Morgunblaðið - 27.03.2004, Síða 28
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
28 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Selfoss | Kóramót framhaldsskóla
var haldið laugardaginn 13. mars í
Fjölbrautaskóla Suðurlands. Tólf
kórar með um 370 félögum víðs-
vegar af landinu sóttu mótið. Kór-
arnir hituðu upp, æfðu saman,
sungu hver fyrir annan og gesti
sem komu til að hlusta. Kórarnir
sameinuðust á mótinu í einn risa-
kór og söng hann nokkur lög og
frumflutti verkið Ísland eftir Örlyg
Benediktsson undir stjórn Þor-
gerðar Ingólfsdóttur. Klukkan 19
var síðan komið að hinu árlega
Flóafári skólans með 19 þrautum
og sjö keppnisliðum. Tókst Kóra-
flóafárið mjög vel og var stemn-
ingin mikil í húsinu. Að lokum var
dansað við undirleik þeirra félaga
Birkis Kúld og Ingólfs Þórarins-
sonar. Héldu allir heim á leið glaðir
í sinni.
Öllum þeim sem komu að und-
irbúningi og framkvæmd kóra-
mótsins var þakkað og þá sér-
staklega félögum í kór FSu með
Kolbrúnu Guðmundsdóttur í broddi
fylkingar og þeim Halldóru Gunn-
arsdóttur, umsjónarmanni kórsins,
og Róbert Darling kórstjóra.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Stórkór 370 syngjandi framhaldsskólanema.
370 syngjandi nemendur
Selfoss | „Ég les þokkalega
mikið af bókum. Síðasta bókin
sem ég las var Hringadrótt-
inssaga sem er reyndar uppá-
haldsbókin mín ásamt bókunum
um Harry Potter,“ segir Guð-
jón Reykdal Óskarsson, nem-
andi í 7. bekk ÓÓ í Vallaskóla,
en hann varð í öðru sæti í Stóru
upplestrarkeppninni fyrir vest-
urhluta Árnessýslu sem nýlega
fór fram á Stað á Eyrarbakka.
„Það var mjög gaman að taka
þátt í keppninni og skemmti-
legt að flytja ljóðið sem ég las
og líka söguna. Ég lagði
áherslu á leikræna tjáningu í
lestrinum og þetta gekk mjög
vel. Það var auðvitað mjög
gaman að lenda í 2. sæti og svo
var þetta mjög gagnleg keppni
sem kenndi manni að koma
fram,“ sagði Guðjón þegar hann
var heimsóttur í bekkjartíma í
ensku.
Gott að finna stuðning
Guðjón las eins og aðrir upp
úr sögunni um Hjalta litla og
síðan ljóðið Vorbarn. Jóhanna
Runólfsdóttir, sem einnig er í 7.
ÓÓ, var líka í 6 nemenda hópi
úr skólanum sem tók þátt í
keppninni. Þau komust bæði í
10 manna úrslit í keppninni
sem er mjög góður árangur.
Hún las ljóðið Bernskuleikir.
Bekkurinn er að vonum stoltur
af árangri Guðjóns og vildi láta
þess getið að þau hefðu líka átt
einn varamann í keppnisliðinu,
Jóhann Örn Sigurjónsson.
Bekkurinn er sannkallaður
lestrarbekkur en nánast allir
voru með sögubók sem þeir
höfðu verið að lesa undanfarna
viku.
Guðjón sagði mjög gott að
finna stuðning frá bekknum og
það hefði skilað sér í keppninni.
„Þetta er þægur og mjög
skemmtilegur bekkur. Það er
gott samstarf í bekknum og
gaman að vera hérna,“ sagði
Guðjón en hann fer allra sinna
ferða í hjólastól og segir ágætt
að fara um skólann því hann sé
nánast allur á einni hæð nema
íþróttahúsið en það sé lyfta nið-
ur í það.
Auk þess að hafa ánægju af
bóklestri hefur Guðjón líka
samið ljóð. Hann sagðist hafa
mikla ánægju af skólastarfinu,
kennararnir væru mjög góðir
og bekkjarfélagarnir fínir.
Guðjón Reykdal Óskarsson
er í miklum lestrarbekk
Hringadróttinssaga og Harry
Potter eru í miklu uppáhaldi
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Guðjón Reykdal Óskarsson í enskutíma með 7. ÓÓ.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Lestrarbekkurinn 7.ÓÓ er stoltur af góðum árangri síns fólks.
