Morgunblaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 14
FRÉTTIR 14 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Netfang: kjoreign@kjoreign.is Heimasíða: www.kjoreign.is Sími 533 4040 • Fax 533 4041 TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA Ármúla 21 • Reykjavík jöreign ehf Vorum að fá í einkasölu fallega 3ja herb. íbúð um 82,0 fm á 4. hæð. Glæsilegt útsýni. Stórar suður svalir. Parket á gólfi. Hús og sameign í mjög góðu ástandi. Nýlegt gler. Verð 12,9 millj. HJARÐARHAGI 44 - LAUS FLJÓTLEGA Sveitarstjórn Aðaldælahrepps um frumvarp um Mývatn og Laxá Hlynnt bráða- birgðaákvæðinu SVEITARSTJÓRN Aðaldæla- hrepps fjallaði á fundi sínum í gær um frumvarp til laga um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þing- eyjarsýslu. Þar var eftirfarandi bókun samþykkt: „Sveitarstjórn ræddi frumvarp til laga um verndun Laxár og Mý- vatns sem hún tók fyrir á fundi sínum 3. apríl 2003. Þá var bráða- birgðaákvæði III ekki inni í frum- varpinu. Það ákvæði er svohljóð- andi: „Þrátt fyrir ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. getur Umhverfis- stofnun heimilað hækkun stíflu við inntak Laxárstöðva I og III efst í Laxárgljúfri, að undan- gengnu mati á umhverfisáhrifum, sbr. lög nr. 106/2000, og að fengnu samþykki Landeigendafélags Laxár og Mývatns. Ákvæði þetta fellur úr gildi 31. desember 2014. Sveitarstjórn Aðaldælahrepps lýsir samþykki sínu við bráða- birgðaákvæði III enda gefi það Landsvirkjun og heimamönnum möguleika á að finna viðhlítandi lausn á rekstrarvanda Laxárvirkj- unar án þess að ganga of nærri líf- ríki Laxár í Þingeyjarsýslu.“ EINHUGUR ríkir meðal dagforeldra um að sætta sig ekki við fækkun barna úr fimm í fjög- ur, eins og félagsmálaráðuneyti hefur lagt til í drögum að nýrri reglugerð um daggæslu í heimahúsum. Reiði ríkti á fundi hátt í þrjú hundruð dagforeldra víðs vegar að af landinu sem haldinn var í Gerðubergi á þriðjudags- kvöld til kynningar á nýrri reglugerð. Að sögn Ingu Hönnu Dagbjartsdóttur, sem situr í stjórn Barnavistunar, félags dagfor- eldra í Reykjavík, eru dagforeldrar ákveðnir í að berjast fyrir því að halda fimmta barninu. Hún segir ljóst að margir muni hætta störfum verði fækkuninni haldið til streitu þar sem eng- inn grundvöllur sé fyrir daggæslu með einung- is fjögur börn Hún segir að 283 dagmæður hafi nú þegar skrifað undir ályktun sem afhenda á félags- málaráðherra á næstu dögum en beðið sé eftir undirskriftalistum af landsbyggðinni. Fundur- inn í fyrradag var opinn dagforeldrum af öllu landinu, og að sögn Ingu Hönnu fór mætingin fram úr björtustu vonum, dagforeldrar komu úr ýmsum byggðum öðrum en höfuðborgar- svæðinu, t.d. frá Akranesi og úr Keflavík. Stærsta baráttumál dagforeldra er að halda ákvæði í eldri reglugerð frá 1992 sem segir að hvert dagforeldri megi hafa fimm börn í sinni umsjá, en að sögn Ingu Hönnu er það síst of mikið. Hún segir dagforeldra hafa áhyggjur af því að hafa ekki nóg að gera með fjögur börn. Þá sé fráleitt að skikka þá sem hafi kannski starfað í áratugi með fimm börn í sinni umsjá til að fækka þeim um eitt. Leggi niður störf í einn dag Samtök dagforeldra hafa frest til 10. mars nk. til að