Morgunblaðið - 13.03.2004, Side 40
Ferming í Flash
Laugavegi 54, sími 552 5201
Kjólar
Pils
Toppar
Blússur
Buxur
Jakkar
Ótrúlegt
úrval
Casio G-Shock & Baby G-Shock
í miklu úrvali hjá meba/rhodium Kringlunni og Smáralind
INGIBJÖRG Laufey Guðlaugsdóttir er ein
úr þeim fjölmenna hópi sem fermist á
höfuðborgarsvæðinu þetta vorið. Hún
fermist í Bústaðakirkju, hjá séra Pálma
Matthíassyni.
„Ég fermist til að staðfesta skírnina og
líka dálítið út af gjöfunum,“ segir Ingi-
björg.
„Það sem mér er efst í huga úr ferm-
ingarfræðslunni er boðskapurinn um
Jesú og boðorðin. Ég kann bænir síðan
ég var lítil, mamma kenndi mér þær og
pabbi líka. Best Faðirvorið en ég fer nú
ekki alltaf með það á kvöldin.“
Ingibjörg fermist annan í páskum, í
nokkuð stórum hópi barna.
„Ég kvíði ekki fyrir athöfninni, hlakka
til ef eitthvað er. Veislan mín verður hald-
in í sal í Bústaðakirkju, þar sem bóka-
safnið var til húsa áður. Það koma um
80 manns í veisluna, ættingjar og vinir
og það verður matur. Ég vona að ég fái
sem mest af peningum í fermingargjöf
en ég er þegar búin að fá eina gjöf, ég
fékk frá mömmu og pabba keppnisdót
fyrir skylmingar. Mig vantaði það því ég
fór út að keppa í skylmingum nú í lok
febrúar.“
Hefur þú stundað skylmingar lengi?
„Í fimm ár, ég er nýlega komin úr
keppnisferðalagi í Englandi og þar hlaut
ég annað sæti – fékk silfurverðlaun.
Ensk 15 ára stúlka sem ég bjó hjá fékk
gullið. Keppnin fór fram í Glastonbury,
skammt frá Bristol.
Ég æfi skylmingar með Skylminga-
félagi Reykjavíkur.“
Ætlar þú að kannski að skera ferming-
artertuna með sverði?
„Nei, en ég ætla að hafa skylm-
ingasverðin mín til sýnis í veislunni, þau
verða hjá gestabókinni.“
Barna & fjölskyldumyndir. www.ljosmyndir.net
Ingibjörg Laufey Guðlaugsdóttir.
Skylminga-
sverðin verða til
sýnis í veislunni