Morgunblaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 41 GUNNLAUGUR Sævar Gunn- laugsson, formaður útvarpsráðs, setur fram áhugaverðar tillögur um breyttan rekstur Ríkisútvarpsins í Viðskiptablaðinu 19. mars: „Ég tel ríkið alltof umsvifamikið í þessu. Það gæti dregið verulega úr þess- um rekstri sínum. Það er hægt að gera það með margvíslegum hætti. Ríkið getur látið framleiða efni eða stutt framleiðslu þess með fjár- framlögum. Það þarf ekki endilega að eiga tækin sem sent er út með eða húsin þar sem efnið er búið til í.“ Skoðum nánar þessi orð for- mannsins. En fyrst er rétt að geta þess að ef Ríkisútvarpið væri fyr- irtæki í einkaeigu myndi gjaldþrot augljóslega blasa við, því eigið fé Ríkisútvarpsins er svo gott sem uppurið. Allar rekstrartölur eru neikvæðar eða gjörsamlega óvið- unandi, enda hefur taprekstur ver- ið viðvarandi um árabil. Ég veit ekki betur en að enn sé málum bjargað fyrir horn með hundruð milljóna króna lausaskuldum við Fjársýslu ríkisins. Ástæður þess- arar þróunar eru margvíslegar, en höfuðábyrgð bera auðvitað þeir sem farið hafa með völd yfir Rík- isútvarpinu. Fremur auðvelt er að leysa lang- varandi fjárhagsvanda Rík- isútvarpsins, sem er fyrirtæki í fullum rekstri í eigu þjóðarinnar. Venjan er sú að kjölfestufjárfestar – í þessu tilfelli þjóðin – leitist við að halda fyrirtækjum sínum á lífi ef svo má segja, svo framarlega að þau þyki lífvænleg. Það er óumdeil- anlegt að Ríkisútvarpið er líf- vænlegt; það er vinsælasti fjölmið- illinn, með afar dugmikið starfsfólk – á fjórða hundrað manns – og tekjurnar eru nokkuð fyrirsjáan- legar. Öll rök hníga að því að gerð- ar séu ráðstafanir til að efla rekst- ur og fjárhag Ríkisútvarpsins. Fjárhagurinn Hér verður byggt á tölum úr árs- reikningi 2002, en reikningur fyrir 2003 er ókominn. Ríkisútvarpið skuldar bönkum um 693 milljónir króna. Það skuldar ennfremur 2.608 milljónir vegna Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Samtals rúm- ir 3,3 milljarðar króna, en auðvelt er að greiða þessar skuldir upp. Ríkisútvarpið á fasteign sem metin er á tæpar 2.900 milljónir króna, og dreifikerfi að andvirði 430 milljónir króna; samtals rúmir 3,3 milljarðar króna. Það liggur því beint við að rík- issjóður kaupi fasteign Rík- isútvarpsins í Efstaleiti og einnig dreifikerfið. Ríkisútvarpið getur þá greitt upp helstu skuldir og rétt við fjárhaginn til frambúðar. Greiðslur vegna skulda yrðu úr sögunni, en það eru á þriðja hundrað milljónir króna á ári. Rekstrarhallinn hefur á síðustu árum verið hátt í 300 milljónir króna á ári; hann myndi hverfa. Líkt og Gunnlaugur Sævar bend- ir á er engin ástæða til að Rík- isútvarpið sitji uppi með tæpa 3 milljarða króna bundna í stein- steypu, því meginhlutverk þess er að framleiða og senda út dagskrár- efni í sjónvarpi og útvarpi. Eðlilegt er að eigandinn, það er að segja þjóðin í gegnum ríkissjóð, leysi fasteignina til sín. Samkvæmt lögum um Rík- isútvarpið ber því að ná með út- sendingum sínum til allra lands- manna. Þetta gekk áfallalaust áratugum saman, reyndar í sam- vinnu við Landsímann sem hefur annast rekstur dreifikerfisins að stærstum hluta. En stafræna tækn- in er að umbylta stöðunni. Formað- ur útvarpsráðs vonar að Síminn hafi forgöngu um að „byggja upp net um landið þar sem áhugasamir geti komið með efni sitt og keypt aðgang“. En þetta gæti alveg eins verið sérstakt fyrirtæki sem starf- rækir allsherjar dreifikerfi fyrir sjón- varps- og útvarpsefni. Þar mætti