Morgunblaðið - 27.03.2004, Side 49
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 49
EINKAVÆÐING bankanna er
farin að sýna dökku hliðarnar. Ráð-
herrar tala nú um siðspillingu, græðgi
og fákeppni á fjármálamarkaði. Seðla-
bankinn segir skuldasöfnun þjóð-
arbúsins erlendis ógna
lánstrausti íslenska
ríkisins. Þar leiða
bankarnir för. Traust
almennings á fjár-
málastofnunum fer
þverrandi og innan
fjármálageirans virðist
einnig ríkja tor-
tryggni. Þingmenn
Vinstrihreyfing-
arinnar - græns fram-
boðs vöruðu við þessu
og lögðust gegn sölu
beggja ríkisbankanna.
Mikilvægt er að eft-
irlitsstofnanir hafi sjálfstæði og styrk
til að axla þá ábyrgð sem þeim er falin
og þær starfi óháð framkvæmdavald-
inu og hagsmunaaðilum. Við sölu
bankanna á sínum tíma átti Fjármála-
eftirlitið að fara ofan í saumana á sölu-
skilmálum og áreiðanleika kaupenda.
Þá birtist þessi fyrirsögn: „Beðið er
eftir blessun Fjármálaeftirlitsins“. Nú
eins og þá heyrir Fjármálaeftirlitið
beint undir viðskiptaráðherra sem
hefur verið umsvifamikill á fjár-
málamarkaði með einkavæðingu
bankanna. Þingmenn Vinstri-grænna
hafa lagt fram tillögu á Alþingi um að
kanna kosti þess að flytja stjórnsýslu
Fjármálaeftirlitsins frá fram-
kvæmdavaldinu í skjól Alþingis og
tryggja þar með frekar sjálfstæði
þess.
Hlutverk og traust
Fjármálaeftirlitið er ríkisstofnun með
sérstaka stjórn en heyrir undir við-
skiptaráðherra. Stofnunin gegnir lyk-
ilhlutverki á íslenskum fjármálamark-
aði. Henni er ætlað mikilvægt
opinbert eftirlitshlutverk og getur
með aðgerðum sínum haft stefnu-
markandi áhrif á allar athafnir og þró-
un á fjármálamarkaði. Því er mik-
ilvægt að sjálfstæði stofnunarinnar sé
tryggt. Að sama skapi er ljóst að búa
verður þannig að Fjármálaeftirlitinu
að það geti sinnt verk-
efnum af myndarskap og
afgreitt fljótt og vel þau
mál sem því berast eða
það tekur upp að eigin
frumkvæði.Fjármálaeft-
irlitinu var komið á fót
með lögum nr. 87/1998 og
fer með þá starfsemi sem
áður var á höndum
bankaeftirlits Seðla-
banka Íslands og Vá-
tryggingaeftirlitsins. Sú
leið var valin að setja
stofnunina undir við-
skiptaráðherra en það
verður að teljast hæpið, m.a. í ljósi
þess að viðskiptaráðherra hefur með
sölu banka og einkavæðingu ríkisfyr-
irtækja verið einhver atkvæðamesti
aðilinn á íslenskum fjármálamarkaði á
síðustu árum. Það er breytilegt eftir
löndum hvar ríkisstofnunum með
sambærilegt hlutverk og Fjármálaeft-
irlitið er skipað í stjórnsýslunni.
Breyting á stöðu Fjármálaeftirlitsins
á þá leið að það verði fært undan við-
skiptaráðherra gæti styrkt stofnunina
sem óháðan eftirlitsaðila og jafnframt
eflt traust hennar og trú manna á ís-
lenskum fjármálamarkaði. Það gæti
komið bæði Alþingi og Fjármálaeft-
irlitinu verulega til góða að færa
stofnunina undir Alþingi, þar sem
hvor aðilinn gæti styrkt hinn í eft-
irlitshlutverki þeirra.
Fært á ábyrgð AlþingisÞað er ekki
ný hugmynd að færa mikilvægar eft-
irlitsstofnanir undir Alþingi. Rík-
isendurskoðun heyrði undir fjár-
málaráðherra allt til ársins 1987, en
var þá færð undir yfirstjórn Alþingis.
Sú breyting varð tvímælalaust til þess
að styrkja þá stofnun sem sjálf-
stæðan, óháðan og faglegan eftirlits-
aðila. Einnig má benda á stöðu Um-
boðsmanns Alþingis þó að ekki sé um
efnislega sambærilega hluti að ræða.
Þessum aðilum hefur reynst það vel
að heyra undir Alþingi fremur en ráð-
herra. Sú staða hefur reynst þeim
haldgóð trygging fyrir því að fagleg
og hlutlæg vinnubrögð þeirra séu ekki
dregin í efa vegna stöðu þeirra í
stjórnsýslunni.Til þess að taka af allan
vafa um trúverðugleika og sjálfstæði
Fjármálaeftirlitsins höfum við Ög-
mundur Jónasson þingmenn Vinstri-
Grænna flutt tillögu á Alþingi um að
„… fela ríkisstjórninni að skipa nefnd
sem geri úttekt á starfsskilyrðum
Fjármálaeftirlitsins og stöðu þess
gagnvart ráðherra, ríkisstjórn og að-
ilum á fjármálamarkaði. Nefndin geri
tillögur um hvernig sjálfstæði Fjár-
málaeftirlitsins verði best tryggt og
starfsemi þess efld. Í því skyni skoði
nefndin m.a. stjórnsýslulega stöðu
þess og hvort vænlegt sé, sem liður í
að styrkja óháða stöðu Fjármálaeft-
irlitsins, að það heyri undir Alþingi.“ Í
ljósi mikilla og umdeildra hræringa á
íslenskum fjármálamarkaði er brýnt
að hraða þessari endurskoðun eins og
kostur er. Leggja ber áherslu á að all-
ar breytingar sem gerðar kunna að
verða á starfsemi og stöðu stofnunar-
innar séu yfirvegaðar og vandlega
undirbúnar og í góðu samstarfi við
starfsmenn og samtök þeirra.
Um sjálfstæði
Fjármálaeftirlitsins
Jón Bjarnason skrifar
um fjármálamarkaðinn ’Það gæti komið bæðiAlþingi og Fjármálaeft-
irlitinu verulega til góða
að færa stofnunina und-
ir Alþingi …‘
Jón Bjarnason
Höfundur er þingmaður Vinstri-
grænna í Norðvesturkjördæmi.
MÁNUDAGINN 22. mars síð-
astliðinn birtist aðsend grein í
Morgunblaðinu skrif-
uð af Árna Johnsen,
fyrverandi alþing-
ismanni. Þar fræðir
Árni okkur um
hversu mikilvægt það
sé að geta þakkað
fyrir sig og ákveður
að þakka fyrir hversu
þægileg og góð hegn-
ingin var sem hann
hlaut. Í huga und-
irritaðs á hegning
ekki að vera góð og
þægileg. Þar á við-
komandi að sæta
refsingu fyrir framin
lögbrot. Í þessu til-
felli var misgjörðin
misbeiting opinbers
embættis, stuldur og
lygar. Vissulega geta
sakamenn borið fyrir
sig að eftir að hafa
hlotið refsingu sína
séu þeir búnir að
greiða skuld sína gagnvart sam-
félaginu. Ekki skal því mótmælt.
Engu að síður er það skoðun höf-
undar að þegar háttsettir embætt-
ismenn misnota embætti sitt,
bregðast trausti kjósenda og
koma svo í ofanálag fram í fjöl-
miðlum og ljúga að
þjóðinni þá eigi þeir
að kunna að skamm-
ast sín, loks þegar
þeir eru afhjúpaðir.
Góðum siðum er
gott að fylgja og er
sjálfsagt að þakka
fyrir sig. Aftur á móti
tel ég að Árni hefði
betur átt að iðrast
gjörða sinna með það
í huga að „Betra er að
iðrast við rætur fjalls-
ins en á hátindi þess.“
Minnumst orða
Hallgríms Péturs-
sonar:
Lærður er í lyndi glaður.
Lof ber hann hjá þjóðum.
Hinn er ei nema hálfur
maður,
sem hafnar siðum góðum.
Að kunna að skamm-
ast sín er þjóðlegur
og góður siður
Guðmundur Óskar Pálsson
skrifar um hegningar
Guðmundur Óskar
Pálsson
’ Í huga und-irritaðs á hegn-
ing ekki að vera
góð og þægi-
leg.‘
Höfundur er nemi við
Menntaskólann í Reykjavík.
SMS tónar og tákn