Morgunblaðið - 13.03.2004, Qupperneq 18
1. Setjið reykta laxinn og rækjurnar í mat-
vinnsluvél og maukið.
2. Hrærið kryddið saman við sýrða rjómann.
3. Látið matarlímsblöðin liggja í bleyti í 5
mínútur í köldu vatni.
4. Setjið rjómann í lítinn pott og hitið við
vægan hita þangað til hann er orðin yl-
volgur um það bil 35 gráður. Takið pottinn
af hellunni
5. Takið matarlímið upp úr vatninu og kreist-
ið úr því vatnið og setjið út í rjómann. Gott
er að hræra aðeins í vökvanum meðan
matarlímið er að bráðna. Gætið þess að
hafa ekki of mikinn hita á rjómanum.
6. Hrærið síðan rjóma- og matarlímsblönd-
unni saman við sýrða rjómann og krydd-
ið.
7. Bætið að lokum maukaða laxinum og
rækjunum varlega saman við.
Gangið frá laxamaukinu á eftirfarandi hátt
1. Klæðið 2–3 stór jólakökuform (eða önnur
mót sem henta) með matarfilmu.
2. Hellið því næst maukinu í formin og lokið
með plastfilmu. Ef vill má raða þunnum
laxasneiðum í formin og upp með hliðum
þeirra, hella maukinu síðan í og leggja að
lokum laxasneiðar ofan á og filmuna þar
yfir. Ef þessi leið er valin þarf að bæta við
laxasneiðum.
3. Látið standa í kæli yfir nótt.
Gott er að frysta þennan rétt og taka
hann síðan úr frosti 5–6 klst. áður en veisla
hefst. Þá er tilvalið að taka hann úr forminu
hálffrosin og skera í 1 cm sneiðar og setja á
fat. Fallegt er að skreyta laxasneiðarnar
með fersku dilli eða steinselju. Skreyta má
fatið með harðsoðnum eggjum sem búið er
að skera í báta, tómata, agúrku, sítrónu eða
limebátum og ef til vill ristuðu brauði.
Geymist í kæli í 2–3 daga.
Sósan:
4 dl sýrður rjómi
3 dl majones
3 dl fínt saxaðar súrar agúrkur
smá sítrónusafi
1. Hrærið saman sýrða rjómanum og
majonesinu.
2. Saxið gúrkurnar smátt og bætið út í.
3. Bragðbætið með sítrónusafa.
Þessi réttur er mjög bragðgóður og fersk-
ur. Það er hægt að gera hann löngu áður og
geyma í frysti. Sósuna þarf að gera daginn
áður.
Áætlaður kostnaður við þennan rétt er
4000 kr.
hafa þær í formi brauðs/snittubrauðs. Auð-
vitað má baka brauðið þegar hentar og
frysta.
Hlaðborð: Laxakonfekt – rækjuréttur –
kaldur kjúklingur á grænmetisbeði – köld
skinka – pottþéttur pottréttur – grænmet-
issalat – hrísgrjón – kartöflur í eldföstu móti
– Dajmterta – brauð.
Athugið að uppskriftirnar miðast við 20
manna veislu.
Laxakonfekt
500 g reyktur lax
375 g rækjur
375 g sýrður rjómi
2½ tsk. þurrkað dill
¾ tsk. salt
¾ tsk. pipar
1½ tsk. karrý
13 blöð matarlím
2½ dl rjómi
ÞEGAR halda á góða veislu er að mörgu að
hyggja. Hér eru nokkrar góðar ábendingar
um það hvernig hægt er að halda góða
fermingarveislu í heimahúsi og hafa hana á
viðráðanlegu verði.
Undirbúningur hefst venjulega löngu fyrir
tilsettan dag og má þar nefna að ferming-
arfatnaður, boðskort og fleira hafa verið
keypt. Boðskort er hægt að útbúa í tölvu,
kaupa tilbúin kort eða föndra kortin sjálfur.
Eins og allir vita er kostnaður við veislu
sem þessa talsverður og því getur verið gott
að dreifa honum.
Ýmislegt er hægt að kaupa fyrirfram og
nauðsynlegt er að vera búinn að ákveða
tímanlega borðskreytingu og hvaða liti á að
nota. Fermingarservíettur fást á bilinu 250–
500 kr. pakkinn. Fermingarkerti sem merkt
eru barninu kosta 1000–3000 kr. Margt til
veislunnar er hægt að kaupa löngu áður svo
sem kaffi, gos, niðursoðnar dósavörur og
frystivörur.
Tveir pakkar af kaffi ættu að duga í 20
manna veislu og er verðið á bilinu 250–320
kr. fyrir 500 g pakka. Áætla þarf um hálfan
lítra af gosi fyrir hvern mann, þannig að 10–
15 lítrar ættu að duga fyrir 20 manns. Gos í
tveggja lítra umbúðum kostar um 190 kr.
Nauðsynlegt er að bjóða upp á ískalt klaka-
vatn og fallegt er að setja sítrónu- og lime-
sneiðar út í.
Gott er að velja rétti til veislunnar sem
hægt er að útbúa fyrirfram. Húsráðendur
ættu að vera sem minnst uppteknir við mat-
artilbúning á fermingardaginn.
Með þetta að leiðarljósi eru settar fram
hugmyndir að köldu matarhlaðborði sem
allir ættu að geta útbúið sjálfir heima. Fyrir
valinu urðu réttir sem eiga það sameig-
inlegt að vera einfaldir og góðir. Suma
þeirra er hægt að matreiða með góðum fyr-
irvara og geyma í frysti en aðra er hægt að
hafa til daginn áður.
Grænmeti er best að kaupa sem ferskast
eða degi fyrir veisluna. Til að flýta fyrir er
gott að vera búinn að skera/rífa niður græn-
meti og geyma á köldum stað. Uppskrift-
irnar að bollunum sem eru á kaffihlaðborð-
inu henta vel sem meðlæti og má ef vill
Morgunblaðið/Ásdís
Þær útbjuggu „fermingarveisluna" góðu og völdu mataruppskriftir. F.v. Agnes Þorleifsdóttir, Anna Fjeldsted, Ásdís Kristinsdóttir, Jóhanna Jónasdóttir, Jóna S. Sigurðardóttir,
Kristín Þórey Eyþórsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Sigríður Ósk Reynaldsdóttir, Sigríður F. Halldórsdóttir, Sigrún Ágústa Harðardóttir og Stefanía Ólafsdóttir.
Fermingarhlaðborð
fyrir 20 manns
Nemendur Stefaníu
Stefánsdóttur við heim-
ilisfræðideild KHÍ koma hér
með tillögur að réttum á
fermingarhlaðborð. Þetta
eru allt uppskriftir sem þær
hafa sjálfar reynt með mjög
góðum árangri, margar upp-
skriftanna eru úr eldhúsi
þeirra sjálfra.
Morgunblaðið/Ásdís