Vísir - 27.05.1981, Blaðsíða 18
18
vism
Miðvikudagur 27. mai, 1981
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Innritun fer fram i Miðbæjarskólanum i
Reykjavik 1. og 2. júni kl. 9.00-18.00 og i
Iðnskólanum á Skólavörðuholti dagana 3.-
5. júni kl. 13.00-18.00.
Póstlagðar umsóknir sendist i siðasta lagi
5. júni. Umsóknum fylgi prófskirteini.
1. Samningsbundið iðnnám
Nemendur sýni námssamning
í. Verknámsdeildir.
1. og2. bekkur Framhaldsdeildir
Bókiðnadeild Offsetiðnir Prentiðnir Bókband
Fataiðnadeild Kjólasaumur Klæðaskurður
Hársnyrtideild Hárgreiðsla Hárskurður
Málmiðnadeild Bifvélavirkjun Bifreiðasmiði Rennismiði Vélvirkjun
Rafiðnadeild Rafvélavirkjun Rafvirkjun Útvarpsvirkjun Skrifvélavirkjun
Tréiðnadeild Húsasmiði Húsgagnasmiði
3. Tækniteiknun 4. Meistaranám byggingarmanna.
Húsasmiði, múrun og pipulögn.
5. Fornám
Endurtökupróf og námskeið til
undirbúnings þeim verða haldin i
júni. Innritun og upplýsingar i skrif-
stofu skólans.
Þórsgata
Baldursgata
Freyjugata
Njálsgata
Laugarneshverfi
Hrísateigur
Laugarnesvegur
Skipholt
Hjálmholt
Bolholt
Skipholt
Afleysingar 15/6-15/7
Vesturgata
Nýlendugata
Vesturgata
Tryggvagata
Skólaslit 1981 - Skólasiit 1981
Flensftorgarskóll:
Brautskráðir
65 stúdentar
Flensborgarskóla var slitið
laugardaginn 23. mai og braut-
skráðir 65 stúdentar og 3
nemendur meö almennu versl-
unarprófi. Jafnbestum árangri
náði tna Gisladóttir en hún út-
skrifaðist af náttúrufræðibraut.
Þá færði Friðþjófur
Jóhannesson fulltrúi gagnfræð-
inga 1931 skólanum bókargjöf til
minningar um séra Þorvald
Jakobsson, sem var islensku-
kennari skólans um árabil. Á
skólaslitunum voru viðstödd tvö
barnabörn séra Þorvaldar,
Vigdis Finnbogadóttir forseti
Islands og Kristján Búason
dósent.
Mennlaskólinn vlð Hamrahllð:
BRAUTSKRAfilR 224 STODENTAR
Við skólaslit Menntaskólans i
Hamrahlið siðastliðinn laug-
ardag brautskráðust 143
stúdentar úr dagskóla og öld-
ungadeild, og hafa þá á námsár-
inu brautskráðst 224 stúdentar
frá skólanum.
Við skólaslitin frumflutti Kór
Menntaskólans viö Hamrahliö
verk eftir Jón Nordal viö gamla
islenska heilræðavisu. Tiu ára
stúdentar gáfu við þetta tæki-
færi þrjár myndir eftir Ragn-
heiði Jónsdóttur, og nemendur
öldungadeildar færðu skólanum
peningagjöf til að hefja
framkvæmdir við lyftu fyrir
fatlaða i skólahúsinu.
Með þessum skólaslitum lauk
fimmtánda starfsári skólans.
—AS.
Fjðlbrautaskólinn í Breiðhoitl:
Nemendafjöldinn hefur sjöfalúast
Skólaslit Fjölbrautaskólans i
Breiðholti voru i Bústaðakirkju
um siðustu helgi. 163 nemendur
fengu profskirteini i hendur, þar
af fengu 71 stúdentsprófs-
skirteini. 47 nemendur luku
prófi á þriggja ára námsþraut-
um, sjúkraliðar og iönnemar. 39
luku prófi á tveggja ára náms-
brautum og 10 luku prófi á eins
árs námsbrautum.
Fjölbrautaskólinn i Breiöholti
hóf starfsemi sina fyrir sex ár-
um og voru þá 220 nemendur
skráðir i hann, en nú er nem-
endafjöldinn 1421 og hefur þvi
nær sjöfaldast á sex árum. 127
kennarar starfa við skólann,
þar af 60 stundakennarar.
—AS.
Stýrímannaskólinn:
Þrjár stúlkur f
hópl nemenda
Er stýrimannaskólanum i
Reykjavik var slitið siðastliðinn
föstudag, kom fram að Jónas
Sigurðsson skólastjóri, mun láta
af störfum við byrjun næsta
skólaárs, sökum aldurs.
t skólanum voru, þegar mest
var, 150 nemendur þar af 3
stúlkur. Auk þess starfaði deild
á tsafirði, i sambandi við Iðn-
skólann þar, en þar voru 8
nemendur.
Alls útskrifuðust úr fyrsta
stigi 62 nemendur, úr öðru stigi
48, og úr þriðja stigi 33. Efstur á
prófi 3, stigs, sem gefur próf til
stjórnunar farskips, var Páll
Ægir Pétursson, 9.87 og hlaut
hann verðlaunabikar
Eimskipafélagsis, farmanna-
bikarinn. Þórður Karlsson varð
efstur á öðru stigi 9.71, og fékk
hann bikar öldunnar, öldubik-
arinn. Annað stig gefur skip-
stjóraréttindi á fiskiskipi.
Athygli vekur að i skólanum
voru i vetur 3 stúlkur, en áður
hefur aðens ein gengið i gegn-
um Stýrimannaskólann. Að
sögn Jónasar Sigurðssonar
hefur þeim öllum gengið vel.
Þó. G.
Sjötíu og einn stúdent brautskráðust frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti að þessu sinni, og hafa þá alls
100 nemendur fengið stúdentsprófskírteinið f hendur frá skóianum á þessu skólaári. (Vísism. EÞS.).
Jónas Sigurðsson lætur senn af
skólastjórn Stýrimannaskólans
fyrir aldurs sakir.
Kvennaskólanum slltlð
Nýlega voru skólaslit við
Kvennaskólann í Reykjavik. t
vetur voru 173 nemendur á
uppeidissviði, en 66 nemendur á
grunnskólastigi.en það er sið-
asti árgangurinn á þvi stigi.
Bestum árangri á grunn-
skólastigi náðu Ingveldur Jóns-
dóttir 9.17 og Kolbrún Sigurðar-
dóttir 9.00. Þréttán nemendur
hlutu bókstafinn A i öllum
greinum samræmdra prófa. A
uppeldissviði náði Elva Björt
Pálsdóttir bestum árangri.
Við skólauppsögn voru
Kvennaskólanum færðar góðar
gjafir og heillaóskir. Þakkaði
skólastjóri afmælisárgöngum
tryggð þeirra, sem veitti bæði
kennurum og nemendum upp-
örvun.
Skólastjóri Kvennaskólans er
Guðrún P. Helgadóttir.
Skólasllt 1981 - Skólaslit 1981