Hveragerði | Samkomulag hefur náðst milli Bónus og
Europris um að þeir fyrrnefndu taki yfir skuldbind-
ingar Europris, um rekstur lágvöruverðsverslunar í
hinni nýju verslunarmiðstöð við Sunnumörk í Hvera-
gerði. Einungis á eftir að undirrita samninga, þannig að
allt bendir til þess að Bónus opni hér í Hveragerði. Orri
Hlöðversson, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, sagðist
geta staðfest þetta og sagði jafnframt. „Ef þetta gengur
eftir er þetta mikill hvalreki fyrir þetta verkefni, þar
sem verslanir Bónuss eru gríðarlega umfangsmiklar á
matvörumarkaði og eru þekktar að því að bjóða góða
þjónustu og lágt verð.“ Þrátt fyrir þessi góðu tíðindi,
sagði Orri ennfremur að mikil eftirsjá væri að Euro-
pris. Þeir sýndu Hveragerði strax mikinn áhuga og eiga
stóran þátt í því að verslunarmiðstöðin við Sunnumörk
verður að veruleika. Þegar er búið að ráðstafa yfir 80%
af því rými sem leigt verður. Samkvæmt þeim áætl-
unum sem unnið er eftir verður opnað fyrri hluta júní-
mánaðar, en bæjarskrifstofur og bókasafn flytja þangað
væntanlega 1. október nk. Manna á meðal gengur versl-
unarmiðstöðin undir nafninu Sunnumörk, framtíðin
mun svo leiða í ljós hvort það verður endanlegt nafn
eða eitthvað allt annað.
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Nýja verslunarmiðstöðin fyrir miðri mynd.
Bónus kemur í
stað Europris
Selfoss | Ræktunarsamband Flóa og Skeiða hef-
ur endurnýjað tækjakost sinn vegna vaxandi
verkefna. Um er að ræða stórvirk tæki, meðal
annars vegna vinnu við hafnargerð í Þorláks-
höfn. Á vefsíðu Ræktunarsambandsins er sagt
frá þessum tækjum og þeim gefin nöfn hverju
um sig. Þar má nefna tvo fjögurra öxla Man-
vörubíla frá Krafti sem nefndir eru Stúfur og
Sláni. Frá Kraftvélum hf. hafa verið keyptar
tvær beltagröfur, Komatsu PC240, sem eru kall-
aðar Viðja og Björk, borvagn Tamrock 5002
Ranger og forbrjótur af Komatsu-gerð. Vegna
verkefnisins í Þorlákshöfn var keypt ein Hitachi
850 78 tonna beltagrafa nefnd Gípa. Fjórir CAT
769D-trukkar frá Íshlutum en tveir þeirra eru
nefndir Jón Oddur og Jón Bjarni, ein CAT 385,
nefnd Gríður, 85 tonna beltagrafa frá Heklu hf,
auk GPS-staðsetningartækja fyrir gröfur, veg-
hefla og jarðýtur. Á myndinni eru trukkarnir
Jón Oddur og Jón Bjarni. Maðurinn við hliðina á
tækjunum sýnir vel stærð þeirra.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Stórvirk tæki
fyrir hafnar-
gerð og fleira
Selfoss | Vinnuhópur á vegum
stjórnar Veiðifélags Árnesinga legg-
ur meðal annars til við stjórnina að
netaveiðum í Ölfusá og Hvítá verði
hætt og að ráðist verði í ræktunar-
átak sem miðist að því að auka fiski-
gengd og að útbúa nýja veiðistaði,
sérstaklega í jökulánum á svæðinu.
Vinnuhópurinn kynnti tillögur
sínar á fundi í Þingborg 22. mars.
Þar var einnig kynnt skýrsla frá At-
vinnuþróunarsjóði Suðurlands um
efnahagsleg áhrif aukinnar fiski-
gengdar og skýrsla frá Magnúsi Jó-
hannssyni og Sigurði Guðjónssyni
um rannsóknir og seiðasleppingar á
svæðinu. Gert er ráð fyrir að
ákvörðun um tillögu vinnuhópsins
verði tekin á aðalfundi Veiðifélags
Árnesinga sem haldinn verður í apr-
íl eða maí.
Vinnuhópurinn var skipaður í
kjölfar aðalfundar 2003 og hafði
hann það verkefni að skoða mögu-
leika þess að auka arð veiðiréttar-
eigenda á vatnasvæðinu. Í verkefn-
ishópnum sátu Hrafnkell Karlsson,
Ragnar Magnússon og Þorfinnur
Þórarinsson. Nefndi leggur til að
leitað verði sátta um aðferðir við að
kaupa upp netin og bendir á að
netaveiði á svæðinu samrýmist ekki
huugmyndum um ræktunarátak
auk þess sem netaveiddur lax skili
margfalt minni arði en stangaveidd-
ur. Þá hafi netaveiði á svæðinu frá-
hrindandi markaðsleg áhrif og
stuðli að lækkandi verði á veiðileyf-
um.
Auk þessa er lagt til að hugað
verði að nauðsynlegum breytingum
á félagskerfi Veiðifélags Árnesinga
til að auðvelda framkvæmdir sem
nauðsynlegar eru til að hrinda ofan-
greindum tillögum í framkvæmd.
Skýrsla Atvinnuþróunarsjóðs er á
vef sjóðsins www.sudur.is og
skýrsla Magnúsar og Sigurðar á vef
Veiðimálastofnunar www.veidimal-
.is.
Netaveiðum í
Ölfusá og Hvítá
verði hætt
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson