Morgunblaðið - 13.03.2004, Page 13
brúnu kremi. Ég stóð agndofa og fylgdist
með framleiðslunni og hafði aldrei séð önn-
ur eins listaverk áður.“
Óútreiknanlegt hvað vekur áhuga barna
„Ég held að tertan hennar frænku minnar
hafi verið upphafið að áhuga mínum á mat-
argerð.
Það er óútreiknanlegt hvað það er sem
vekur áhuga barna og leiðir til þess að þau
uppgötva hæfileika sína og áhugasvið.
Sem verkmenntakennara hefur mér alltaf
fundist það áhyggjuefni hvað námsframboð
skóla virðist oft á tíðum einhæft og bók-
miðað og síðan bætist við sú staðreynd
sem flestir samþykkja að börn læra minna
til verka í foreldrahúsum en áður. Hvar eiga
börnin að uppgötva hvað í þeim býr sem
ekki eru gefin fyrir stærðfræði og tungu-
málahugtök? Það er ekki að furða þótt
mörg þeirra rekist illa í hinu bókmiðaða
skólakerfi. Sjálf fékk ég afar litla verk-
menntakennslu á skyldunámsstigi og óvíst
er hvað um mig hefði orðið, ef regnboga-
tertan góða hefði ekki kveikt áhuga minn
endur fyrir löngu því stærðfræðin var minn
óvinur alla mína skólagöngu.“
Fyrsta veislan byrjaði ekki vel
„Mín fyrstu veisluhöld byrjuðu ekki vel
frekar en hjá mörgum öðrum ungum hús-
freyjum. Ég var nýgift og að byrja búskap og
ætlaði að sjálfsögðu að sýna manninum
mínum hvað í mér byggi. Ég keypti lær-
issneiðar í fyrstu máltíðina á nýstofnuðu
heimilinu, en lærissneiðar voru meðal þess
fínasta sem maður keypti í matinn árið
1962 og náttúrlega gaddfreðnar. Ég steikti
þær en ég vissi ekki þá að til þess að loka
kjötstykki þarf að steikja það við all háan
hita stutta stund og við hitaþrýstinginn
springa frumuhimnur kjötsins inn á við og
steikarskorpan sem myndast við steik-
inguna varnar því að kjötsafinn flæði út úr
kjötinu við matreiðslu. Ég gerði hið gagn-
stæða. Ég hef steikt sneiðarnar við alltof
lágan hita, kjötsafinn flæddi út úr kjötinu
og próteinið í kjötsafanum sauð á pönnunni
og myndaði skán á hana, kjötið festist í
skáninni því meir sem ég hækkaði hitann
til að reyna að kalla fram brúningu og að
lokum fékk maðurinn minn þurrar soðnar
lærissneiðar á diskinn. Ég bætti honum
þetta upp síðar.“
Tíndi greinar og blóm til
að skreyta borðið
„Ég þurfti ung á því að halda að standa
fyrir veislum. Maðurinn minn varð ungur op-
inber embættismaður og það var í lok þess
tímabils þegar enn tíðkaðist að móttökur
fóru fram á heimili viðkomandi embættis-
manns. Við vildum standa okkur eins og
þeir sem eldri voru og tókum þessar skyld-
ur alvarlega. Ég átti góða og hjálpsama
eldri systur sem leiddi mig fyrstu skrefin
þar til ég gat þetta sjálf. Við tókum mikið á
móti erlendum gestum á þessu tímabili og
ég held að eftirminnilegustu veislurnar sem
við stóðum fyrir hafi verið í lok funda eða
ráðstefna þegar haldið var með gestina út í
íslenska náttúru. Farið var með veitingarnar
með sér og á meðan gestirnir skoðuðu
markverða hluti lagði ég dúka á jörðina,
festi þá niður með fallegum steinum, tíndi
greinar og blóm í umhverfinu, „skreytti
borðið“, dró fram pappadiska og glös og
með hjálp bílstjórans ýmiskonar veitingar
sem komið hafði verið fyrir í farangursrými
rútunnar. Sjaldan hef ég fengið meiri þakkir
fyrir veitingar en þegar fólkið kom glorsv-
angt úr skoðunarleiðangrum og átti ekki
von á neinu. Þetta voru eftirminnilegar ferð-
ir og oft kvöddum við þakkláta gesti.“
Það lærist smátt og smátt
að halda veislur
„Það lærðist smátt og smátt að halda
veislur, skipuleggja og byrja undirbúninginn
snemma. Ég skrifaði alltaf niður eftir hvert
Ostabollur með ólívum
2 dl rifinn ostur
50 g grænar ólívur m/
paprikufyllingu
7 dl hveiti fyrir brauðvélar
5 tsk þurrger
1 tsk salt
1 tsk sykur
2 ½ dl volgt vatn
2 msk olía
4 msk skyr eða kotasæla
1 egg til penslunar
paprikuduft til skrauts
1. Rífið ostinn og skerið ólívurnar
smátt.
2. Takið frá 1 dl af hveiti og geymið á
diski til nota síðar.
3. Blandið saman öllum þurrefnunum,
ostinum og ólívunum.
4. Hrærið skyrið eða kotasæluna út í
vatnið og bætið olíunni út í.
5. Blandið öllu saman og hrærið og
hnoðið, bætið hveitinu sem tekið
var frá út í, ef þörf krefur. Passið að
gera deigið ekki of þurrt, það á að
vera mjúkt.
6. Setjið deigskálina til hefingar í heitt
vatnsbað í eldhúsvaskinn í u.þ.b.
15 mín. Hnoðið deigið á ný og mót-
ið pylsu sem skipt er í jafna bita.
7. Mótið bollur og látið þær lyfta sér á
plötu með bökunarpappír.
8. Skerið eða klippið kross í bollurnar,
penslið með eggi og stráið papr-
ikudufti yfir.
9. Bakið við 210°C á miðrim í ofninum
í 15–20 mín.
Bornar fram volgar með súpum, græn-
metisréttum, salötum eða ostum.
Sælgætisterta
af Netinu
4 eggjahvítur
2 dl sykur
1 dl púðursykur
1-11/2 amerískur bolli Rice
krispies morgunverðarkorn
1. Stífþeytið eggjahvíturnar með sykr-
inum og púðursykrinum.
2. Teiknið á bökunarpappír tvo hringi
um 23 cm í þvermál . Setjið papp-
írinn á bökunarplötu.
3. Skiptið deiginu jafnt á hringana og
bakið (báða botnana í einu) við
125°C í 50–60 mínútur á blæstri,
150°C í venjulegum ofni. Kælið síð-
an á bökunargrind.
Fylling:
2 pelar rjómi
1 askja jarðarber
1 lítil askja bláber
1. Þeytið rjómann, þvoið og skerið nið-
ur berin (takið e.t.v. nokkur frá til
skreytingar) bætið þeim út í
rjómann og setjið á milli tertubotn-
anna.
Krem:
2½ pakki Rolo (sælgætis-
rúllur fást í stórmörkuðum)
eða 1½ plata suðusúkkulaði
50 g suðusúkkulaði
4–6 msk rjómi
1. Bræðið súkkulaðið og þynnið með
rjómanum, passið að það verði
ekki of þunnt, hellið því yfir tertuna
og skreytið með ferskum berjum.
Sé þessi terta bökuð í ofnskúffu eins
og hér er gert þarf að tvöfalda upp-
skriftina.