Morgunblaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 78
ÍÞRÓTTIR
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
1. deild kvenna:
Ásgarður: Stjarnan - Valur ..................16.30
Kaplakriki: FH - Fram .........................16.30
KA-heimilið: KA/Þór - Grótta/KR.......16.30
Vestmannaeyjar: ÍBV - Haukar ..........16.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Laugardagur:
1. deild kvenna, úrslit, annar leikur:
Kennaraháskóli: ÍS - Keflavík...................15
Sunnudagur:
Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin, und-
anúrslit, fjórði leikur:
Keflavík: Keflavík - UMFG..................19.15
Mánudagur:
1. deild kvenna, úrslit, þriðji leikur:
Keflavík: Keflavík - ÍS ..........................19.15
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Deildabikarkeppni
Efri deild karla, A-riðill:
Fífan: Haukar - KA....................................14
Neðri deild karla, A-Riðill:
Reykjaneshöll: ÍH - Sindri ........................14
Neðri deild karla, B-riðill:
Reykjaneshöll: KFS - ÍR...........................16
Sunnudagur:
Deildabikarkeppni
Efri deild karla, B-riðill:
Egilshöll: ÍA - Þróttur R............................18
Neðri deild karla, C-riðill:
Fífan: Skallagrímur - KS...........................15
Neðri deild karla, A-riðill:
Fjölnir - Víðir..............................................20
Efri deild kvenna:
Fífan: Stjarnan - ÍBV.................................13
Reykjavíkurmót
Neðri deild kvenna:
Egilshöll: Þróttur R. - HK/Víkingur ........14
BLAK
Laugardagur:
1. deild kvenna:
Digranes: HK - Þróttur N. ........................16
Hagaskóli: Þróttur R. - KA .......................16
1. deild karla:
Hagaskóli: Þróttur R. - HK.......................14
BORÐTENNIS
Íslandsmeistaramótið í borðtennis fer fram
í Íþróttahúsi TBR í dag og á morgun,
sunnudag. Keppni hefst kl. 10 í dag og kl.
11 á sunnudag. Úrslitaleikir í einliðaleik
karla og kvenna hefjast kl. 14.
TENNIS
Íslandsmeistaramótið í hófst í gær í Sport-
húsinu í Kópavogi og verður því framhaldið
í dag og á morgun en þá er ráðgert að úr-
slitaleikir verði háðir. Áætlað er að úrslita-
leikurinn í karlaflokki hefjist kl. 16.30 og
úrslitaleikurinn í kvennaflokki um hálftíma
síðar.
GLÍMA
Sveitaglíma Íslands fer fram á Laugarvatni
í dag og hefst kl. 13:00. Keppt verður í níu
flokkum og eru 19 sveitir skráðar til leiks.
UM HELGINA
EYJAMENN ætla að leika heima og heiman gegn Nürnberg
frá Þýskalandi í undanúrslitum Áskorendabikars kvenna í
handknattleik. Þetta var ákveðið síðdegis í gær en ÍBV fékk
fyrr í vikunni tilboð frá Nürnberg um að leika báða leikina í
Þýskalandi og útlit var fyrir að Eyjamenn þyrftu að taka því
vegna mikils kostnaðar við þátttöku liðs þeirra í keppninni í
vetur.
„Það er mikill léttir að hafa náð að tryggja þetta og nú
stefnum við ótrauð að því að slá þýska liðið út og komast í úr-
slit keppninnar. Ég tel að það sé vel hægt. Vestmannaeyjabær
ætlar að styðja dyggilega við bakið á okkur svo við náum end-
um saman, auk þess sem góðir menn ætla að leggja okkur lið
við að kljúfa þetta fjárhagslega. Með þau loforð upp á vasann
ákváðum við að láta slag standa og spila heima og heiman þó
ljóst sé að tapið á þessari umferð verði á bilinu hálf til ein
milljón króna,“ sagði Hlynur Sigmarsson, varaformaður
handknattleiksráðs kvenna hjá ÍBV, við Morgunblaðið í gær.
Fyrri leikur ÍBV og Nürnberg fer fram í Þýskalandi laug-
ardaginn 17. apríl klukkan 18 að staðartíma en sá síðari verð-
ur háður í Vestmannaeyjum laugardaginn 24. apríl klukkan
16.30.
ÍBV heima og heiman
gegn Nürnberg
VIGNIR Svavarsson, leikmaður Hauka, var í gær
kallaður inn í íslenska landsliðið í handknattleik
sem mætir Frökkum í tveimur vináttulands-
leikjum ytra á mánudag og miðvikudag. Gunnar
meiddist í hægri kálfa á dögunum og við lækn-
isskoðun í fyrrakvöld virtist sem það gæti verið
alvarlegt. Fer hann í nánari skoðun um helgina
hjá lækni þýska liðsins Wetzlar, en með því leikur
hann.
