Morgunblaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NATO HEFUR EFTIRLIT
Eftir helgina munu belgískar
herþotur hefja eftirlitsflug yfir
Eystrasaltsríkjunum á vegum Atl-
antshafsbandalagsins. Lettneski
varnarmálaráðherrann staðfesti
þetta í gær, en fyrirætlanir banda-
lagsins um þetta hafa farið mjög
fyrir brjóstið á rússneskum ráða-
mönnum.
Laga sig að þörfum fatlaðra
Mikill fjöldi, eða á fjórða hundr-
að manns, sótti ráðstefnu um mál-
efni fatlaðra sem fram fór á vegum
félagsmálaráðuneytisins í gær.
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra sagði í ræðu við setningu
ráðstefnunnar, að tengsl hinna
fötluðu og umhverfisins sem þeir
byggju í skiptu sköpum um áhrif
fötlunar á líf einstaklinga. Hlut-
verk samfélagsins væri að laga sig
að þörfum fatlaðra.
Beittu neitunarvaldi
Palestínumenn kváðust í gær
óttast að það hefði hörmulegar af-
leiðingar að Bandaríkjamenn
beittu neitunarvaldi til að koma í
veg fyrir að öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna samþykkti ályktun þar
sem dráp Ísraela á stofnanda og
helsta leiðtoga Hamas-samtakanna
var fordæmt. Rússar létu einnig í
ljósi óánægju með afstöðu Banda-
ríkjamanna.
Sækja verkfal lsheimild
Aðildarfélög Starfsgreina-
sambandsins ákveða eftir helgi
hvort boðað verður til vinnustöðv-
unar meðal félagsmanna sem
starfa hjá ríkinu. Formaður
Verkalýðsfélags Húsavíkur segir
að stjórn félagsins muni boða til
fundar eftir helgina með fé-
lagsmönnum sem starfa hjá Heil-
brigðisstofnun Þingeyinga þar sem
leitað verði eftir heimild til boð-
unar verkfalls, sem geti hafist um
miðjan næsta mánuð.
Bretum bjargað
Sex Bretum var í fyrrakvöld
bjargað úr helli í Mexíkó, eftir að
þeir höfðu verið þar innilokaðir
vegna flóða í átta daga. Mexíkósk
stjórnvöld segja Bretana hafa farið
niður í hellinn í leyfisleysi. Bret-
arnir báru sig vel og kváðust aldr-
ei hafa verið í neinni hættu.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 48
Úr verinu 13 Minningar 50/59
Viðskipti 14 Fermingar 66/68
Erlent 18/21 Messur 68/69
Höfuðborgin 23 Kirkjustarf 69
Akureyri 24 Myndasögur 72
Suðurnes 26/7 Bréf 72
Árborg 28 Dagbók 74/75
Landið 29/30 Brids 75
Listir 31/35 Íþróttir 76/79
Ferðalög 36/37 Leikhús 80
Daglegt líf 38/39 Fólk 80/85
Umræðan 40/49 Bíó 82/85
Forystugrein 44 Ljósvakamiðlar 86
Þjónusta 47 Veður 87
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Opið laugardag og sunnudag frá kl. 13-16.
Netsalan ehf.
„Alltaf með nýjungar!“ Aðeins það besta!
Knarrarvogi 4, 104 R, sími 517 0220, netsalan@itn.is
McLouis
húsbílasýning
Knaus
hjólhýsasýning
SÝNING
M. Benz Sprinter Eurostar Style
Hönnun Lesbókar er með óvenjulegum hætti í dag. Þótt síður raðist
saman með hefðbundnum hætti í opnur munu lesendur fljótt kom-
ast að raun um að meginhugsun uppsetningarinnar byggist á því að
það eru arkir fremur en opnur sem mynda eina heild. Textarnir,
sem aldrei snúa eins á báðum síðum einnar opnu, leiða lesendur í
raun sjálfkrafa áfram inn í hverja örk við lesturinn. Þegar arkir
blaðsins eru dregnar út úr heildinni við lesturinn blasa verk lista-
mannanna við báðum megin á örkunum. Verk hvers listamanns fyr-
ir sig eru merkt ákveðnum lit og getur lesandinn rakið sig eftir lit-
unum í gegnum kjölinn yfir á baksíðu Lesbókarinnar þar sem gerð
er grein fyrir öllum þeim sem áttu hlut að verkefninu.
ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdótt-
ir menntamálaráðherra lýsti þeirri
skoðun sinni á fyrsta Grunnskóla-
þingi sveitarfélaga sem haldið var á
Hótel Sögu í gær að vel hefði tekist til
með flutning grunnskólans til sveit-
arfélaga. Þá sagði ráðherra tímabært
að endurskoða aðalnámskrá grunn-
skóla frá 1999 og við næstu endur-
skoðun mætti vel hugleiða meiri
sveigjanleika í viðmiðunarstunda-
skrá grunnskóla og markmiðasetn-
ingu í einstökum greinum. Einnig
mætti skoða núverandi fyrirkomulag
samræmdra prófa í grunnskólum,
einkum í 10. bekk, ekki síst í ljósi
hugmynda um styttingu náms til
stúdentsprófs og fleira.
Ráðherra sagði að grunnskólastig-
ið hefði á síðustu átta árum tekið um-
talsverðum breytingum til batnaðar.
Sagði ráðherra að verulega hefði
dregið úr miðstýringu ríkisins á
grunnskólastigi og víða hefðu sveit-
arfélög markað eigin stefnu á sviði
skólamála í samstarfi við hagsmuna-
aðila heima í héraði. Hvatti ráðherra
sveitarfélög til að halda áfram á
þeirri braut og taka í auknum mæli
fulltrúa foreldra og nemenda með í
þá stefnumótunarvinnu á sem lýð-
ræðislegustum vettvangi.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður Sambands íslenskra sveitarfé-
laga, sagði í setningarávarpi sínu að
markmiðið með málþingum sem
þessu væri að skapa samráðs- og lær-
dómsvettvang milli sveitarstjórnar-
manna um einstök ábyrgðarsvið
þeirra.
Launakostnaður fari
ekki úr böndunum
Vilhjálmur sagði kjarasamninga
eitt þeirra mála sem væru sameig-
inleg hagsmunamál sveitarfélaga
gagnvart grunnskólanum, sem tæki
til sín rúmlega 50% af tekjum sveitar-
félaga, en langstærsti kostnaðarlið-
urinn væri launakostnaður. Það væri
því eitt mikilvægasta hagsmunamál
sveitarfélaga að í kjarasamningum
tækist að ná niðurstöðu sem fæli í sér
gott jafnvægi á milli sjónarmiða
samningsaðila. Gæta þyrfti þess að
launakostnaður sveitarfélaga færi
ekki úr böndunum þar sem svigrúmi
sveitarfélaga til launahækkana í
þessum málaflokki væru takmörk
sett, eins og í öðrum starfsgreinum.
Tímabært að endurskoða
námskrá grunnskólans
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
FÉLAGAR í björgunarsveitinni
Hafliða á Þórshöfn fóru í gær um
borð í pramma sem slitnaði aftan úr
danska flutningaskipinu Skandia,
norðan við Langanes. Komið var
taug milli prammans og Hoffells SU
sem togaði hann til Þórshafnar. Á
honum var dekk sem nota átti við
bryggjuna á Þórshöfn.
Prammi slitn-
aði frá skipi
TVEIR grímuklæddir piltar rændu
tóbaki og skiptimynt úr söluturni við
Hlíðarveg í Kópavogi laust eftir
klukkan átta í gærkvöldi. Tvær stúlk-
ur voru við afgreiðslu og hótuðu pilt-
arnir þeim með felgujárni að því er
talið er. Neyddu þeir aðra stúlkuna til
að afhenda sér þá peninga sem eftir
voru í afgreiðslukassa, en skömmu
áður hafði eigandinn tæmt kassann.
Piltarnir voru ófundnir í gærkvöldi.
Rán í söluturni
í Kópavogi
♦♦♦
ÚRSLITAKEPPNI MORFÍS, Mælsku- og rök-
ræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi, var haldin
fyrir troðfullu húsi í Háskólabíói í gærkvöldi.
Verzlunarskóli Íslands, sigurvegari frá í fyrra,
og Menntaskólinn við Hamrahlíð kepptu til úr-
slita og hafði Verzlunarskólinn betur. Umræðu-
efnið var: „Maðurinn er heimskur“. Verzlingar
voru þessu ósammála og féllst dómnefndin á
sjónarmið þeirra bláklæddu, en sumir stuðnings-
menn þeirra báru sig hermannlega í salnum.
Sigurinn var einstaklega naumur. Aðeins eitt
stig skildi liðin að en alls voru gefin 3.087 stig.
Ræðumaður kvöldsins og þar með ræðumaður
Íslands var valinn Björn Bragi Arnarson, liðs-
maður Verzló.
Morgunblaðið/Jim Smart
Verzló vann Morfís með einu stigi