Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ● VÖRUSKIPTI við útlönd voru nán- ast í jafnvægi í febrúarmánuði, en sama mánuð í fyrra voru þau jákvæð um 2 milljarða króna. Vöruútflutn- ingur nam 14,2 milljörðum króna, en inn- flutningur 14,1 milljarði króna og afgangur var því 0,1 millj- arður króna, að því er segir í frétt frá Hagstof- unni. Fyrstu tvo mánuði ársins var afgangur af vöru- skiptum 0,3 milljarðar króna, en á sama tímabili í fyrra var afgangurinn 6,9 milljarðar króna. Verðmæti vöruútflutnings á föstu gengi dróst saman um 4% fyrstu tvo mánuði ársins og nam 30,8 millj- örðum króna. Verðmæti sjávarafurða var svipað og í fyrra og nam um 59% af vöruútflutningnum. Verðmæti út- fluttra iðnaðarvara dróst saman um 6%. Útflutningur á áli dróst saman en á móti jókst útflutningur lyfja og lækningavara. Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu tvo mánuði ársins nam 30,5 millj- örðum króna og jókst um 21% á föstu gengi. Samkvæmt Hagstofunni var aukningin mest í innflutningi á fjárfestingarvörum og hrá- og rekstr- arvörum. Vöruskipti í jafnvægi               ! ! " # $ ! % ● LANDSBANK- INN hefur tekið rúmlega 35 millj- arða króna erlent lán til fimm ára, að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá bank- anum til Kaup- hallar Íslands. Í tilkynningunni segir að lánið sé til lengri tíma en íslenskir bankar hafi áður fengið í skráðum skuldabréf- um erlendis af þessari stærð. Lán- takan sé á alþjóðlegum skulda- bréfamarkaði og sé liður í endurfjármögnun til að mæta þörf- um og óskum viðskiptavina bank- ans. Eftirspurn eftir skuldabréfunum fór fram úr væntingum Landsbank- ans, að því er segir í tilkynningunni, og vegna mikillar eftirspurnar hafi útgáfan verið aukin úr 300 millj- ónum evra í 400 milljónir evra, eða 35 milljarða króna. Markmið lántök- unnar sé að draga úr áhættu við endurfjármögnun með því að lengja endurgreiðsluferil erlendra lána. Landsbankinn tekur erlent lán ● KB BANKI hefur samið við þrjá er- lenda banka um tæplega 22 milljarða króna, 250 milljóna evra, lánalínu. Kristín Pétursdóttir, fram- kvæmdastjóri fjárstýringar hjá KB banka, segir að um sé að ræða samningsbundna lánalínu til þriggja ára. Áhugi á þátttöku hafi verið mjög mikill sem sýni sterka stöðu KB banka. Kristín segir að lánalínan verði að mestu ónotuð en hægt verði að grípa til hennar ef á þurfi að halda til að styrkja lausafjárstöðu bankans. Að- spurð segir hún þetta ekki vera skuldabréfaútgáfu, heldur samn- ingsbundna heimild til lántöku. Ný erlend lánalína KB banka ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI VIVA Ventures þarf enn að bíða í allt að 45 daga eftir niðurstöðu um hvort það fær úthlutað farsímaleyfi í Búlgaríu, samkvæmt fréttum búlgarskra fjölmiðla. Viva Ventures, sem Björgólfur Thor Björg- ólfsson og fleiri íslenskir fjárfestar standa með- al annarra á bakvið, hefur keypt 65% hlut í búlgarska símafyrirtækinu BTC af búlgarska ríkinu. Lokafrágangur kaupanna hefur hins vegar strandað á að ríkið uppfylli skilyrði kaup- samningsins um veitingu farsímaleyfis. Niðurstöðu frá fjarskiptastofnun Búlgaríu var vænst í gær en ákvörðun mun hafa verið frestað í einn og hálfan mánuð á meðan aflað er frekari gagna frá opinberum aðilum. 