að fólk hafi haft samband við embættið með því að senda tölvu- póst eða hringja og sé því bent á að beina kvörtunum sínum fyrst til stjórnenda Heilsugæslunnar í Reykjavík í samræmi við lög um réttindi sjúklinga. Hann segir emb- ættið ekki vita til þess að skjólstæð- ingar líði alvarlega fyrir deiluna en segir að fylgst verði með því. Þungt hljóð í starfsfólki Guðmundur Einarsson, forstjóri Heilsugæslunnar í Reykjavík, sagði í fréttum Útvarps í gær að þess væru dæmi að starfsfólk heima- hjúkrunar færi í vitjanir án þess að skjólstæðingarnir sem vitjað væri hefðu þörf fyrir það. Í samtali við Morgunblaðið sagðist Guðmundur hafa með þessum ummælum viljað vekja athygli á því að núverandi akstursfyrirkomulag hvetji til auk- inna afkasta, en ekki endilega til aukinnar þjónustu. Þá segir hann að ekki megi gleymast að verið sé að fara með skattfé og því beri að nýta fjárveitingar til starfseminnar vel. Að sögn Huldu Gísladóttur, hjúkrunarfræðings sem starfar hjá heimahjúkrun, er þungt hljóð í starfsfólki og hún segir það ansi þreytt á ummælum þar sem vegið er að starfsheiðri þess. Hún hafnar al- gjörlega ummælum forstjóra heilsu- gæslunnar þess efnis að starfsfólk fari í óþarfar vitjanir til að auka akstursgreiðslur sínar. „Mér finnst ekki verjandi hvernig er vegið að okkur. Það er látið líta út eins og við séum í einhverju kapphlaupi um bílapeninga sem er út í hött,“ segir Hulda. Hún segir hverfisstjóra skipuleggja svokölluð vinnukort og starfsfólk fara í vitjanir eftir því sem kortin segja til um hverju sinni. Stjórn Félags íslenskra heimilis- lækna sendi frá sér ályktun í gær þar sem lýst er áhyggjum vegna deilunnar. „Ástandið bitnar augljós- lega á sjúklingum heimahjúkrunar sem munu ekki fá þjónustu eins og áður fyrir utan að lifa í óvissu um nauðsynlega umönnun. Hjúkrun í heimahúsum er þjónusta sem oft skapar möguleika fyrir fólk að út- skrifast fyrr af sjúkrastofnunum og dvelja lengur heima en ella með til- heyrandi sparnaði á sjúkrastofnun- um,“ segir í ályktuninni. Málsaðilar eru hvattir til að leysa deiluna hið fyrsta með þarfir skjólstæðinga heimahjúkrunar í huga. Tilefnislaus árás á starfsfólk og skjólstæðinga Ólafur F. Magnússon, heimilis- læknir og borgarfulltrúi, hyggst taka málefni heimhjúkrunar upp ut- an dagskrár í borgarstjórn í dag. Ólafur segir kjaraskerðingu vegna breytinga á aksturssamningum í raun vera tilefnislausa árás á starfs- fólk heimahjúkrunar og skjólstæð- inga þess. „Eftir því sem ég best veit þá er þetta fólk síst of vel haldið af sínum launum og er að vinna verðmæt störf. Ég held að ríkis- stjórnin ætti að höggva í einhvern annan knérunn.“ Að mati Ólafs má rekja þann vanda sem nú er kominn upp í heimahjúkrun til þess hve ákvarð- anir eru teknar fjarri vettvangi eftir að heilsugæslan var færð frá sveit- arfélögum til ríkis 1990. Ólafur sat í stjórn Heilsugæslunnar í Reykjavík í tólf ár, frá 1990 til 2002. Hann telur að ekki megi skella skuldinni alfarið á stjórnendur heilsugæslunnar því þeir starfi samkvæmt valdboði að ofan, þ.e. frá heilbrigðisráðuneytinu. Akstursgreiðslur ekki skattfrjálsar Í umfjöllun sem birtist í Morg- unblaðinu í gær um málefni heima- hjúkrunar var ranglega sagt frá því að akstursgreiðslur starfsfólks væru skattfrjálsar. Hið rétta er að starfs- fólk heimahjúkrunar greiðir ekki staðgreiðsluskatt af aksturspening- um. Hins vegar eru aksturs- greiðslur taldar fram og skattur greiddur af hluta þeirra eftir á, þeg- ar búið er að taka saman kostnað