Morgunblaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 43
SEM lögfræðingur og löggiltur
endurskoðandi tel ég mér skylt að
upplýsa almenning um meinta ólög-
mæta og blekkjandi starfshætti KB
banka, áður Búnaðarbankans, sem ég
hef kynnst. Forsvars-
menn KB banka hafa
ekki lagt fram glögg
gögn um rekstur og
stöðu Framsækna al-
þjóðlega hlutabréfa-
sjóðsins og Alþjóðlega
hlutabréfasjóðins, stað-
fest af íslenskum að-
ilum, sem um sjóðina
eiga að fjalla.
Bankanum hefur
verið treyst fyrir millj-
arðaverðmætum til
ávöxtunar í greindum
sjóðum og allt frá árinu
1999 hafa þeir verið taldir sjóðir Bún-
aðarbankans. Þeir eru nú taldir sjóðir
KB banka, sjá auglýsingu KB banka í
Morgunblaðinu 1. febrúar 2004, bls.
18 og 19. Áætla má að tap fjárfesta í
sjóðunum nemi að minnsta kosti
hundruðum milljóna króna.
Hinar meintu blekkingar og lögbrot
felast í því að ekki var annað kynnt á
árinu 1999 og síðan, hvað varðar gögn
afhent almenningi í afgreiðslu Bún-
aðarbankans Verðbréfa, en að ofan
greindir tveir fjárfestingarsjóðir væru
sjóðir Búnaðarbankans, reknir á
ábyrgð bankastjóra og bankastjórnar
í samræmi við íslensk lög um við-
skiptabanka, bókhald og endurskoðun
sem að auki væru háðir eftirliti op-
inberra aðila meðan Búnaðarbankinn
var ríkisbanki. Eftir að Búnaðarbank-
inn var gerður að hlutafélagi er talið
að meginreglur um rekstur íslenskra
hlutafélaga hafi átt við um reksturinn,
auk þess sem sérstakir eftirlitsaðilar
með rekstri af þessu tagi, nú Hluta-
félagaskrá Ríkisskattstjóraembætt-
isins, Samkeppnisstofnun, Fjármála-
eftirlitið, Kauphöll Íslands og
viðskiptaráðherra hafi haft sérstakar
skyldur til að hafa á hendi
eftirlit með greindri
starfsemi. Tekið var fram
að á upplýsingablöðum að
„Sjóðsstýring“ væri í
höndum Búnaðarbanka
Íslands hf. en vörslu- og
umsjónaraðili væri Cred-
it Agricole Indosuez,
Luxemburg.
Sérstaklega var talið
staðfesta að um íslenska
sjóði væri að ræða þar
sem öll gögn sem afhent
voru vegna sjóðanna voru
afhent af Búnaðarbanka
Íslands og jafnan með merki hans eða
KB banka en aldrei bárust þessi fimm
síðustu ár nokkur gögn, vegna sjóð-
anna, frá öðrum aðila, hvorki frá
Credit Agricole Indosuez eða annarri
fjármálastofnun.
Með bréfi Kaupþings Búnaðar-
banka, dags. 15. sept. 2003, undirrit-
uðu af Þórði Örlygssyni, lögfræðingi,
var staðfest skriflega að íslensku sjóð-
irnir, það er Framsækni Alþjóðlegi
hlutabréfasjóðurinn og Alþjóðlegi
hlutabréfasjóðurinn, væru ekki taldir
vera til sem íslenskir sjóðir. Talið er í
bréfinu að Alþjóðasjóðir Bún-
aðarbankans sé „regnhlífasjóður“
með nokkrar sjóðsdeildir, þar á meðal
Alþjóða hlutabréfasjóðinn (e. Global
Equity Fund of Funds), og Fram-
sækna alþjóða hlutabréfasjóðinn , (e.
Global Sector Fund of Funds). Sér-
stök staðfest ársuppgjör fyrir þessa
tvo sjóði hafa ekki fengist, en í endur-
skoðunaráritunum Benjamin Lam,
hjá Deloitte & Touche S. A., Luxem-
burg, fyrir þessa og fleiri fjárfesting-
arsjóði fyrir rekstrarárin sem enda
30. september 2000, 2001 og 2002 seg-
ir auk annars á ensku í íslenskri þýð-
ingu minni:
„Í samræmi við útnefningu stjórnar
Stjórnunarfélags BI fjárfestingasjóða
höfum við endurskoðað ársuppgjör,
sem saman stendur af sameiginlegu
yfirliti um nettó eignir, sameiginlegu
yfirliti um rekstur og breytingar á
nettó eignum BI fjárfestingarsjóða og
yfirliti um breytingar á nettó eignum
hvers og eins af undirsjóðum BI fjár-
festingarsjóða, fyrir rekstrarárið sem
endar 30. september 2000.“ Sams kon-
ar áritanir voru gefnar fyrir rekstr-
arárin sem enduðu 30. september
2001 og 2002. ( Þessar endurskoð-
unaráritanir voru afhentar af Kaup-
þingi Búnaðarbanka í september
2003.)
Meginatriði við þessa framkvæmd
er að nokkrir BI fjárfestingarsjóðir
Búnaðarbankans virðast hafa verið
endurskoðaðir saman sem heild í Lux-
emburg, en ekki hver sjóður fyrir sig
hér á landi, þrátt fyrir mismunandi
eigendur og væntanlega mismunandi
rekstur.