2,4 milljarðar fyrir leyfið Fái Viva Ventures úthlutað farsímaleyfinu, sem er það þriðja í Búlgaríu, án útboðs eða samkeppni við aðra mun það greiða fyrir það 54 milljónir leva eða sem svarar til ríflega 2,4 milljarða íslenskra króna. Talið er að fjarskiptastofnunin hafi með frestuninni verið að víkja sér undan að taka ákvörðun um málið sökum hversu pólitískt um- deilt það er hvort bjóða eigi leyfið út eða ekki. Ábyrgðinni hafi nú verið varpað á ríkisstjórn- ina. Heimildir Morgunblaðsins herma að þetta sé sterk vísbending um það að Viva Ventures fái úthlutað farsímaleyfinu, eins og um hafði verið samið. Þetta sé skref í rétta átt til frágangs á kaupunum á BTC. Enn meiri bið á frágangi kaupa á búlgarska símanum Morgunblaðið/Nína Björk Skref í rétta átt Þrátt fyrir að úthlutun farsíma- leyfis til Viva Ventures hafi enn verið frestað þykir þetta sterk vísbending um að leyfið fáist. Ákvörðun um veitingu farsímaleyfis frestað um einn og hálfan mánuð BREYTINGAR á gjaldskrá Kredit- korta hf. fyrir seljendur sem taka við debetkortum eru eðlilegar og hafa óveruleg áhrif á tekjur félagsins, að sögn Ragnars Önundarsonar, fram- kvæmdastjóra Kreditkorta. Ragnar segir það alrangt sem SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu halda fram og sagt var frá í Morgunblaðinu í gær, að Kreditkort hafi á sl. 6 mán- uðum nær tvöfaldað þjónustugjöld sín á seljendur sem taka við debetkortum. Hið rétta segir Ragnar vera að lág- marksgjöld hafi verið lækkuð og há- marksgjöld hækkuð. Hann segir frá upphafi hafa verið bæði þak og gólf á þóknun vegna debetkorta. Samið sé við hvern og einn seljanda um hlutfallslega þóknun af hverri debetkortafærslu en greiðslan verði þó aldrei lægri en lágmarkið seg- ir til um (5 kr.) og aldrei hærri en há- markið (sem er 212 kr.). Breytingar á gjaldskrá segir hann hafa falist í því að hámarkið var hækkað en lágmarkið lækkað. Þetta þýði að raungjöld hvers og eins seljanda færist nær umsaminni þóknunarprósentu viðkomandi. Þetta geti leitt til hækkunar hjá einum seljanda en til lækkunar hjá öðrum. Þannig hafi seljandi sem gjarnan selur fyrir lágar upphæðir jafnvel þurft að greiða hærri raun- þóknun en um- samin prósenta hafi sagt til um vegna lágmarksgjalds á hverja færslu. Að sama skapi hafi seljandi sem gjarnan selur fyrir háar upphæðir greitt mun lægri raunþókn- un en sem nemur umsaminni prósentu vegna þess þaks eða hámarks sem er á hverja færslu. Sá fyrrnefndi sé í þessu tilviki að niðurgreiða þjónustuna við þann síðarnefnda. Því segir Ragnar að tímabært hafi verið að breikka bilið á milli há- og lágmarksgjalda enda hafi þau verið nær óbreytt í 10 ár. Ragnar segir torskilið af hverju samtök seljenda amist við aðgerð sem einkum sé réttlætismál innbyrðis í hópi félagsmanna samtakanna. Engu sé líkara en að SVÞ vilji viðhalda skekkjunum og láta einn félagsmann sinn greiða niður þjónustu annars. Hann segir SVÞ ganga þarna erinda dótturfélags dansks banka en ekki fé- lagsmanna sinna. Verðlauna aukin viðskipti Um þær ásakanir SVÞ að Kredit- kort hegni þeim seljendum með hæstu gjöldum sem einungis beini debet- kortafærslum til fyrirtækisins en ekki kreditkortafærslum, segir Ragnar að allt frá 1995 hafi kreditkortaviðskipti verið látin greiða niður debetkortavið- skipti. Slíkt sé ekki mögulegt að láta óleiðrétt enda sé það ástæða þess að PBS reynir fyrir sér hér á landi. Það segi sína sögu að PBS vilji ekki koma nálægt viðtöku debetfærslna. Hann segist ekki hafa