„Ég hafði ekki mikinn fyrirvara á að kalla inn
annan leikmann en ákvað að velja Vigni, fyrst og
fremst til þess að leysa varnarhlutverkið þar sem
ljóst er að ég verð án fimm sterkra varnarmanna
í leikjunum við Frakka,“ sagði Guðmundur Þ.
Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, í
samtali við Morgunblaðið í gær þar sem hann var
staddur í Lundúnum á leið til Parísar.
Leikmennirnir fimm sem Guðmundur nefnir
eru auk Gunnars Sigfús Sigurðsson, Patrekur Jó-
hannesson, Jaliesky Garcia og Ólafur Stefánsson,
en allir eru þeir meiddir að Ólafi undanskildum.
Vignir í stað
Gunnars Bergs
Leikmenn Snæfells fá kærkomiðfrí fram að úrslitarimmunni
sem hefst fimmtudaginn 1. apríl. Á
meðan eigast Grindavík og Kefla-
vík við í hinni undanúrslitarimm-
unni og fari hún í fimm leiki þá
verður síðasti leikurinn þriðjudag-
inn 30. mars. „Þetta er gott frí sem
við fáum og kemur á góðum tíma
því það hafa verið veikindi og
meiðsli hjá okkur og við höfum
ekki verið með fullt lið síðan í
fyrsta leiknum gegn Hamri. Nú
ættu menn að geta gefið sér tíma
til að jafna sig og vonandi verða
allir heilir þegar úrslitarimman
hefst,“ segir Bárður.
En skyldi þjálfarinn hafa átt von
á að vinna Njarðvík í þremur leikj-
um? „Ég veit eiginlega ekki hverju
maður á von á. Allir keppnismenn
fara í leiki til að vinna og því á sig-
ur auðvitað ekki að koma mönnum
á óvart. Njarðvík er með mjög
sterkt lið og það þarf gott lið til að
leggja þá. Við gerðum það í þrem-
ur leikjum.
Mér er alveg sama hvrot við
fáum Keflavík eða Grindavík. Þeg-
ar komið er þetta langt í keppninni
er ekkert í boði nema sterk lið og
ég hræðist hvorugt liðið. Bæði er
með góðar skyttur en við höfum
sýnt að við getum stöðvað skot liða
af löngu færi, höfum ekki fengið
neinn aragrúa af þriggja stiga
körfum á okkur í leikjum.
Við reynum að setja upp okkar
leik og láta mótherjana hafa
áhyggjur af okkur,“ sagði Bárður.
Spurður um hvort mikið hafi
verið um dýrðir í Hólminum eftir
sigurinn sagði Bárður: „Já auðvit-
að, menn fóru á kaffihús til að
fagna og við gáum okkur daginn í
dag og morgundaginn til að gleðj-
ast en síðan hefjumst við handa við
æfingar á ný. Þetta var auðvitað
með ólíkindum því hingað til höfum
við fylgst með þessum leikjum úr
fjarlægð og reynt að samgleðjast
öðrum liðum. Núna stöndum við
hins vegar sjálfir í þessum sporum
og það er frábært.“
Erum rétt að kom-
ast niður á jörðina
„ÞETTA var auðvitað alveg frábært og menn eru rétt að komast nið-
ur á jörðina – ef menn eru þá komnir svo langt,“ sagði Bárður Ey-
þórsson, þjálfari körfuknattleiksliðs Snæfells, sem í fyrrakvöld
tryggði sér rétt til að leika í úrslitum úrvalsdeildar karla eftir að
hafa lagt Njarðvík í þremur leikjum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Bárður Eyþórsson
Bárður Eyþórsson, þjálfari Snæfells, ánægður með árangurinn
ÁRSÞING Handknattleikssambands
Íslands samþykkti í gær að gera lít-
illegar breytingar á keppnisfyrir-
komulaginu fyrir næstu leiktíð. Þing-
ið felldi tillögu KA um að leika með
átta liða deild og þrefalda umferð en
samþykkti tillögu milliþinganefndar
um keppnisfyrirkomulagið.
Á næstu leiktíð verður því leikið
með sama sniði og nú, fyrst forkeppni
í tveimur riðlum, þá úrvalsdeild og 1.
deild og loks úrslitakeppnin sjálf.
