Pressan - 31.10.1991, Síða 12
12
FIMMTUDAGUR PRESSAN 31.0KTÓBER 1991
x V okkuð víst er talið að Reykja-
víkurborg taki ekki við hlutverki
Kópavogs og byggi handboltahöll
fyrir heimsmeistara-
keppnina 1995. Fyr-
ir liggur að í Reykja-
vík eru aðrar
íþróttahúsbyggingar
framar á fprgangs-
listanum. í Árbæjar-
hverfi bráðvantar
íþróttahús, bæði fyrir Árbæjarskóla
og eins fyrir Fylki. Þá eru KR-ingar
að huga að byggingu íþróttahúss.
Talsvert hefur verið rætt um hvar
KR-ingar koma niður nýju íþrótta-
húsi. Nú er mest rætt um að rífa
braggann, þ.e. gamla íþróttahúsið,
og byggja stórt íþróttahús þar sem
bragginn er nú. Ef af verður ætla
KR-ingar að byggja hús sem tekur
1.500 til 2.000 áhorfendur. Markús
Orn Antonsson og aðrir þeir sem
stjórna Reykjavíkurborg finna
þrýstinginn vegna þessara tveggja
húsa og geta varla samþykkt að
byggja stóru höllina á undan þess-
um tveimur húsum ...
jVI
1T Aikil olga er meðal foreldra við
Austurbæjarbarnaskólann vegna
skólatannlæknisins. Hefur ítrekað
verið kvartað yfir honum án þess að
skóla- eða heilbrigðisyfirvöld hafi
hreyft sig vegna þess. Er þetta tilfelli
reyndar talið dæmigert fyrir þá
óstjórn sem ríkir í skólatanniækn-
ingum ...
M
xTAiklar vangaveltur eru nú um
það hverjum er ætlað að taka að sér
að ritstýra hinu nýja dagblaði sem
hefur verið boðað.
Annars staðar í blað-
inu er þess getið að
Stefán Jón Haf-
stein sé óskamaður
sumra, en einnig
mun hafa verið rætt
við Einar Karl Haf-
aldsson, fyrrverandi ritstjóra Þjóð-
viljans og síðar ritstjóra Nordisk
Kontakt. Einar hefur ekki gefið nein
svör ennþá . . .
M
ATAisjöfn eru mannanna verk.
Þegar framkvæmdir við Horna-
fjarðarós voru boðnar út reyndist
fyrirtæki Gunnars
I. Birgissonar,
Gunnar og Guð-
mundur, vera með
lægsta tilboðið. Hag-
virki, undir stjórn
Jóhanns G. Berg-
þórssonar, gerði
hins vegar öðruvísi tilboð sem var
einhverju lægra en tilboð Gunnars
og Guðmundar. Úr varð að tilboði
Hagvirkis var tekið. Síðar kom í ljós
að ekki var hægt að vinna verkið
eins og Hagvirki ætlaði og því varð
að fara sömu leið og upphaflega
hafði verið ákveðið. Þess vegna
varð að greiða Ha gvirki sjö milljónir
króna til viðbótar. Þar með var til-
boð Hagvirkis orðið talsverðu
hærra en tilboð Gunnars og Guð-
mundar . . .
Undanfarið hefur verið nokkur
umræða í Þjóðarsálinni um málefni
Sophiu Guðrúnar Hansen og
dætra hennar, sem
er haldið úti í Tyrk-
landi. íslensk yfir-
völd virðast vera
ráðalaus, en nú er að
verða eitt og hálft ár
síðan stúlkurnar,
sem eru íslenskir
ríkisborgarar, voru fluttar úr landi.
Hvorki dómsmálaráðuneytið né ut-
anríkisráðuneytið hafa haft neina
burði til þess að hreyfa við málinu
þannig að niðurstaða fáist. Má sem
dæmi taka að sá starfsmaður utan-
ríkisráðuneytisins sem annaðist
málið í upphafi fór snemma á árinu
til starfa erlendis . . .
N
x T u um skeið hefur verið hægt
að fylgjast áskrifendasöfnun Þjóð-
viljans, þar sem tilkynnt var að tak-
markið væri að fá
2.000 áskrifendur.
Var ráðinn sérstakur
starfsmaður í átakið,
enginn annar en
Guðrún Ágústs-
dóttir borgarstjórn-
arfulltrúi. Nú er eins
og hafi fjarað undan söfnuninni síð-
an ákveðið var að stofna nýtt dag-
blað. Hins vegar er ekki vitað hvort
þeir 1.500 áskrifendursemnúþegar
hafa fengist verða framvísanlegir
inn í hið nýja blað ...
F
i_Jkkert bólar a atta manaða upp-
gjöri bæjarsjóðs Kópavogs. Fjár-
hagsáætlun bæjarins hefur heldur
ekki verið endur-
skoðuð, sem sam-
kvæmt sveitar-
stjórnarlögum ber
að gera. Þrátt fyrir
það bólar ekkert á
slíkri endurskoðun í
sveitarfélagi þeirra
Gunnars I. Birgissonar og Sig-
urðar Geirdal. . .
v
▼ erið er að leggja síðustu hönd
á Stangveiðiárbókina undir ritstjórn
Gunnars Bender og Guðmundar
Guðjónssonar. Þeir eru báðir
reyndir blaðamenn, vinna á DV og
Mogganum. Til þessa hefur Fróði
gefið bókina út en nú er það ísafold
sem sér um útgáfuna. í bókinni
verða um 150 ljósmyndir og um 500
veiðimanna er getið. Þetta er eina
bókin um þetta efni sem kemur út
fyrir þessi jól, en í fyrra voru þær
fjórar...
Viðbótarsaeti
um
ril Kanaríeyja
»íólin og í jan
á ó
trúlegu verði
Jólaferð 19. des..................................2 vikur
60 viðbótarsæti
2. janúar........................................3 vikur
38 viðbótarsæti
9. janúar 3 vikur........................uppselt
23. janúar 3 vikur..................12 sæti laus
Brottfarir í febrúar og mars.........laus sæti
*Verð innifelur flug, gistingu,
ferðir til og frá flugvelli erlendis [ t ffi U I U I & Q T S I! I U
og íslenska fararstjórn.
Ekki eru innifalin fiugvallarskattur á
íslandi og á Spáni og forfallagjald. _y*
Austurslræli IJ„ Reykfotiik, símr; (fU622 011 ttl 1100
Verð frá kr.
39.800,-
Hjón með 2 börn, 2—11 ára.
Playa Flor, 2. janúar.
Verð frá kr.
56.900,-
Hjón með 2 börn, 2—11 ára.
Playa Flor, 19. desember.
Verð frá kr.
72.200,-
Tveir í íbúð, 19. desember.