Morgunblaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 59
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 59
Lynghálsi 3, s. 586 2770
Ath. ath. ath. Vakningasam-
komur með Paul Hanssen
laugardag kl. 19.30,
sunnud. kl. 11.00 og 19.30.
Allir hjartanlega velkomnir
að hlusta á þennan magnaða
trúboða.
28. mars. Hvalfjarðargangan.
Botnsdalur – Þyrilsnes.
Fararstj. María Berglind Þráins-
dóttir. Brottför frá BSÍ kl. 10:30.
V. 1800/2100.
30. mars. Aðalfundur Úti-
vistar verður haldinn 30. mars
kl. 20:00 í sal VGK við hliðina
á skrifstofu Útivistar á Lauga-
vegi 178.
5. apríl. Myndakvöld.
Sjá www.utivist.is
Félag hjartasjúklinga
á Reykjavíkursvæðinu minnir félagsmenn á
aðalfund félagsins sem haldinn verður á Hótel
Sögu „Ársal“ í dag, laugardaginn 27. mars
2004 kl. 14:00.
Aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, alþingismað-
ur, flytur erindi sem nefnist „Réttur þinn í al-
mannatryggingunum“.
Kvennakórinn Vox Feminae undir stjórn
Margrétar Pálmadóttur syngur nokkur lög og
Árni Elvar verður við píanóið.
Fundarlok áætluð kl. 16:00.
Stjórnin.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Félags einstæðra foreldra
verður haldinn 16. apríl nk. í salarkynnum fé-
lagsins, Skeljahelli, Skeljanesi 6, 101 Reykjavík,
og hefst fundurinn stundvíslega klukkan 18:00.
Með fundarstjórnun og fundarritun koma aðil-
ar frá Junior Chamber á Íslandi.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Skýrsla nefnda.
3. Yfirfarnir reikningar og skýrsla fyrir liðið
reikningsár.
4. Ákvörðun félagsgjalds.
5. Lagabreytingar.
6. Kosning í stjórn og nefndir.
7. Kosning löggildra endurskoðenda.
8. Önnur mál.
Fundur er löglegur ef löglega hefur verið til
hans boðað. Hver félagsmaður hefur eitt at-
kvæði. Á aðalfundi ræður afl atkvæða úrslitum
og hafa allir skuldlausir félagsmenn rétt til
framboðs og rétt til að kjósa. Styrktarmeðlimir
hafa rétt til setu á aðalfundi en ekki atkvæðis-
rétt.
Tilkynning um framboð í stjórn skal berast
stjórn skriflega eigi síðar en 10 dögum fyrir
aðalfund. Beiðnir um fyrirtekt á málum sem
falla undir 8. lið önnur mál, skal einnig berast
skriflega á skrifstofu félagsins 10 dögum fyrir
aðalfund.
Stjórnin.
RAÐAUGLÝSINGAR
ATVINNA
mbl.is
Sunna og Linda voru
með mér í skóla. Sunna
var með mér í bekk.
Hún var góð í öllu sem
hún tók sér fyrir hend-
ur og sama hvað það
var, ef hún vildi gera það þá tókst
henni það að lokum, og hún gerði
það vel. Linda var líka mjög snjöll
og falleg stelpa og þær hefðu báðar
náð langt og orðið eitthvað mikið í
framtíðinni.
Það er sárt að missa fólk sem
maður hefur þekkt svona lengi, en
það er líka gott að vita að nú eru
þær á betri stað, og ég hlakka til að
hitta þær aftur seinna. Ég veit að ég
mun gera það. Af því að þegar ég
hugsa um nöfnin þeirra þá man ég
LINDA
GUÐJÓNSDÓTTIR
✝ Linda Guðjóns-dóttir fæddist í
Reykjavík 25. apríl
1990. Hún lést af
slysförum 20. febr-
úar síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Neskirkju 1.
mars.
að Sunna þýðir sól og
Linda minnir mig á
lind. Þegar sólin geng-
ur til viðar hverfur
birtan og hlýjan og við
tekur aldimm nótt.
