Morgunblaðið - 27.03.2004, Page 6

Morgunblaðið - 27.03.2004, Page 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Gjafakort er… …góð lausn að fermingargjöf Gjafakort Kinglunnar fást á þjónustu-borðinu á 1. hæð við Hagkaup. Þau gilda í öllum verslunum Kringlunnar* og fást í fjórum verðflokkum: 10.000 kr., 5.000 kr., 2.500 kr. og 1.000 kr. *Gildir ekki í VÍNBÚÐINNI. BJARNI Einarsson, fyrrverandi bæjar- stjóri á Akureyri og aðstoðarforstjóri Byggðastofnunar, lést miðvikudaginn 24. mars. Bjarni fæddist 14. apríl árið 1934 í Reyk- holti í Borgarfirði. Foreldrar hans voru Steinunn Anna Bjarnadóttir kennari og Einar Ingimar Guðnason prófastur. Bjarni lauk stúdents- prófi frá MR árið 1953 og varð viðskiptafræðingur frá Há- skóla Íslands 1958. Hann stundaði framhaldsnám við Institute of Soc- ial Studies í Hollandi og lauk prófi þaðan 1962. Lagði hann síðar stund á framhaldsnám í hagfræði sam- göngumála við háskóla í Þránd- heimi og í stjórnun byggðaþróunar í Bandaríkjunum. Bjarni starfaði við hagrannsóknir og hagskýrslugerð hjá Fram- kvæmdabanka Íslands og við hag- ræna áætlanagerð hjá Efnahags- stofnuninni þar til hann tók við starfi bæjarstjóra á Akureyri árið 1967. Bjarni var bæjarstjóri á Ak- ureyri til 1976. Hann var fram- kvæmdastjóri byggðadeildar Fram- kvæmdastofnunar ríkisins 1976–1985 er hann varð aðstoðarfor- stjóri Byggðastofnun- ar. Bjarni gegndi fjöl- mörgum trúnaðar- störfum um ævina. Hann átti m.a. sæti í stjórn Sambands ís- lenskra sveitarfélaga um árabil, í stjórn Slippstöðvarinnar á Akureyri, stjórn Sana hf. á Akureyri og stjórn Síldarverk- smiðjanna í Krossa- nesi. Hann var formaður stjórnar Fínullar hf. á árunum 1983–1986. Bjarni sat í stjórn Fjórðungssam- bands Norðlendinga og var formað- ur sambandsins um skeið og var formaður Framleiðnisjóðs landbún- aðarins 1977–1982. Hann var for- maður fulltrúaráðs Framsóknar- félaganna í Reykjavík á árunum 1983–1986. Bjarni skrifaði fjölda blaða- og tímaritsgreina um þjóð- félagsmál og fleiri málefni. Hann var sæmdur riddarakrossi Danne- brogsorðunnar 1972 og St. Olavs- orðunnar 1973. Eftirlifandi eiginkona Bjarna er Gíslína Guðrún Friðbjörnsdóttir. Eignuðust þau þrjú börn. Andlát BJARNI EINARSSON Í FJÖGUR þúsund fermetra hús- næði við hraunjaðarinn í Garðabæ hefur Latibær verið endurskap- aður og vinna þar 120 ein- staklingar myrkranna á milli við gerð 40 sjónvarpsþátta fyrir bandarísku sjónvarpsstöðina Nickelodeon, en þættirnir verða teknir til sýninga vestanhafs eftir um tvo mánuði. Fjölmiðlum var boðið að berja Latabæ augum í gær, þar sem verið var að taka upp fimmta þáttinn í þáttaröðinni. Tían er útgönguleið Þrír leikarar fara með hlutverk í þáttunum, Magnús Scheving er í hlutverki íþróttaálfsins, sem hefur hlotið nafnið Spartacus á ensku. Þá fer Stefán Karl Stefánsson með hlutverk Robbie Rotten, eða Glanna glæps og tólf ára gömul bandarísk stúlka, Julianna R. Mauriello, leikur Sollu stirðu, eða Stephanie. Hinir íbúar Latabæjar eru dúkkur, en stundum þarf allt að þrjá brúðustjórnendur til að stjórna hverri þeirra. Bakgrunn- urinn er síðan teiknaður í þrívídd. „Ég er ekki heimsins besti leik- ari, ég er eiginlega lélegur leik- ari,“ segir Magnús um eigin frammistöðu. „Í fyrsta þættinum var ég mjög lélegur en í þeim fimmta mjög góður, þannig að þetta kemur. Ég held að eftir fjörutíu þætti verði ég bara orðinn ágætisleikari. Ég vona það.