Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 27
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 27
-40%
Dæmi: Áður Nú
Francesca 3ja sæta sófi áklæði 87.300 52.300
Easy 3+2 sæta sófar áklæði 139.800 83.800
Club hægindastóll, áklæði 93.700 56.200
Pucchini sófasett 3+1+1 leður 298.700 179.200
Partagas sófasett 3+1+1 leður 439.700 263.800
Bora sófasett 3+1+1 áklæði 283.140 169.800
Dubini hægindastóll
m. skammeli leður 158.900 95.300
Pigalle hornskápur m. glerh. mah. 102.500 61.500
Tivoli glerskápur hnota 198.300 118.900
Vivace fataskápur eik 108.810 65.200
Oliver sófasett 3+2+1 leður 391.520 234.900
Mirelle sófasett 3+1+1 áklæði 438.900 263.300
Adriana sófasett
3+1+1 áklæði (Alcantara) 439.800 263.800
Linea skenkur eik 121.500 72.900
Borð og 6 stólar ljós eik 188.680 113.200
Toscana skenkur bæsuð eik 117.450 69.800
Forege kommóða eik 105.000 63.000
Bolero sjónvarpsskápur eik 126.360 75.800
Modenese veggsamstæða hnota 289.800 173.800
Selva skatthol m. yfirskáp hnota 153.500 92.100
Dubini kaffiborð 100 cm hnota 79.800 47.800
Mistral glerskápur hnoturót 339.800 203.800
Wembley sófasett 3+1+1 áklæði 491.800 294.900
Deborah 2ja sæta sófi áklæði 89.400 53.600
Forege skenkur eik 139.000 83.400
Buredos skatthol kirsuberjaviður 102.900 61.700
Hermitage sófasett 3+1+1 leður 434.800 259.900
Adjust sólstóll 34.900 19.900
Bolero buffet bæsuð eik 176.040 99.800
Ármúla 44,
sími 553 2035
Við innréttum
nýja og
glæsilega
verslun
og bjóðum
því valdar vörur
með 40%
afslætti
Raðgreiðslur
í 36 mánuði
Opið
virka daga 9-18,
laugard. 11-16
Keflavíkurflugvöllur | Yfirmanna-
skipti urðu hjá varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli í gær. Noel G.
Preston flotaforingi tók við af
John J. Waickwicz sem verið hef-
ur yfirmaður varnarliðsins í tæp
þrjú ár.
John J. Waickwicz hlýtur tign-
arhækkun og verður falin stjórn
aðalstöðva kafbátaleitar Banda-
ríkjaflota sem stofnaðar hafa verið
í San Diego í Kaliforníu, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
varnarliðinu.
Nýi yfirmaðurinn, Noel G.
Preston, lauk námi í líffræði við
Suður-Kaliforníuháskóla og meist-
aragráðu í viðskiptafræði. Hann
hóf feril sinn sem flugliðsforingi
og þyrluflugmaður í Bandaríkja-
flota árið 1971 og starfaði í þyrlu-
sveitum til árins 1979 að hann
gekk til liðs við varalið flotans og
hlaut frama sem flugsveitarfor-
ingi. Preston starfaði í fastaflot-
anum í Persaflóastríðinu og frá
árinu 1996 hefur hann gegnt ýms-
um stjórnunarstörfum á vegum
Bandaríkjaflota, Evrópuherstjórn-
arinnar og varnarmálaráðuneyt-
isins, einkum í tengslum við að-
gerðir í Mið-Austurlöndum.
Undanfarið hálft ár hefur hann
starfað í Lissabon í Portúgal sem
formaður herráðs Atlantshafs-
bandalagsins á sunnanverðu Atl-
antshafi.
Eiginkona flotaforingjans er
Susan Preston og eiga þau tvö
börn.
Nýr yfirmaður tekur
við varnarliðinu
Ljósmynd/Páll Ketilsson
Í flugskýlinu: Yfirmannaskiptin fóru fram við athöfn í flugskýli varnarliðsins að viðstöddum fjölda gesta.
Yfirmannaskipti: Noel G. Preston
flotaforingi tekur við stöðu yfir-
manns varnarliðsins. Við hlið hans
stendur John J. Waickwicz sem nú
hverfur til annarra starfa.
Lýsa
óánægju með
„klónaðan“
grunnskóla
Innri-Njarðvík | Fulltrúar minni-
hlutans í umhverfis- og skipulags-
ráði Reykjanesbæjar eru óánægðir
með hönnun nýs grunnskóla í Innri-
Njarðvík, Akurskóla, segir að Heið-
arskóli í Keflavík hafi verið tekinn og
„klónaður“ nánast í óbreyttri mynd.
Meirihlutinn segir aftur á móti að
reynslan af Heiðarskóla sé góð og
byggingin henti vel til að fram-
kvæmda hugmyndir um opinn skóla.
Í bókun sem sem fulltrúar Sam-
fylkingarinnar lögðu fram á fundi í
umhverfis- og segir að þetta séu
furðuleg vinnubrögð í ljósi þess að
fegrunarframkvæmdir hafi verið í
öndvegi í bæjarfélaginu og að önnur
sveitarfélög hafi lagt metnað í arki-
tektúr skólamannvirkja sinna til að
skapa þeim sérstöðu.