Breytingin sem samþykkt var gerir
það að verkum að þau lið sem komast
í úrvalsdeildina úr forriðlunum tveim-
ur taka með sér stigin gegn þeim lið-
um í riðlinum sem fara með þeim í úr-
valsdeildina. Þetta fækkar leikjum
aðeins því segjum sem svo að úr öðr-
um riðlinum fari Reykjavíkurfélögin
Fram, Valur, ÍR og Grótta/KR í úr-
valsdeild. Innbyrðisleikir liðanna
standa þá í úrvalsdeildinni og þau
leika ekki á ný í úrvalsdeildinni.
Keppninni breytt
ÚRSLIT
Óvissa
með
Hermann
í dag
ALAN Curbishley, knatt-
spyrnustjóri Charlton
Athletic, sagði í gær að
óvíst væri að hann myndi
nota íslenska landsliðs-
manninn Hermann Hreið-
arsson þegar Charlton tek-
ur á móti Aston Villa í
ensku úrvalsdeildinni. Her-
mann meiddist í læri í síð-
asta leik, gegn Newcastle,
og Curbishley sagðist ekki
vilja taka neina óþarfa
hættu með leikmenn á þess-
um tíma árs. Þrír aðrir
varnarmenn eru frá vegna
meiðsla hjá Charlton, þeir
Richard Rufus, Gary Ro-
wett og Mark Fish, en liðið
er í harðri baráttu við Villa
og fleiri félög um fjórða
sætið í úrvalsdeildinni, sem
gefur þátttökurétt í for-
keppni Meistaradeildar
Evrópu.
því ekki verið með 20 ára liðinu við
æfingar næstu daga. Hópurinn er
annars skipaður eftirtöldum leik-
mönnum: Björgvin Gústavsson, HK,
Stefán Guðnason, KA, Pálmar Pét-
ursson, Valur, Davíð Hlíðdal Svans-
son, Aftureldingu. Aðrir leikmenn:
Andri Númason, Víkingi, Andri Stef-
an, Haukum, Árni Björn Þórarinsson,
KA, Árni Þór Sigtryggsson, Þór,
Davíð Guðnason, Víkingi, Daníel
Berg Grétarsson, Aftureldingu, Ein-
ar Ingi Hrafnsson, Aftureldingu,
Guðmundur Eggertsson, Selfossi,
Hrafn Ingvarsson, Aftureldingu,
HEIMIR Ríkarðsson hefur valið hóp
24 leikmanna sem fæddir eru 1984 og
1985 en þeim er ætlað að æfa saman
fyrir Evrópumeistaramót handknatt-
leikslandsliða skipaðra leikmönnum
20 ára og yngri í ágúst í sumar. Þar
hefur íslenska landsliðið titil að verja
en það varð Evrópumeistari í þessum
sama aldurshópi, þá 19 ára og yngri, í
Slóvakíu í fyrrasumar. Í hópi Heimis
nú eru ekki tveir lykilmenn íslenska
liðsins í fyrra, Arnór Atlason, KA, og
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Haukum,
en þeir eru í íslenska A-landsliðinu
sem hélt til Frakklands í gær og geta
Hjörleifur Þórðarson, FH, Ívar Grét-
arsson, Selfossi, Jóhann G. Einars-
son, Fram, Jón Jónsson, FH, Kári
Kristján Kristjánsson, ÍBV, Kristján
Karlsson, Val, Magnús Stefánsson,
KA, Pálmar Sigurjónsson, Víkingi,
Pétur Magnússon, Haukum Sverrir
Hermannsson, Víkingi og Tómas A.
Sigurbergsson, FH.
Björgvin Gústavsson markvörður
var kallaður inn í A-landsliðið á
fimmtudagskvöldið vegna forfalla
Reynis Þórs Reynissonar, og æfir því
heldur ekki með hópnum, frekar en
Arnór og Ásgeir Örn.
Heimir velur væntanlega EM-fara
Stjarnan
deildar-
meistari
STJARNAN úr Garðabæ
tryggði sér í fyrrakvöld
deildarmeistaratitilinn í
blaki karla þegar liðið lagði
stúdenta 3:2 í jöfnum og
spennandi leik í Garða-
bænum. Heimamenn byrjuðu
betur og unnu fyrstu hrin-
una 25:17, stúdentar tóku
næstu 25:23 og þriðju hrin-
una 25:16 og voru komnir
með vænlega stöðu. Fjórða
hrinan var æsispennandi og
lauk með sigri Stjörnunnar
30:28 og heimamenn höfðu
síðan betur í oddahrinunni,
15:8.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Grindavík – Keflavík 106:105
Íþróttahúsið í Grindavík, undanúrslit úr-
valsdeildar karla, Intersport-deildar,
föstudaginn 26. mars 2004.
