Pressan - 24.10.1991, Síða 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 24. OKTÓBER 1991
Ráðherrabílar
Ellefu síöustu mánuöina sem Steingrímur Hermannsson gegndi embœtti forsœtisráöherra notaöi hann einkabíl sinn sem ráð-
herrabU. Var það vegna þeirrar óvissu sem ríkti með skattgreiðslur ráðherra af ráðherrabílum. Á tímabili voru Steingrími
greiddar 184.000 krónur á mánuði vegna rekstrar jeppa hans í þágu forsœtisráðuneytisins.
Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisrád-
herra, ákvað að byrja að nota eigin bifreið skömmu eftir
að skattaleg óvissa kom upp um greiðslur ráðherra af bif-
reiðahlunnindum. Steingrímur fékk greitt frá ráðuneyt-
inu fyrir eigin bíl í 11 mánuði samtals 2.020.000 krónur
eða tæplega 184.000 á mánuði. Á sama tíma var ráð-
herrabifreiðin í notkun fyrir ráðuneytið. Einnig fékk
Steingrímur greiddan reikning fyrir akstur á eigin bíl á
meðan hann notaði ráðherrabílinn, samtals 159.000
krónur vegna aksturs upp á 4.877 kílómetra. Engin nið-
urstaða hefur enn fengist í deilunni um skattgreiðslur
ráðherra vegna afnota á ráðherrabílum. Samkvæmt túlk-
un ríkisskattstjóra skulda því flestir núverandi og fyrrver-
andi ráðherrar verulegar upphæðir í skatta.
Eins og áður sagði hefur engin
niðurstaða fengist í deilu þeirri sem
Gardar Valdimarsson ríkisskattsjóri
hefur átt í við ráðherrana. í
PRElSSU-viðtali við Garðar 26. sept-
ember kom fram að hann telur að
launagreiðandi, þ.e.a.s. fjármála-
ráðuneytið, eigi að taka staðgreiðslu
af notkun ráðherra á bílunum.
„Þetta er staðgreiðsluskylt," sagði
Garðar.
Þrætan nær í raun aftur til ársbyrj-
unar 1989 þegar strangari ákvæði
um skatt af bifreiðahlunnindum
tóku gildi. Það virtist koma flatt upp
á ráðherra fyrrverandi ríkisstjórnar
þegar skattstjóri sagði að þeim bæri
að greiða skatt af afnotum ráðherra-
bílanna. Þó voru hin hertu reglu-
gerðarákvæði um skattgreiðslur af
bifreiðahlunnindum sett á með vit-
orði þeirra. Þeir virðast hins vegar
hafa litið svo á að sérstakar reglur
giltu um þá sjálfa.
STEINGRÍMUR NÆR
í JEPPANN SINN
Steingrímur Hermannsson ákvað
1. apríl 1990 að hefja notkun eigin
bifreiðar, G-1149, sem er jeppi af
gerðinni Wagoneer Limited 1987.
Notaði Steingrímur jeppann þá 11
mánuði sem hann átti eftir í sæti for-
sætisráðherra. Þá var hann seldur
en gangverðið á þessum bílum er
um tvær milljónir króna. Arftaki
Wagoneersins er Cherokee Limited
og er grunnverð 1991-árgerðarinn-
ar 3.240.000 krónur. Þar sem ráð-
herrabíll ráðuneytisins, af gerðinni
Oldsmobile, var ekki seldur rak
ráðuneytið tvo ráðherrabíla á þess-
um tíma.
í svari forsætisráðuneytisins við
fyrirspurn PRESSUNNAR kemur
fram að fyrir þessa 11 mánuði
greiddi ráðuneytið Steingrími
2.020.000 krónur vegna rekstrar
jeppans eða 184.000 krónur á mán-
uði. Sú upphæð skiptist þannig að
347.000 eru vegna bensínreikninga,
556.000 eru í viðhald og er athyglis-
vert að fyrstu 7 mánuðina þurfti að
gera við bílinn fyrir 427.000 krónur.
Þá fékk Steingrímur greiddar
868.000 krónur vegna sérstakra
fyrningarreglna sem fela í sér að
ráðherra, sem notar eigin bíl, fær
greidd 20% af verði bílsins á ári tvö
fyrstu árin en 15% eftir það. Þessi
upphæð sem Steingrímur fékk
þarna á 11 mánuðum í endurnýjun-
argreiðslu nálgast verðið á nýjum
Nissan Sunny-bíl. Endurnýjunar-
greiðslan til ráðherra er að sjálf-
sögðu því hærri sem hann á dýrari
bíl.
Undir liðnum „ýmislegt" fékk
Steingrímur greiddar 249.000 krón-
ur en eftir því sem komist verður
næst er það meðal annars vegna
trygginga.
RÁÐHERRABÍLSTJÓRINN
KEYRÐI JEPPANN
En ráðherrabifreiðin af Olds-
mobile-gerð, með einkennisstafina
R-36689, var áfram í notkun fyrir
ráðuneytið eins og kemur fram í
svari þess....notuð til að létta af
bifreið ráðherrans verkefnum og til
einstakra ferða".
Kostnaður ráðuneytisins vegna
þessarar bifreiðar var 660.000 krón-
ur, að mestu vegna bensíns og við-
halds.
