Vísir - 27.05.1981, Síða 14
14
áJí7] SAMTÖK ÁHUGAFÓLKS
DnLL^LLi UM ÁFENGISVANDAMÁLIÐ
Orðsending frá S-A-A
Þessa dagana er verið að innheimta félags-
gjöld Samtaka áhugafólks um áfengisvanda-
málið.
Ennfremur hafa verið sendir út gfróseðlar til
fjölmargra félagsmanna vegna félagsgjald-
anna.
Félagsmenn S.Á.Á. eru vinsamlega beðnir um
að greiða félagsgjaldið sem fyrst, minnugir
þess að framlag hvers félagsmanns er afar
þýðingarmikið.
Lágmúla 9 — Sími 82399
* Snekkjan *
Opið til klukkan 03,00
Halldór Árni í diskótekinu
* SNEKKJA^
61
Smurbrauðstofan
BJORIMIISilNl
Njálsgötu 49 — Simi 15105
Framhaldsnám að loknum grunnskóla
Athygli er vakin á að umsóknarfresti um inngöngu á ýmsar
námsbrautir á framhaldsskólastigi iýkur 5. júni, og nemendur
sem siðar sækja geta ekki vænst skólavistar. Tilskilin um-
sóknareyöublöð fást í þeim grunnskólum, sem brautskrá nem-
endur úr 9. bekk, og i viökomandi framhaldsskólum. Leiðbein-
ingar um hvert senda skuli umsóknir eru á umsóknareyðu-
blöðunum. Bent skal á, að i Reykjavfk verður tekið á móti um-
sóknum f Miðbæjarskólanum 1. og 2. júni kl. 9-18 báða dagana og
jafnframt veittar upplýsingar um framhaldsskóla.
Menntamálaráðuneytiö
25. mai 1981.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 28., 30. og 32. tbl. Lögbirtingablaðs
1981 á hluta i Efstasundi 79, þingl. eign Guðmundar B.
Guðmundssonar fer fram eftir kröfu Haraldar Blöndal
hdl. og Jóns Ólafssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudag 29.
mai 1981 kl. 11.15.
Borgarfógetaembæltið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 28., 30. og 32. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á
hluta I Langholtsvegi 176, þingl. eign Blaðturnsins h.f. fer
fram eftir kröfu Péturs Axels Jónssonar hdl., Steingrims
Eirikssonar hdl. og Arna Gr. Finnssonar hrl. á eigninni
sjálfri föstudag 29. mai 1981 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 128., 30. og 32. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á
hluta I Bollagötu 10, þingl. eign Guömundar Björnssonar
o.fl. fer fram eftir kröfu Sparisj. Rvikur og nágr. og Veð-
deildar Landsbankans á eigninni sjálfri föstudag 29. mai
1981 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjatik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 129., 31. og 33. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á
Dugguvogi 8 þingl. eign Vogafells h.f. fer fram eftir kröfu
Gjaldheimtunnar I Reykjavik á eigninni sjálfri föstudag
29. mai 1981 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið I Reykja vik.
VÍSIR
r -------
Miðvikudagur 27. mai, 1981
n
Guðmundur Blarnason, 5. plngmaður Norðlendlnga
eystrl í bingloK:
„Þungt að Koma fram
ýmsum sínum áhuga-
málum í hinginu”
„Alplngl má mjög gæta sln, ðví auðvilað ræður ðað
mikiu um slærð kerflslns og samselningu”
Loksins eftir þinglausnir náð-
um við tali af Guðmundi
Bjarnasyni, 5. þingmanni
Norðurlandskjördæmis eystra,
þegar hann var kominn heim til
sin i Keflavik. Við báðum hann
að lita nokkur augnablik yfir
farinn veg og reynslu sina af
þingstörfum og viðureign við
kerfið.
,,Þingið er þungt”
„Það tala margir um að þing-
ið sé þungt og ég get tekið undir
það að verulegu marki. Það er
þungt að koma fram sinum á-
hugamálum, að minsta kosti ef
við tölum um að leggja þau
beint fyrir i þinginu. Að sjálf-
sögðu fer mikið af störfum
stjórnarþingmanna i að styðja
við mál, sem stjórnin er með á
hverjum tima, og vissulega geta
einstakir þingmenn þá komið að
sinum sjónarmiðum. En i
stjórnarsamvinnu vill þó oft
verða svo að það sem maður
vildi helst og myndi sjálfur
leggja til við aðrar aðstæður,
fær þennan samningablæ. Þetta
er eðlilegt, en á sama tima geta
þingmenn stjórnarandstöðu
verið persónulegri i málatil-
búnaði og málflutningi.
Hvorir okkar hafa svo meiri
áhrif er annar handleggur.
En þingstörfin mótast ó-
neitanlega yfirgnæfandi af
frumvörpum og tillögum ráð-
herra og stjórnar.”
Ein deild eða tvær?