áhyggjur af erindinu sem SVÞ sendi Samkeppn- isstofnun vegna gjaldskrár debet- korta. MasterCard hafi komið á al- mennu vildarkjarakerfi sem verðlauni aukin viðskipti eins og títt sé um slík viðskipti, og Samkeppnisstofnun sé fullkunnugt um aðgerðir MasterCard. „Alrangt að þjónustu- gjöld MasterCard hafi hækkað verulega“ Ragnar Önundarson HAGNAÐUR Hampiðjunnar dróst saman um 39% milli ára og nam 160 milljónum króna í fyrra. Skýr- inguna á verri afkomu er að finna í fjármagnsliðum samstæðunnar. Ár- ið 2002 voru hreinar fjármuna- tekjur 165 milljónir króna, en í fyrra voru fjármagnsgjöld upp á 13 milljónir króna. Inni í fjármagns- liðum er 79 milljóna króna hlutdeild í hagnaði Granda vegna 10% eign- arhlutar. Rekstrartekjur Hampiðjunnar námu 4,4 milljörðum króna í fyrra, sem er 8% aukning frá árinu 2002. Rekstrargjöld án afskrifta hækkuðu minna, eða um 7%. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA-framlegð, jókst um 18% og nam 420 milljónum króna. Hagn- aður fyrir afskriftir sem hlutfall af rekstrartekjum nam 9,6% í fyrra en 8,7% árið 2002. Í tilkynningu frá félaginu segir að áætlun ársins 2004 geri ráð fyrir að rekstrartekjur aukist lítillega milli ára og að framlegðin verði ívið betri í ár en í fyrra. Aukið veltufé frá rekstri Veltufé frá rekstri jókst um þriðjung milli ára og nam 275 millj- ónum króna í fyrra. Eignir samstæðu Hampiðjunnar jukust um 20% milli ára og námu um 6,7 milljörðum króna um ára- mót. Eiginfjárhlutfallið lækkaði úr 34% í 31% milli ára. Starfsmönnum Hampiðjunnar hefur fjölgað jafnt og þétt á síðustu árum og voru þeir að meðatali 533 í fyrra. Laun og tengd gjöld námu 1,3 milljörðum króna. Stjórn Hampiðjunnar mun á að- alfundi félagsins á föstudaginn í næstu viku leggja til að greiddur verði 10% arður til hluthafa. Markaðsverð Hampiðjunnar var 3,1 milljarður króna við lok við- skipta í gær. Hagnaður Hampiðjunn- ar dregst saman Neikvæð sveifla í fjármagnsliðum &       &   '    &  *   !! !!%    +! %,# #% "#! -, !# VIÐRÆÐUR fara nú fram um eig- endaskipti á fyrirtækinu Lyst ehf., sem er leyfishafi fyrir McDonald’s hér á landi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru meiri líkur en minni taldar á að Jón Garðar Ög- mundsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Hard Rock, kaupi fyr- irtækið af hjónunum Kjartani Erni Kjartanssyni og Gyðu Guðmunds- dóttur á allra næstu dögum. Meðal þess sem liggja þarf fyrir áður en hægt verður að ganga frá kaupunum er samþykki McDon- ald’s-keðjunnar á nýjum leyfishafa. Eftir því sem næst verður komist gerir McDonald’s alla jafna þá kröfu að leyfishafar fyrir notkun vöru- merkisins séu einstaklingar en ekki stórfyrirtæki. Gaumur að selja Pizza Hut Jón Garðar hefur nýlega látið af störfum sem framkvæmdastjóri Hard Rock. Eigandi Hard Rock er fjárfestingarfélagið Gaumur ehf. Jón Garðar var framkvæmdastjóri Pizza Hut áður en hann tók við starfi framkvæmdastjóra Hard Rock. Gaumur á um 40% í Pizza Hut, sem rekið er bæði hér á landi og í Svíþjóð. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru samningar um sölu á Pizza Hut á lokastigi. McDonald’s á Íslandi skiptir um eigendur Morgunblaðið/Sverrir Verið að selja Talið er líklegt að fyrrverandi framkvæmdastjóri Hard Rock, Jón Garðar Ögmundsson, kaupi McDonald’s á næstu dögum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.