Vísir - 27.05.1981, Síða 12
12
vísm
Miðvikudagur 27. mai, 1981
Hin langþráða sæla að flatmaga I Spánarsólinni i sumarfriinu getur stundum orðið blendin hjá þeim
ferðalöngum sem moskitoflugan angrar. En þá er að finna einhver ráö til aö snúa á fiugurnar og njóta
sumarleyfisins óbitinn. __ _ .
Ein i vanda slodd:
„Orðin eins og gatasigti
eftir 14 daga á Spáni”
- Lellar nú ráða við llugnaöilum
„A hverjum einasta morgni var
ég komin með nýtt bit og eftir 14
daga dvöl var ég orðin eins og
gatasigti, öll i stungum, rauð og
bólgin” segir ein i vanda er ritaði
okkur bréf nýlega.
Bréfritari segir okkur sólar-
sögu af ferð til Costa del Sol fyrir
tveimur árum, sem hafi verið
dýrðleg ferö sem þó hafi haft sina
skuggahlið, sem fylgdi heimsókn
móskitóflugna. Lýsingin hér að
ofan á við afleiðingar þeirra
heimsókna. Nú er „ein i vanda” á
leið til Spánar öðru sinni og vill
gjarnan forðast það að verða eins
og gatasigti eftir bit móskitó-
flugna og leitar ráða hjá okkur.
Við leituðum til húðsjúkdóma-
sérfræðings, lyfjafræðinga og
fleiri fræðinga og vonum að eftir-
farandi upplýsingar komi bréf-
ritaranum og fleiri sólarlandaför-
um að gagni.
Fjórar spurningar eru i bréfinu
og sú fyrsta er:
Er til krem sem heldur
móskitóflugum frá á nóttunni?
Þvi er svarað játandi. í lyfja-
verslunum fæst smyrsl er nefnist
FLYGPEL, sem á að hindra
flugurnar frá að bita. Gamalt
húsráð var mikið notað hér i eina
tið til að verjast mýbiti af öllum
gerðum og flokkum en það var að
bera á sig sitrónuoliu. Látum við
það flakka með ef einhver hefur
undir höndum góða sitrónuoliu,
annars er að fara i næstu lyfja-
verslun og kaupa Flygpel og
stinga i handfarangurinn.
Lyktin fælir flugurnar
frá
Næst er spurt hvort eitthvert
gagn sé af B-vitamini og hvort
óhætt sc að gefa börnum það?
Sérfræðingarnir sem við höfö-
um samband við töldu allir að svo
væri, gott væri að taka inn B-vita-
min áður en lagt væri af stað i
ferðina og eins meðan á dvöl
stæði. Litlar gular B-vitamin töfl-
ur væri gott að láta i glugga á
vistarverunum og eins á nátt-
borðið. Lyktin af vitamintöflum
fælir flugurnar frá.
B-vitamin er óhætt að gefa
börnum, en hvað sterkar, fer eftir
aldri barnanna.
Hvað er best að bera á bitið til
aö forðast að illt komist i það er
ennfremur spurt?
Ofnæmisáburðir hvers konar
koma að gagni. Einn lyfja-
fræðingur benti okkur á mjög gott
krem er heitir METYRAMINI,
dregur það úr bólgu og sviða eftir
móskitóbit. Og forðar frá frekari
slæmsku.
Fjórða og siðasta spurningin er
hvort móskitófiugan skilji eftir
egg i fólki um leið og hún bitur og
eggin klekist út undir bitinu?
Þessu er svarað neitandi.
Móskitóflugurnar virðast fara i
manngreiningarálit i heimsókn-
um sinum, en eftir hverju þær
fara er litið vitað. Virðist ekki
skipta þær máli hvort fólk er ljós-
hært eða dökkhært, rikt eða fá-
tækt, eða i einhverjum úrvals-
blóðflokki. Þær einfaldlega gera
mannamun eftir einhverjum
óskýranlegum reglum sem rikja
þeirra á meðal en eru mönnum
ókunnar. En þá er til ráða að snúa
á flugurnar með ráðum mann-
anna.
Bréfritari góður, við þökkum
þér bréfið og óskum þér góðrar
ferðar til Costa del Sol, með ráö
fræðinganna okkar i handraðan-
Garöar Ólafsson úrsmiður nemur hér hina flóknu tækni quartsúra, sem m.a. mæla timann, gefa aövör-
un og spila lög. Visism.Þ.L.
Námskelð I meðferð quartsúra
„Þetta er fyrsta námskeiðiö,
sem haldið er á Islandi i meöferö
quartsúra”, sagði Frank Úlfar
Michelsen úrsmiöameistari i við-
tali viö blaöamann Visis. Frank
Olfar og faðir hans Franch
Michelsen hafa báðir fengið þjálf-
un i meöferö og viðgerð á quarts-
úrum erlendis. Töldu þeir feðgar
að nauðsynlega þyrfti að þjálfa
islenska úrsmiði i viðgerðum á
slikum úrum en allkostnaöar-
samt er fyrir úrsmiði að sækja
þjálfunarnámskeið erlendis. Þvi
fengu þeir svissneskan sérfræð-
ing R. Waslshli frá ESA verk-
smiöjunum hingað til lands. Sá
hélt námskeið fyrir 18 islenska
úrsmiöi í Iönskólanum i Reykja-
vik i siðustu viku.