Samt veit maður að
sólin fór til að skína
annarstaðar og þegar
hún kemur aftur er
nóttin á enda. Eins er
lindin. Hún hættir að
streyma og maður
heldur að hún sé horfin
að eilífu. En það er hún
ekki. Hún fór annan
farveg. Hún fór aðra
leið. Þannig ætla ég að hugsa um
Lindu og Sunnu.
Júlía Leví Baldursdóttir,
Hagaskóla.
Okkur langar að minnast Lindu
vinkonu okkar. Við eigum óteljandi
margar fallegar og skemmtilegar
minningar um hana sem við munum
að eilífu geyma í hjarta okkar. Við
eigum minningar úr sumarbúðum
með henni og af línuskautaferðum
um Ægisíðuna og út í Nauthólsvík á
sumardögum. Við smíðuðum einnig
kofa saman og fórum í margra
klukkutíma sundferðir. Það var allt-
af gaman hjá okkur á öskudag. Eitt
skipti vorum við KR-ingar og KR-
ljón og sungum KR-sönginn og
fengum sérstaklega mikið nammi
fyrir það. Það var árlegur viðburður
hjá okkur að fara á Andrésar Andar-
leikana. Þar var margt skemmtilegt
gert; keypt afmælisgjöf handa
Lindu, klifrað á Snæfinni snjókarli,
tröppurnar að kirkjunni taldar ná-
kvæmlega, mikið brallað á kvöldin
og vaknað snemma morguninn eftir
til að bruna niður brekkurnar.
Við söknum þín sárlega Linda og
munum aldrei gleyma þér.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku Ólöf Ása, Ellen, Guðjón og
amma Lillý, við sendum ykkur okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Þínar vinkonur,
Gróa Ragnheiður og
Auður Erna.
Elsku Árni Þór
minn.
Það er ótrúlegt að
hugsa til þess að það
séu komin átta ár síð-
an ég kynntist þér
fyrst.
Það var þegar ég kynntist
manninum mínum, Guðmundi. Þá
voruð þið á heimavistinni heima.
Ég gleymi aldrei þegar ég
spurði ykkur hvort þið væruð
skyldir, því ég skynjaði strax að
þið voruð ofboðslega nánir. Mér
fannst eins og þið væruð bræður.
Þú byrjaðir að hlæja og ég mun
aldrei gleyma hlátrinum þínum,
hann var svo innilegur og ljúfur.
Svo þegar þið sögðuð mér að ja,
þið væruð jú eitthvað skyldir,
mömmur ykkar væru systur og
pabbar ykkar væru tvíburar. Ég
ÁRNI ÞÓR
BJARNASON
✝ Árni Þór Bjarna-son fæddist á
Heilsugæslustöðinni
á Egilsstöðum 21.
febrúar 1979. Hann
lést af slysförum
hinn 15. mars síðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá Egils-
staðakirkju 24. mars.
hélt að þið væruð að
gera grín að mér og
trúði ykkur auðvitað
ekki.
Enda spurði ég
Gumma nokkrum
sinnum hvort þetta
væri virkilega rétt.
Því miður fækkaði
stundum okkar saman
eftir að við Guðmund-
ur fluttum norður og
síðan suður. En það
var alltaf jafn gaman
að hittast þegar við
hittumst fyrir austan
á sumrin, jólum og
páskum.
Ég gleymi því heldur aldrei þeg-
ar þú komst í heimsókn til okkar á
Hverfisgötuna og kynntir okkur
fyrir henni Jenný þinni. Þú varst
svo stoltur af henni. Þið pössuðuð
svo vel saman. Þótt tími ykkar
saman hafi verið stuttur og oft
langt á milli ykkar þá nýttuð þið
hann vel og gerðuð margt saman.
Elsku Jenný mín, Guð megi vera
með þér og styðja þig í sorg þinni.
