Vísir - 27.05.1981, Page 23
Menntun á háu plani
Þegar viö hugsum um frasðslu-
mál á Bretlandi kemur okkur
fyrst i hug háskólarnir Oxford og
Cambridge svo og mennta-
skólarnirEton og Harrow. Ýmsir
aðrir möguleikar eru þó opnir i
breska menntakerfinu, — til
dæmis geta menn gengið i skóla
til að læra að ganga á stultum.
Joe Long, „stultusérfræðing-
ur”, hefur nýlega sett á stofn
skdla fyrir þá sem áhuga hafa á
að nema þessa listgrein og hann
þarf svo sannarlega ekki að
kvarta yfir námsleiða nemenda
sinna. Hann hefur nú um 40
nemendur og færri komast að en
vilja og er biðlistinn orðinn býsna
langur að sögn heimilda. Hér er
aðallega um að ræða unglinga en
þó má finna nemendur allt niður i
fimm ára aldur. Meðfylgjandi
myndir eru af Joe og nokkrum
nemenda hans.
Ein námsgreinin I skólanum er
knattspyrna.
Kærleikssöngvarar
Fjölmiðlar i Vesturheimi hafa greint frá þvi, að miklir kagrleikar
séu nú með leikkonunni Victoriu Principal, sem menn þekkja
úr,, Dallas", og rokkstjörnunni Andy Gibb, en hann er yngsti J
bróðir þeirra frægu Gibb-bræðra úr hljómsveitinni ,,Bee i
L Gees". Þau Andy og Victoria hafa nú sungið saman Æ
h inn á hljómplötu, sem fjallar um ástina, og var Æ
A meðfylgjandi mynd tekin af þeim við Æw
upptöku plötunnar...
Skólastjórinn Joe Long ásamt nokkrum nemendum sínum.
Handboltamenn KAásamtkonum sfnum, sem eiga eflaust sinn þátt f margra ára baráttu fyrir sigri í 2.
deild og loks er X. deild staðreynd. Með þeim á myndinni er Hallgrfmur Arason og Stefán Gunnlaugsson
eigendur Smiðjunnar.
Sigurhátíð KA
— Langþráöu takmarki náö með þvi að
vinna 2. deildina og þar meö sæti i 1. deild
í vetur náðu handknattleiks-
menn KA á Akureyri þvi lang-
þráða takmarki að verða
Islandsmeistarar 2. deildar óg
vinna þar með sæti i 1. deild.
Hlutu þeir 20 stig eftir að hafa
sigrað HK i úrslitaleik með 22
mörkum gegn 20.
Þar með var langþráðu
takmarki náð þvi undanfarin 5-6
ár hefur KA verið með tærnar á
þröskuldi 1. deildar, en aldrei
náð að komast þar inn fyrir dyr,
fyrr en nú. Það var þvi ástæða
til að halda hressilega upp á
sigurinn. Stefán Gunnlaugsson
og Hallgrimur Arason i Smiðj-
unni voru á sama máli. Þeir
buðu þvi liðsmönnum og konum
þeirra i Smiðjuna til veislu, en
það hefur verið þeirra siður
þegar akureyrsk iþróttalið hafa
unnið áfangasigra.
En það verður hörð barátta i
fyrstu deild næsta vetur og KA
menn eru þegar farnirað undir-
búa sig af fullum krafti. Birgir
Björnsson veröur áfram
þjálfari. Þá er búist við að nýir
menn gangi til liðs við KA, en
ekkert er ákveðið i þeim efnum
enn. Meðfylgjandi myndir eru
teknar í veislunni i smiöjunni.
GS/Akureyri.
Guðmundur Lárusson spilaði á gitar og söng.
v.
in störf fyrir handknattleiksdeiidina, Gunnar Gfsiason fyrir að vera markakóngur KA t vetur og
Guðmundur Lárusson fyrir 10 ára leik með mfl.
Þorleifur Ananiasson er aldursforseti KA-Iiðsins, en sfkvikur á Ifn-
unni. Hann var byrjaður að leika handbolta með KA þegar yngsti
liðsm aöurinn, Jakob Jdnsson, var enn hrinandi i vöggu.
Birgir Björnsson þjálfari og Hermann Haraldsson liðsstjóri hafa
ástæðu til að vera ánægðir.