gera tillögur að breytingum á þeirri reglugerð sem félagsmálaráðuneytið hefur lagt til. Sú hugmynd var lögð fram og rædd á fundinum að dagforeldrar legðu niður vinnu í einn dag yrði ekki tekið tillit til þeirra óska um breytingar. Á fundinum var einnig tekið fyrir það sem dagforeldrar telja óþarfar klausur í reglugerðinni eins og sú grein sem segir að hvert barn skuli vera í aðlögun einn klukku- tíma á dag í viku áður en það fer í daggæslu hálfan eða heilan dag. Slíkt telja dagforeldrar að eigi að vera samkomulagsatriði við foreldra og fara eftir þörfum hvers barns. Reiði á fundi dagforeldra Hátt í þrjú hundruð dagforeldrar mótmæla nýrri reglugerð félagsmálaráðuneytis Morgunblaðið/Ásdís Margrét Reynisdóttir hefur starfað sem dagmamma í Hafnarfirði um árabil. Hún er ekki ánægð með nýju reglugerðina sem félagsmálaráðuneytið hefur sett fram. Hún segir að verði dagmæðrum gert að starfa með fjögur börn í stað fimm, eins og þær hafa gert í gegnum árin, muni hún einfaldlega hætta og snúa sér að öðru. Á fjölmennum fundi dagforeldra á mánudag var einhugur um að mótmæla nýrri reglugerð. HUGARAFL, félag einstaklinga sem átt hafa við geðræn vandamál að stríða en eru nú á batavegi sem og fagaðila í geðheilbrigðisþjónustu, vilja að þeir sem þurfa að nota geð- heilbrigðisþjónustu geti haft áhrif á hana með ýmsum hætti og miðlað þar með af reynslu sinni, öðrum til að- stoðar. Markmið hópsins er því að efla þjónustu við geðfatlaða og koma fram með nýjar áherslur í geðheil- brigðismálum. „Við viljum efla áhrif þeirra sem þjónustuna sækja og auka samvinnu fagfólks og þeirra sem glíma við geðsjúkdóma á jafningja- grundvelli sem og að auka þekk- ingu,“ segir Auður Axelsdóttir, for- maður hópsins og iðjuþjálfi hjá Heilsugæslunni í Reykjavík. Telur hópurinn að tími sé kominn til að finna nýjar leiðir til að bæta líðan geðsjúkra og að til þess sé breytt við- horf nauðsynlegt. Félagið stofnað í september Í september á síðasta ári var gerð- ur samningur á milli Tryggingastofn- unar og Heilsugæslunnar um eft- irfylgni iðjuþjálfa við geðsjúka. Hugarafl var stofnað í framhaldi af því og hefur allar götur síðan beitt sér m.a. fyrir því að miðla upplýs- ingum um þá geðheilbrigðisþjónustu sem þegar er í boði og að vinna að ný- sköpunarverkefni sem fékk styrk frá félagsmálaráðuneytinu í tilefni af Ári fatlaðra. Var hópurinn sá eini innan geðheilbrigðisgeirans sem fékk styrk af þessu tilefni. Hugarafl hefur einnig fengið jákvæð viðbrögð hjá Heil- brigðisráðuneytinu. Hlutverkasetur í bígerð Nýsköpunarverkefnið felst í að þróa það sem Hugarafl kýs að kalla Hlutverkasetur; kaffihús sem verður samtvinnað margskonar starfsemi á borð við útgáfustarfsemi, fræðslu, vinnu við tenglakerfi, margs konar rannsóknarvinnu og starfsþjálfun svo eitthvað sé nefnt. Hlutverkasetrið er hugsað fyrir þá sem hafa vegna veik- inda, t.d. geðrænna, annarrar fötl- unar eða atvinnuleysis orðið óvirkir í samfélaginu. „Við teljum mjög mik- ilvægt að virkja einstaklingana,“ seg- ir Einar Björnsson félagi í Hugarafli, en hugsunin er sú að í Hlutverka- setrinu vinni fólk sem er á batavegi. „Okkar reynsla er sú að þegar fólk dettur út úr samfélaginu þá verða veikindin verri, fólk leggst frekar inn á sjúkrahús og þarf meiri aðstoð og umönnun. Setrið er ætlað þeim sem eru aftur að byrja að fóta sig í sam- félaginu.