Morgunblaðið - 13.03.2004, Page 17
Bollur með gráðosti
og hnetum
1 dl hveitiklíð
1 dl heilhveiti
5 dl hveiti
1 tsk salt
3½ tsk þurrger
100 g valhnetukjarnar
3 dl volgt vatn
2 msk olía
4 msk kotasæla eða skyr
100 g gráðostur
1. Takið frá 1 dl af hveiti og setjið á
disk til nota síðar ef þörf krefur.
2. Blandið öllum þurrefnum saman í
skál og gerinu líka.
3. Blandið næst saman vatni og olíu
og myljið gráðostinn út í og setjið
kotasæluna/skyrið saman við og
hrærið.
4. Blandið þessari blöndu saman við
þurrefnin og hrærið og hnoðið.
5. Bætið hveitinu sem tekið var frá í
upphafi saman við eftir þörfum og
hnoðið deigið þar til það sleppir
bæði hönd og borði. Deigið á að
vera mjúkt.
6. Setjið það aftur í deigskálina og
skálina í heitt vatnsbað í eldhús-
vaskinn og látið hefast í um 15 mín.
7. Hvolfið deiginu aftur á borðið, þrýst-
ið loftinu úr því og hnoðið og mótið
litlar bollur, penslið þær með eggi
og bakið í um 20 mín. við 200°C.
Morgunblaðið/Ásdís
Norsk smábrauð
¾ dl olía
1 dl léttmjólk
1 dl heitt vatn
1 egg
5 tsk þurrger
½ tsk salt
2 msk sykur
6 dl brauðvélarhveiti
Til að pensla með:
1 egg
valmúafræ
sesamfræ
1. Takið frá 1 dl af hveiti og geymið á diski
til nota síðar ef þörf krefur.
2. Blandið saman í stóra skál, heitu vatni
úr krananum, kaldri mjólk, eggi og olíu
og hrærið saman.
3. Bætið þurrefnunum saman við og
hrærið og hnoðið. Bætið hveitinu sem
tekið var frá í upphafi út í ef þörf krefur.
4. Passið að gera deigið ekki of þurrt, það
á að vera mjúkt og klístrast hvorki við
hendur né borð þegar það fer í skálina
aftur. Setjið skálina í heitt vatnsbað í
eldhúsvaskinn og látið hefast í um 15
mín.
5. Hnoðið deigið aftur og skiptið því í 12
jafna bita. Mótið bollur úr bitunum og
notið beittan hníf til að skera 8 djúpar
raufar í kantana á bollunum.
6. Penslið þær með samanslegnu eggi og
stráið fræjunum yfir og látið hefast í
um 10 mín. á bökunarplötunni.
7. Bakið við 225°C í um 10 mín. og kælið
síðan á bökunargrind.
Nokkrar ritningargreinar
Jesús segir: Ég er ljós heimsins,
hver, sem fylgir mér, mun ekki
ganga í myrkrinu, heldur hafa ljós
lífsins.
Jesús segir: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á og fyrir yður mun upp lokið verða.
Jesús segir: Leyfið börnunum að
koma til mín,varnið þeim eigi, því að
slíkra er Guðs ríkið. Sannlega segi
ég yður: Hver sem ekki tekur við
Guðs ríki eins og barn, mun aldrei
inn í það koma.
Ekki lifir maðurinn
á einu saman brauðinu!
Vinsælustu
fermingar-
gjafirnar
KRINGLUNNI • SMÁRALIND
Frábært úrval
St. 36-46
Dragtir - ný sending