Þá kemur það fram í svari ráðu-
neytisins að bílstjóri ráðuneytisins,
þ.e.a.s. bílstjóri fonsætisráðherra, ók
á jeppanum fyrir Steingrím á tíma-
bilinu sem um ræðir.
Þá er athyglisvert að Steingrímur
sendi inn reikninga í forsætisráðu-
neytið vegna nota á eigin bifreið á
tímabilinu 1. ágúst 1989 til 1. apríl
1990. Á þeim tímanotaði hann hins
vegar ráðherrabifreið sem ráðu-
neytið lagði honum til. Samtals
námu þessar greiðslur 159.000
krónum og voru allar vegna aksturs.
Reikningur frá 9. ágúst 1989 var upp
á 1.662 km og fyrir það voru Stein-
grími greiddar 44.708 krónur. 6.
september 1989 sendi hann inn
reikning vegna 1.805 km og fékk
greiddar 48.555 krónur. 2. apríl
1990 sendi hann inn reikning vegna
2.450 km og fékk greiddar 66.302
krónur. Síðasti reikningurinn er
dagsettur eftir að hann var farinn að
nota jeppann fyrir ráðuneytið
vegna þeirrar óvissu sem ríkti um
skattgreiðslur ráðherranna.
HALLDÓR ÆTLAR AÐ ÁFRÝJA
TIL RÍKISSKATTANEFNDAR
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR er nú unnið að því í fjár-
málaráðuneytinu að reyna að fá
botn í þetta mál. Er annars vegar
rætt um að breyta reglugerðinni eða
einfaldlega fá úrskurð ríkisskatta-
nefndar, sem er æðsti úrskurðarað-
ili í skattamálum. Það er sú leið sem
Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra, vill fara:
„Ég taldi á meðan ég var ráðherra
á sínum tíma að það væri gersam-
lega óviðunandi fyrir ráðherra að
starfa við einhverja óvissu í þessum
efnum. Ríkisskattstjóri taldi þessi
bílaafnot ráðherra skattskyld og
hefur margítrekað það. Fjármála-
ráðuneytið hefur ekki kveðið upp úr
um þetta mál. Ég sé enga aðra lausn
í því en að málið fari bara eðlilegar
leiðir, skattstjórar leggi á viðkom-
andi menn, og þeir þurfa þá bara að
reka mál sín fyrir ríkisskattanefnd
og dómstólum landsins. Ég kann
engar aðrar leiðir í því. Hitt er ann-
að mál að ég var ósammála ríkis-
skattstjóra á sínum tíma og er enn,“
sagði Halldór.
SKULDA MILUÓNIR í SKATTA
Eins og málið stendur í dag skulda
ráðherrarnir verulegar fjárhæðir í
skatta vegna notkunar ráðherrabif-
reiða. í síðustu ríkisstjórn notuðu þó
tveir ráðherrar eigin bíla, þau Jó-
hanna Sigurdardóttir og Olafur
Ragnar Grímsson. í fjármálaráðu-
neytinu var reyndar bíll sem Ólafur
Ragnar gat notað Hvorki hann né
Jóhanna létu ríkið greiða sér endur-
nýjunargreiðslur né rekstrarkostn-
að vegna bifreiðanna.
Ef ráðherrarnir verða rukkaðir
um þessar greiðslur yrði líklega
Halldór Ásgrimsson að greiða
hæstu upphæðina vegna þess að
hann keyrði um á dýrasta bílnum,
Benz 500 SEL, sem Albert Guö-
mundsson keypti í fjármálaráð-
herratíð sinni. Þorsteinn Ftílsson
neitaði að nota hann þegar hann
tók við fjármálaráðuneytinu en
keyrir reyndar á honum í dag sem
sjávarútvegsráðherra.
Slíkur bíll kostar um 8 milljónir í
dag og ársafnot af honum eru talin
jafngilda tekjum upp á 1,2 milljónir
króna. Tekjuskattur og útsvar af því
eru upp á 490.000 krónur eða um
40.000 krónur á mánuði. Skatta-
skuld Halldórs frá ársbyrjun 1989,
þegar óvissan kemur upp, er því um
1,1 milljón króna.
Jón Sigurösson iðnaðarráðherra
var á næstdýrasta bílnum en hann
lét ráðuneytið kaupa Range Rover
Vogue í október 1989. Bíllinn var að
sjálfsögðu keyptur í Heklu, en það-
an koma flestir ráðherrabílarnir. Þá
kostaði hann 3,3 milljónir króna,
sem stæði nálægt fjórum milljónum
í dag. Skattaskuld hans má reikna
upp á 880.000 krónur fram til ríkis-
stjórnarskiptanna í vor. Síðan hefur
hann bætt við þá skuld um 260.000
krónum.
Flestir hinna ráðherranna voru á
bílum sem jafngiltu tekjum upp á
39.000 til 55.000 krónur á mánuði.
Þeir hafa þvi safnað skattaskuld upp
á 200.000 til 250.000 krónur á ári.
Ráðherrar núverandi rikisstjórnar
hafa ekki greitt af þessum hlunnind-
um hingað til þannig að þeir hafa
einnig hlaðið upp skuld — nema að
sjálfsögðu Jóhanna, sem hefur
sama hátt og áður, og Sighvatur
Björguinsson, sem lætur ráðuneyti
sitt reka nýjan Volvó-bíl sinn eins og
Steingrímur gerði.
Sigurður Már Jónsson
t