Morgunblaðið - 17.04.2004, Page 58
ÍÞRÓTTIR
58 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞRÁTT fyrir að komast ekki í lið
Ástrala í 400 metra skriðsundi á Ól-
ympíuleikunum sem fram fara í
Aþenu í Grikklandi í sumar, er ekki
loku fyrir það skotið að heims-
meistarinn Ian Thorpe fái tækifæri
til að verja ólympíutitil sinn í grein-
inni.
Thorpe var dæmdur úr leik í 400
metra skriði á úrtökumóti í Ástr-
alíu í síðasta mánuði, en hann
komst hins vegar í ástralska liðið í
100 og 200 metra skriði. Mestu
möguleikar hans á sigri í Aþenu
eru hins vegar taldir vera í 400
metra skriðsundi – greininni sem
hann á ekki að fá að keppa í.
Craig Stevens, annar ástralskur
sundkappi, tryggði sér rétt til að
keppa í 400 metra skriðsundi á úr-
tökumótinu, en hann íhugar nú að
gefa sæti sitt eftir til Thorps þannig
að heimsmeistarinn fái tækifæri til
að synda sína uppáhalds grein.
Stevens hefur fengið umboðs-
mann til að leggjast yfir málið með
sér og ætlar að taka ákvörðun á
allra næstu dögum.
„Við skoðum málið gaumgæfi-
lega, en það getur verið að það sé
best fyrir mig að einbeita mér að
því að synda 1.500 metra skrið-
sundið,“ sagði Stevens í gær. Fari
svo að hann dragi sig úr keppninni í
400 metra skriði getur ástralska
sundsambandið tilnefnt annan
keppanda í hans stað og þá er
Thorpe nokkuð augljós kostur.
Ian Thorpe með í
400 m skriðsundi?
MARKÚS Máni Michalesson, leik-
maður Vals, gekk á fimmtudags-
kvöldið frá þriggja ára samningi
við þýska handknattleiksliðið
Düsseldorf, eftir því sem fram
kemur á heimasíðu félagsins í
gær. Þar er sagt að Markús hafi
verið óskaleikmaður Richards
Ratka, þjálfara liðsins, sem stýrir
því í efstu deild þýska handknatt-
leiksins á næstu leiktíð. „Við
verðum með öflugan skyttudúett
frá Íslandi á næstu leiktíð,“ segir
Ratka á heimasíðu Düsseldorf, en
fyrir er hjá liðinu Alexander Pet-
erson, fyrrverandi leikmaður
Gróttu/KR sem hefur leikið vel
með liðinu í vetur í 2. deildinni.
Samningur Markúsar við Düss-
eldorf tekur gildi 1. júlí sumar.
Frágengið hjá
Markúsi Mána
STEFÁN Arnaldsson og Gunnar
Viðarsson dæma í dag fyrri úrslita-
leik spænsku liðanna Valladolid og
Portland San Antonio í Evrópu-
keppni bikarhafa.
HÁKON Sigurjónsson formaður
dómaranefndar HSÍ er staddur í
Grænlandi þar sem hann er við
eftirlitsstörf í úrslitakeppni græn-
lensku deildarinnar.
Í LOKAHÓFI Íslands- og bikar-
meistaraliðs Keflavíkur í karla og
kvennaflokki í körfuknattleik í
fyrrakvöld voru Gunnar Einarsson
og Anna María Sveinsdóttir út-
nefnd bestu leikmenn ársins.
KYLFINGARNIR Nick Faldo frá
Englandi, Daninn Thomas Björn,
Ian Woosnam frá Wales og Skotinn
Colin Montgomerie verða á meðal
keppenda á Volkswagen Masters-
mótinu sem fram fer í Peking í
Kína þann 29. apríl. Þetta er í
fyrsta sinn sem Evrópumótaröðin
er með mót í Kína en keppt verður
á Pine Valley vellinum sem er lík-
legur til þess að verða keppnisvöll-
urinn á Ólympíuleiknum árið 2008,
verði golf á meðal keppnisgreina á
þeim leikum.
FALDO er í miklum ham þessa
dagana og keppir á flestum mótum
sem eru í boði þar sem hann er að
reyna að hala inn stig til þess að
verða valinn í Ryderlið Evrópu
næsta haust.
BOCHUM, lið Þórðar Guðjóns-
sonar, hefur gengið frá samningi
við slóvenska varnarmanninn
Aleksander Knavs sem leikur með
Kaiserslautern. Knavs, sem er 28
ára gamall, gerði þriggja ára samn-
ing við Bochum.
PAUL Merson sem gerði garðinn
frægan með liði Arsenal á árum áð-
ur mun stýra liði Walsall út leiktíð-
ina í ensku 2. deildinni í stað Colins
Lee sem vikið var frá störfum í
gær. Lee var í viðræðum við
Plymouth og það sættu forráða-
menn Walsall sig ekki við og viku
Lee frá störfum.
FÓLK
það þyrfti að virkja tennis betur á
landsbyggðinni og fá fleiri til að
mæta á mót sem þetta.
Eftir að venjubundinni keppnilauk var svo boðið upp á að
mæla hraða í uppgjöfum keppenda
og var mikil eftir-
vænting eftir henni –
myndaðist hópur
krakka til að æfa sig
hálftíma fyrir keppn-
ina. Öllum gafst svofæri á að taka
þátt í páskahappdrættinu og voru tíu
páskaegg í verðlaun. Herlegheitun-
um lauk svo með pitsu- og vídeó-
veislu þar sem keppendur slökuðu á
og borðuðu á sig gat eftir hörð átök.
Að þessu sinni tóku aðeins félög af
höfuðborgarsvæðinu þátt og vakti
það spurningar um tennisiðkun á
landsbyggðinni. Raj Bonifacius,
mótstjóri og tennisþjálfari, sagði að
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
Brugðið á leik á milli leikja – Heiðrún Fivelstand, Sonja Sigrún Jónsdóttir, Arney Rún Jóhann-
esdóttir, Arnar Þór Jóhannsson, Andri Yeoman og Gísli Brynjarsson.
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
Eyrún Andrésdóttir, Brimrún Óskarsdóttir, Daníel Snorri Gunn-
arsson, Ólöf Svava Magnúsdóttir og Sif Svavarsdóttir safna
boltum og gera sig klár í næsta leik.
Ljósmynd/Andri Karl
Sigurjón Eyjólfsson, Birkir Gunnarsson, Andri Rafn Yeoman og
Rafn Bonifacius hefðu getað fengið verðlaun fyrir að snæða
flestar pitsusneiðar.
Ljósmynd/Andri Karl
Mótið endaði með pitsu-
veislu og myndbandssýn-
ingu og allir skemmtu sér.
Ljósmynd/Andri KarlÞeir biðu spenntir eftir hraðamælingu.
Tennis með
páskaeggjum
og pitsum
ÁHERSLA var lögð á skemmtigildi tennis í stað venjubundins keppn-
isanda á Íslandsmótinu í tennis sem fór fram helgina 19. til 22. mars
í Sporthúsinu í Kópavogi. Börn og unglingar frá sex félögum af höf-
uðborgarsvæðinu voru skráð til keppni, alls 24 keppendur.
Andri
Karl
skrifar
Ljósmynd/Andri Karl
Rafn Kumar Bonifacius og
Óskar Bragi Guðmundsson
bíða eftir hraðamælingum.