„Quartsúrin eru byggð á allt
annarri tækni en fyrirrennari
þeirra mekanisku úrin” sagði
Frank úlfar „en þessi úr komu
fyrst á markaðinn 1968 og það
voru Svisslendingar sem voru
fyrstir að framleiða þau. Hér á
landi vantaði undirstöðuþjálfun
almennt i meðferö og viðgerð
þessara úra enda var námskeiðið
velsótt og velþegið af úrsmiðum
aö sækja þekkingu i smiðju
svissneska sérfræðingsins”. —ÞG
íeldhúsinu
■ ■■ M m ai ■■ wm wm wm tm ■■ •* bi wm n ■■ wm wm w ■§ ■■ ■■ ■■ ■■ ■■ ^ ■■ m ■■ wm wm wm ■■ h ■■ ■§ M M H ■■ ■§ ■■ ■■ M B H M ■§ ■
Frá Teigagerðl
til Gautaborgar
lá lelð Gunnars Sigvaidasonar
ylirkokks á Hótel Evrópa
Eldhúsmálin eru okkur nokk-
uð hugleikin eins og vera ber á
stóru heimili. Nýlega barst okk-
ur grein úr sænska blaöinu GT
frá 15. mai si. og þar segir frá
yfirmatreiðslumanni á Hótel
Evrópa i Gautaborg. Það sem
er i frásögur færandi varðandi
greinina og kokkinn er að hann
er islenskur og heitir Gunnar
Sigvaldason.
Sagt er frá uppvaxtarárum
Gunnars i Reykjavik og að hann
hafi byrjað sina eldamennsku
hjá móður sinni heima á Teiga-
gerði. i sjö manna fjölskyldu,
sem Gunnar er alinn upp i, hafi
hann snemma komist að raun
um að allir þyrftu að hjálpa til á
heimilinu og til þess'að sleppa
við uppvaskið hafi hann aðstoð-
að við eldamennskuna. Þar með
var hornsteinninn lagður að
framtiðarstarfinu og eftir m.a.
fjögurra ára starf á Hótel
d’Angleterre i Kaupmannahöfn
er hann orðinn yfirkokkur á
hinu virta Hótei Evrópa i
Gautaborg. Fram kemur i
spjalli við Gunnar að verðbólg-
an á isiandi hafi átt þátt i þvi að
hann flutti til Svíþjóðar með
fjöiskyldu sina. Annars er aðal-
umræðuefnið i greininni Is-
lenskur matur og þar sagt frá
sviðum hákarli og skyri. Siðan
gefur Gunnar Sigvaldason upp-
skriftir af þriréttuðum veislu-
mat vikunnar og þar er islenskt
hráefni t.d. lambakjötið i há-
vegum haft og mælt með þvi
sem besta lambakjöti i heimi. t
forrétt notar hann lúðu og kenn-
ir réttinn við götuna heima —
Teigagerði. Uppskriftin er i eld-
húsinu okkar i dag.
— ÞG
Yfirkokkurinn á Hótel Evrópa I Gautaborg Gunnar Sigvaldason
matbyr m.a. islenskt lambakjöt og fiskrétti fyrir Svfa.
Teigagerðis smálúða
Fyrir fjóra
320 g smálúða
1 sitróna
1 lárviöarlauf
1/2 laukur
salt, hvitur pipar
Sósa:
1/2 dl majones
3/4 dl sýrður rjómi
örl. vökvi úr spergladós
1 tsk sinnepsduft
dill
svartur pipar, malaður
Til skreytingar:
Salatblöð
4 sperglar, helst langir grænir
nokkrar rækjur
Skerið fiskinn i fjórar sneiðar og
setjið hann i pott. Heliið yfir ör-
litlu vatni. Sneiðið laukinn niður
og setjið I pottinn, og lárviðar-
laufið, hvit piparkorn, salt og
eina msk. sítrónusafa. Sjóðið
siðan fiskinn augnablik eða þar
til hann er orðinn hvitur og
gegnumsoðinn og látiö hann
kólna i soðinu i pottinum.
1 sósuna blöndum við saman
majonesi og sýrðum rjóma,
setjum örlitinn safa úr spergla-
dós í, en varlega og gætum þess
að sósan verði ekki of þunn.
Bragðbætum sósuna með
sinnepsdufti hökkuðu dilli og
nýmöluðum svörtum pipar.
Setjum siðan fiskstykkin á
salatblöðin. Heilum sósu yfir
fiskstykkin. Setjum 1 spergii á
hvert fiskstykki og nokkrar
rækjur þar ofaná. Skreytum
ennfrekar hvert stykki með
sitrónusneiðum og tómatbátum.