“ Aug- lýsingaherferð hefst á næstunni vestanhafs og brátt mun risastórt skilti með mynd af Magnúsi gnæfa yfir Times Square í New York. Nickelodeon nær til meira en 86 milljón heimila í Bandaríkjunum og hefur um 60% markaðs- hlutdeild í áhorfi á barnaefni. Á búningi íþróttaálfsins er núm- erið tíu og segir Magnús að það sé útgönguleið fyrir hann, svo að verði áframhald á þáttunum, eða gerð bíómynd eins og hann er full- viss um að verði gert nái þættirnir vinsældum, geti einhver annar en hann leikið íþróttaálfinn. „Ég hef ennþá gaman af þessu og meðan ég get ennþá hoppað held ég því áfram. Það er ekkert slæmt að vera fertugur á þessu ári og vera ennþá í fullu fjöri,“ segir Magnús, en viðurkennir að hann sé aðeins farinn að stirðna. Hann segir að- alvandamálið vera hversu góð upp- lausn upptökunnar sé. „Maður er aðeins byrjaður að verða hrukk- óttur og svona þannig að maður þarf að passa sig.“ Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á hinum íslenska Latabæ. Þannig er Goggi kolsvartur, Halla hrekkjusvín asísk og Siggi sæti sænskur, en Guðmundur Þór Kárason stýrir Sigga sæta og ljær honum rödd sína. Þá var íþrótta- álfurinn settur í nýjan búning og útlit hans poppað upp svo hann breyttist úr íslenskum álfi í ofur- hetju. Magnús segir að það sé erfitt að leika á ensku. „Það er ekkert mál með Glanna glæp því hann er vondi kallinn og þeir vilja að hann tali með hreim. Þeir [Bandaríkja- menn] eru búnir með þýska hreim- inn og þann rússneska og finnst bara gott að fá íslenska hreiminn.“ Aðspurður segir hann það svolítið vandamál að góði og vondi kallinn tali með sama hreim. „Maður bæt- ir það upp með hoppunum og hreyfingunni.“ Magnús segir kostnaðinn við gerð þáttanna gríðarlegan, hann ímyndar sér að hver þáttur kosti um 35–40 milljónir króna. Fimm til sex íslensk fyrirtæki eru hlut- hafar í Latabæ. „Við vonum að Latibær eigi eftir að ná vinsældum í Bandaríkjunum og í restinni af heiminum. Við erum búin að fá framleiðendur sem hafa áhuga á að kaupa Latabæ fyrir Evrópu.“ Latibær lifnar við Glanni glæpur, eða Robbie Rotten, býr í yfirgefinni verksmiðju neðanjarðar. Hér gefur að líta heimkynni hans. Þrír leikarar sjást í þáttunum, en hinar persónurnar eru brúður. Hér eru Glanni glæpur, Solla stirða og íþróttaálfurinn í góðum gír. Stundum þarf þrjá brúðustjórn- endur til að stýra brúðunum. Guðmundur Þór Kárason stýrir Sigga sæta og ljær honum rödd sína. Þeir eru til hægri á myndinni. LÖGREGLAN í Reykjavík hefur lokið umbeðinni rannsókn ríkissak- sóknara á tildrögum þess að yf- irheyrsluskýrslur úr Neskaupstað- armáli komust í hendur DV. Að sögn Harðar Jóhannessonar var rætt við alla þá sem hugsanlega hafa komið að nýjustu gögnum málsins, þar á meðal verjendur sak- borninganna þriggja. Rannsóknin hafi ekki leitt til ákveðinnar nið- urstöðu þótt lögreglan hafi ákveðnar grunsemdir, sem ekki eru látnar uppi. Lögreglan mun senda ríkissaksóknara rannsókn sína á mánudag. Að sögn Sveins Andra Sveinsson- ar, verjanda eins sakborninganna, mun hann í samráði við meðverj- endur sína fara fram á opinbera rannsókn á því hvernig stóð á því að upplýsingar um lok rannsóknar lögreglunnar skyldu leka jafnfljótt til fjölmiðla og raun bar vitni í gær. Segir hann að fjölmiðlar hafi hringt í sig varðandi málið aðeins tveimur klukustundum eftir að hann ásamt meðverjanda hafi gefið skýrslu hjá lögreglu. Lögreglu- rannsókn lokið Tildrög birtingar skýrslna í líkfundarmáli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.