Vísir - 27.05.1981, Síða 16
16 VISIH Miðvikudagur 27. mai, 1981
Hvað segja beir um úrslit skoðanakönnunar Vfsis?
Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Visis sem birtist í blaðinu í gær, voru 63.6% þeirra 700 manna er náðist til á þeirri skoðun að fleiri aðilar en ríkisútvarpið ættu að hafa útvarpsrekstur með höndum. 28/8% töldu að einungis Rkikisútvarpið ætti að hafa rekstur þennan með höndum, 6.7% voru óákveðnir og 0.9% neituðu að svara. Þótt niðurstaðan úr öllum kjördæmum væri sú að meirihlutinn vildi fleiri valkosti en Rfkisút- varpið er Ijóst af niðurstöðunum að fbúar Reykjavíkur og á Reykjanesi hafa af- dráttarlausasta skoðun í þessu máli. Vísir leitaði álits nokkurra manna á niðurstöðun- urn, en allir hafa þeir áður tjáð sig opinber- lega um útvarpsmálefni.
„Gæti orðið til ðess
að bæta Ríkisútvarpið
- pví samkeppni veitir aðtiald”
segir Friðrik Sophusson
• f
„Ég fagna þessari niðurstöðu,
sem er mikill stuðningur við óskir
um frjálst Utvarp, sem fram hafa
komið að undanförnu”, sagði
Friðrik Sophusson,
alþingismaöur, i samtali við Visi.
,,Ég vilhins vegar undirstrika,
að þótt slik Utvarpsstöð yrði að
veruleika, þa er hún ekki sett til
höfuðs rikisútvarpinu. Þvert á
móti gætihUn orðið til að efla það
og bæta, þvi samkeppni veitir
aðhald”, sagði Friðrik.
— Verður „frjálst Utvarp”,
útvarp fjármagnsins?
„Nei, það tel ég af og frá, og
gæti haldið langan fyrirlestur til
að sýna fram á það. Slik hefur
heldur ekki orðið reynsla þeirra
þjóöa, sem reynt hafa frjálsan
útvarpsrekstur. Það er til að
mynda margfalt dýrara að gefa
út dagblað, heldur en aö reka
útvarpsstöð. Þrátt fyrir það gef-
um við Ut 5 dagblöð,” sagði Frið-
rik.
— Hefur frjálst útvarp stuöning
á Alþingi?
,,Ég held að það sé vaxandi
áhugi fyrir þvf meöal þingmanna,
að breyta lögum, þannig að endir
verði bundinn á algera einokun
RikisUtvarpsins á Utvarp-
rekstri”, sagði Friðrik Sophusson
i lok samtalsins.
—GS.
fP
Friðrik Sophusson.
SEXTÍU OG FJÖGUR
PRÖSENT AHÆGOUR
segir Magnús Axeisson formaður samtaka
um frjálsan útvarpsrekstur
„Ég er 64% ánægður”, sagði
MagnUs Axelsson, formaður
Samtaka um frjálsan Utvarps-
rekstur, er hann hafði séð Urslit
skoðanakannanar Visis, þar sem i
ljós kemur að 64% aðspurðra eru
fylgjandi þvi að einokun RikisUt-
varpsins verði aflétt.
„Mér finnst könnunin benda til
þess að starf samtakanna sé i
þágu mikils hluta neytenda. Þá er
allrar athygli vert hve fáir eru
óákveðnir, eða neita að svara, svo
freistandi er að trUa þvi að könn-
unin sé marktæk. Spurningin er
vel oröuð, og i anda okkur stefnu,
sem felst i þvi að fá viðurkenndan
rétt til að fá að reka óháð Ut-
varp, en ekki að rikisUtvarpið
verði lagt niður, og ekki að þvi
þrengt að nu öðru leyti en þvi sem
af eðlilegri samkeppni leiðir.
Breiddin i fylgjendahópnum,
bað er að segja i öllum landshlut-
um og aldurshópum, bendir til
þess að það starf sem við erum nú
að hefja sé löngu oröið tlmabært.
Starfið framundan, núna, felst i
þvi að koma upp félagsdeildum
úti um landið og koma þeim
geysimiklu upplýsingum, sem við
höfum safnað um efnið i eitthvert
form svo við getum sent það fél-
agsmönnum. Einnig stefnum við
að þvi að fá viðtöl við alþingis-
menn i sumar, og við stefnumað
þvi að nýta sumarið eins og við
getum”, sagði MagnUs.
Þó.G.
Frjálst útvarp veröur
útvarp fjármagnsins
- segir Árni Gunnarsson alpingismaður
„Ég tel að sú krafa um frjálst
útvarp, sem fram kemur i niður-
stöðunni Ur þessari skoðanakönn-
un Vísis, sé tilkomin vegna þess
að RikisUtvarpið okkar er
staðnað, það hefur ekki getað
svarað kröfum timans, mest
vegna fjársveltis”, sagði Arni
Gunnarson, alþingismaður, i
samtali við Visi.
„Ég er svolitið ihaldssamur i
þessum efnum”, sagði Arni.
