Pressan - 02.04.1992, Blaðsíða 42
42
FIMMTUDAGUR PRESSAN 2.APRÍL1992
smáa
letrið
Þá er hinni einu, sönnu
heimsmeistarakeppni lokiö. ís-
lendingar eru nefnilega eina
þjóöin í heiminum sem hefur
endurskoöaö stafrófið og lætur
þaö byrja á b-i. Þannig var þaö
meiriháttar sigur aö merja
Svisslendinga og fá brons í
Austurríki í annarri deild hins al-
þjóðlega handbolta. Strákarnir
okkar stóöu fyrir sínu þegar upp
var staöiö, og íþróttafréttaritar-
amir voru fljótir að éta ofan í sig
fullyröingar eins og: „Það er
greinilegt aö íslenska landsliöiö
er í öldudal hér í Austurríki" og
,And- og viljaleysi leikmanna fs-
lands var meö eindæmum. Ef
ég væri landsliðsþjálfari heföu
margir leikmenn mínir fengið
fengið farseðilinn aöeins aöra
leiöina—beint út úr landsliðinu."
En þaö er sem sagt búiö aö
telja okkur trú um aö B-keppnin
sé það sem allt snýst um. Þess
vegna verður þaö allt í lagi þótt
strákarnir okkar veröi skotnir á
bólakaf í A- keppninni. Síöustu
tvær vikur hefur ekki linnt aug-
lýsingum á myndböndum frá
slöustu B-keppni, en eins og
þjóöin veit þá unnum viö gullið
þar. En árangurinn núna er enn-
þá betri af því liðið var svo af-
spyrnuvont. Þaö þurfti alveg sér-
staka flóöhesta svo viö kæm-
umst áfram. Og auövitaö óbug-
andi bjartsýni. Geir Sveinsson,
nýi fyrirliðinn, var til dæmis alveg
ódrepandi. „Þaö er bjart fram-
undan," sagöi hann eftir tap á
móti frændum vorum Norö-
mönnum. En fyrir leikinn haföi
hann sagt: „Norömenn fá aö
glíma viö leynivopn okkar."
Leynivopnin, já. Þessi sem
viö notuöum ekki á móti Belg-
um og Hollendingum. Þá unn-
um viö risastóra sigra.
Getur verið að íslendingar
séu ekki alveg þeir allra bestu
í öllum heiminum? Ha? Sko:
Þjálfarinn okkar var upptekinn
viö aö snfkja peninga hjá fyrir-
tækjum og hafði eiginlega
engan tíma til þess aö sinna
landsliðinu. Hann þurfti aö
vera meö allan hugann viö aö
skrapa saman fyrir farseölun-
um til Austurríkis og þess
vegna gat hann lítið veriö aö
pæla í hvernig ætti að vlnna
farseðil í A-keppnina í Sví-
þjóö. Og sumir af strákunum
voru í vondum málum. Liðið
hans Júlla var til dæmis meö
alls konar skepnuskap og
heimtaði aö hann legöi sitt af
mörkum svo þaö kæmist
áfram í spænsku bikarkeppn-
inni. Og dómararnir voru
greinilega á móti Héöni Gils-
syni: Drengurinn mátti ekki
hreyfa sig án þess aö vera
dæmdur fyrir ruöning og helst
vísað út af. Svo var Kristján
Arason náttúrlega meira og
minna meiddur og einhvern
veginn náöi Valdimar Gríms-
son sér ekki á strik og af því
einhver var nýbúinn aö fjár-
festa í húsnæöi þá varö árang-
urinn verri en búist var viö.
En hvaö?
Viö náöum þeim hræðilega
árangri aö komast í A-keppn-
ina sem auðvitaö er bara ann-
ars flokks keppni, miöaö við
okkar ástkæru B-keppni. Og
íþróttafréttaritararnir okkar
féllu í sömu gryfju og franskir
blaðamenn fyrir hartnær 200
árum þegar þeir greindu frá
heimkomu Napóleons.
Svona var þetta líka í B-
keppninni. Liðiö sem allir út-
húöuöu í fyrstu snýr heim sem
(nokkurn veginn) heimsmeist-
ari í handbolta. Þeir eru bestir,
frábærastir, stórkostlegastir,
æöislegastir. Þeir eru STRÁK-
ARNIR OKKAR — alveg
þangaö til Þorbergur etur
þeim út á foraöiö í Waterloo...
Eins og fyrstu mánuðirnir eftir að þú kynn-
ist kærastanum þínum geta verið skemmti-
legir geta árin sem á eftir fylgja verið hreint
helvíti. Þótt þér sé orðið alveg sama um
manninn geturðu ekki fengið það af þér að
segja honum að fara. Ekki beint út. Það er
því auðveldast að láta hann taka það upp
hjá sjálfum sér. Og hér eru...
aðferðir til að
losna við kærastann
1.
Fáðu þér betur launaða vinnu
en hann.
2.
Kynntu hann fynr yngri syst-
ur þinni.
3.
Sofðu með græna næturmask-
ann.
4.
Segðu honum að fara með
þvottinn heim til mömmu sinn-
ar.
5.
Taktu vinkonu þína með hvert
sem þið farið; í bíó, út að
borða...
6.
Farðu út með vinkonum þín-
um minnst þrisvar í viku.
7.
Talaðu látlaust um hvað fyrr-
verandi elskhugar þínir voru
nærgætnir.
8.
Gættu þess að ísskápurinn
þinn sé alltaf tómur.
