Morgunblaðið - 13.03.2004, Síða 6
OFT ERU fermingarbörn að koma í fyrsta skipti
fram opinberlega ef svo má segja. Þau ganga
inn kirkjugólfið og standa við altarið og síðar um
daginn eru þau líka miðpunktur athyglinnar í
fermingarveislunni.
En það eru ekki allir unglingar undir slíka at-
hygli búnir, sumir er feimnari en aðrir. Skyldi
vera hægt að bregðast við því, æfa þá á ein-
hvern hátt undir þessa athygli?
Kristín Ásta Kristinsdóttir hefur unnið hjá Esk-
imo Models með hléum frá 1998 og hefur leið-
beint mörgum unglingum, m.a. hvað snertir
framkomu og hreyfingar svo ekki sé talað um
hvernig hið unga fólk eigi að klæðast, greiða sér
og mála sig.
„Mér finnst vanta talsvert upp á sjálfsöryggi
hjá unglingum á fermingaraldri, þeir miða sig
gjarnan við næsta mann og finnst þeir oft ekki
standast samanburðinn,“ segir Kristín Ásta.
Unglingar ættu að taka sjálfstæðar
ákvarðanir varðandi fermingu sína
En hvaða ráð getur hún gefið þeim unglingum
sem nú fara senn að verða miðpunktur athygl-
innar í fermingunni sinni?
„Ef unglingar taka þá ákvörðun að fermast þá
ættu þeir að taka sjálfstæðar ákvarðanir hvað
varðar t.d. klæðaburð og veisluhöld. Stúlka sem
treystir sér ekki að ganga á háum hælum í fyrsta
sinn við fermingu ætti að vera á sléttbotna
skóm, þá liði henni betur og yrði öruggari með
sig. Foreldrar ættu almennt að hvetja unglinginn
sinn til að gera það sem hann treystir sér til í
þessum efnum. Það eru til dæmis ekki allir ung-
lingar sem vilja bjóða fjarskyldum ættingjum,
sem þeir hafa kannski aldrei hitt, í veisluna sína
og verða að kyssa fjöldann allan af ókunnugu
fólki. Það er oft betra að hafa minni íburð, hlut-
ina hófstilltari og eðlilegri, þá líður öllum betur.“
Þú valdir fyrirsæturnar sem sýna ferming-
arfötin í þessu blaði – eru þið hjá Eskimo með
marga unglinga á þessum aldri á skrá?
„Já, það er mikill fjöldi á skrá hjá okkur. Ung-
lingarnir gefa sig sjálfir fram og vilja sitja fyrir á
myndum í auglýsingum, bæklingum og sýna föt
– en reyndin er sú að það er ekki mikil eftirspurn
eftir fyrirsætum á þessum aldri. Þess má geta
að Eskimo er með námskeið fyrir 13 ára ung-
linga og eldri. Þar er kennd framkoma og allt það
sem verða má til að styrkja sjálfsmynd fólks.“
Námskeiðunum ætlað að
auka vellíðan og skapa sjálfsöryggi
Eiga þeir sem sækja slík námskeið auðveld-
ara með að komast í fyrirsætustörf síðar?
„Það eru allir velkomnir á svona námskeið,
engin skilyrði þarf að uppfylla, þau eru einkum
ætluð til að auka almenna vellíðan, skapa
sjálfsöryggi og til að svala forvitni þeirra sem
vilja fræðast um fyrirsætustörf en auðvitað eru
þau líka tískutengd. Námskeiðin enda með
myndatökum og í kjölfarið fara allir á skrá hjá
okkur. Þannig að við fylgjumst áfram með þess-
um krökkum og ef þeir hafa það til að bera sem
þarf í eitthvert verkefni og vilja koma fram þá er
þeim boðið verkefni.
Margar af þeim stúlkum sem nú taka þátt í
Ford-fyrirsætukeppninni, sem haldin verður 20.
mars í Vetrargarðinum í Smáralind, hafa verið á
námskeiðum hjá Eskimo. Nokkrar af þeim sem
sigrað hafa þessa keppni byrjuðu feril sinn á
svona námskeiðum, t.d. Margrét Una Kjart-
ansdóttir (Malla) og Edda Pétursdóttir, sem báð-
ar eru nú starfandi fyrirsætur í New York.“
Námskeið
í framkomu
vinsæl
Kristín Ásta Kristinsdóttir.
Morgunblaðið/Sverrir
Kristín Ásta
Kristinsdóttir