“ Hópurinn leggur áherslu á að Hlutverkasetrið er ekki meðferðar- staður heldur vettvangur þar sem hægt er að hafa hlutverk og láta gott af sér leiða. „Hugmyndin er að ein- staklingurinn skapi sér hlutverk, finni það hjá sér að hann er metinn að verðleikum,“ segir Garðar Jónasson, félagsmaður í Hugarafli. „Hugmyndum okkar hefur verið mjög vel tekið og mjög margir hafa heimsótt heimasíðuna okkar, hugar- afl.is,“ segir Bergþór Grétar Böðv- arsson, einn af félögum hópsins. Hóp- urinn segir að í raun væri hægt að opna setrið á skömmum tíma, fengist til þess nægt fjármagn. Þegar liggur fyrir viðskiptaáætlun en hópurinn segir að það verði leitað til opinberra aðila sem og fyrirtækja og athafna- fólks um stuðning við að koma setr- inu á stofn. „Það er hagur allra, ekki aðeins einstaklinganna sem myndu nýta sér setrið, að ná að virkja sem flesta til góðra verka,“ segir Einar. „Okkar markmið er ekki að gagn- rýna þá þjónustu sem fyrir er heldur viljum við að hún verði aukin, og að hún verði fjölbreyttari,“ segir Einar. Hann bendir á að talað sé um að 50 þúsund Íslendingar eigi við geðræn vandamál að stríða, „en meðferð við geðröskunum er miðuð við veikasta fólkið. Stórum hópi þessa fólks er því ekki sinnt. Það þyrfti að bregðast miklu fyrr við með því að upplýsa fólk um úrræði og um leið er nauðsynlegt að eyða fordómum sem ríkja í sam- félaginu um geðraskanir.“ Gagnabanki, útgáfa og fundur Ætlun Hugarafls er að setja á stofn gagnabanka með upplýsingum um úrræði fyrir fólk með geð- sjúkdóma og annan til með upplýs- ingum um styrkleika meðlima hóps- ins svo að allir fái verkefni sem henti þeim. Hugarafl hefur aðsetur á heilsugæslunni í Drápuhlíð og hittist þar tvisvar í viku og oftar þegar þörf krefur. Á kynningarfundi sem hald- inn verður á laugardag verður starf- semi Hugarafls kynnt sem og ný- sköpunarverkefnið Hlutverkasetrið. Þá leggja forsvarsmenn hópsins áherslu á að fundurinn sé ekki síst vettvangur fyrir hugmyndavinnu allra þeirra sem hann sækja. „Við viljum fá hugmyndir frá sem flestum þeirra sem áhuga hafa á málinu,“ segir Auður Axelsdóttir. Á fundinum, sem haldinn verður á Kaffi Reykjavík milli kl. 13 og 16, verður dreift bæklingi sem Hugarafl hefur útbúið þar sem fjallað er um þjónustu fyrir geðsjúka. Einnig mun Hugarafl gefa út leiðbeiningabækl- ing sem Jón Ari Arason hefur þýtt úr erlendri grein. Í honum eru leiðbein- ingar um hvernig skuli halda virð- ingu og völdum í viðtali hjá geðlækni. Jón Ari segir: „Það er ekki hann [geðlæknirinn] sem á að stjórna fundinum heldur sá sem þjónustuna fær.“ Til stendur að gefa út efni um ýmis málefni sem tengjast geðheil- brigði í framtíðinni. Fundurinn er öll- um opinn og fundarstjóri verður Héðinn Unnsteinsson. Félagið Hugarafl heldur kynningarfund á laugardag Morgunblaðið/Jim Smart Félagar í Hugarafli: Garðar Jónasson, Einar Björnsson, Auður Axelsdóttir, Jón Ari Arason og Bergþór Grétar Böðvarsson. Vilja efla samvinnu á jafningjagrundvelli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.