Morgunblaðið - 13.03.2004, Síða 44
Kringlunni - sími 568 9345 Smáralind - sími 544 5515
Póstsendum
www.skor.is
Mikið úrval af fermingarskóm
Litir: svartir, rauðir,
hvítir, bleikir
Verð 9.995
Litir: Svartir, hvítir
Verð 9.995
Litir: Svartir, rauðir, beige,
bleikir. Verð 13.995
Litir: Svartir, hvítir
Verð 7.995
Litir: Svartir
Verð 4.995
Litir: Svartir lakk, hvítir lakk
Verð 7.995
Litir: Brúnt rússkinn,
beige rúskinn
Verð 6.995
Litir: Svartir, hvítir, bleikir
Verð 9.995
Litir: Svartir, hvítir
Verð 13.995
STUNDUM segja menn svo sem að ung-
lingar „fermist vegna gjafanna“. Því fer
víðs fjarri. Fyrir utan hina augljósu trúar-
legu þýðingu er ferming auðvitað miklu
meira en það að koma saman og gefa
unglingi gjafir og borða svo og drekka
saman. Ferming er í eðli sínu skilaboð til
unglings um að nú sé hann kominn „til
vits og ára“. Og það er fallegur siður að
fagna komu unglings í samfélaga hinna
eldri með því að gefa honum gagnlegar
gjafir í veganesti til þeirrar löngu göngu
sem fullorðinsárin eru.
En auðvitað er ljóst að gjafirnar hjálpa
mjög til þess að gera atburðinn og daginn
eftirminnilegan í huga unglingsins.
Fermingargjafir hafa tíðkast lengi á Ís-
landi en þær hafa tekið miklum breyt-
ingum í áranna rás. Á hverjum tíma hafa
verið gjafir sem einstaklega viðeigandi
þóttu. Sigrún Kristjánsdóttir starfsmaður á
Þjóðminjasafni hefur svolítið gluggað í
þessi mál, auk þess sem hún hefur sér-
legan áhuga á fermingum núna af því það
á að ferma næstelsta barnið hennar.
„Fermingargjafir fóru ekki að tíðkast fyrr
en eftir miðja 19. öld segir Árni Björnsson
í bók sinni Merkisdagar á mannsæfinni.
Það gat þá verið ýmislegt sem gefið var.
T.d. peningar eða munir sem komu
barninu að gagni,“ segir Sigrún.
„Einkum er getið um bækur og flíkur til
að byrja með en síðan komu peningar og
skartgripir. Í sveitum voru oft gefnar kindur
í fermingargjöf og hestar, sem og reiðtygi.
Það tíðkast reyndar enn að gefa hesta og
reiðtygi.
Á þriðja áratug fara vasaúr að verða al-
geng fermingargjöf fyrir pilta og síðar komu
armbandsúrin til sögunnar fyrir bæði kynin.
Um það leyti komu svo reiðhjól inn í mynd-
ina. Það var ekki fyrr en eftir miðja öld
sem farið að gefa húsgögn í ferming-
argjafir, skrifborð, rúm og skatthol, sem
voru mjög vinsæl. Skatthol er orðin sjald-
séð núna, eins og þau voru skemmtileg
hönnun. Um svipað leyti og skattholin voru
vinsæl komu svefnpokar, prísmusar og
tjöld, skíði, myndavélar og veiðistangir á
gjafalistann. Upp úr 1970 fara hljómflutn-
ingstæki mjög að ryðja sér til rúms og
verða vinsælasta fermingargjöfin og þá fer
fólk líka að gefa börnum utanlandsferðir í
fermingargjöf. Hin svokölluðu bjútíbox urðu
einnig mjög vinsæl gjöf þessum tíma.
Svo við snúum okkur að nútímanum þá
eru hljómflutningstæki enn vinsæl gjöf,
svo og skargripir sem einnig voru sam-
kvæmt lauslegri athugun minni afar mikið
gefnir stúlkum sem nú eru komnar á fimm-
tugsaldur. Orðabækur halda enn velli, einn-
ig fá og fengu margir sagnfræðilegar bæk-
ur og ljóðbækur – sameiginlegt með
þessum gjöfum er að þær eru „fullorðins-
gjafir“. Þess má geta að allar vinkonur
mínar fengu kommóður. Utanlandsferðir
eru enn mjög vinsæl gjöf, það nýjasta og
mjög algenga er að margir ættingjar og vin-
ir skjóta nú saman saman í tölvur handa
fermingarbörnum.“
Fermingargjafir
fyrr og nú
Stúdíó Guðmundar
Fermingarmynd af Sigrúnu Kristjánsdóttur.