Hvaðum form þingsins? ,,Já,
það hefur verið talað um, hvort
það ætti að starfa I tveim deild-
um eins og nú eða einni. Ég hef
setið I Efri deild þessi tvö þing,
sem ég hef verið á Alþingi, og
mér finnst okkur hafa unnist
betur en þeim i Neðri deild, við
erum færri og umræður eru
styttri og jafnvel markvissari”,
sagði Guömundur, ,,ég óttast að
ef við værum I einni deild yrði af
þvi mikið málþóf og það tæki
bara enn lengri tima að afgreiða
mál en nú i tveim deildum, þótt
mönnúm þyki af þvi nokkur tvi-
verknaður. Hann er raunar ekki
eins mikill og af er látið, sér-
staklega vegna samvinnu
nefnda um flest stærri mál.
Þó er þetta svo sem ekki full-
mótun skoðun min um að þing-
iðeigi að vera i tveim deildum.”
Eðlilegir toppar
Við spurðum Guðmund um
stóru sveiflurnar i þinghaldinu.
„Mönnum finnst þetta undar-
legt, að þessar gifurlegu annir
skuli alltaf koma upp fyrir jól og
i þinglok. Ég hef velt þessu fyrir
mér og þetta er auðvitað það
sama og viðast hvar i verkefn-
um manna. Við getum sem
dæmi nefnt húsbyggjandann,
sem er að ljúka sinu verki og
flytjast inn, að hjá honum verða
siðustu handtökin alltaf nokkuð
drjúgogþað er eins og það vilji
alltaf safnast svona toppar,
þegar verið er að reka enda-
hnútinn á verkið, þótt menn telji
sig hafa verið að vinna vel.”
Þingið og kerfið
Um afdrif þingmála i kerfinu
sagði Guðmundur m.a.: „Það
vill oft verða svo með stærri
þingmál, að þegar að fram-
kvæmdinni kemur má finna á
þeim ýmsa galla, sem laga
verður, eins og reyndin varð t.d.
með skattamálin siðast. Og eins
get ég nefnt lögin um húsnæðis-
málakerfið, sem ég tel þurfa
endurskoðunar við, sérstaklega
i þvi að brúa verulega það mikla
bil sem varð á milli almennra
húsbyggjenda og þeirra sem
falla inn i verkamannabústaða-
kerfið.
Auðvitað má finna ýmsa galla
á framkvæmdavaldinu, en i
grundvallaratriðum held ég að
það standi sig ekki verr en við er
að búast. Alþingi má hins vegar
mjög gæta sin, þvi vitanlega
ræður það miklu um stærð
kerfisins og samsetningu. Það
er að likindum fyrst og fremst á
okkar valdi hvernig fram-
kvæmdum laga og reglna er
háttað og hvað i það er lagt.”
Vegaáætlun og orku-
mál
Að lokum báðum við
Guðmund að nefna einhver af
sérstökum áhugamálum sinum
á þingi I vetur. „Þau voru nú
ýmis, en ég nefni langtimaáætl-
un i vegagerð, sem ég tel eitt
mesta þjóðþrifamál fólksins i
landinu, einnig margvisleg
félagsmál, lifeyrisréttindi,
málefni aldraðra og fatlaðra og
öryrkja. Og ekki má gleyma
orkumálunum, sem snerta okk-
ur i minu kjördæmi alveg sér-
staklega með tilliti til atvinnu-
horfanna um alla næstu fram-
tið.”
Guðmundur Bjarnason i sæti sinu i Efri deild, greiðir atkvæði og
ræðir við starfsmann þingsins. (Visismynd: EÞS)
Enn eln gjölin frá Llonsmönnum:
Tækiasamstæða á skurðstofu
Háls- nef- og eyrnadeild
Borgarspitalans var nýlega af-
hent enn ein gjöfin frá Lions-
hreyfingunni, þar sem um var að
ræða tækjasamstæðu til skurð-
stofu fyrir háls-, nef- og eyrna-
lækningar. Heildarkostnaður
þessara tækja er um 1 milljón
króna, en raunkostnaður var
helmingi lægri eftir að tollar og
önnur gjöld af þessum búnaði,
höföu verið gefin eftir.
öll meiriháttar tæki sem deild-
inni hafa borist eru frá Lions-
mönnum. Má þar nefna smásjá
sem gerir unnt að gera heyrnar-
bætandi skuröaðgeröir hérlendis,
tæki til rannsókna á svima- og
jafnvægissjúkdómum, og tækja-
samstæðu til rannsókna á heyrn
þeirra sem af einhverjum ástæö-
um eiga erfitt með að tjá sig við
heyrnarrannsóknir. Eimskipa
félag Islands gaf kostnað við
flutning á hinum nýju tækjum til
landsins. —AS
Sunnlenskip SjálfstæOlsmenn
Dínga um s veitar st jór n ar mál
Sjálfstæðismenn á Suðurlandi
efna til ráöstefnu um helgina,
sem fjallar um sveitarstjórnar-
mál. Hefst hún i Verkalýðshúsinu
á Hellu á laugardaginn kl. 13:30.
Fjallað veröur um samskipti
sveitarstjórnarmanna i kjör-
dæminu, gjaldstefnu þeirra og
samskipti við alþingismenn.
Frummælendur verða Sigurður
Jónsson, Helgi tvarsson, Steinþór
Gestsson, Guömundur Karlsson
og Eggert Haukdal.