Vísir - 27.05.1981, Síða 13
Miðvikudagur 27. mai, 1981
vtsm
Maurice D. Allison og Jóhannes Pálsson.
AlDJóöleg sýnlng uppflnnlngamanna:
JÚHANNES PÁLSSON
HLAUT VHURKENN-
INGU I NEW YORK
Á dögunum var haldin alþjóð-
leg sýning uppfinningamanna á
Statler Hilton hótelinu hér i New
York og var íslendingurinn, Jó-
hannes Pálsson, einn af u.þ.b. 150
hugvitsinönnum, sem mættu þar
til leiks hvaðanæva úr heiminum.
Var hann einn fárra, sem viður-
kenningu hlutu á sýningunni. Jó-
hannes sýndi fjórar smiðar sinar,
tvö meðalaglös með öryggislok-
um, rafkapal til að tengja raf-
hlöður í bilum og loks útiljósa-
samstæður af nýrri og frumlegri
gerð.
Strax á fyrsta degi kom einn
stórtækasti dreifingaraðili
Bandarikjanna, Maurice D. Alli-
son frá Ohio, að borði Jóhannesar
og falaðist eftir meðalaglösunum
sem umboðsmaður. Var Allison
með fagra leðurtösku fulla af
mismunandi meðalaglösum til
samanburðar og fór ekki dult með
áhuga sinn á nýjungum upp-
finningamannsins varðandi glös-
in. Jóhannes fór sér ekki óðslega
og var það ekki fyrr en á siðasta
sýningardegi, að með þeim tókust
munnlegir samningar um málin
og þá eftir að Allison hafði tekið
að sér að koma öllum uppfinning-
um Jóhannesar á framfæri.
Var mikil ös við borð
Islendingsins alla sýningardag-
ana og föluðust margir eftir að
gerast umboðsmenn hans i henni
stóru veröld.
Var þetta fyrsta ferð Jóhannes-
ar til Bandarikjanna og á svona
sýningu. Verður ekki annað sagt
en stórhugur hans sé aðdáunar-
verður og i takt við hugmyndir
hans og sköpunargetu.
Margt var þarna fróðlegt og
skemmtilegt að sjá á sýningunni
en fátt eins gagnlegt enda margir
með leikföng og annað léttmeti á
borðum sinum. Auk uppfinninga
Jóhannesar vakti nýr vökva-
þrýsti-stóll fyrir lamaða einna
mesta athygli, en með honum
geta orkuheftir farið sjálfir i bað
án nokkurrar aðstoðar.
—Hrafn Pálsson.
Visir náði tali af Jóhannesi
Pálssyni og spurðist fyrir um á-
rangur þessarar sýningar. Jó-
hannes kvaðst nú biða eftir form-
legum tilboðum austan hafs og
vestan og ekki væri ástæða til að
fjölyrða um þessi mál fyrr en þau
tilboð lægju fyrir.
BAHAMAFLUGI
HÆTT AÐ SINNI
Flugleiðir hafa hætt fiugrekstri
á flugleiðum Air Bahama, dóttur-
fyrirtækis þeirra, frá 24. mai til
14. júni. Þá verður tekin ákvörðun
um það hvort arðbært geti verið
reka flugfélagið.
Ástæðan fyrir taprekstrinum
hingað til hefur verið mikið fram-
boð af ódýrum ferðum hjá öðrum
flugfélögum frá Evrópu til
Florida, sterk staða Bandarikja-
dollars, og eldsneytisskatturinn á
Bahamaeyjum, sem, að sögn
Flugleiða, er mun hærri en á
samkeppnisstaðnum Florida.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða sagði i samtali við Visi i
gær að ef Bahamamenn yfirtaka
flugfélagið, Air ^Bahama, þá
myndu Flugleiðaveiar og áhafnir
áfram verða notaðar. Nú er ekki
ljóst hvort um nokkurt áframhald
á fluginu frá Evrópu til Bahama
verður að ræða. G.
Hafnarijörður:
KIWANISMENN MEÐ
ALDRAOA í FERD
Kiwanisfélagar i Eldborg i
Hafnarfirði munu fara sina
árlegu skemmtiferð með aldraða
borgara, uppstigningardag,
fimmtudaginn 28. mai.
Lagt verður af stað frá tþrótta-
húsinu við Strandgötu klukkan
13.30.
Að þessu sinni verður ekið um
höfuðborgarsvæðið og skoðað
næsta nágrenni Hafnarfjarðar.
Meðal annars verður komið við á
Bessastöðum. Siðan verður hald-
ið til Reykjavikur um Garðabæ og
Kópavog. Xð verður i Reykjavik
áður en haldið verður til baka i
Fjörðinn.
Eldborgarfélagar vonast til
þessað sjá sem flesta i ferðaskapi
þann 28. mai 1981.
Teppi
Vegna mjög
hagkvæmra innkaupa bjóðum
við næstu daga nokkrar nýjar gerðir
af gólfteppum á ÓTRÚLEGA hagstæðu verði.
Verð frá kr. 75 á ferm.
Og bjóðum ekki aðeins lágt verð, heldur einnig ótrúlega hagstæða greiðsluskil-
mála, allt niður í 20% útborgun og lánstíma alltað9 mánuðum.
Opið:
föstudaga kl. 9—19
laugardaga kl. 9-ia Jón Loftsson hf_
JOJJijj
UUU3J
-Ji JU I ) i í
L-L.Jll I iTTIlíll LÍ
Hringbraut 121. Simar 10600 og 28603.
Eldhúsvaskar
____í 30 ár
afmælistilboð
í meira en 30 ár, hefur Ofna-
smiðjan framleitt eldhús-
vaska fyrir islensk heimili
og bjóðum við af þvi tilefni
afslátt á tvöíöldum vaski,
tegund D-72
25. maí — 5. júní
meðan birgðir endast.
Verð kr.
725.-
Póstsendum
um land allt
Merkið sem tryggir gæðin
HF. OFNASMIDJAN
Háteigsvegi 7, sími 91-21220
Tegund D-72
Tæknilegar uppíýsingar
Efni: Þýskt gæðastál 18/8
efnisþykkt 0,9 mm
Stærð: Utanmál 73x39 cm
dýpt: ca 14,5 cm.
— Handhæg laus rist i skolskál.
— Yfirfall og öryggiskantur
tvöfalt öryggi
— Vatnslásar og tengi fylgja