Vísir - 27.05.1981, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 27. mai, 1981
Vlll leysa vandamál
afburöanemenda
- sem margir verða taugavelklaðir
vegna tllgangslausra viðfangsefna
Fjórmen'ningahópur áhuga-
fólks úr röðum skólamanna um
bætta þjónustu I grunnskóla-
kerfinu hefur um alllangt skeið
unnið aðathugunum á stuðningi
við afburðanemendur. Einn
fjórmenninganna, dr. Bragi
Jósepsson, er nýkominn úr
kynnisferð til Englands, og
annar, dr. Arnór Hannibalsson,
hefur unnið talsvert að gerð
námsefnis fyrir þennan hóp
nemenda.
Auk þeirra Braga og Arnórs
eru i þessum hópi þau Þóra
Kristinsdóttir sérkennari og
Ólafur Jóhannsson skólastjóri
Æfingaskóla Kennaraháskól-
ans.
Bragi sagði i samtali við Visi
að með nýju grunnskólalögun-
um hefði verið stefnt að auknum
félagslegum jöfnuði, en
blandaða bekkjarkerfið krefðist
hins vegar fækkunar i bekkjum
og einstaklingsbundari þjón-
ustu, sem enn væri óverulega
komin til framkvæmda. Vanda-
mál afburðanemenda i þessu
samhengi væri þekkt hvarvetna
og þyrfti að bregðast við þvi
mjög markvisst til þess að hæfi-
leikar þeirra nýttust og ófull-
nægjandi kerfi gerði þá ekki að
taugaveikluðum aumingjum.
Um kynnisferðina til
Englands sagði Bragi að hann
hefði farið i átta skóla i North-
Hamptonshire þar sem mjög vel
væri staöið að skipulagningu á
itarlegra og/eða auknu náms-
efni fyrir þessa nemendur. Viða
annars staðar mætti finna slikt
fyrirkomulag og eins væru viða
sérskólareða sérbekkir fyrir af-
burðanemendur og nefndi hann
sem dæmi Sovétrikin, Ástraliu
og sum riki Bandarikjanna.
Kvað Bragi hafa orðið geysi-
legar framfarir á þessu sviði i
ýmsum löndum allra siðustu ár.
Þá sagði Bragi Jósepsson að
val afburðanemenda færi fram
með öðrum hætti en áður, þvi á-
samt með mælingu greindar-
visitölu væri nú tekið tillit til
annarra þátta, svo sem heilsu-
fars, imyndunarafls og margs
annars.
HERB
Allt reiknað
eftir „SRD”!
Frá næstu mánaðamótum
verða dagpeningar rikisstarfs-
manna á ferðalögum erlendis
reiknaðir eftir gjaldmiðils-
einingunni SDR i stað þess að
nota þýska markið i Evrópu og
dollarann i Bandarikjunum. SDR
eða sérstök dráttarréttindi er
byggt á gengi fimm helstu gjald-
miðla heims og jafngildir eitt
SDR nú rétt rúmum átta krón-
um. Krónan verður hins veg-
ar látin duga áfram i innanlands-
feröum.
Almennir dagpeningar erlendis
verða frá 1. júni 103 SDR, en dag-
peningar vegna þjálfunar, náms
og eftirlitsstarfa 63 SDR.
Innanlands verða dagpeningar
fyrir sólarhringinn 360 krónur,
vegna bæði gistingar og fæðis, en
veg'na gistingar einnar 153 krónu.r
og fæðis eins 207 krónur.
HERB.
ÞEYR A
Hljómsveitin Þeyr er með tón-
leika á Borginni annað kvöld kl.
21.
Auk hennar kemur hljómsveit-
in Taugadeildin fram.
BORGINNI
Kynnt verður efni af óútkom-
inni plötu bresku nýbylgjuhljóm-
sveitarinnar Killing Joke, en
tveir meðlimir hennar voru ein-
mitt hér á landi i siðustu viku.
Vörubílstjórar!
Höfum fyrirliggjandi
mikið úrval af
VÍSIR
Kvenfangarnir ekki
tærðir frá Akureyri
,,Þær veröa áfram i kvenna-
fangelsinu á Akureyri”, sagði
Þorsteinn Jónsson, fulltrúi i
Dómsmálaráðuneytinu, er Visir
innti hann eftir þvi, hvort ákvörð-
un hefði verið tekin um hvert
flytja skyldi konurnar tvær, er
dvalið hafa i kvennafangelsinu á
Akureyri undanfarna 6 mánuði
Samkvæmt reglugerð um fang-
elsi þetta má ekki vista fanga i
lengri tima i einu en 6 mánuði
vegna aðbúnaðar. Þorsteinn var
þvi spurður um.hvað hefði breyst
i aðbúnaði á staðnum. Benti hann
á að reynt yrði að gera ýmsar
breytingar á aðbúnaði. Má þar
nefna að reynt er að auka og
breyta útivist fanganna, ekki ein-
göngu i fangagarði, heldur einnig
utan fangelsisins. Þá eru fang-
arnir hluta dagsins i sal i húsinu
er tilheyrir ekki fangelsinu.
Reynt verður að bæta úr hávaða.
er orðið hefur af umgangi gæslu-
fanga sem sitja inni um helgar.
Þá benti Þorsteinn á að sjónar-
mið fanga, héraðslæknis og heil-
brigðisfulltrúa hefðu verið könn-
uð munnlega. „Það liggur fyrir
að héraðslæknir telur að heilsufar
fanganna sé ekki þess eðlis að það
krefji að þær verði fluttar. En ég
vil taka skýrt fram að hann er
ekki á þeirri skoðun að sjálfur
staðurinn uppfylli skilyrði til þess
að vista fangana lengur”, sagði
Þorsteinn. Samkvæmt öðrum
upplýsingum Visis mun héraðs-
læknirinn hafa talið kvennafang-
elsið á Akureyri skásta kostinn
eftir að hafa kynnt sér það sem i
boði var.
Akvörðun um það hversu lengi
fangarnir skuli vera á Akureyri,
hefurhiniSvegar ekki verið tekin.
—AS
A) ex
hemlaborðum í
Scania,
Benz,
GMC,
Henchel,
Man og
Volvo
Stilling hf.
Skeifan 11, símar 31340 og 82740
Auglýsing frá
vióskiptabönkunum
Athygli er vakin á því, að umsóknarfrestur um skuldbreytingu
lausaskulda húsbyggjenda rennur út um þessi mánaðamót.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í bönkunum og verður tekið
á móti umsóknum fram á mánudag 1. júní n.k.
ALÞÝÐUBANKINN H/F SAMVINNUBANKI ÍSLANDS H/F
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS
IÐNAÐARBANKI ÍSLANDS H/F VERZLUNARBANKI ÍSLANDS H/F
LANDSBANKI ÍSLANDS
QJ
<3
c
<S1