Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 52
MINNINGAR 52 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Bragi Dýrfjörðfæddist á Siglu- firði 27. janúar 1929. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 20. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Þor- finna Sigfúsdóttir matráðskona, f. á Siglufirði 3. maí 1903, d. þar 4. febr- úar 1990, og Kristján Markús Dýrfjörð Kristjánsson raf- virkjameistari, f. á Ísafirði 22. júní 1892, d. í Hafnarfirði 16. ágúst 1976. Al- bræður Braga eru Jón Dýrfjörð vélvirkjameistari á Siglufirði, f. þar 16. mars 1931, kona hans er Erla Eymundsdóttir, f. 17. október 1934, þau eiga fimm börn, og Birg- ir Dýrfjörð rafvirkjameistari í Kópavogi, f. á Siglufirði 26. októ- ber 1935, kona hans er Kristín Viggósdóttir, f. 6. janúar 1939, þau eiga sex börn. Hálfbróðir Braga, samfeðra, er Hólm Dýrfjörð raf- virki í Hafnarfirði, f. á Ísafirði 21. febrúar 1914, nú búsettur í Reykja- vík, kona hans var Sigurrós Sig- mundsdóttir, f. 22. ágúst 1915, d. 23. febrúar 1999, þau áttu sjö börn. Hálfsystkini Braga, sammæðra eru Margrét Ólafsdóttir, fv. verslunar- maður á Siglufirði og ritari í Reykjavík, f. á Siglufirði 1. septem- ber 1921, nú búsett í Kópavogi, maður hennar var Jónas Ásgeirs- son, f. 25. október 1920, d. 14. júní 1996, þau áttu tvö börn og Baldur Ólafsson múrarameistari, f. á Siglufirði 13. mars 1925, d. 6. des- samskipa austur til Seyðisfjarðar Bragi og Jón bróðir hans, Jón að koma af vertíð í Vestmanneyjum en Bragi að koma úr kaupamennsk- unni. Ferðinni var heitið til Siglu- fjarðar með viðkomu á Seyðisfirði þar sem móðir þeira var ráðskona við elliheimili Seyðisfjarðar. Svo fór að þeir bræður ílengdust á Seyðisfirði og sóttu báðir konfang þangað. Bragi réðst starfsmaður við elliheimilið og kynntist fljótlega tilvonandi eiginkonu sinni Sigrúnu sem þá starfaði á Seyðisfirði. Eftir nokkurra ára búsetu á Seyðisfirði fluttu þau búferlum að Eyvindar- stöðum í Vopnafirði, á æskustöðvar Sigrúnar og bjuggu þar í nokkur ár er þau fluttu inn í kauptúnið þar sem þau bjuggu sér heimili. Á Vopnafirði starfaði Bragi framan af við ýmis störf. Var flutn- inga- og rútubílstjóri, matsveinn á togurum og starfaði í síldarbræðsl- unni. Árið 1964 hóf Bragi störf sem umboðsmaður fyrir Norðurflug, síðar Flugfélag Norðurlands (FN) og varð síðar umboðsmaður fyrir Flugfélag Austurlands, Flugleiðir og Flugfélag Íslands, sem FN sam- einaðist síðar. Þá var Bragi um- boðsmaður fyrir Sjóvá-Almennar tryggingar í áratugi. Árið 1967 hóf Bragi störf sem flugvallarstjóri á Vopnafirði, en hafði áður komið að því starfi í lausamennsku. Var það hans aðalstarf til rúmlega 70 ára aldurs auk umboðsmannastarf- anna. Bragi var einnig um tíma um- sjónarmaður félagsheimilisins Miklagarðs á Vopnafirði. Bragi starfaði að félagsmálum á Vopnafirði og var m.a. virkur fé- lagi í Lionsklúbbi Vopnafjarðar og í Vopnafjarðardeild Rauða kross Ísland þar sem hann fékk gull- merki fyrir vel unnin störf. Bragi verður jarðsunginn frá Vopnafjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. ember 1967, kona hans er Kristín Anna Rögn- valdsdóttir, f. 24. ágúst 1922, þau áttu fimm börn. Eftirlifandi kona Braga er Sigrún Svan- hvít Kristinsdóttir, f. 19. júlí 1924, búsett á hjúkrunarheimilinu Sundaborg á Vopna- firði. Synir þeirra eru tvíburarnir Finnur Þór