Manni finnst lífið ekki sann-
gjarnt þegar menn eru teknir í
blóma lífsins í burtu. En svona er
víst lífið og við vitum ekki hvenær
okkar tími kemur en eitt er víst að
Árni Þór okkar mun bíða okkar og
taka á móti okkur þegar okkar
tími kemur.
Mig langar bara að þakka fyrir
þann tíma sem við fengum með
þér, Árni minn.
Mig langar að biðja góðan Guð
að vera með ykkur öllum; Jenný
mín, Jóna, Bjarni, Ómar, Ævar,
Erla, Vala og fjölskyldur.
Stórt skarð er komið í líf ykkar
sem seint mun gróa en minning
um góðan dreng mun fylgja okkur
í gegnum lífið.
Ég mun aldrei gleyma þér.
Kveðja,
Fjóla Rún.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
Þessar ljóðlínur úr Hávamálum
komu upp í hugann þegar þau
hörmulegu tíðindi bárust að Árni
Þór í Litla-Sandfelli væri dáinn.
Árni Þór ávann sér traust hvar-
vetna í starfi, hann var ötull og
verklaginn, reglusamur og prúður
í framkomu og glaðlyndur. Hann
var afar barngóður og börn tilbáðu
hann í hvívetna. Við eigum erfitt
með að sætta okkur við þegar ung-
menni í blóma lífsins falla frá en
örlög ráða okkar lífsferli og við
skiljum ekki alltaf tilganginn.
Elsku Jenný, Jóna og Bjarni,
systkini og fjölskyldur þeirra, afi
og amma, tengdaforeldrar, ætt-
ingjar og vinir; megi Guð varð-
veita ykkur og styrkja á þessum
erfiðu tímum. Við þökkum Árna
allt það góða sem hann gaf okkur
og hugur okkar fylgir honum til
nýrra heimkynna. Hans er sárt
saknað en minningin um góðan
dreng mun vaka með okkur um
ókomna tíð.
Guðmundur, Gréta, Júlíana
og Garðar Örn á Vaði.
Nú er hún amma Ír-
is mín farin á betri
stað og ég veit að
henni líður loksins bet-
ur.
Mikið á ég eftir að sakna hennar,
það var alltaf svo gott að fá að vera
hjá henni.
Mér leið alltaf svo vel, í róleg-
heitunum hjá henni, þegar hún átti
að vera að passa mig og síðustu ár-
in var það spurning hver var að
passa hvern.
Guð geymi þig elsku amma og
þakka þér fyrir ljúfu minningarnar
ÍRIS LILJA
SIGURÐARDÓTTIR
✝ Íris Lilja Sigurð-ardóttir fæddist
á Freyjugötu 11 í
Reykjavík 2. maí
1949. Hún lést á
heimili sínu í Hafnar-
firði fimmtudaginn
4. mars síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Víðistaða-
kirkju 11. mars.
sem þú gafst mér og
allt það réttlæti sem
þú kenndir mér.
Ég mun aldrei
gleyma þér.
Hvíldu í friði.
Heiðra skaltu föður þinn og
móður.
Ekki kenna öðrum um það
sem tekst ekki.
Illa látir þú skaltu segja frá
því.
Áður en þú reiðist skaltu
segja satt.
Allir eiga rétt á að lifa eins
og þú.
Reiðist þú skaltu ekki láta reiðina bitna á
öðrum.
Láttu alla stríðni sem vind um eyru þjóta.
Ekki stríða, því að öllum líður illa þegar þeim
er strítt.
Illur fengur, illa forgengur.
Krakkar þurfa ekki að vita allt.
Innilega óska ég þér til hamingju, hafir þú
lært þetta.
Anna Íris Pétursdóttir.
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi
með. Þar sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina, enda þótt
þær berist innan hins tiltekna frests. Nán-
ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát-
inn einstakling birtist formáli og ein aðal-
grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300
orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50
línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín-
ur, og votta virðingu án þess að það sé gert
með langri grein. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.