Morgunblaðið - 13.03.2004, Side 31
Vinaarmböndin vinsælu
Persónuleg fermingargjöf
Hlekkir frá kr. 1.000
Armbönd frá kr. 800
KRINGLUNNI • SMÁRALINDFrábært úrval
Ferming 2004
TVEIR megindrættir eru í fermingar-
tísku fyrir mæðgur í versluninni Noa
Noa. Annars vegar er um að ræða róm-
antíska og mjúka línu í pasteltónum
og hins vegar ákveðnari snið og sterk-
ari liti, segir Ragnhildur Anna Jóns-
dóttir, eigandi verslunarinnar.
„Rómantíska línan er í ljósum og
mjúkum litum, til dæmis fölbleikum,
og sterka línan er rauð, dökkgræn og
appelsínugul,“ segir hún.
Fölbleikt er mjög áberandi í fata-
tísku sumarsins og segir Ragnhildur
að sterku litirnir hafi hins vegar vakið
mestu viðbrögðin meðal viðskipta-
vina. „Það eru fleiri sem njóta sín í
sterkum litum og fötin í þeirri línu eru
líka með ákveðnari sniðum og form-
fastari. Rauði liturinn selst rosalega
vel, og sá appelsínuguli líka, sem ég
átti ekki von á,“ segir hún.
Mjúka línan er vinsæl fyrir ferming-
arnar og í henni er hægt að púsla sam-
an til dæmis hekluðu vesti, pilsi og
bol. Einnig eru hekluð vesti og sjöl vin-
sæl.
„Við seljum meira af litum fyrir ferm-
ingardömurnar, þótt mömmurnar séu
spenntari fyrir hvítu. Þær yngri vilja
hins vegar fallega, mjúka liti.“
Praktískar mömmur
Mömmurnar velja síðan eitthvað praktískt, segir Ragnhildur ennfremur, það er
flíkur sem þær geta haldið áfram að nota eftir ferminguna. „Þær vilja vera fínar
en leita líka eftir því sem er gott að vera í. Oft eru þær að bera fram mat og hella
kaffi í bolla fyrir gestina og þá þurfa þær að velja sér eitthvað sem er bæði smart
og þægilegt, til dæmis pils og jakka úr kakíefni.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útsaumað ullarpils og sjal fyrir móður
og kínakjóll fyrir dóttur.
Fermingartíska fyrir
mæður og dætur
Elísabet Guðmundsdóttir og Margrét Berg Sverrisdóttir í kakí-dragt og pilsi og
hekluðu vesti.