Vísir - 27.05.1981, Side 10
Tf SCVISTf
10
Hrúturinn.
21. mars-20. april:
Gefftu þér góðan tima til að athuga aiia
möguleika vel áður en þtí ræður þig I nýja
Nautið,
21. apríi-21. mai:
Láttu ekki tilfinningar ráða ferðinni I
vinnunni i dag, þvi það gæti komið þér I
koll.
Tviburarnir,
22. mai-21. júni:
Gakktu úr skugga um að þú hafir fengið
nægar uppiýsingar áður en þú úttalar þig
um ákveðið mál.
Krabbinn,
22. júni-23. júli:
Einhverjir smáerfiðleikar valda þvi að þú
verður að leggja óvenjuhart að þér í dag.
I.jónið.
24. júli-2:i. agúst:
Reyndu að koma einhverjum af hug-
myndum þinum á framfæri við rétta aðila
i úag.
Mevjan.
24. ágúst-2:t. sept:
Láttu ekki smávægiiegar tafir setja þig út
af laginu. Einhver góður vinur kemur þér
á óvart i dag.
Vogin,
24. sept.-22. nóv:
Segöu það sem þér finnst um ákveðiö
málefni. Þaö er alltaf betra að koma til
dyranna eins og maöur er klæddur.
Drekinn
24. okt.—22. nóv.
Fjármáiin standa vel þessa dagana, en
það er ekki þar með sagt að þú getir farið
að eyða að vild.
Bogm aðurinn,
22. nóv.-21.
Láttu ekki aðra hafa áhrif á skoðanir þin-
a. bú ert fulifær um að dæma sjálfur.
Steingeilin,
22. des.-20. jan:
Gakktu úr skugga um að þú hafir ekki
móðgað náinn vin þinn áður en það er um
seinan.
Vatnsberinn,
21. jan.-l9. feb:
Vertu ekki of ráðrikur I dag. Stundum get-
ur verið gott aö hlusta á það sem aörir
hafa uin málin að segja.
Fiskarnir,
20. feb.-20. mars:
Láttu ekki gulliö tækifæri renna þér úr
greipum . dag. En til þess þarftu aö vera
vel vakandi.
VISIR
Miðvikudagur 27. mai, 1981
Þessir
fyrrverandi
féiagar
Tarsans voru
lika fangar
eðlu
mannanna.
Miðvikudagur 27. mai, 1981
VfSIR
■ n
I Sveinn Eg/isson hf.
Skeifan17. Sími 85100
Hermann Þórisson og eiginkona
hans, Rannveig Sigurðardóttir
Kermann Þórisson
ver doktorsritgerð
f Gautaborg í dag
i dag ver Hermann Þórisson
doktorsritgerð við Gautaborgar-
háskóla. Ritgerð Hermanns er á
sviöi iikindafræði og heitir „The
Coupling of Regenerative
Processes”. i ritgerðinni beitir
hann nýiegri likindafræðilegri
tækni við rannsókn á
„Regenertive Processes”, sem er
mjög mikiivæg tegund iikinda-
fræði (Stochastic Processes).
Niðurstöður Hermanns hafa
hagnýtt gildi m.a. i „Questing
Theory”, en hún er grundvöllur
ýmissa likana við rannsóknir og
áætlanir varðandi birgðastreymi,
samgöngur og aðra þjónustu.
Hermann er fæddur 1. október
1952, sonur Bjargar Hermanns-
dóttur og Þóris Bergssonar,
tryggingastærðfræðings. Hann
tók stúdentspróf frá Menntaskól-
anum i Reykjavik vorið 1972 og
fil. cand. próf frá Gautaborgar-
háskóla 1975. Siðustu árin hefur
hann samhliða námi og rann-
sóknum kennt við þann háskóla.
Kona Hermanns er Rannveig
Sigurðardótir, sem lauk fil. cand.
prófi I nútimasögu frá Gauta-
borgarháskóla nú i vetur.
Nýja Grensássund-
laugin lokheld í júni
Við Grensásdeild Borgarspital-
ans eru framkvæmdir á endur-
hæfingarlaug i gangi en þær hóf-
ust i ágúst i fyrra.
