Morgunblaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 81
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 81
EINN af helstu kántrítónlist-
armönnum sögunnar, kvikmynda-
stjarnan og lagahöfundurinn Kris
Kristofferson, hefur ákveðið að
sækja Ísland heim í sumar og halda
hér tónleika.
Kristofferson, sem hefur samið
meðal annars lögin „Sunday Morn-
ing Coming Down“, „Help Me Make
It Through The Night“, „Me and
Bobby McGee“ og „Why Me Lord“,
auk fjölda annarra vinsælla laga,
hefur haldið nokkra tónleika í Evr-
ópu að undanförnu og alls staðar
hefur verið uppselt.
Í fréttatilkynningu frá aðstand-
endum tónleikanna á Íslandi ákvað
Kristofferson að fara í stutta hljóm-
leikaferð um Evrópu í sumar vegna
mikillar eftirspurnar og á hann sér-
staklega að hafa beðið um að fá
tækifæri til að koma til Íslands.
Kristofferson er 67 ára gamall
og hefur á fjögurra áratuga
löngum ferli gefið út hátt í 20 plöt-
ur, samið fjölda frægra laga fyrir
aðra listamenn á borð við Janis
Joplin, Johnny Cash og Barbru
Streisand, og leikið í nálægt hundr-
að kvikmyndum og sjónvarps-
myndum. Kristofferson hefur hlot-
ið þrenn Grammy-verðlaun fyrir
lögin „Help Me Make It Through
the Night“, „Lover Please“ og
„From the Bottle to the Bottom“
sem hann flutti ásamt fyrrverandi
eiginkonu sinni, Ritu Coolidge. Á
níunda áratugnum var Krist-
offerson í slagtogi við kántrígoð-
sagnirnar Johnny Cash, Willie Nel-
son og Waylon Jennings og undir
nafninu The Highwaymen gáfu
þeir út þrjár hljóðversplötur og
eina tónleikaplötu.
Fyrir kvikmyndaleikinn hefur
Kristofferson einnig hlotið lof og
viðurkenningar, fékk t.d. Golden
Globe-verðlaunin sem besti leik-
arinn í aðalhlutverki fyrir myndina
A Star is Born frá 1976.
Íslensku sveita- og þjóðlaga-
tónlistarmennirnir KK og Ríó-
tríóið með þeim Ágústi Atlasyni,
Helga Péturssyni og Ólafi Þórð-
arsyni auk Gunnars Þórðarsonar
og Björns Thoroddsen munu hita
upp fyrir Kristofferson.
Hljómleikarnir verða haldnir í
Laugardalshöll 14. júní og verður
eingöngu selt í sæti. Miðasala hefst
seinni hluta aprílmánaðar og verð-
ur tilkynnt um hana síðar.
Kántrígoðsögnin Kris Kristofferson til Íslands
Kris Kristofferson hefur meistaragráðu í enskum bókmenntum og náði
langt í bandaríska hernum áður en hann gaf sig listagyðjunni á vald.
Virtur söngv-
ari, leikari og
lagahöfundur