Gangur leiksins: 2:8, 8:14, 16:16, 21:25,
25:30, 25:43, 36:49, 46:55, 54:62, 57:64,
65:75, 69:77, 80:79, 85:87, 89:91, 94:94,
99:94, 101:100, 106:105.
Stig Grindavíkur: Darrel Lewis 38, Ant-
hony Jones 26, Jackie Rogers 16, Páll Axel
Vilbergsson 16, Pétur Guðmundsson 6,
Guðmundur Bragason 4.
Fráköst: 31 í vörn – 22 í sókn.
Stig Keflavíkur: Derrick Allen 31, Nick
Bradford 18, Fannar Ólafsson 16, Magnús
Gunnarsson 13, Arnar Jónsson 9, Gunnar
Einarsson 6, Jón N. Hafsteinsson 5,
Sverrir Sverrisson 4, Halldór Halldórsson
3.
Fráköst: 23 í vörn – 14 í sókn.
Villur: Grindavík 17 – Keflavík 27.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Rögn-
valdur Hreiðarsson.
Áhorfendur: Um 700.
Staðan er 2:1 fyrir Grindavík.
2. deild karla
Úrslitakeppni í Vík og á Kirkjubæjar-
klaustri:
A-riðill:
Drangur – Reynir Sandgerði ............. 84:81
HK – Hörður Patreksfirði .................. 71:62
B-riðill:
ÍV – Grundarfj./Reynir Helliss. ......... 70:77
ÍA – Dalvík ........................................... 99:72
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
Atlanta – New Orleans........................ 84:76
San Antonio – Detroit ......................... 84:75
LA Clippers – Washington............... 94:103
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla
Neðri deild karla, B-riðill:
Breiðablik – Selfoss................................. 6:0
Staðan:
Breiðablik 2 2 0 0 10:0 6
Selfoss 2 1 0 1 4:8 3
KFS 1 0 1 0 4:4 1
Reynir S. 1 0 1 0 4:4 1
ÍR 1 0 0 1 2:4 0
Númi 1 0 0 1 0:4 0x
Neðri deild karla, C-riðill:
Víkingur Ó. – KS ..................................... 2:0
Staðan:
Víkingur Ó 2 1 1 0 4:2 4
HK 1 1 0 0 4:2 3
Afturelding 1 1 0 0 1:0 3
Skallagr. 2 0 1 1 2:3 1
Huginn 0 0 0 0 0:0 0
KS 2 0 0 2 2:6 0
EM U17 karla
Milliriðill í Englandi:
England – Ísland ..................................... 1:0
Noregur – Armenía ................................. 1:4
Staðan:
England 2 2 0 0 3:0 6
Armenía 2 1 0 1 4:3 3
Ísland 2 1 0 1 2:2 3
Noregur 2 0 0 2 2:6 0
Í lokaumferðinni á morgun leika Ísland-
Armenía og England-Noregur. Sigurliðið í
riðlinum kemst í úrslitakeppnina.
Holland
Den Haag – Zwolle.................................. 1:1
Staða efstu liða:
Ajax 26 21 1 4 62:25 64
PSV Eindhoven 26 16 5 5 64:23 53
Feyenoord 26 14 7 5 47:33 49
Alkmaar 26 15 3 8 50:30 48
Heerenveen 26 13 6 7 38:31 45
Roda 26 11 8 7 48:32 41
Twente 26 12 2 12 45:43 38
Roosendaal 26 10 8 8 29:30 38
Willem II 26 10 8 8 37:41 38
Utrecht 26 10 6 10 32:36 36
Breda 26 9 8 9 41:37 35
Waalwijk 26 8 7 11 33:31 31
Belgía
Bikarkeppnin, undanúrslit, síðari leikur:
Beveren – Anderlecht ............................. 0:0
Anderlecht í úrslit á marki á útivelli, 1:1
samanlagt.
BLAK
1. deild karla
Stjarnan – ÍS............................................ 3:2
(25:17, 23:25, 16:25, 30:28, 15:8)
Staðan:
Stjarnan 12 10 2 31:16 31
ÍS 12 8 4 31:20 31
HK 11 5 6 23:24 23
Þróttur R. 11 0 11 8:33 8
Stjarnan er deildarmeistari.
1. deild kvenna
Þróttur R. – KA ....................................... 3:0
(25:22, 26:24, 25:17)
Staðan:
Þróttur R. 11 8 3 29:15 29
Þróttur N. 10 7 3 24:18 24
KA 11 5 6 20:21 20
HK 10 1 9 9:28 9
78 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