9.
Láttu þig hverfa áður en ballið
er búið.
10.
Talaðu um hvað vinir hans
hafi góðar tekjur.
11.
Sofðu í náttfötunum hans
pabba þíns og helst líka í peysu.
12.
Notaðu rakvélina hans.
13.
Fræddu hann um leyndar-
dóma tíðahringsins.
14.
Segðu skemmtisögur af hon-
um þegar þú hittir fólk.
15.
Reyndu við yfirmann hans.
16.
Fáðu bflinn hans lánaðan og
gleymdu að slökkva ljósin.
17.
Lánaðu frænda þínum frá
Súðavík veiðistöngina hans.
18.
Bjóddu mömmu þinni að búa
hjá ykkur í nokkrar vikur.
19.
Segðu að þú hafir gleymt trú-
lofunarhringnum á vaskinum hjá
vinkonu þinni kvöldið sem þú
fórst með henni út og komst ekki
heim fyrr en undir morgun.
20.
Ryksjúgðu þegar enska knatt-
spyman er í sjónvarpinu.
21.
Vertu alltaf of sein.
22.
Bannaðu honum að reykja í
rúminu.
23.
Gleymdu að árshátíðin hjá
honum, sem hann sagði þér frá
fyrir mánuði, er í kvöld og segðu
honum að þú eigir ekkert tíl að
vera í.
24.
Passaðu upp á að vinkona þín
sé alltaf á undan honum heim tíl
ykkar og fari aldrei fyrr en hann
er sofnaður. Bjóddu henni að
gista annað slagið.
25.
Taktu vasadiskóið þitt með
upp í rúm.
26.
Byrjaðu daginn á að kvarta og
haltu því áfram á meðan hann
borðar morgunmatinn.
27.
Talaðu um gjafimar sem vin-
konur þínar hafa fengið frá eig-
inmönnum sínum þegar þið eruð
komin upp í rúm.
28.
Haltu fyrirlestra um hvað all-
ur matur sem honurn þykir
vondur sé hollur. Notaðu hann í
alla rétti þegar þú eldar.
29.
Talaðu um hvað nágranni
ykkar sé duglegur í garðinum og
laginn við að dytta að ýmsum
hlutum.
30.
Passaðu fyrir systkini þín
fimm kvöld í viku.
31.
Segðu að þú getir ekki hugsað
þér að giftast eða eignast böm.
32.
Láttu taka myndir af þér með
auðkýfingi frá Texas á sundlaugabarmi
einhvers staðar við Miðjarðarhafið.
Veldu tímann rétt. Best er að gera þetta
á meðan kærastinn er að sinna skyldu-
störfum í allt annarri heimsálfu.
33.
Segðu að þig langi til að eign-
ast sjö böm.
34.
Afmáðu öll merki sem hann
setur á heimilið; taktu niður
myndimar hans, raðaðu í skáp-
ana hans eftir þínu höfði og settu
plötumar ha^nifiur í geymslu.
Opnaðu bréfin sem hann fær
og lestu dagbókina hans.
36.
Brostu til allra karlmanna sem
þið mætið á götu.
37.
Biddu hann að þvo upp áður
en þið farið saman í rúmið.
38.
Vertu í netsokkabuxum þegar
þið heimsækið ömmu hans.
39.
Hentu uppáhaldspeysunni
hans.
40.
Talaðu oft og mikið um
hversu vel kærastanum sem þú
áttir í gaggó hafi gengið í lífinu.
41.
Segðu að þú viljir fara ein í
sólarlandaferð til að hitta
skemmtilegt fólk.
42.
Hringdu í hann í vinnuna
fimm sinnum á dag og heim-
sæktu hann þangað eins oft og
þú getur.
43.
Talaðu ítölsku upp úr svefni
næst þegar ítalskt skólaskip ligg-
ur við bryggju.
44.
Skammaðu hann fyrir framan
foreldra þína.
45.
Gakktu í trúarsamtök sem
banna gemaðarvamir.
46.
Láttu krúnuraka þig.
47.
Segðu honum að það sé göm-
ul vitleysa að stœrðin skipti ekki
máli.
48.
Klagaðu í mömmu hans í
hvert skipti sem hann fær sér í
glas.
49.
Vertu sjúklega afbrýðisöm og
nfstu við hann á veitingahúsum.
50.
Segðu honum að þú sért eina
konan sem hann á séns í.
51.
Segðu honum að hann eigi
séns í allar konur.
52.
Fáðu áhuga á evrópska eíha-
hagssvæðinu og talaðu stans-
laust um það. Lika í rúminu.
53.
Borðaðu að minnsta kosti
einn hvítlauk á dag.
54.
Gakktu í Hjálpræðisherinn og
seldu Herópið á Lækjartorgi.
55.
Hringdu í yfirmann hans og
spurðu hvort kærastinn hafi
mætt fullur í vinnuna þegar hann
boðar veikindaforfoll.
56.
Segðu honum að þér finnist
mamma hans vera subba og
vondur kokkur.
57.
Segðu mömmu hans að þér
finnist hún vera subba og vondur
kokkur.
58.
Segðu honum að þú þurfir að
leita að sjálfri þér og farðu í fisk-
vinnu út á Iand í nokkrar vikur.
59.
Leggðu heimilið undir slátur-
gerð.
60.
Opnaðu þig allt í einu og
trúðu honum fyrir því að þú haf-
ir gert þér upp fullnægingu allan
tímann.