Pressan - 31.10.1991, Blaðsíða 9

Pressan - 31.10.1991, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. OKTÓBER 1991 9 Ingjaldur Hannibalsson. Hann var forstjóri gamla Álafoss og var annar höfunda útreikninganna sem notaöir voru sem grundvöllur fyrir sameininguna. Jón Sigurðarson. Fyrir sameiningu var hann forstjóri ull- ariðnaðardeildarinnar. Hann er annar höfunda útreikn- inganna sem notaðir voru sem grundvöllur sameiningar- innar. Hann varð einnig fyrsti forstjóri hins nýja Álafoss. allir þeir sem eiga kröfur á hendur fyrirtækinu haft fyrir því að lýsa kröfum í búið. „Til hvers að lýsa kröfum? Það út- heimtir bara vinnu og peninga og það er vitað að ekkert fæst greitt. Þá er betra að tapa því sem þegar er tapað en vera að auka tapið og leið- indin með því að vera að elta þetta „kvikindi" sem Álafoss var,“ sagði lögmaður í samtali við PRESSUNA. ÁLAFOSSI GEFNAR 113 MILUÓNIR Álafoss hefur oft notið stuðnings hins opinberra, en það hefur aldeilis ekki dugað. Fyrir einu og hálfi ári beittu Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra, og Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra sér fyr- ir aðstoð til handa fyrirtækinu. Rík- isstjórn íslands samþykkti eftirtald- ar aðgerðir: Álafossi var endurgreiddur sölu- skattur, 45 milljónir króna, 10 millj- ónum var varið til „ullarátaks", 20 milijónir voru settar í markaðsátak í formi víkjandi láns, þá voru 38 millj- ónir gefnar, aftur í formi víkjandi láns, og í þetta sinn til endurskipu- lagningar á sölukerfi í Bandaríkjun- um. Þá keypti ríkissjóður eignir Ála- foss á Akureyri fyrir 75 milljónir króna. Eignirnar voru keyptar á markaðsverði. Með þessu ákvað þáverandi ríkis- stjórn að gefa Álafossi 113 milljónir króna og kaupa eignir fyrir 75 millj- ónir. Þess ber að geta að þessi fast- eignakaup voru og eru mjög vafa- söm og ljóst að ekki var verið að hugsa um hag ríkissjóðs með kaup- unum. AÐDRAGANDI AÐ STOFNUN ÁLAFOSS Það var á vordögum 1986 að fyrst var athugað með sameiningu gamla Álafoss og ullariðnaðardeildarinn- ar. Niðurstaða þess var sú að ekki væri grundvöllur til sameiningar. Það var síðan snemma árs 1987 sem Jón Sigurdarson, þáverandi framkvæmdastjóri ullariðnaðar- deildarinnar, og lngjaldur Hanni- balsson, þáverandi forstjóri gamla Álafoss, iögðu fram útreikninga um að með sameiningu gæti fengist talsverður ávinningur. Eftir það fóru sameiningarviðræður af stað og voru haldnir fjölmargir fundir árið 1987. Bandaríska ráðgjafarfyrirtækið Boston Consulting Group var fengið til að meta framtíð ullariðnaðar á ís- landi. Þá átti fyrirtækið einnig að gera tillögur um með hvaða hætti mætti treysta stöðu uljariðnaðar- deildarinnar og gamla Álafoss. Það var síðan í september sem skýrsla bandaríska ráðgjafarfyrir- tækisins var lögð fram. Niðurstöður hennar voru þessar helstar: í fyrsta lagi að ullariðnaðurinn ætti enga framtíð fyrir sér hér án verulegra skipulagsbreytinga. I öðru lagi að sameining fyrirtækjanna tveggja væri skynsamlegasta leiðin og í þriðja lagi að sameining ásamt markaðsátaki gæti tryggt framtíð ullariðnaðar á Islandi. SAMEININGIN BLASIR VIÐ Það var í framhaldi af þessu sem hjólin tóku að snúast af meiri krafti en áður. Aðeins tveimur vikum eftir að Bandaríkjamennirnir