Morgunblaðið - 17.04.2004, Page 32
DAGLEGT LÍF
32 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ALLT FRÁ því Leifur Kolbeinsson,
eigandi og kokkur á La Primavera,
dvaldi í Kaupmannahöfn fyrir tveim-
ur árum og kynntist kokkum frá
Napólí hefur réttur sem hann lærði
af þeim verið af og til á matseðli La
Primavera. Þetta er steiktur skötu-
selur með parmesan og chili og sum-
ir gera sér margar ferðir til að
bragða aftur og aftur á þessu hnoss-
gæti.
Leifur gefur lesendum góðfúslega
uppskrift að réttinum vinsæla og
segir hann einfaldan í matreiðslu,
auk þess sem nú sé rétti tíminn til að
elda skötusel. Það sem helst þurfi að
varast er að ofelda fiskinn.
Steiktur skötuselur
með parmesan og chili
(fyrir fjóra)
720 g skötuselur, hreins-
aður og skorinn í 8 jafn-
stórar sneiðar
200 g fínt rifinn parmesan
4 lítil rauð fersk chili
örlítið hveiti
ólífuolía
sítróna
Chili hreinsað og skorið í
fína bita og blandað saman við
fínt rifinn parmesan. Fiskin-
um velt upp úr hveiti og steikt-
ur í vel heitri olíu í eina mínútu
þar til hann brúnast á báðum
hliðum, 2–3 sneiðar í einu.
Sneiðunum er því næst velt upp
úr chili- og ostablöndunni, rað-
að á ofnfast fat og bakað undir
220°C heitu grilli í ofni í 2–3 mín-
útur, þar til hjúpurinn fer að
brúnast. Fiskurinn er borinn
fram með sítrónu og ólífuolíu.
Með skötuselnum er borið
fram soðið spínat, ferskur aspas og
rósmarín- og hvítlaukskartöflur.
Rósmarín- og
hvítlaukskartöflur
1 kíló meðalstórar kartöflur
maldonsalt
svartur pipar
hvítlaukur
ferskt rósmarín
Kartöflurnar skrældar, skornar í
tvennt og settar í ofnskúffu. Þær eru
vættar með ólífuolíu og kryddaðar
vel með maldonsalti og svörtum pip-
ar. Heilir hvítlauksgeirar og ferskt
rósmarín er sett út í og ekki sparað.
Þetta er sett í 240°C heitan ofn í um
30 mín. og snúið og hrært í á 10 mín-
útna fresti.
MATUR|Uppáhaldsrétturinn er skötuselur
Hnossgæti frá Napólí
Frá Napólí til Reykjavíkur: Steiktur skötuselur með parmesan og chili.
Morgunblaðið/Ásdís
Leifur Kolbeinsson, kokkur og
eigandi La Primavera.
La Primavera
Austurstræti 9
Reykjavík
Sími: 5618555
Veffang: www.laprimavera.is
steingerdur@mbl.is
TIL ERU nokkur afbrigði af gul-
rótum og þar á meðal eru þær
sem nefndar eru „baby carrots“
upp á ensku. Þ.e. þessar litlu sætu
sem eru allar eins í laginu og e.t.v.
má kalla dverggulrætur. Þær
koma ekki alveg svona reglulegar
upp úr jörðinni, heldur er búið að
snyrta þær vandlega og setja í
neytendapakkningar. Dverggul-
rætur eru í rauninni langar og
mjóar gulrætur sem eru svo
skornar í jafnstóra bita, að því er
fram kemur á vef framleiðandans
Grimmway.
Dverggulræturnar geymast
ekki eins lengi og venjulegar gul-
rætur, heldur eru þær bestar inn-
an örfárra daga eftir að þær eru
keyptar. Afbrigðið þroskast hrað-
ar en venjulegar gulrætur og það
hefur þær afleiðingar að dverg-
gulrætur eru ekki jafnríkar af be-
takarótíni og venjulegar gulrætur.
En á móti kemur að fólk borðar
yfirleitt meira af hinum hand-
hægu, afhýddu og tilsnyrtu dverg-
gulrótum en hinum, og fær því
sinn skammt af næringarefnunum.
Í fróðleiksmola á vefútgáfu
Washington Post kemur fram að
forðast beri að geyma gulrætur
með eplum eða perum þar sem
ávextirnir mynda ákveðna loftteg-
und þegar þeir þroskast og getur
það leitt til þess að gulræturnar
verða bitrar á bragðið.
Morgunblaðið/Ásdís
Gulrætur: Vel snyrtar dverggulræt-
ur eru hollur skyndibiti.
Hollar og
handhægar
GULRÆTUR
Kringlunni, s. 588 1680
iðunn
tískuverslun
Glæsilegt
úrval
af yfirhöfnum
Fjölkerfa
DVD spilari
6.999.-
Opnunartími:
Mán-föst 11-18.30
Laugard 10-18
Sunnud 13-17
Skútuvogur 2 :: 104 Reykjavik
Sími: 522-9000 :: Fax: 522-9001
Halló Norðurlönd - vinur í vanda
Ertu að hugsa um að flytja til
annars Norðurlands?
Hefur þú siglt í strand í
kerfinu eftir flutning?
Halló Norðurlönd
er upplýsingaþjónusta
Norrænu
ráðherranefndarinnar.
Skoðaðu heimasíðuna
www.hallonorden.org,
þar finnur þú mikilvæg
netföng og símanúmer.
Skólavörðustígur 8, 101 Reykjavík - Pöntunarsími 562 2772
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s