vegna reksturs á bíl sem kemur á móti. Ekki í kapphlaupi um bílapeninga Mikið álag á starfsfólki í heimahjúkrun í Reykjavík  Þrír sjúkraliðar verða ráðnir á næstu dögum Morgunblaðið/Sverrir Lyfjaskammtar fyrir sjúklinga. ÞRJÁR stúlkur báru sigur úr být- um í keppni í listdansi sem fram fór í Borgarleikhúsinu á þriðjudag, en þar kepptu efnilegustu ballettdans- arar Íslands af yngstu kynslóðinni um þátttökurétt í fjölþjóðlegri keppni. Stúlkurnar, þær Sæunn Ýr Mar- inósdóttir, Ingibjörg Jónasdóttir og Hrafnhildur Ágústsdóttir, munu keppa fyrir hönd Íslands í sérstakri norrænni ballettkeppni í Svíþjóð dagana 21. og 22. maí, þar sem nemendur frá öllum ríkisreknum ballettskólum á Norðurlöndunum koma saman og keppa. Stúlkurnar eru allar nemendur við Listdans- skóla Íslands en nemendur frá þremur skólum kepptu í dans- keppninni.Keppnin í Svíþjóð hefur verið haldin í sextán ár, en Íslend- ingar senda nú keppendur í fimmta sinn. Í fyrra komst einn íslenskur keppandi í úrslit og varð fjórða. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tignarlegir sigurvegarar hneigðu sig tígulega á sviði Borgarleikhússins. Sigurvegarar í ballett- keppni á norrænt mót BÍLASTÆÐASJÓÐUR áformar að opna fyrir gsm-greiðslumiðlunarkerfi við bílastæði borgarinnar í byrjun sumars þar sem ökumenn geta valið um að greiða fyrir þjón- ustuna með gsm-síma. Hafa fulltrúar úr samgöngunefnd og framkvæmdastjóri Bíla- stæðasjóðs kynnt sér notkun og þróun á slíkri þjónustu er- lendis, m.a. á Norðurlönd- unum, þar sem hún hefur víða gefist vel. Að sögn Stefáns Haralds- sonar, framkvæmdastjóra Bílastæðasjóðs, verður leitað til einkaaðila um reksturinn og hafa símafyrirtæki, hugbún- aðarfyrirtæki og erlendir að- ilar sem reka slík kerfi þegar sýnt áhuga. Mun þjónustan ná til allra gjaldskyldra bílastæða á vegum borgarinnar, að und- anskildum bílastæðahúsunum. Að sögn Stefáns verður áfram hægt að greiða með peningum í gjaldmæla og er fyrst og fremst um að ræða viðbót- arþjónustu fyrir ökumenn. Fá viðvörun með sms-skilaboðum Þjónustan gerir ökumanni kleift að greiða fyrir bílastæði með gsm á þann hátt að upphaf og endir stöðu- tímans sem hann velur er skráð í hugbúnaðarkerfi sem jafnframt reiknar tilheyrandi gjald út frá tíma- gjaldi viðkomandi gjaldsvæðis. Eftirlit fer þannig fram að stöðu- vörður getur kannað stöðuna á grundvelli skráningarnúmers bíls sem auðkenndur verður með litlu merki rekstraraðila þjónustunnar, t.d. í bílrúðu. Miðað er við að þeir ökumenn sem nýti sér þjónustuna geri samning við aðilann sem rekur hana um nánari tilhögun, verð, greiðslufyrir- komulag, o.fl. Rekstraraðili inn- heimtir tímagjald Bílastæðasjóðs sem rennur óskert til sjóðsins auk þess að innheimta kostnað vegna þjónustunnar hjá viðskiptavinum sínum. Búið er að afnema ákvæði um há- markstíma sem hægt er að greiða fyrir í stöðumæli í Reykjavík og með aðstoð gsm-símans verður því hægt að framlengja tímann ef svo ber undir, eins þótt ökumaður sé stadd- ur víðsfjarri. Víða erlendis fá öku- menn senda áminningu í sms skömmu áður en tíminn rennur út. Að sögn Stefáns er ávinningurinn af gsm-greiðslukerfinu sá að not- endur þjónustunnar bera allan kostnað auk þess sem frjáls sam- keppni verður milli ólíkra rekstr- araðila á markaði sem tryggi bestu lausnirnar á hagstæðasta verðinu. Nýtt greiðslumiðlunarkerfi í notkun við bílastæði í Reykjavík í sumar Greitt í stöðu- mæla með gsm Morgunblaðið/Jim Smart
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.