höfðu skil- að áliti sínu var haldinn fundur í Landsbankanum. Á fundinum voru fulltrúar gamla Álafoss og bankans. Af hálfu bankans mættu Helgi Bergs og Gunnlaugur Kristjánsson. Bankamönnunum var gerð grein fyrir væntanlegri sameiningu. Við sameiningu var gert ráð fyrir að eig- endur fyrirtækjanna legðu fram verulega aukið hlutafé. Lánveitend- ur þeirra höfðu, þegar hér var kom- ið, margbent á að slíkt væri nauð- syn. Það var um miðjan október 1987 að samkomulag um sameiningu var undirritað. Undirbúningsstjórn og nýr forstjóri, Jón Sigurðarson, tóku til starfa í framhaldi af því. Það var svo fyrsta desember sem stofnfundur hins nýja fyrirtækis var haldinn. í stofnsamningi er gert ráð fyrir að framlag stofnenda sé 700 milljónir króna. 500 milljónir í hlutafé og 200 milljónir í varasjóð. BÓNARFERÐ í BANKANN Hinn nýi ullarrisi var aðeins um sex vikna þegar stjórnarformaður- inn, SigurdurHelgason, og stjórnar- formaður Framkvæmdasjóðs, Þórö- urFridjónsson, gengu á fund banka- stjóra Landsbankans, þeirra Helga Bergs og Jónasar Haralz. Eftir þann fund var þess farið á leit við ríkissjóð að veitt yrði heimild til að taka 200 milljónir króna að láni erlendis og þau veð sem fyrirtækið gat boðið yrðu könnuð, og það án ábyrgðar forsvarsmanna Alafoss. Nokkrum dögum síðar hittust eft- irtaldir á fundi: Jón Sigurðsson ráð- herra, Steingrímur Hermannsson, Atli Freyr, Jónas Haralz, Björgvin Vilmundarson, Sigurður Helgason, Þórður Friðjónsson, Valur Arnþórs- son, Gylfi Þ. Gíslason og Jón Sigurð- arson. Jón Sigurðsson lagði fram til- lögu, sem kölluð var þriðjungs- lausn. Hún byggðist á því að hver aðili, þ.e. Landsbankinn, SÍS og Framkvæmdasjóður, legði fram 70 milljónir króna og Landsbankinn tæki fyrirtækið þar með í viðskipti. Þremur dögum síðar féllst banka- stjórn Landsbankans á þriðjungs- lausnina og þar með var Álafoss kominn í viðskipti við Landsbank- ann. Eftir þetta var lítið gert þar til seint um haustið árið 1988. FJÁRHAGSLEG ENDURSKIPULAGNING Haustið 1988 var hafin vinna að fjárhagslegri endurskipulagningu Álafoss. Hugmyndin var að eftir- taldir tækju þátt í verkinu: Iðnþró- unarsjóður, Iðnlánasjóður, Byggða- stofnun, Atvinnutryggingasjóður, eigendur Álafoss, sveitarfélögin og Landsbankinn. Nokkru síðar bættust eftirtaldir aðilar i hópinn sem vann að endur- skipulagningunni: Ríkissjóður, SÍS, Iðnaðarbankinn, Samvinnubank- i.nn og Samvinnulífeyrissjóðurinn. Niðurstaðan varð sú að ríkissjóð- ur gaf fyrirtækinu 113 milljónir króna, eins og getið er um fyrr í greininni, og eigendurnir yfirtóku viðskiptakröfur að fjárhæð 130 milljónir og leystu inn hlutabréf í ís- lenskum markaði, 90 milljónir. Þá var hlutafé aukið um 180 milljónir króna og Framkvæmdasjóður keypti verksmiðjuhúsið í Mosfells- bæ á 264 milljónir. Þrátt fyrir allt þetta er Álafoss gjaldþrota og það er ekkert smá- gjaldþrot; tvö þúsund og fimm hundruð milljónir króna umfram eignir. ÖLL SUND LOKAST Segja má að öll sund hafi ekki lok- ast fyrr en eftir að skipt var um ríkis- stjórn fyrrihluta síðasta sumars. Davíd Oddsson gaf í skyn fljótlega eftir að hann tók við forsætisráðu- neytinu að Álafoss gæti ekki lengur róið á mið ríkisins. Sú varð raunin og þess vegna varð stjórn fyrirtækisins að gefast upp og