Morgunblaðið - 13.03.2004, Síða 28
„ÞAÐ er rómantík í loftinu,“
segir Hrefna Hlín Svein-
björnsdóttir hjá hárgreiðslu-
stofunni Mojo. Hún segir
greinileg áhrif frá Hringa-
dróttinssögu í hártísku
stúlkna um þessar mundir.
„Hárið á að vera fallega
bylgjað og þá stórir liðir og
sléttujárnin sívinsælu hafa
vikið fyrir bylgjujárnunum, í
það minnsta um stund-
arsakir. Einnig eru túper-
ingar í anda sjötta áratug-
arins mikið notaðar til þess
að lyfta hárinu. Flestar stelp-
ur eru að safna hári fram að
fermingu og því er um að
gera að leyfa síddinni að
njóta sín og bylgja það og
brjóta jafnvel upp með litlum
fléttum, þær eru alltaf klass-
ískar.
Minna um flóknar
fermingarhárgreiðslur
Það er miklu minna um
flóknar fermingarhár-
greiðslur en áður var og
heldur hefur dregið úr
slöngulokkaflóðinu. Þó eru
alltaf einhverjir sem vilja
leggja svolítið í greiðsluna
og þá er gott að hafa í huga
þá einföldu reglu að því flóknari sem hár-
greiðslan er því minna skal nota af hár-
skrauti, en hins vegar ef hárgreiðslan er
einföld að brjóta endilega upp með skrauti,
til dæmis laufblöðum eða ferskum blóm-
um, gjarnan í sama lit og fötin. Ef hár er
millisítt er upplagt að taka hárið frá andlit-
inu, setja í það bylgjur og taka jafnvel upp.
Strákar eru margir með nokkuð sítt hár í
dag, klippingar eru flestar þannig að þær
eiga að virka þannig að hárið sé úr sér vax-
ið en samt með ákveðna línu. Til þess að
fríska upp á hárið á strákunum er því upp-
lagt að blása það og setja í hárefni. Ferm-
ingargreiðslur kosta á bilinu 4.500 til
7.500 krónur, allt eftir því hversu flóknar
þær eru.
Fyrir þær stelpur sem eru byrjaðar að
mála sig er mikilvægt að passa að nota
ekki of mikinn farða á fermingardaginn,
segir Þórunn Sif Garðarsdóttir eða Tóta Sif
hjá Mac-snyrtivörum í Debenhams í Smára-
lind. Ef notaður er farði er fallegast að förð-
unin sé eins náttúruleg og hægt er. Það
má til dæmis slétta örlítið út húðina og
setja endilega á sig bjartan og fallegan
kinnalit og einn sætan augnskugga yfir
augun, ef til vill blýant en þó ekki of sterk-
an. Augnskuggarnir eru í ljósum litum
núna, fjólubláir, sægrænir, fölbleikir og
silfraðir. Maskarar eru brúnir og nátt-
úrulegir og svo er að setja punktinn yfir i-ið
og skella á sig glossi, gjarnan gegnsæju
eða með bleikum tóni.
Áhrif frá Hringadróttinssögu
Morgunblaðið/Þorkell
Hárgreiðsla og förðun er stórt mál hjá margri ferming-
arstúlkunni og strákunum er heldur ekki sama hvernig
hárið er. Móeiður Júníusdóttir ræddi við Hrefnu Hlín
Sveinbjörnsdóttur hjá hárgreiðslustofunni Mojo um
tískustrauma á þessum sviðum.
Hárgreiðsla: Hrefna Hl ín Sveinbjörnsdóttir hjá Mojo. Förðun: Sólveig hjá MAC í Debenhams, Smáral ind. MAC-snyrt ivörur.