Pressan - 31.10.1991, Síða 18
18
FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. OKTÓBER 1991
JJNDIR
OXINNI
Þorsteinn
Pálsson
sjávarútvegsráðherra
— Er ekki erfitt
fyrir stjórnmálamann
sem boðar frelsi at-
vinnulífsins og sam-
keppni að setja slik
höft?
„Nei, það er ekki
verið að setja höft.
Það er verið að setja
almennar reglur sem
miða að því að ná
meiri nýtingu og
meiri gæðum. Allir
sem uppfylla þær
kröfur geta gert út
slík skip."
— Þetta er tak-
markandi frá því
ástandi sem nú er?
„Menn þurfa að
uppfylla strangari
kröfur — það er rétt.
Menn þurfa að
tryggja betri nýtingu
og meðferð afla um
borð í þessum skip-
um?
— Hefur þá veriö
brotalöm á nýtingu
skipanna hingað til?
„Að mínu mati, já."
— Finnst þér ekki
frekar hlutverk
stjórnvalda að setja
almennar leikreglur
en banna ákveðin at-
vinnutæki?
„Það er það sem
við erum að gera."
— En þarf að tak-
marka þennan hóp?
„Það þarf að setja
almennar reglur um
það hvernig farið er
með fisk um borð og
hvernig hann er nýtt-
ur.
— En má ekki
mæla gæði þessarar
starfsemi í verðmæti
afurðanna, sem hefur
verið mikið hingað
til?
„Við höfum hvar-
vetna fengið hátt
verð fyrir fiskinn.
Þetta er spurning um
að tryggja gæði og
meiri og betrí nýt-
ingu."
— Munu einhver
önnur bönn fylgja í
kjölfarið?
„Við erum að setja
almennar reglur og
það er kjarninn í
þessu, auk þess sem
aðstaðan á milli
vinnslu í landi og á
sjó er jöfnuð."
— Er krafan um
þetta komin frá þeim
sem vinna afla i
landi?
„Nei, þetta er alfar-
ið komið frá mér."
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra hefur boðað lagasetn-
ingu um aukna nýtingu frysti-
skipa, sem mun hefta fjölgun
þeirra. Þetta gerist þrátt fyrir að
þau skili mestu aflaverðmæti
fiskiskipaflotans i dag.
Sveinbjörn Björnsson háskólarektor
,,Það sem mér líkadi ekki
vid þetta blad er ad undir
dreifibréfinu stendur; rneð
bestu kveðju Hóskóli íslands.
Það hefur enginn umbod til
aö nota nafn Háskólans ann-
ar en yfirstjórn hans. Stúd-
entafélög mega ekki senda
bréfí nafni Háskólans,“ sagdi
Sveinbjörn Björnsson há-
skólarektor.
Röskva, félag félagshyggju-
fólks í Háskólanum, gaf í
sumar út blað sem dreift var
á hvert heimili í landinu. Þeg-
ar verið var að safna auglýs-
ingum í blaðið var það kynnt
sem hátíðarblað í tilefni 80
ára afmælis Háskóla íslands.
I bréfinu segir meðal ann-
ars: ,,í samráði við háskólayf-
irvöld var ákveðið að ef
hagnaður yrði af útgáfu
blaðsins mundi hann renna
óskiptur til sjóðs sem hefur
það að markmiði að bæta að-
stöðu fatlaðra námsmanna
við skólann. Umsjón með
sjóðnum hefur Háskólarekt-
or.“
Umræddur sjóður hefur
ekki verið stofnaður.
„Þetta gerðist í sumar þeg-
ar Sigmundur var rektor. Ég
hef þetta blað hér og á eftir
að spyrja forystumenn
Röskvu nánar um þetta. Ég
hef enga ástæðu til að halda
annað en þetta með sjóðinn
sé eins og það er sagt. Þetta
blað kom út seint á sumar-
mánuðum en söfnunin fór
fram eitthvað fyrr. Ef Háskól-
Sveinbjörn Björnsson háskölarektor. Hann segist þurfa að upp-
lýsa blaðaútgáfuna. Honum líkaði ekki að Röskva skyldi nota
nafn Háskólans við söfnun auglýsinga.
inn á að hafa umsjón með
sjóðum þá eru þeim settar
reglugerðir."
I bréfinu segir að háskóla-
rektor hafi umsjón með
sjóðnum.
,,Ég get ekki svarað núna
hvað þau hafa samið um við
Sigmund. Hann er í Dan-
mörku og ég get leitað eftir
upplýsingum um þetta. Ég
þarf hvort eð er að upplýsa
þetta fyrir mig,“ sagði Svein-
björn Björnsson háskólarekt-
or.
í bréfi Röskvu segir meðal
annars að blaðinu sé ætlað að
kynna Háskólann og tengja
hann betur fólkinu í landinu.
Blaðið er 24 síður og í því er
mikið af auglýsingum.
Kópavogur
Skerða akstur með fatlaða
Hrafn Sæmundsson hjá Fé-
lagsmálastofnun Kópavogs.
Hann segir ferðaþjónustuna
vera fötluðum lífsnauðsyn-
lega en því miður hafi þurft að
grípa til niðurskurðar.