flugvallarstjóri á Vopnafirði, f. 1. mars 1952, og Sigurður, sem lést rúmlega árs gamall. Haustið 1960 tóku Bragi og Sigrún í fóstur 18 mánaða gamla bróðurdóttur Sigrúnar, Kristínu, f, 10. apríl 1959, eftir að móðir henn- ar hafði slasast illa í bílslysi. For- eldrar Kristínar eru Guðrún Mjöll Guðmundsdóttir, f. 17. september 1923, d. 29. mars 1995 og Hallbjörn Kristinsson, f. 19. júlí 1927, búsett- ur í Reykjavík. Fyrrverandi eigin- maður Kristínar er Kristinn Adolf Gústafsson málarameistari og eiga þau saman tvö börn, Braga Björn, f. 23. nóvember 1988 og Sigrúnu Svanhvíti, f. 29. mars 1991. Kristín er snyrtifræðingur að mennt, en starfar sem tryggingaráðgjafi hjá Tryggingamiðlun Íslands í Reykja- vík. Bragi ólst upp á Siglufirði en einnig í Skagafirði, eftir að foreldr- ar hans skildu um 1940, bæði hjá móður sinni á Sauðárkróki en einn- ig var hann mikið í sveit í Fljót- unum. Ungur maður réð hann sig í kaupamennsku að Korpúlfsstöðum um tíma, en árið 1951 komu þeir Elsku pabbi minn, í dag kveð ég þig og af því tilefni langar mig að minnast þín á minn hátt. Erfitt er til þess að hugsa að ég muni ekki lengur fá frá þér símtal og heyra sterku röddina þína hinum megin, um það hvernig lífið gangi hjá okkur, hvern- ig börnin hafi það, hvort þau séu bú- in að læra og hvað þau séu að gera í dag. Gott hefur verið til þess að vita að alltaf hef ég átt þig að, og alltaf vildir þú bjóða okkur alla aðstoð og stuðning óbeðinn. Ég minnist þess þegar ég var lítil hvað ég hafði gaman af því að láta þig segja mér frá því þegar ég kom til ykkar mömmu og Finns og þú fórst á móti Halla pabba til Akureyr- ar en hann hafði komið fljúgandi þangað með mig. Við þurftum að fara með skipi til Vopnafjarðar en það var svo vont veður að það var ekki hægt að leggja að í Vopnafjarð- arhöfn og þurftum við að fara til Þórshafnar og keyra síðan þaðan. Í fyrstu hafði mér ekkert litist á þenn- an ókunna stóra karl sem ég átti að fara alein með, en fljótur varstu að vinna hylli mína og vildi ég ekkert nema þig sjá fyrstu dagana mína á nýja heimilinu sem ég var komin á. Ofarlega er líka í minningunni þegar þú lékst jólasveininn á jólaböllum og það hvarflaði ekki að mér hver væri undir skegginu, og þótti mér það skrítið af hverju þú varst aldrei með í hringnum í kringum jólatréð. En svo birtist þú og ég rétti þér lófana mína og þú dansaðir við mig með því að ég setti fæturna ofan á skóna þína. Mörg ferðalögin fórum við fjölskyld- an saman og var það ávallt hápunkt- ur sumarsins hjá mér. Undirbúning- urinn var alltaf þónokkur og var lögð sérstök áhersla á nestið, kaldar kót- ilettur, harðsoðin egg og smurt brauð. Lagt var af stað eldsnemma morguns með allt til reiðu, svefn- poka, tjald, prímus og dýnur. Í þeim ferðum lærði ég að meta landið okk- ar og þá náttúrufegurð sem við eig- um og hversu yndislegt það er að vakna við lækjarnið og finna ilminn af trjánum eftir regn næturinnar. Því þó svo að ferðinni væri aðeins heitið norður á Akureyri var ávallt tjaldað á leiðinni og náttstaðurinn valinn af kostgæfni. Þetta höfum við rætt hversu ólíkt þetta er orðið í dag þar sem hvergi er lengur hægt að tjalda nema með sérstöku leyfi og leiðin norður á Akureyri þykir ekki lengur tiltökumál. Eftir að ég varð fullorðin og eignaðist sjálf fjölskyldu fórum við öll saman í nokkur ferða- lög og er ferðin til Vestmannaeyja mér