hafa opnar og/eða lokaðar rásir að vild, þar á meðal rásir Ríkisútvarpsins. Reksturinn Fjárhagsvandi Rík- isútvarpsins er að stórum hluta arfur langtíma óstjórnar. Ástandið versnaði bara við það að öllum valdataumum var safnað saman á eina hönd, það er að segja mennta- málaráðherra. Hann skipar útvarpsstjóra og ræður alla fram- kvæmdastjórn Rík- isútvarpsins og flokks- systkini hans mynda meirihluta útvarpsráðs og hann skipar for- mann ráðsins, og ráð- herrann ákveður tekjuþróun fyrirtæk- isins. Eigið fé Rík- isútvarpsins er því sem næst uppurið og er ástæðan mikið og vaxandi rekstrartap árum saman. Núgildandi stjórnkerfi ber auðvitað fulla ábyrgð á ástandinu og árang- urinn dæmir það fyrirkomulag ein- faldlega úr leik. Lausnin felst í því að reka Rík- isútvarpið eins og hvert annað fyr- irtæki. Yfirstjórn þess á að gæta hagsmuna allra eigenda, en ekki bara meirihlutans; hún þarf að vera sjálfstæð og gagnrýnin á frammi- stöðu stjórnenda. Stjórnin öðlast sjálfstæði með því að Alþingi kjósi í hana fólk sem hefur kunnáttu til að bera, bæði hvað varðar rekstur ljósvakamiðla og fjármálastjórn fyrirtækja. Ennfremur er afar brýnt að tryggja að aukinn meiri- hluta (yfir 67% atkvæða) þurfi til ákvarðana yfirstjórnar, því ef meirihluti yfirstjórnar takmarkast við fulltrúa ríkisstjórnarmeirihluta hverju sinni, verður engin breyting frá því sem nú er. Ný yfirstjórn Ríkisútvarpsins verður því aðeins gagnrýnin og sjálfstæð að hún ráði útvarpsstjóra og feli honum umboð sitt. Stjórnin myndi marka höfuðlínur í rekstri, setja árangursmælikvarða og fela útvarpsstjóra að framkvæma hlut- ina. Þannig standa málin ekki núna hjá Ríkisútvarpinu og því þarf að breyta. Nýjar tillögur til lausnar Jón Ásgeir Sigurðsson skrifar um rekstrarvanda Rík- isútvarpsins ’Lausnin felst í því aðreka Ríkisútvarpið eins og hvert annað fyr- irtæki.‘ Jón Ásgeir Sigurðsson Höfundur er útvarpsmaður og rekstrarfræðingur MBA. Sæluhelgar í sígildum borgum Kaupmannahöfn Verð frá 29.950 kr.* á mann í tvíbýli á Dgi-byen í 2 nætur. 24. - 26. apr og 15. - 17. okt. Helsinki Verð frá 39.910 kr.* á mann í tvíbýli á Sokos Hotel Vaakuna í 3 nætur. 23. - 26. júlí Glasgow Verð frá 29.960 kr.* á mann í tvíbýli á Premier Lodge í 2 nætur. 14. - 16. maí, 20 - 22. ágúst . og 8. - 10. okt. London Verð frá 29.900 kr.* á mann í tvíbýli á Henry VIII í 2 nætur. 16. - 18. júlí og 27. - 29. ágúst. Amsterdam Verð frá 44.940 kr.* á mann í tvíbýli á Avenue Hotel í 3 nætur. 15. - 18. apr., 2. - 5. sept og 7. - 10. okt. París Verð frá 44.930 kr.* á mann í tvíbýli á Hotel du bois í 3 nætur. 14. - 17. maí, 3. - 6. sept., 8. - 11. okt. Laufey Helgadóttir fararstjóri b‡›ur upp á sko›unarfer›ir um París í vor og haust. VR orlofsávísun Munið ferða- ávísunina 5000 ferðapunktar gilda sem greiðsla upp í pakkaferð. Handhöfum Vildarkorts VISA og Icelandair býðst nú að nota 5000 ferðapunkta, sem eru jafnvirði 5.000 kr., sem greiðslu upp í pakkaferð, ef bókað er fyrir 1. apríl. Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud. kl. 8-18, laugard. kl. 9-17 og á sunnudögum kl. 10-16). ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S IC E 23 80 7 0 3/ 20 04 Njóttu hins besta sem býðst í evrópskum stórborgum, lífsgleði, menningar, mannlegrar hlýju og freistandi lystisemda. Við bjóðum helgarferðir á vit ævintýra, flug og gistingu, á frábæru verði. * Innifali›: Flug, gisting, flugvallarskattar og fljónustugjöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.