„Ég hef stundum sagt, að svo-
nefnt „frjálst útvarp”, verði
útvarp fjármagnsins. Þetta byggi
ég á reynslu minni frá Bandarikj-
unum.Verði fjársta-kum aðilum
gefinn kostur á að reka Utvarps-
stöövar, hvort heldur það eru
heildsalar, trUarsöfnuðir eða ein-
hverjir aðrir, þá eru þeir komnir
með i hendurnar sterkasta
áróðursmiðil hérlendis.
RikisUtvarpið hefur ekki haldið
taktivið timann, mest vegna fjár-
sveltis. Ef þvi yrði gert fært að
f 9
Arni Gunnarsson.
bæta við rás með léttu efni og
komaá fót landshlutastöðvum,þá
hjaðna kröfurnar um frjálsar Ut-
varpsstöðvar. Slikar kröfur jafn-
gilda nefnilega kröfum um meira
af léttmeti i dagskránni”, sagði
Arni Gunnarsson.
—GS.
99
Magnús Axelsson.
óttast ekki samkeppni
við aðra íjölmíöla”
- segír Hörður Vilhjálmsson settur útvarpsstjóri
„Ég er ekki neinn
ofstækismaður á þessum sviðum
en hér eru nU ekki nema 225 þUs-
und manns sem byggja þetta
erfiða land til útvarpsreksturs og
ég held að einkarekið Utvarp
myndi m jög seint þjóna öðrum en
fáum þéttbýlissvæðum”, sagði
Hörður Vilhjálmsson settur Ut-
varpsstjóri, er Visir leitaði álits
hans á niðurstöðum skoðunar-
könnunar Visis á afstöðu til
útvarpsreksturs.
Hörður benti á að nýjungagirni
væri alltaf til staðar hjá fólki og
bæri niðurstaðan merki þess.
Hann taldi varasamt að þessi
fámenna þjóð dreifði kriítum
sinum og fjármagni of mikið, og
KAUPIÐ HAGKVÆMT - SPARIÐ FJÁRIVUJNI - KÁUPIÐ HÁGKVÆMT
Verktakar — Húsaframleiðendur
Timbursalar — Trésmíðaverkstæði
ATHUGIÐ
Beinn innflutningur á timbri og timburefnisvörum, frá okkar
erlendu umboðum hefur sparað kaupendum stórfé á
undanförnum árum
TIL AFGREIÐSLU MEÐ STUTTUM FYRIRVARA
Ýmsar tegundir harðviðs - límtré - Douglas-Fir (Oregon-pine)
— smíðaviður (fura) — útiviður — sperruefni — uppistöður — ti búnar
sperrur — (eftir teikningum) og fleira: Spónaplötur — Vatnsþolnar
spónaplötur — Plasthúðaðar spónaplötur — Krossviður, sléttur/rásaður
og fl. Spónn: Orginal spónn — Lamel spónn. Allflestar tegundir og þykktir
LEITIÐ VERÐTILBOÐA
LÁNAKJÖR
Dsitjaínan
(The lce-star. compony)
REYKJAVlK - ICELAND ,
IÐNVAL
Bygglngaþjónusta
BOLHOLT 4 — REYKJAVlK
Slmar: 83155 - 83354 — Posl Box: 6190
KAUPIÐ HAGKVÆMT - SPARIÐ FJARMUNI - KAUPIÐ HAGKVÆMT
Hörður Vilhjálmsson.
bentiá að reynslan frá ítaliu væri
okkur til viðvörunar „þar sem
einkarekstur útvarpsstöðva
leiddi til öngþveitis”. Hörður var
þá spurður um reynslu Breta af
einkareknum útvarpsstöðvum,
þar sem reynslan virðist vera
önnur en á Italiu, en hann sagðist
diki þekkja það dæmi nægilega
til þess að vilja fullyrða nokkuð
um það.
Hörður sagði að undirtektir
fólks úti á landsbyggðinni sýndu
að „þjónustuhlutverk rikisút-
varpsins væri þar nokkurs met-
ið”.
„Ég óttast ekki mjög um hlut
rikisútvarpsins i samkeppni við
aöra fjölmiðla og þar með útvarp
i einkarekstri. Stjórnvöld mega
þó ekki hefta „sina” stofnun en
veita öðrum sérstaklega fjár-
hagslegt frelsi um fram þaö sem
rikisutvarpið nýtur, eins og verið
hefur I reynd undanfarin ár”,
sagði Hörður.
— Væri rikisútvarpinu ekki
hollt af samkeppninni?
„Það tel ég á margan hátt. Það
er þó ljóst að þá yröi harðari
baráttan um auglýsingatekjur og
ég sé ekki annað en þær sem
megnið af rekstrarfé til einkarek-
inna stööva, nema eitthvað annað
komi til’..
„Ég vil þó itreka að ég tel það
einmitt hlutverk rikisútvarpsins
hér að vera sem allra frjálsast og
að main sem eitthvert erindi eiga
viö þjóðina, eigi þar óheftan
aðgang að. En vonandi leiðir
þróunin okkur á skynsamlega
braut i þessu”, sagöi Höröur Vil-
hjálmsson. —AS.