Morgunblaðið - 17.04.2004, Side 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 19
MOQTADA al-Sadr, sjítaklerkur-
inn, sem staðið hefur fyrir uppreisn
gegn bandaríska hernámsliðinu í
Írak, sagði í gær, að samningar við
það væru til einskis og kvaðst hann
tilbúinn til að deyja „píslarvættis-
dauða“. Þá sagði fulltrúi Ali al-Sist-
anis, æðstaklerks sjíta, að réðust
Bandaríkjamenn á borgirnar Najaf
og Karbala, yrði gripið til „róttækra
aðgerða“ í framhaldi af því.
„Við munum ekki leyfa hernáms-
öflunum að koma inn í Najaf,“ sagði
al-Sadr í ræðu í gær, þeirri fyrstu,
sem hann heldur í tvær vikur.
„Samningar við þau eru ekki til
neins því að þau eru staðráðin í að
halda okkur í herkví árum saman.“
Al-Sadr kvaðst vera þátttakandi í
„byltingu trúarleiðtogans Mehdi“,
12. trúarleiðtoga sjíta en á hann líta
þeir sem bjargvætt.
„Ég þrái að líða píslarvætti og
skora því á ykkur að styðja mig og
skilja, að þetta er stríð gegn sjít-
um,“ sagði al-Sadr. Hefur hann þús-
undir manna undir vopnum í Najaf
en við borgarmörkin hefur banda-
rískt herlið búið um sig og virðist
tilbúið til að leggja til atlögu.
Al-Sistani varar
Bandaríkjamenn við
Abdul Mehdi al-Karbalai, fulltrúi
al-Sistanis, æðstaklerks sjíta, sagði
í vikulegri messu í Karbala í gær,
að réðust Bandaríkjamenn á Najaf
og Karbala, tvær helgustu borgir
sjíta, myndi það hafa „mjög alvar-
legar“ afleiðingar. Borgunum mætti
líkja við rautt strik, sem ekki mætti
fara yfir. Sagði hann, að æðstaráð
sjíta hefði reynt að setja niður deil-
una milli al-Sadrs og Bandaríkja-
manna en ef blóðsúthellingar héldu
áfram, myndi það grípa til „rót-
tækra ráða“ til að verja borgirnar
tvær.
Grunnt hefur verið á því góða
með þeim al-Sistani og al-Sadr og
er þetta í fyrsta sinn sem sá fyrr-
nefndi varar Bandaríkjamenn op-
inberlega við. Jerzy Szmajdzinski,
varnarmálaráðherra Póllands, sagði
í gær á fréttamannafundi í Varsjá
með úkraínskum starfsbróður sín-
um, Evhen Marchuk, að herlið
ríkjanna í Írak væri ekki „árás-
arafl“. Hlutverk þess væri að gæta
friðar og myndi það því ekki beita
vopnum nema á það yrði ráðist.
Ekki kæmi til greina, að það tæki
þátt í beinum árásaraðgerðum í
landinu.
Al-Sadr segir samn-
inga vera til einskis
AP
Bandarískir hermenn við búðir, sem þeir hafa komið upp við Najaf. Ali al-
Sistani, æðstiklerkur sjíta, hefur nú varað þá við alvarlegum afleiðingum
þess að ráðast á borgina.
Fulltrúi al-Sistanis, æðstaklerks sjíta, varar við alvar-
legum afleiðingum þess að ráðast á Najaf og Karbala
Karbala, Varsjá. AFP.
ÓTTAST er, að dönskum kaup-
sýslumanni hafi verið rænt í
Írak en að sögn danska utan-
ríkisráðuneytisins hafa þó eng-
ir lýst ráninu á hendur sér. Tal-
ið er, að þetta geti bundið enda
á þátttöku Dana í uppbygging-
arstarfinu í Írak, um stundar-
sakir að minnsta kosti.
Danska utanríkisráðuneytið
staðfesti, að mannsins væri
saknað en á fréttavef danska
ríkisútvarpsins kom fram, að
honum hefði verið rænt á
þriðjudag í bænum Al Taji,
skammt frá Bagdad. Benti
margt til, að mannránið hefði
verið framið í auðgunarskyni
fremur en í pólitískum tilgangi.
Sagði útvarpið, að maðurinn
væri á fertugsaldri og hefði
ætlað að koma á fót skolplagna-
fyrirtæki í Basra með kunn-
ingja sínum þar.
Jann Sjursen, þingmaður
Kristilega þjóðarflokksins,
sagði að ránið gæti þýtt enda-
lokin fyrir þátttöku Dana í upp-
byggingarstarfinu í Írak. Það
væri augljóslega of hættulegt
að vera þar nú um stundir.
Samtök danskra atvinnurek-
enda hafa einnig varað alla
kaupsýslumenn við að fara til
Íraks.
Dana rænt
í Írak
Kaupmannahöfn, Basra. AP, AFP.