óska eftir gjaldþroti. Þrátt fyrir að marga hafi grunað hver staða fyrir- tækisins var áttu fæstir von á að gjaldþrotið yrði eins stórt og raun varð á. Að lokum skal minnt á að Álafoss var aðeins tæplega fjögurra ára þeg- ar reksturinn stöðvaðist. Sigurjón Magnús Egilsson * I Suðurnesjafréttum í síðustu viku er viðtal við Kristján Pétursson, sem missti móður sína og bróður í snjóflóðinu á Patreksfirði 1983. Þar kemur fram að Kristjáni finnst þeir sem eiga um sárt að binda eftir snjó- flóðið hafa verið meðhöndlaðir sem þriðja flokks fólk. Kristján er sér- staklega ósáttur við bótaþáttinn. Hann hefur nú ákveðið að leita til dómstóla í von um að fá leiðréttingu sinna mála. Kristján og fleiri hafa þegar sótt um gjafsókn hjá dóms- málaráðuneytinu ... F A lokkseigendafélag Svavars Gestssonar og félaga á enn mikil ítök í Alþýðubandalagsfélaginu i Reykjavík. Það mátti sjá á fundi fé- lagsins í siðustu viku, þar sem voru mættir 50 manns. Á fundinum voru kosnir 60 fulltrúar á landsfund, sem verð- ur haldinn síðar í þessum mánuði. 50 af þeim 60 fulltrúum sem kosnir voru tilheyra Svavarsarminum en Ólafur Ragnar Grímsson, for- maður flokksins, náði aðeins 10 full- trúum inn. Þetta er þó betri árangur hjá Ólafi en í fyrra, en þá komst eng- inn Ólafsmaður inn, ekki einu sinni Guðrún Helgadóttir þingmaður. Samt sem áður er ekki að sjá á þess- ari kosningu að mikill sáttavilji riki meðal félaga í Alþýðubandalaginu í Reykjavík um deilurnar í flokkn- um ... M lfleð auglýsingu Hollustu- verndar um starfsleyfi til handa fyr- irhugaðri fiskmjölsverksmiðju við Örfirisey, sem liggur frammi til kynningar til 25. nóvember, eru nokkur fylgiskjöl. í auglýsingunni er vísað í fimm fylgiskjöl en nú hafa þrjú þeirra verið fjarlægð. Mun það hafa verið ákvörðun stjórnar Holl- ustuverndar að gera það og var Ól- afi Péturssyni, forstöðumanni Hollustuverndar, skipað að fjar- lægja skjölin. I þessum þremur horfnu fylgiskjölum komu fram ýmsar upplýsingar sem ekki þóttu beinlínis hvetja til þess að verk- smiðjan fengi starfsleyfi. Þegar for- vitnast var um hverju þetta sætti fengust þau ein svör að í skjölunum hefðu verið „leiðandi" upplýsing- ar... Jón Sigurðsson. Hann er meðal ann- ars höfundur „þriðjungslausnarinn- ar" sem samþykkt var í februar 1988 og getið er um í greininni. Björgvin Vilmundarson. Hann er einn af bankastjórum Landsbankans sem samþykktu að taka Álafoss í við- skipti. Jónas Haralz. Hann átti einnig mik- inn þátt í viðskiptum Landsbankans og Álafoss. Davíð Oddsson. Það var fyrst og fremst hann sem ákvað að ekki vrði veitt frekari aðstoð til að halda Ala- fossi gangandi. F i-lkki liggur þeim á í HSI að til- kynna að sambandið sé hætt við að halda heimsmeistarakeppnina í handknattleik. í raun rennur frestur- inn út nú um ára- mót, því þá þurfa framkvæmdir við húsið að hefjast ef á að takast að byggja það á tilsettum tíma. Ef svo heldur fram sem horfir og HSÍ getur ekki haldið keppnina verður Jón Hjaltalín Magnússon eða eft- irmaður hans að tilkynna það á IHF- fundi sem haldinn verður í tengslum við Ólympíuleikana í Barcelóna á Spáni næsta haust. HSÍ þarf líklega ekki að greiða sektir ef formleg til- kynning kemur í tíma ...

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.