„Reiknað er með að þessum
fyrri áfanga ljúki næsta haust
þannig að byggingin verði fokheld
og með gleri i júniogað lokið verði
við frágang lóðarinnar 1. októ-
ber” sagði Ásgeir B. Ellertsson
yfirlæknir deildarinnar er
blaðamaður Visis spurðist fyrir
um framkvæmd laugarinnar.
„Sigurður og Július” verktakar
sjá um fyrri áfangann en verið er
að ljúka hönnun á siðari áfanga
og fer það eftir fjármagni hvenær
hægt verður að. bjóða hann út.
„Vonir standa til að siðara útboð
geti orðið um næstu áramót og þá
ætti byggingin að komast i gagnið
seinni hluta næsta árs” sagði
Asgeir.
Aðstaða fyrir endurhæfingar-
sjúklinga mun stórbatna með til-
komu laugarinnar þvi lömun-
arsjúklingar eiga miklu auðveld-
ara með að hreyfa sig i vatni en i
andrúmsloftinu. Oft getur sjúkl-
ingur sem getur ekki eða litt
hreyft sig i andrúmslofti náð upp
hrfeyfigetu i vatni, vegna þess
hversju hann léttist mikið og
vegna stuðnings vatnsins við
likamann, og þá þjálfað vöðva
sem ella yrðu ónothæfir. Að mati
Asgeirs er meðferðarlaug þvi
bráðnauðsynlegur þáttur i endur-
hæfingu og taldi hann að æskilegt
hefði verið að hefja þessa fram-
kvæmd fyrr en það væri alltaf
spurning um peninga. Einnig eru
endurhæfingalækningar tiltölu-
lega ný grein þannig að margir
hafa e.t.v. ekki gert sér grein fyr-
ir gildi þeirra.
„1 framtiðinni.þegar laugin
kemur i gagnið, viljum við að hún
verði nýtt fyrir sjúklinga deildar-
innar, göngudeildarsjúklinga svo
og sjúklinga annarra sjúkrahúsa
sem þyrftu á meðferð i laug að
halda, þvi hún verður þá eina
laugin fyrir sjúkrahúsin hér i
Reykjavik”, sagði Asgeir enn-
fremur.
Hönnuðir sundlaugarinnar eru
Þorvaldur Kristmundsson og
Magnús Guðmundsson.
Yfirumsjón með byggingarfram-
kvæmdum hefur Skúli Guð-
mundsson forstöðumaður fram-
kvæmdanefndar innkaupastofn-
unar rikisins.
—HPH.
Unnið er af kappi við að byggja þak yfir sundiaugina.
(Visism. EÞS)
Átta góðar óstœður fyrir
kaupum ó Ford Taunus
l.Tvö börn og sex töskur geta verið
nægar ástæður til kaupa á rúm-
góðum f jölskyldubíl eins og Ford
Taunus. Það vita þeir sem f.ara í
langferðir með fjölskylduna og
þann farangur sem henni fylgir.
En það eru að minnsta kosti 7 aðr-
ar góðar ástæður fyrir kaupum á
Ford Taunus:
2. Sparneytni: á 80 km hraða eyðir
Ford Taunus með 1600 vél að-
eins 7,1 I. pr. 100 km.
3. Þrautreyndar vélar 1600 cc 4ra
strokka og 2000 cc 6 strokka.
4. öryggi: Sterkbyggð yfirbygg-
ing, diskahemlar, einstaklega
nákvæmt og létt stýri.
5. Þægindi: Lúxus innrétting, tau-
áklæði á sætum, aflmikil mið-
stöð, mjúk en sterkbyggð f jöðrun.
6. Þjónusta: Ford viðgerða- og
varahlutaþjónusta um allt land.
7. Úrval gerða og búnaðar: 1600
GL 2000 GHIA, 1600 GL station,
2000 GL station. Sjálfskiptingar,
vökvastýri.
8. Verð: Ford Taunus kostar kr.
106.000,00 (1600 GL) Eins og
verðið ber með sér höfum við
fengið ríf legan afslátt frá verk-
smiðjunum.