Annað meginatriði er að enginn af
stjórn eða starfsmönnum Bún-
aðarbankans, hafa staðfest ársreikn-
ingana sem rétta og heldur ekki
nokkrir aðrir, hvorki stjórnarmenn
Stjórnunarfélags BI fjárfest-
ingasjóða, eða Credit Agricole In-
dosuez S.A, eða aðrir, þegar undan er
skilinn E. Van De Kerkhove, sem
undirritar með Benjamin Lam endur-
skoðunaráritun Deloitte & Touche S.
A. pr. 30. september 2000, en ekki fyr-
ir seinni rekstrarárin.
Þá liggja fyrir misvísandi yfirlýs-
ingar í bréfum Kaupþings Bún-
aðarbanka frá 15. og 19. september
2003, en bréfin eru bæði undirrituð af
Þórði Örylgssyni, lögfræðingi. Í bréf-
inu frá 15. september 2003 segir: „Í
skeyti yðar dags. 11. september sl.
virðist gæta þess misskilnings hjá yð-
ur að Kaupþing Búnaðarbanki hafi
eingöngu verið umboðsaðili fyrir Cail.
Alþjóðasjóðir Búnaðarbankans er
(sic.) í rekstri Kaupþings Bún-
aðarbanka hf. og hefur sjóðurinn gert
samning við Cail um vörslu og um-
sýslu hans.“
Í bréfi Kaupþings Búnaðarbanka
19. september 2003 segir:
„Í útboðslýsingu og stjórn-
unarreglugerð Alþjóðasjóða Bún-
aðarbankans kemur skýrt fram að
sjóðurinn er skráður í Luxemburg
samkvæmt II. hluta Luxemburg-
arlaga, dags. 30. mars 1988, um verð-
bréfasjóði, (undertakings for collect-
ive investment), og er þar af leiðandi
ekki verðbréfasjóður í skilningi laga
nr. 10/1993 ( nú lög nr. 30/2003). Þá
kemur fram í stjórnunarreglugerð og
útboðslýsingu að að vörslu og umsjón-
araðili sjóðsins er Credit Agricole In-
dosuez Luxemburg og að erlendur
löggiltur endurskoðandi hafi verið
skipaður endurskoðandi sjóðsins.“
Almennum fjárfesti í Alþjóða hluta-
bréfasjóðnum og Framsækna alþjóða
hlutabréfasjóðnum var ekkert kynnt
um það að sjóðirnir væru reknir sam-
kvæmt lögum og reglum í Luxem-
burg, enda kom ekkert annað fram en
að þeir væru hluti af rekstri Bún-
aðarbankans. Væri farið í Verðbréf
Búnaðarbankans var mögulegt að fá
úr bókhaldi Búnaðarbankans yfirlit
um færslur viðkomandi fjárfestis og
stöðu sjóðsins með fárra mínutna fyr-
irvara.
Auk bankastjóra Kaupþings Bún-
aðarbanka, nú KB banka, hafa erindi
verið send út af málinu til stjórn-
armanna KB banka, með bréfi dags.
25. 9. 2003, til varastjórnarmanna KB
banka, með bréfi, dags. 27. október
2003, afrit send Hlutafélagaskrá Rík-
isskattstjóra, Fjármálaeftirliti og við-
skiptaráðherra. Þá var erindi, dags. 5.
janúar 2004, sent viðskiptaráðherra,
Fjármálaeftirliti, Samkeppnisstofnun
og Hlutafélagaskrá Ríkisskattstjóra-
embættisins. Árangur þessara og
fleiri sendinga er sá að stjórn og vara-
stjórn Kaupþings Búnaðarbanka, nú
KB banka, hafa engu svarað. Hluta-
félagaskráin hefur engu svarað, Sam-
keppnisstofnun hefur staðfest mót-
töku á erindinu og
viðskiptaráðuneytið einnig og það
hefur bætt við að Fjármálaeftirlitið
muni taka málið til athugunar. Fjár-
málaeftirlitið hefur svarað með bréfi
og er meginniðurstaða þess eftirfar-
andi: „Fjármálaeftirlitið vill þó taka
fram að með hliðsjón af erindi yðar
hyggst Fjármálaeftirlitið, í almennu
eftirliti með Kaupþingi Bún-
aðarbanka hf., afla upplýsinga um
hvernig markaðssetningu, sölu og
ráðgjöf erlendra sjóða um sameig-
inlega fjárfestingu er og hefur verið
háttað.“ Fjármálaeftirlitið hefur ekki
sinnt óskum um staðfest endurrit af
gögnum sem varða málið eða endurrit
af stjórnarályktunum FME um það.
Kauphöll Íslands var fyrst sent er-
indi 3. 2. 2004 og kom staðfesting,
dags. sama dag. Beiðni um staðfest-
ingu á síðara erindi og upplýsingum
um aðgerðir Kauphallarinnar hefur
ekki verið sinnt.
Meintir ólögmætir og blekkj-
andi starfshættir KB banka
Tómas Gunnarsson skrifar
um starfshætti KB banka ’… enginn af stjórn eðastarfsmönnum Bún-
aðarbankans, hafa stað-
fest ársreikningana sem
rétta og heldur ekki
nokkrir aðrir …‘
Tómas Gunnarsson
Höfundur er lögfræðingur og löggilt-
ur endurskoðandi.