Vísir - 27.05.1981, Blaðsíða 5
MiOvikudagur 27. mai, 1981
VlSIR
5
Pertim, forseti ltaliu, kallar i dag formenn allra flokkanna á Italska þinginu á sinn fund til aö skoöa
alla möguleika á myndun nýrrar rikisstjórnar.
Forlani forsætisráðherra baöst í gær lausnar fyrir sig og ráöuneyti sitt vegna hneykslimáls, sem tveir
ráðherrar stjórnarinnar voru viöriönir.
Liklegast ertaliö.að kristilegum demókrötum veröi fyrst gefinn kostur á aö mynda nýja rikisstjórn,
en slöan leitaö til sósíalista ef þaö mistekst.
stiörnin
féll I
Hollandi
Kristilegur demókrataflokkur
Andries Van Agts, forsætisráð-
herra Hollands, er áfram stærsti
flokkur landsins eftir kosningarn-
ar i gær. Stjórnarflokkarnir
misstu þó þrjú þingsæti i kósning-
unum og þar með meirihluta sinn,
en liklegt er talið að leitað verði
til Van Agts um rikisstjórnar-
myndun.
Kðngulóar-
maöurinn
sektaður um
35 dollara
Daniel Goodwin var i gær sekt-
aður um 35 dollara (250 krónur)
fyrir að klifra upp hæsta hús i
heimi, Sears bygginguna i Chi-
cago. Hann var kærður fyrir
ósæmilega hegðun .á almanna-
færi..
Þetta uppátæki Daniels hefur
vakið athygli viða um heim og að
sögn Chicago-lögreglunnar hafa
borist mörg þúsund bréf og sim-
hringingar hvaðanæva að úr
heiminum þar sem lögreglan er
beðin um upplýsingár um Daniel
Goodwin.
Þess má geta, að það tók
Daniel, sem var klæddur i búning
teiknimyndahetjunnar Kóngu-
lóarmannsins, sjö klukkustundir
að klifra upp Sear bygginguna,
sem er 440 metra há. Við klifið
notaði hann kaðal og haka.
broddaskó og sogskálar.
Tlu ára
drengs
saknað
I Atianta
Lögreglan i Atlanta leitar enn
tiu ára gamals blökkudrengs,
sem hvarf að heiman i septem-
ber. Núer taliðnæsta vistað hann
sé 29. fórnarlamb morðingjanna i
Atlanta i Bandarikjunum.
Ronald Crawford, 22 ára gam-
all, kom inn á lögreglustöð i At-
lanta i gær, þegar hann frétti, að
lögreglan væri að leita að sér.
Ronald hafði farið að heiman 18.
mai og óttast var að hann hefði
verið myrtur.
Kveiktu í
fangelsinu
Mikil ólæti urðu i fangelsinu i
Michigan i Bandarikjunum i gær,
en þar blossuðu einnig upp óeirðir
fyrir fjórum dögum.
1 gær kveiktu fangar i fjórum
svefnálmum fangelsisins auk
matsalar og voru 25 manns fluttir
á sjúkrahús, vegna meiösla, þar
af fimm verðir. Rúman klukku-
tima tók að slökkva eldinn.
1 fangelsinu i Michigan eru
5.300 fangar, og er þetta eitt
stærsta fangelsi veraldar. Um
eitt þúsund fangar tóku þátt i
óeirðunum i gær.
Eftir að eldur hafði verið
slökktur, kom aftur til átaka,
þegar um tvö hundruð fangar
neituðu að fara inn i klefa sina.
Stálu ein-
gdngu lásum
Brotist var inn i verslun i New
York um helgina og stolið þaðan
vörum að andvirði 300 þúsunda
dollara, sem samsvarar 2,1 mill-
jón króna.
Þetta þætti að öðru jöfnu ekki
fréttnæmt, ef ekki væri vegna
þess að þjófarnir stálu eingöngu
lásum, þjófalásum og dyrakeðj-
um. Það var Arrow-lásafyrirtæk-
ið, sem fékk þessa heimsókn, en
þjófarnir komust inn um þakið.
Donna búin að
missa örina
NU er hdn Donna, anda-
mamman, sem Vfsir sagöi frá I
gær, laus viö örina sem hún hefur
mátt burðast með I rúman
mánuð. Dýraverndunarmenn
náðu Donnu og fjarlægðu ör sem
stóð f gegnum háls hennar. Þeir
hreinsuðu sárið og taliö er aö önd-
in sé Ur allri hættu.
Enn hrakar
Wyszynski
Heilsu Stefans Wyszynski
kardinála, æðsta yfirmanns ka-
þólsku kirkjunnar i Póllandi,
hrakar enn og eru læknar alvar-
lega hræddir um lif hans.
Talsmenn kirkjunnar sögðu i
morgun, að óvist væri að hinn 79
ára gamli kardináli myndi lifa
daginn á enda.
Wyszynski kardináli hefur ver-
ið yfirmaður kaþólsku kirkjunnar
iPóllandi i meira en þrjá áratugi
og er afar vinsæll meðal lands-
manna sinna. Páfinn hringdi til
hans i fyrradag og ræddu þessir
tveir pólsku kirkjuhöfðingjar
saman úr sjúkrabeðum sinum i
fimm minútur.
Wyzsynski kardináli er nú mjög
þungt haldinn og er talið vafa-
samt að hann lifi daginn af.
Forseti Bólivíu
lætur af embætti
- en velur sjállur eftirmann sinnl
Forseti Bóliviu, Luis Garcia
Meza, hershöfðingi, sagðist i gær
ætla að segja af sér forsetaem-
bættinu og velja nýjan forseta 17.
júli.
Tilkynning hans kom nokkuð á
óvart, þó hún kæmi i kjölfar mis-
heppnaðrar byltingartilraunar
Emilio Lanza, undirforingja.
Gracia Meza hershöfðingi sagði
ekki hvers vegna hann segði af
sér. Hann sagði þó, að með bylt-
ingu hersins i fyrra hefði ætlunin
veriö að endurskipuleggja þjóð-
félagskerfið og fyrstu skrefin i þá
átt hefðu verið stigin. Þvi væri
rétt að nýir menn kæmust til
valda og ætlaði hann ásamt
samstarfsmönnum sinum að til-
kynna val á nýjum forseta 17. júli,
en þá er árs afmæli byltingarinn-
ar. Nýr forseti á að taka við völd-
um 6. ágúst.
Emilio Lanza og aðrir foringjar
byltingartilraunarinnar eru i
sendiráði Vatikansins i La Paz og
hafa sótt um að komast úr landi.
Hua Kou Feng, formaöur kinverska kommúnistaflokksins.
Lætur Hua Kuo
Feng af embætfi?
- Hu vaobang tallnn llklegur eHirmaður
Allir h'kur eru nú taldar á þvi,
að Hua Kuo Feng, formaöur kin-
verska kommúnistaflokksins, láti
af embætti eftir miðstjórnarfund
flciíksins i júni.
Hua hefur verið heldur valda-
litill að undanförnu eða frá upp-
gjörinu við fjórmenningaklikuna
og Mao formann , en valdamesti
maður landsins er nú talinn Teng
Hsiao Ping.
Það er einmitt mikill stuðn-
ingsmaður Tengs, Hu Yaobang,
sem er liklegur eftirmaður Hua.
en Hua hefur mjög gagnrýnt
margar gerðir Maó formanns
siðustu valdaár hans.