Þeim íbúum í Kópavogi
sem hafa notið ferdaþjónustu
fyrir fatlada hefur verid sent
bréf þar sem tilkynnt er að
þjónustan veröi skert veru-
lega um nœstu mánaöamót.
Til þessa hefur verið hœgt að
fá ökuþjónustu alla daga til
klukkan ellefu að kvöldi og
eins um helgar. Meö breyting-
unni verður akstri hœtt
klukkan fimm á daginn og
ekkert ekið um helgar.
„Þetta kemur sér mjög illa.
Ég er til dæmis ekki búin í
skólanum fyrir en um klukk-
an sjö. Eins hef ég talað við
fleiri sem ýmist eru í skóla
eða vinnu lengur en til klukk-
an fimm á daginn. Mér brá
mjög þegar ég las bréfið frá
þeirn," sagði fötluð kona í
Kópavogi.
I bréfinu segir að þar sem
fjárveiting til þessa mála-
flokks sé búin hafi bæjaryfir-
völd ekki annað ráð en draga
úr þjónustunni. Þá segir einn-
ig í bréfinu að um næstu ára-
mót verði öll þessi þjónusta
endurskoðuð en ekki með
hvaða hætti eða til hvers.
í bréfinu, sem félagsmála-
stjórinn í Kópavogi, Aðal-
steinn Sigfússon, skrifaði
undir, stendur einnig að reynt
verði að halda uppi nauðsyn-
legustu þjónustu. í lok bréfs-
ins segir að yfirvöldum þyki
leitt að þurfa að grípa til þess-
ara aðgerða en hjá þeim
verði ekki komist.
„Okkur er skýrt uppálagt
að vera innan ramma fjár-
hagsáætlunar. Við vitum að
þessu fólki er lífsnauðsynlegt
að hafa þessa þjónustu. Við
áttum engra kosta völ,“ sagði
Hrafn Sœmundsson hjá Fé-
lagsmálastofnun Kópavogs.
Hrafn sagði að búið væri að
senda annað bréf þar sem
skýrt er tekið fram að þeir
sem þessarar þjónustu njóta
geti fengið hana eins og hing-
að til, fyrir klukkan fimm á
daginn alla virka daga.
Alls var ætlað að verja 4,1
milljón króna til þessa verks á
árinu. Þeir peningar eru bún-
ir og samningum við verk-
taka hefur verið sagt upp frá
og með næstu áramótum.
Hrafn sagðist vonast til að
þjónustan yrði komin í samt
lag aftur um áramót.
Hjálmar Helgi Ragnarsson tónskáld var kjörinn forseti Bandalags islenskra listamanna um siðustu helgi.
„Hann Hjálmar hefur dásamlega kyntöfra ekki
síður en pabbi hans, hann Ragnar á Isafirði. Og
þetta sem ég vil kalla kyntöfra speglast í list
hans (saman unnum við sem leikstjóri og tón-
skáld í Þjóðleikhúsi) og líka í hinu veraldlega
puði (sem ég þekki á tíma mínum sem forseti
BÍL og hann með mér í stjórn)," segir Brynja
Benediktsdóttir leikstjóri. „Hjálmar er mjög
sanngjarn og heiðarlegur. Hann er fluggáfaður.
Hann á ofsalega flott bindi. Hjálmar finnur mjög
gjarnan nýjan flöt á málum og er afar frumlegur
i hugsun. Hann segir brandara," segir Karólína
Eiríksdóttir tónskáld. „Hjálmar er að mínum
dómi stórbrotið tónskáld sem vill brjóta upp
gamlar hefðir. Hann er mjög Ijúfur og skemmti-
legur við samvinnu og það er mjög gaman að
vinna með honum. Sem tónskáld er hann á ein-
hvern hátt skyldur Jóni Leifs," segir Halldór
Vilhelmsson söngvari. „Hjálmar var fjörugur
og kraftmikill strákur án þess þó að vera bald-
inn. Hann tók virkan þátt í félagsstarfi og var sí-
spilandi, á kvöldvökum og samkomum eins og
í skátafélaginu, í tónlistarskólanum og víðar.
Hjálmar er bráðgáfaður og vel menntaður tón-
listarmaður og ég hef ekki starfað með
skemmtilegri kórstjóra. Hann er ákveðinn og
strangur en þó glaðiyndur. Enda er maðurinn
einstaklega geðgóðurj' segir Gunnlaugur
Jónasson, bóksali á ísafirði.
Hjálmar H. Ragnarsson
tónskáld og forseti Bandalags
íslenskra listamanna
„Hann er of almennilegur við fólk sem á
það ekki skiiið," segir Brynja Benediktsdóttir.
„Hann segir stundum vonda brandara," seg-
ir Karólina Eiriksdóttir. „Hann er nokkuð mis-
kunnarlaus við raddir (þ.e. hvernig hann
skrifar fyrir raddir). Hann er kröfuharður,
gefur ekki eftir sinn hlut og það ætti enginn
að ráðleggja honum neitt. Hann fer sínar
eigin leiðir," segir Halldór Vilhelmsson.
„Stærsti ókosturinn við Hjálmar frá mínu
sjónarhorni er hvað hann hefur starfað fá
ár hér í bænum, en úr því má bæta. Hjálmar
er ekki góður söngvari. Ég reyndi einu
sinni að láta hann syngja í kvartett en það
var vonlaust," segir Gunnlaugur Jónasson.