ofarlega í huga þó svo að hún hafi verið ansi ólík ferðunum sem við fórum eftir rykugum vegunum í gamla daga. Það er sárt til þess að hugsa hversu hart veikindastríð þitt hefur verið og erfitt að sætta sig við að nú sért þú farinn þar sem ég náði í þig fyrir Þorláksmessudag og þú varst útskrifaður af Borgarspítalan- um. Við áttum öll saman yndisleg jól og yljar það mér að vita hversu þú naust þess að vera hjá okkur á að- fangadagskvöld, og hversu ánægð við vorum öll að fá að hafa þig hjá okkur. En daginn eftir sá ég að dreg- ið hafði af þér og ég þorði ekki annað en að fara með þig í skoðun á spít- alann, sem leiddi síðan af sér það sem varð. Og þó svo, pabbi minn, að ég heyri ekki lengur hljómsterku röddina þína í símanum þá vitum við það ég og börnin mín, Bragi Björn og Sigrún Svanhvít, að þú ert með okk- ur og fylgist með okkur áfram. Megi minningin geyma góðan mann. Kveðja, Kristín Björg. Í hugann koma minningar um sumar og sól. Það var spennandi sem lítill gutti að fá að dvelja sumarparta austur á Vopnafirði hjá Braga frænda og Sigrúnu. Þrátt fyrir að vegir væru þá víða torfærir voru ferðir með foreldrum mínum austur á firði tíðar bæði til þess að heim- sækja ömmu á Seyðisfjörð og Braga föðurbróður. Svo kom þar að maður fékk að fara með í laxveiðina í Hofsá og Selá og síðan að verða eftir og stoppa í nokkrar vikur sem var gam- an fyrir forvitinn guttann. Það var ekki síst dulúðin yfir flugvellinum og flugvélunum sem gerður sumardval- irnar spennandi en einnig allt sem umhverfið hafði upp á að bjóða, klettastalla og fjöruna. Flugið skipti miklu fyrir Vopnafjörð á þessum tíma og ég man að það voru ekki bara farþegar sem nýttu sér flugið, ætíð var mikið af „fragt“ sem fór um völlinn og þá nýttust kraftar lítilla handa við að hjálpa til við að koma öllu dótinu á stóru kerruna hans Braga. Póstur, bögglar og bréf, mat- vara og varahlutir allt sem nöfnum tjáir að nefna. Karlinn var þolinmóð- ur við strákinn og hann fékk að sniglast með í hinar og þessar útrétt- ingar. Greiðasemi einkenndi Braga og hann naut þess mjög að gera vin- um og ættingjum viðvik, hvort held- ur var að koma fiski í reyk, útvega sauðahangikjöt eða hákarl. Lagði hann oft mikið á sig í þessum efnum og hafði gaman af. Alla tíð héldum við frændi mjög góðu sambandi bæði meðan ég var búsettur í Reykjavík og síðan eftir að fjölskyldan fluttist til Akureyrar og ekki brást að Bragi kæmi við væri hann á ferðinni eða þau hjónin. Þau var einnig frábært heim að sækja, gestrisni svo af bar og móttökur ein- stakar. Búrið ætíð fullt matar og Sig- rún ekki lengi að galdra fram kræs- ingar eða Bragi að skella einhverju góðu á grillið. Bragi var hress og skemmtilegur og ætíð stutt í brosið og gamansemi hjá þessum stóra og mikla karli. Hann hafði sitt skap og ríka réttlæt- iskennd og þá sjaldan að hann reidd- ist þá tók maður eftir því. Á kveðju- stundum fann maður vel fyrir væntum þykjunni og hlýjunni sem einkenndi hann, stórt og hlýtt faðm- lagið og koss á kinn sögðu allt sem segja þurfti. Elsku frændi, þakka þér fyrir all- ar góðu samverustundirnar og allan þann hlýhug sem þú sýndir mér og fjölskyldu minni alla tíð. Sigrúnu, Finni Þór, Kristínu og börnum henn- ar sendi ég innilegar samúðarkveðj- ur. Baldur Dýrfjörð. Nú er fallinn frá góður vinur og frændi. Allt frá barnæsku á ég góðar minningar um þennan frænda með stóra hjartað sem átti alltaf næga gæsku í hjarta sínu fyrir þá sem hon- um þótti vænt um og þeir voru ófáir. Þegar nýir meðlimir tengdust fjöl- skyldunni var hann sá fyrsti sem bauð þá velkomna með hlýju faðm- lagi sínu. Sérstaklega voru það börn- in sem löðuðust að honum enda sýndi hann þeim ávallt sérstakan áhuga og hlýju sem þau kunnu vel að meta. Sem dæmi um þetta má nefna að þegar við dvöldum hjá honum dag- stund í tilefni 75 ára afmælis hans sem haldið var á Borgarsjúkrahús- inu í janúar síðastliðnum ákvað dótt- urdóttir mín að Bragi væri afi sinn. Þessi stund var öllum eftirminnileg fyrir þær sakir hvað hann var ánægður og sæll að geta haft eitt- hvað við á þessum merkisdegi. Hann var af mörgum þekktur fyr- ir að vera framúrskarandi góður gestgjafi og eru þeir fjölmargir sem hafa notið frábærrar gestrisni þeirra hjóna á Helgafelli. Bragi var svo lán- samur að kynnast lífsförunaut sín- um, Sigrúnu konu sinni, sem er ein- stök mannkostamanneskja og hæfileikarík húsmóðir í alla staði. Hún gat töfrað fram góðgerðirnar án þess að virðast hafa nokkuð fyrir því. Í öllum samskiptum við Braga fann maður hvað hann virti hana og mat mikils. Hún er skapstillt, rólynd og var alla þeirra sambúð kjölfestan í lífi hans. Eftir að hún varð sjúklingur og gat ekki sinnt húsmóðurstörfunum lét Bragi ekki sitt eftir liggja og framreiddi fyrir gesti sína ljúffengar máltíðir og annað meðlæti í anda þeirra hjóna og naut þar stuðnings sonarins Finns Þórs. Einnig var aðdáunarvert hvað þeir feðgar báru hana á höndum sér þegar hún var orðin lasburða og þarfnaðist stuðnings þeirra. Þá fann maður hvað þeir báðir virtu hana mikils. Alla tíð var gott að eiga skjól á Helgafelli hjá þeim Braga og Sig- rúnu, maður var alltaf svo velkom- inn. Þau ár sem við hjónin bjuggum á Vopnafirði reyndust þau okkur afar vel og ósjaldan lagði maður leið sína til þeirra og naut hlýjunnar og góð- vildarinnar sem heimili þeirra ein- kenndist af. Bragi kom víða við á lífsleið sinni og fékkst við mörg störf sem hann sinnti af krafti og eljusemi. Hann var ákaflyndur við það sem hann starfaði að, orkumikill og lítið fyrir það að sitja auðum höndum. Hann hafði mikla ánægju af störfum sínum við flugið á Vopnafirði og var honum umhugað um að það gengi vel fyrir sig. Þann tíma sem hann dvaldi á sjúkrahúsi hér syðra var hann með hugann við fólkið sitt sem honum þótti vænst um og flugmálin, starfið sem átti hug hans allan. Ætíð þegar við áttum tal saman vildi hann vita um hagi dætra okkar og fylgdist ávallt vel með lífshlaupi þeirra enda var hann þeim náinn. Bragi var í eðli sínu afar hjálpsamur og greiðvikinn og bar mikla um- hyggju fyrir fólki. En fyrst og fremst var hann góður maður með stórt hjarta sem vildi öllum vel. Þannig munum ég og fjölskylda mín minnast hans um leið og við þökkum honum samfylgdina og kveðjum með sökn- uði. Sárastur er söknuðurinn hjá fjöl- skyldu hans sem hann bar svo mikla umhyggju fyrir. Við biðjum Guð að blessa Sigrúnu, Finn Þór, Stínu og barnabörnin, Braga og Sigrúnu, og veita þeim þann styrk sem hann einn er fær um að veita. Sólveig Helga Jónasdóttir og fjölskylda. Kveðja frá Flugmálastjórn Nú er horfinn á braut Bragi Dýr- fjörð, fyrrverandi flugvallarvörður á Vopnafjarðarflugvelli. Bragi hóf störf við Vopnafjarðar- flugvöll á 7. áratugnum og sinnti lengi jöfnum höndum hefðbundnum flugvallarstörfum sem og almennri þjónustu við farþega. Lengi framan af voru þessi störf enginn „dans á rósum“, öll aðstaða fremur bágborin, en Bragi vann sig fram úr öllum vanda og fékk nauðsynlegan liðstyrk til þess, enda var Bragi fylginn sér við lausn mála. Framan af naut Bragi liðs Sigrún- ar, eiginkonu sinnar, en seinni árin einnig Finns Þórs, sonar þeirra, er hefur alltaf verið foreldrum sínum mikil hjálparhella. Er árin liðu batnaði aðstaðan á flugvellinum smám saman og störfin urðu Braga og hans fólki léttari. Bragi sinnti þeim störfum, sem honum voru falin, af trúmennsku og ósérhlífni og var óspar á símtölin ef honum þótti hægt ganga að greiða úr málum eða lagfæra bilanir. Hann vildi hafa hlutina í lagi og sjá til þess að flugsamgöngur gætu gengið eðli- lega og vandræðalaust fyrir sig og farþegar komist leiðar sinnar áfalla- laust og án tafa. Bragi var góður heim að sækja og ævinlega var heitt á könnunni og eitthvað með því, og fyrir kom að Bragi bauð gestum hákarl, er hann átti lengstum „úti“, og fylgdi þá gjarnan með hið svokallaða „Braga- kaffi“ er margir kunnu að meta. Bragi lét af störfum hjá Flugmála- stjórn fyrir aldurs sakir fyrir fimm árum, en þá tók Finnur Þór sonur hans við starfi flugvallarvarðar. Áfram sinnti hann þó þjónustu við farþega og var Finni stoð og stytta á meðan heilsan leyfði. Flugmálastjórn þakkar Braga fyr- ir langa og dygga þjónustu í þágu flugsamgangna og sendir eftirlifandi eiginkonu hans, Sigrúnu, og Finni Þór syni þeirra, sem og öllum öðrum ættingjum og vinum, sínar dýpstu samúðarkveðjur. Kynni okkar Braga eru orðin æði löng, eða allt frá því að Bragi var heimagangur hjá foreldrum mínum á Vopnafirði á mínum æskuárum þar. Mörgum árum síðar lágu leiðir okkar Braga saman í samstarfi hjá Flugmálastjórn. Þess tíma er minnst með ánægju og hafi Bragi bestu þakkir fyrir farsælt og ánægjulegt samstarf. Ingólfur Arnarson. Kveðja frá Félagi flugmála- starfsmanna ríkisins Látinn er félagi okkar Bragi Dýr- fjörð, flugvallarvörður á Vopnafirði. Í fulla þrjá áratugi var Bragi starfsmaður Flugmálastjórnar. Bragi var afar farsæll í starfi sínu, og vinsæll meðal félagsmanna. Hann var ötull talsmaður félaga sinna á landsbyggðinni, og tók virkan þátt í félagsstarfinu þótt oft þyrfti um langan veg að fara. Það nutu margir góðs af andlegu og veraldlegu nesti hans þegar hann mætti á trúnaðar- mannaráðstefnur eða á aðra þá fundi, sem hann mætti á. Hákarlinn góði var ávallt með í för og var hann óspar á að veita úr pússi sínu. Með honum er genginn einn af þessum tryggu og góðu eldri starfsmönnum Flugmálastjórnar, sem mörkuðu störf flugvallastarfsmanna á lands- byggðinni. Um leið og við hjá Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins þökk- um honum trygga og góða samfylgd vottum við aðstandendum samúð við fráfall hans. Hallgrímur Hallgrímsson, formaður Félags flugmála- starfsmanna ríkisins. Ég kynntist Braga fyrst sumarið 1970. Hann var þá flugvallarstjóri á Vopnafirði, en ég nýbakaður flug- maður með aðsetur á Egilsstöðum á vegum Austurflugs sf., en félagið annaðist m.a. reglubundið póstflug til Vopnafjarðar. Kynni okkar urðu þó nánari eftir að ég hóf störf hjá Norðurflugi árið eftir, enda var Bragi umboðsmaður þess félags, síð- ar Flugfélags Norðurlands og loks Flugfélags Íslands. BRAGI DÝRFJÖRÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.